Morgunblaðið - 03.09.1985, Blaðsíða 45
að allir vildu vera öðrum góðir.
Samúð hennar og umhyggja var
einlæg og hreint ekki yfirborðsleg
heldur samgróin persónuleikan-
um.
Nú þegar hún er horfin frá okkur
finnur maður að söknuðurinn og
umhugsunin um hana flytur með
sér blæ góðleika og hvetur til þess
að reynast meðbræðrunum vel.
Lúlla frænka mín var yngsta
barn húsvarðarhjónanna í Safna-
húsinu við Hverfisgötu, Þuríðar
Bjarnadóttur og Helga Árnasonar,
hún var eftirlæti fjögurra systkina
sinna. Heimilið var þekkt fyrir
umhirðu og reglusemi og börnin
alin upp í guðsótta og góðum sið-
um. Áð loknum barnaskóla var
hún sett til náms í Verslunarskól-
anum og í framhaldi af honum til
frekara skólanáms í Þýskalandi.
Störf hennar voru mjög í þágu
föður hennar, sem var einn helsti
kortaútgefandi hér á landi fyrsta
þriðjung þessarar aldar og átti hún
heimili hjá foreldrum sínum þar
til hún giftist eftirlifandi manni
sínum, Magnúsi Pálssyni, verslun-
armanni fyrir rúmlega 49 árum.
Fyrsta minning mín um þessa
indælu frænku mína er frá því ég
var á fjórða ári, að hún sýndi mér
inn í herbergi sitt, en þá mun hún
hafa verið um tvítugt. Það er eins
og ég finni enn þann ilm og skynji
þann blæ sem mætti mér þegar ég
leit þetta ljósa herbergi hinnar
ungu og smekkvísu stúlku, sem
mér var svo nákomin. Ég átti
heima á 1. hæð en hún á þeirri
3ju. Ekki man ég eftir ferðinni á
milli hæða eða hvort ég kom boð-
inn eða óboðinn, en viðtökur og
viðmótið var hlýtt og gott og eitt-
hvað svo indælt, en það er eins og
engin breyting yrði á því þessi 53
ár, sem síðan eru liðin.
Umhyggja hennar og hjarta-
hlýja kom best fram þegar hún var
návistum við þá sem henni fannst
eiga erfitt í lífinu og skilningur
hennar var einkar næmur þegar
hún sá kvöl í hjarta vina sinna.
Sjálf hafði hún gengið í gegnum
þungan reynsluskóla, misst elstu
dóttur sína fjögurra ára og son
sem átti fáa lífdaga og þann dag,
sem dóttirin var jörðuð, voru þau
hjónin barnlaus. Síðar fæddust
þeim sonur og tvær dætur, góð og
elskuleg börn, og barnabörn urðu
var ég tíður gestur á heimili
þeirra, einkum meðan þau bjuggu
á Smáragötu. Var kunnugur þeim
báðum hjónum frá barnæsku. Mér
þykir vænt um minningu þeirra
beggja, en nú eru þau bæði horfin
af sjónarsviðinu. Ásgerður lést
1976 og var það mikið áfall fyrir
vin minn Sigurð. Sigurður var dul-
ur maður, einhver sá dulasti sem
ég hefi kynnst. En ég átti þó greið-
ari aðgang að honum en margir
aðrir. Hins vegar var hann líka
tryggur og líknsamur þeim sem
með þurftu. Um það voru aldrei
höfð nein orð.
Sigurður var heilsuhraustur en
lét þess eitt sinn getið við mig að
sjónin væri ekki eins góð og hann
óskaði. En umskiptin geta stund-
um verið snögg því eftir fárra
daga spítalavist í sl. mánuði var
hann allur.
Af börnum Hannesar Hafstein
eru þrjár dætur á lífi: Ástríður, f.
1893, ekkja Þórarins Kristjáns-
sonar hafnarstjóra; Þórunn, f.
1895 ekkja Rgnars Kvaran prests
og landkvnnis og Elín, f. 1900,
ekkja Ásgeirs Þorsteinssonar
verkfræðings.
Ásgerður og Sigurður eignuðust
tvo syni, Hannes sendiherra hjá
SÞ í Genf og Sigurð hæstaréttar-
lögmann í Reykjavík. Þeir eru
báðir kvæntir og eiga fjögur börn
hvor. Barnabörnin voru því orðin
átta.
Sigurður Hafstein var fágætur
maður, en eðlislæg háttvísi hans
er orðin fágæt í hversdagslífi nú-
tímans. Hans er saknað af þeim
sem nokkur kynni höfðu af hon-
um.
Systrum hans, sonum og fjöl-
skyldum þeirra, votta ég dýpstu
samúð mína.
Kristján B.G. Jónsson
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
45
afa sínum og ömmu til mikillar
gleði.
Styrk og traust sótti frænka mín
til Drottins, það var henni eðlilegt
því móðir hennar sat við rúmstokk
barna sinna og kenndi þeim vers
og bænir. Sá uppeldisþáttur var
síst vanræktur. Löngum man ég
eftir ömmu minni raulandi vers
og syngjandi sálma við störf sín
og þegar það kom fyrir að maður
svaf hjá ömmu og afa var þess
gætt að drengurinn færi með vers-
in sín áður en hann sofnaði og svo
var það áreiðanlega einnig í
bernsku frænku minnar, allt bar
vott um það.
Nú er hún kvödd, ævistarf henn-
ar á enda. Margir munu sakna
hennar, ástvinirnir mest, eigin-
maður, börn, barnabörn og tengda-
börn. Sanna huggun er ekki að fá
nema í trausti til fyrirheita Guðs.
Þau eru okkur gefin í yfirfljótan-
legri náð hans og miskunn.
Eins og faðirinn aumkar sig
yfir sitt barnið sjúka,
svo vill Guð einnig annast þig
og að þér í miskunn hjúka.
Hún finnur ekkert hryggðarstríð,
hörmung né mæðu neina,
í friði skoðar ætíð blíð
ásjónu Drottins hreina.
H.P.
Innilegar samúðarkveðjur til
ástvinanna allra.
S.H.H.
Og hvað er að hætta að draga andann
annað en að frelsa hann frá friðlausum
öldum lífsins, svo að hann geti risið upp
í mætti sínum og ófjötraður leitað á
fund guðs síns?
Aðeins sá, sem drekkur af vatni þagn-
arnnar, mun þekkja hinn volduga söng.
Og þegar þú hefur náð ævitindinum,
þá fyrst munt þú hefja fjallgönguna.
Og þegar jörðin krefst líkama þíns,
muntudansaífyrstasinn. .
Kahlil Gibran)
Jarðvist Lúllu frænku er lokið.
Hafi hún þökk fyrir allt og allt.
Minning hennar lifir um ókomna
framtíð.
Elsku Maggi, Helgi Þór, Ella og
Svsta Ykkur og fjölskyldu ykkar
sendi ég innilegar samúðarkveðj-
Guð blessi Lúllu frænku.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en þaðerGuðsaðvilja,
og gott er allt, sem Guði er frá.
(V. Briem.
Kveðja,
Stína Veiga.
Askriftiws'nninn cr 83033
NUERGULUD
TÆKIFÆRI!
AÐ EIGNAST TECHNICS
HUOMTÆKI A SERSTOKU
TILBOÐSVERÐI
FJÓRAR fullkomnar samstæöur meö öllu í
fallegum skáp, meö litaðri glerhurð og loki.
System z-120 .32.500 stgr.
System z-100 (mynd). 36.900 stgr.
System z-200 .46.900 stgr.
System z-300 . 53.900 stgr.
Útborgun frá kr. 5.000.-
ÞAÐ B0RGAR SIG AÐ VEUA VANDAÐ.
'JAPIS