Morgunblaðið - 03.09.1985, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.09.1985, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985 Sænsku þingkosningarnar: Jafnaðarmanna- flokkurinn virð- ist halda velli Stokkhómi, SvíþjM, 2. sepL AP. Jafnaðarmannaflokkur Olof Palmcs, forsætisráðherra Svfþjóð- Flakið af Titanic fundið Parw, Z september. AP. FLAK farþegaskipsins Titanic er fundið samkvæmt tilkjnningu, sem franska hafrannsóknastofn- unin (IFREMER) gaf út í dag. Sagði þar, að fransk-bandarískur könnunarleiðangur hefði fundið flakið á 4000 metra dýpi um 900 km fyrir utan strönd Nýfundna- lands. í tilkynningunni var fullyrt, að þetta væri örugglega flakið af Titanic. Hefði tekist að sannreyna þetta með fullkomn- um og flóknum tæknibúnaði. Skipið sökk 14. apríl 1912 eftir að það hafði rekizt á borgarís- jaka. Með því fórust 1.513 manns. ar, virðist líklegur til að halda velli í þingkosningunum sem verða hinn 15. september nk., sam- kvæmt niðurstöðum skoðana- könnunar er sænska dagblaðið Dagens Nyheter gekst fyrir um helgina. Skoðanakönnunin, sem náði til 515 kjósenda, bendir til að jafnað- armenn og hinn smái kommún- istaflokkur Svíþjóðar, sem styður jafnaðarmenn á þinginu, fái sam- anlagt 49,9 prósent atkvæða, en 47 prósent komi I hlut stjórnarand- stöðunnar, sem er undir forystu hægri manna. Samkvæmt könn- uninni hlýtur jafnaðarmanna- flokkur Palmes 44,4 prósent at- kvæða, heldur minna en flokkur- inn hlaut I síðustu kosningum. Hægri flokkurinn, undir forystu Ulf Adelshon fengi hins vegar 25,2 prósent atkvæða og bætti við sig fylgi frá síðustu kosningum, en kommúnistaflokkurinn stæði I stað með 5,5 prósent atkvæða. Sovétríkin: Þekktur leikari flú- inn til Bandaríkjanna New York, 30. áffúst. AF. SOVÉSKUR kvikmyndaleikari, Oleg Vidov, hefur beðið um pólitískt hæli í Bandaríkjunum og er nú á leið til vesturstrandarinnar í leit að atvinnu, að sögn talsmanns alþjóðlegu hjálparstofnunar flóttamanna í Bandaríkjunum. Leikarinn hafði samband við væri ekki ólíklegt að hann reyndi stofnunina í gær, en hann hafði áð- ur fengið vegabréfsáritun sem flóttamaður hjá sendiráði Banda- ríkjanna í Róm. Talsmaður hjálp- arstofnunarinnar sagði að Vidov væri þekktur í Sovétríkjunum fyrir leik sinn i kvikmyndum og þar sem hann væri á leið til Kaliforníu, að halda áfram á sömu braut þar. Vidov er sagður njóta mestra vin- scalda hjá yngri kynslóðinni í Sov- étríkjunum og hefur leikið í fjölda kvikmynda og komið oft fram í skemmtiþáttum sovéska sjónvarps- ins. Sautján morð á Græn- landi á síðasta ári Nnuk, 2. æptember. Frá frétUriUra Morgun blnðsins, NJ. Bruun. NYLEGA er komin út skýrsla yfir afbrot í Færeyjum og Grænlandi á síðasta ári. Þar kemur fram, að af- brot eru fimm sinnum tíðari á Græn- landi en í Færeyjum. íbúafjöldinn er þó mjög svipaður. f Færeyjum búa rúmlega 45.000 manns, en á Græn- landi eru íbúarnir um 52.000. Sautján morð voru framin á Grænlandi á síðasta ári, en þar við bætast 29 morðtilraunir. I Fær- eyjum var hins vegar einn maður drepinn í fyrra. Alls fékk lögreglan á Grænlandi til meðferðar 6.456 hegningarlaga- brot á síðasta ári. í Færeyjum voru þau 1.358. Fangar verjast handtöku á þaki fangelsisins í Spike-eyju eftir að þeir gerðu uppreisn á sunnudag. AP/simamynd Fangauppreisnin í Spike-eyju: Afsagnar dómsmálaráð- herra írlands krafist ('ork, írlandi, 2. september. AP. FANGAVÖRÐUM fangelsisins á Spike-eyju á írlandi hefur nú tekist að bæla niður uppreisnina sem fangarnir efndu til á sunnudag með þeim afleiðingum að þriðjungur fangelsisins var lagður í rúst. 120 fangar voru í fangelsinu, en eftir rósturnar eru aðeins fimmtíu fangaklefar nothæfir. Eru því hafnir flutningar á föngum til annarra fangelsa á írlandi. Uppreisnin hófst snemma sunnudags, er um 70 fangar, sumir vopnaðir hökum og heykvíslum, brutu sér leið út úr svefnskálum fangelsisins. Fangarnir sátu um þá sex fangaverði sem voru á vakt, kveiktu í byggingum og rifu aðrar niður. Helstu skemmdarverkunum linnti fjórum tímum síðar, þegar lið lögreglu og hermanna kom á vettvang til að bæla niður ham- farir fanganna. Aftur á móti höfðu um 40 fang- ar komið sér fyrir uppi á húsþaki og gátu varist handtöku fram á nótt. Uppþotið hefur vakið miklar deilur á írlandi. Formaður stétt- arfélags fangelsisstarfsmanna sagði að starfsmenn væru of fáir í fangelsinu og fangar of margir. Patrick McAvoy, ritari félags- ins, sagði að uppþotið hefði verið fyrirsjáanlegt. A Spike-eyju væru hvorki aðstæður, mannafli eða peningar til að halda uppi vörslu á slíkum rummungum sem eru á eyjunni. Tom Hoare, formaður stéttarfé- lags fangelsisstarfsmanna, fór í dag fram á afsögn Michaels Noon- ans, dómsmálaráðherra, og benti á að hann hefði átt fund með ráð- herranum í síðustu viku til að Stjúpsonur Sakharovs enn í hungurverkfalli — óttast að Sakharov sé látinn Wishington, Bnndaríkjunum, 2. sept- ember. AP. STJÚPSONUR andófsmannsins Andrei Sakharov óttast að sovésk yflr- völd haldi dauða Sakharovs leyndum og heldur áfram liungurverkfalli er hann hóf á laugardag til að þrýsta á sovésk stjómvöld að þau leyfi honum að sjá foreldra sína. „Eg er hreint örvinglaður yflr aðstæðum foreldra minna og krefst þess að fá að sjá þau,“ segir Alexey Semyonov, sonur síðari konu Sakharovs, Yelenu Bonner. Semyonov hefur komið fyrir stól nokkrum húslengdum frá sovéska sendiráðinu og segist munu halda áfram hungurverk- falli sínu eins lengi og það komi að gagni. Þar sem hann og systir hans, Tatiana Yankelevich, hafa ekkert heyrt frá móður sinni í tvo mánuði, segir hann að það augljóst að sovésk yfirvöld hafi tekið þá ákvörðun að útiloka allt samband þeirra við foreldra sína, og það þýði að örlög þeirra gætu verið ráðin á hverri stundu. Semyonov óttast að sovésk yfir- völd séu hugsanlega að leyna dauða Sakharovs, og ef til vill móður sinnar einnig, til að varpa ekki skugga á fyrirhugaðan fund Ronald Reagans Bandarlkjafor- seta og Mikhail Gorbachevs leið- toga Sovétríkjanna í nóvember. Semyonov segist hafa fengið tvö póstkort frá móður sinni snemma í júlímánuði. Þar var í engu vikið að ástandi Sakharovs sem vekur ótta um að hann sé látinn. Síðan hafa sovésk yfir- völd sent frá sér myndband sem sýnir Sakharov hjónin á spítaia í Gorkí, en þangað voru þau gerð útlæg árið 1980. Á myndbandinu ræðir læknir nokkra sjúkdóma sem Sakharov er sagður þjást af. Semyonov telur að þetta sé sett á svið af Sovétmönnum til að þannig líti út ef eitthvað komi fyrir, sé það ekki þeirra sök. Hann segist hafa áhyggjur af heilsu Sakharovs. í bréfi frá konu Sakharovs sem barst fyrir ári sagði að hann hefði fengið hjartaslag meðan hann var í hungurverkfalli. Hungurverk- fallið var misheppnuð tilraun Sakharovs til að fá yfirvöld í Sovétríkjunum til að leyfa konu sinni að leita læknishjálpar á Vesturlöndum. Gengið London, 2. sept. AP. GENGI dollarans hækkaði mjög í dag gagnvart öðrum gjaldmiðl- um og er ástæðan sú bjartsýni, sem nú ríkir aftur í bandarísku efnahagslífl. Gull hækkaði einnig í verði. Þegar gjaldeyrismarkaðir lokuðu í dag fengust 1,3817 dollarar fyrir pundið á móti 1,3908 á föstudag. Pundið hækkaði hins vegar í verði gagnvart öðrum gjaldmiðlum I Evrópu. Gengi dollarans var í kvöld þetta: 2,8335 v-þýsk mörk (2,8060), 2,3340 svissneskir frankar (2,2950), 8,6575 fransk- ir frankar (8,5375), 3,1870 hol- lensk gyllini (3,1440), 1.893,00 ítalskar lírur (1.873,00), 1,3715 kanadískir dollarar (1,3643). í Tókýó fengust í kvöld 238,50 yen fyrir dollarann en 237,10 á föstudag. Venjulega lækkar gullverðið þegar dollarinn stíg- ur en vegna ástandsins í Suð- ur-Afríku hefur það heldur hækkað, úr 333,50 dollarar úns- an í 335,00 dollara. ræða mannþröng í írskum fang- elsum. Fangelsið á Spike-eyju var tekið í notkun fyrir fimm mánuðum til þess að létta á fangelsum á megin- landinu. Þar eru hýstir fangar sem sitja allt að átta ára fangels- isdóm. Fyrir 50 árum var fangelsið not- að til að hýsa hryðjuverkamenn úr írska lýðveldishernum og fékk þá viðurnefnið „Alcatraz írlands". Enginn sat í fangelsinu nú fyrir hryðjuverk. Irsk yfirvöld halda fram að fangarnir hafi skipulagt uppþotið gaumgæfilega til að fá stjórnina til að flytja sig í önnur fangelsi og loka fangelsinu á Spike-eyju. En Noonan segir að ekki sé áformað að loka fangelsinu. Meg- inbyggingin var gjöreyðilögð og verður hún nú endurreist eftir nýjum teikningum. Ráðherrann sagði að sakarupp- gjöf væri nú úr sögunni fyrir þá sem tóku þátt í uppreisninni og þeir fengju ekki að sitja í því fang- elsi sem þeir óskuðu sjálfir. Þegar uppþotið stóð sem hæst fóru fangarnir um alla eyna og hentu skeytum og grjóti að lög- reglu og herliði sem gerði tilraun- ir til landgöngu. Sjö fjölskyldur eru búsettar á eynni og leituðu þær skjóls í steyptum kofa í hafnargarðinum. Fangarnir skipuðu þeim út úr kof- anum og lögðu eld að honum. í dögun mátti sjá eldbjarma af meginlandinu og aðalbygging fangelsisins ásamt svefnskálanum lágu í rúst. Að sögn yfirvaida slaðaðist eng- inn fanganna og eini lögreglumað- urinn sem meiddist hlaut smá- vægilegar skrámur af bensín- sprengju. Hiibner vann Miles Tilburg, 2. september. AP. ROBERT HUBNER vann Tony Miles í flmmtu umferð Interpolis-skák móts- ins í Hollandi. Jafntefli gerðu þeir Ljubomir Ljubojevic og Victor Korchnoi, en skákir þeirra Dzins og Romanishins, Polugaevskys og Timmans fóru í bið. Eftir flmm umferðir eru þeir Dzin og Ljubojevic efstir með 2*/z vinning og biðskák, en Hiibner er í þriðja sæti með 2Vi vinning. Skák þeirra Korchnois og Pol- ugaevskys vakti mesta athygli í fjórðu umferðinni, sem tefld var á sunnudag. Sá síðarnefndi, sem stýrði svörtu mönnunum, beitti fyrir sig drottningarindverskri vörn og reyndi að tefla til jafntefl- is. Korchnoi aftur á móti, sem teflt hefur óteljandi sinnum við „Polu“ og oftast borið sigurorð af honum, tókst að brjóta niður varnarvegg svarts og þegar skákin fór í bið í 41. leik var Korchnoi með peð yfir og talinn hafa miklar vinningslíkur. Skákin verður tefld áfram á miðvikudag. Þeir Dzin og Miles sömdu jafn- tefli eftir stutta skák í þessari um- ferð. Þá varð einnig jafntefli í skák þeirra Timmans og Húbners. Mikið tímahrak háði báðum skákmeisturunum og sömdu þeir jafntefli í 41. leik.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.