Morgunblaðið - 03.09.1985, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
51
Hundurinn bjargaði
lífi kornabarns
Shefferhundurinn Inka varð
fyrir skömmu vel þekktur
utan „fjölskyldu" sinnar. Eig-
andinn, Camelo Giordanetta í
Hagen í Vestur-Þýskalandi, seg-
ir Inka vinalegan og tryggan
hund, sem þó verði æði við-
skotaillur geri sig einhver lík-
legan til að angra heimilisfólkið.
Öllum leyfir tíkin þó að koma á
heimili Camelo, en enginn fær
að fara þaðan út aftur nema
húsráðendur hafi lagt blessun
sína yfir gestinn, það fékk inn-
brotsþjófur eitt sinn að reyna.
En það er síðasta afrek Inka
sem Giordanetta-fjölskyldan er
hreyknust af. Eitt sinn er hund-
urinn gekk með húsbónda sínum
um kvöld vildi hann ekki halda
áfram en gelti viðstöðulaust og
vildi komast að ruslagámi er
stóð undir húsveggnum og linnti
bókstaflega ekki látum fyrr en
þangað kom, setti þá framlappir
sínar á brúnina og smágelti.
Þegar Camelo leit ofan í gáminn
var honum öllum lokið, því ofan
í miðri ruslahrúgunni lá
ofursmátt kornabarn, kviknakið
en vafið inn í plastpoka.
Aðeins skörp heyrn Inka hafði
getað numið kjökur barnsins.
Camelo hringdi á augabragði á
sjúkrabíl og lögreglu sem fluttu
barnið í spítala. Sögðu læknarn-
ir að vart hefði mátt muna
Við ruslagáminn þar sem barnið fannst, Inka og eigandinn, Camelo Giordan-
ella.
nema mínútu að barnið frysi
ekki í hel eða kafnaði.
„Við vitum ekki,“ segir Cam-
elo, „hvaða ógæfa eða skelfing
liggur að baki þessum viðburði,
en við erum óendanlega glöð yfir
að hafa getað bjargað litlu
stúlkunni sem nú er fóstruð á
góðum stað í besta yfirlæti. Og
öll hyllum við og þökkum Inka
sem bjargaði mannslífi."
Höfundur ísfólksins
Margit er drottning meðal höf-
unda skemmtibókmennta i
Noregi. „ísfólkið" hennar, raðbækur
sem verða a.m.k. 40 að sögn hennar
sjálfrar, hefur nú verið þýtt á mörg
tungumál og selt í milljónum ein-
taka. Þetta eru ævintýri með
spennu, ástum og yfirnáttúrulegum
viðburðum og segist Margit sækja
efni og innblástur í áhrif frá náttúr-
unni, undarlegum viðburðum og
ævintýrum í Noregi, einkum í Valdr-
es.
Hún segist annars hafa byrjað að
skrifa fyrir 20 árum af einskærri
hendingu, þegar hún var í fjárþröng,
sendi þá inn ræningjasögu, sem var
birt umsvifalaust, og síðan hefur
boltinn runnið og peningarnir
streymt inn.
Og þegar getum er að því leitt
hvaðan listaeðlið sé komið, viður-
kennir Margit að orðrómurinn eigi
við rök að styðjast er telur hana son-
ardóttur skáldsins Björnsterne
Björnson.
Margit við bækur sfnar um ísfólkið
sem hérlendis eru orðnar nokkrum
kunnar.
Margit Sandemo
COSPER
Innilegustu hjartans þakkir sendi ég öllum-
sem glöddu mig á 90 ára afmæli mínu þann
6. ágúst sl. meö heimsóknum, gjöfum, heilla-
skeytum og símtölum.
GuÖ blessi ykkur öll.
Snorri Stefánsson,
Hlíðarhúsi
Sigiufirði.
Byrjendanámskeið
í Karate
%
Námskeið fyrir byrjendur í
Goju Ryu Karate Do eru aö
hefjast.
Karate er skemmtileg íþrótt, afbragös líkamsþjálf-
un og ein fullkomnasta sjálfsvörn sem völ er á jafnt
fyrir konur sem karla á öllum aldri. Sérstakir
barnaflokkar fyrir 9—12 ára.
Innritun og upplýsingar aö Ármúla 36, III hæö
(gengið inn Selmúlamegin) og í síma 35025 vikuna
2.-7. sept. milli kl. 19 og 21 fyrir byrjendur.
Eldri félagar ath. að æfingar hefjast 2.
september. Ingo De Jong sensei er
væntanlegur í október.
HIT AMÆLING A-
MIÐSTÖÐVAR
Fáanlegar fyrir sex, átta, tíu, tólf, sextán, átján eöa
tuttugu og sex mælistaöi.
Ein og sama miðstöðin getur tekiö viö og sýnt bæöi
frost og hita, t.d. Celcius -i-200+850 eöa 0+1200 o.fl.
Hitaþreifarar af mismunandi lengdum og meö mis-
munandi skrúfgangi fáanlegir.
Fyrir algengustu riö- og jafnstraumsspennur.
Ljósastafir 20 mm háir.
Þaö er hægt aö fylgjast meö afgashita, kæli-
vatnshita, smurolíuhita, lofthita, kulda í kælum, fryst-
um, lestum, sjó og fleira.
Sötu»rCaa[u;®iuio’ mvkjavik, icilano
Vesturgötu 16. Símar 14680 — 13280.