Morgunblaðið - 20.09.1985, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER1985
35
Miðvikudagur 18. sept. kl. 15.00-18.00
Fimmtudagur 19. sept. kl. 12.00-18.00
Föstudagur 20. sept. kl. 12.00-18.00
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Hverfisgötu 33 — Simi 20560
Pósthólf 377
Hugleiðing um 108. grein
almennra hegningar-
laga númer 19 frá 1940
barnfóstra, fulltrúa og edrúa í
ráðuneytum og bæjarskrifstofum
að gera með þessa sérstöku vernd
fyrir opinberu umtali? Fólk sem
löngu er orðið ábyrgt gerða sinna
með lýðræðislegum hætti.
Hvað hefur lóðaskrárritari að
gera með sérréttindi miðaldaböð-
ulsins?
Enginn getur vitaskuld svarað
þessu með neinu heilvita orði.
Þetta er bara svona. Og Þórður
Sak hefur látið frú Svölu og lög-
regluna hafa sig útí það að stefna
mér nú fyrir Sakadóm eftir þess-
um miðaldatexta eins og hann lét
háttsettan embættismann etja sér
útí Spegilsmálið forðum daga út-
frá miðaldaákvæðum um guðlast
í þessu landi þar sem fermingin
er löngu orðin bara hluti af heild-
sölukerfinu, útaf miðaldaákvæð-
um um klám í landi þar sem þjóðin
er að verða náttúrulaus af sífeldu
kynferðisstagli daginn út og dag-
inn inn. Allt þetta bara til að rit-
störf nái ekki fram að ganga.
Þvílík andskotans vitleysa.
Allar þessar greinar þyrfti nátt-
úrlega að nema sem fyrst úr gildi.
Og vitaskuld yrðu þær numdar úr
gildi strax í vetur ef það sæti einn
einasti maður á Alþingi sem þyrði
að líta uppúr sinni þröngu p>óli-
tísku rottuholu bara dagstund og
hugsa um framtíð menningarinnar
í þessu landi.
En þess er naumast að vænta
og því eru dómarnir eina vonin.
Enginn gerir sér betur grein
fyrir því en ég sjálfur hvernig fífls-
ins gerfi vofir yfir þeim sem vill
gerast frelsispostuli í nítjánduald-
arstíl nú til dags. í því liggur
meinið og möguleiki götulögregl-
unnar til að taka nú forystuna i
andlegum málefnum þjóðarinnar.
Margur góður maður er vitaskuld
í þeirri vösku sveit, eins og ég hef
margbent á þó frú Torlasíus vilji
aldrei vitna til þeirra ummæla
minna. En hitt er lika víst að bæði
göfugmenni og skítakarakterar
götulögreglunnar vinna sín störf
hættulega nálægt rennusteininum.
Og þangað draga þeir fyrr eða síðar
andleg málefni þessarar þjóðar ef
meiningin er að fela þeim foryst-
una í þeim efnum.
Það finnst mér vera kjarni máls-
ins.
Þessvegna skrifa ég lika grein-
ina atarna og bið Þórð Björnsson
saksóknara að líta á hana sem
mína framréttu hönd. Það er hún
vissulega þrátt fyrir allt. Honum
stendur lika enn til boða að leið-
rétta frumhlaup sitt og draga
ákæruna til baka. Geri hann það
ekki vil ég minna hann á það að
senbúddisminn er engin einstefna.
Spekiorð hans gilda í báðar áttir,
en fyrirbærið getur vafalaust
götulögreglan útlistað fyrir hon-
um:
f hverri framréttri hönd býr hnefi
krepptur.
En það er vita ástæðulaust að
vera neitt að enda þessa grein með
hótunum eða digurbarkatali því
lengi hef ég verið að geyma tón
vonarinnar til að setja hér í end-
ann svo þessu ljúki á sem björt-
ustum hljómi, hvað sem tískan
býður.
Það var nefnilega til framhald
af sögunni um tuddann sem sligaði
kvíguna hér um árið. Happy end
eins og kaninn segir. Það urðu
fleiri slys bæði á mönnum og dýr-
um við embættisverk bola. Bændur
og hjú fóru að hvísla af honum
ljótar sögur (því enginn þorði vita-
skuld að tala upphátt utandyra um
skafanka þess sem gegnir opinberu
embætti). Þetta tal barst náttúr-
iega til eyrna stjórnarmanna í
búnaðarfélagi sveitarinnar. Seint
og um síðir skutu þeir á fundi.
Þrílæstu dyrunum og ræddu þessi
vandamál opinskátt og lengi.
Komust að niðurstöðu þegar liðið
var langt á nótt.
Síðan var tuddanum slátrað og
keyptur í staðinn kálfur af geð-
betra kyni og mjólkurmeira. Upp-
frá því hafa nautgripasamfarir í
þessari sveit, sem ég vil ekki nefna,
verið með sérstökum menningar-
blæ og hreint augnayndi. Má jafn-
vel segja að þessar athafnir komi
mikið til í staðinn fyrir ballettinn
sem vitaskuld þyrfti að sækja
alveg suður í Þjóðleikhús annars.
Og þetta mun nú vera eina sveit-
arfélagið hérlendis sem hefur neit-
að að stofna embætti sæðingar-
manns.
Af fagurfræðilegum ástæðum.
Lokið 16. september, 1985
Þorgeir Þorgeirsson
: •»
m
Þessar stöllur færðu Rauða krossi íslands 500 kr. sem var ágóði af
hlutaveltu sem þær héldu til ágóða fyrir RKÍ. Þær heita Guðrún Þóra
Jónsdóttir og Guðríðu: Hrund Helgadóttir.
NYU-Bl
SYNBNGU
Nú eru Ijósritunarvélarnar
meira en Ijósritunarvélar!
Á U-BIX sýningunni í Kristalssal Hótels Loftleiða dagana
18.-20. september kynnum við allar nýjustu
Ijósritunarvélarnar frá U-BIX þar sem saman fer stóraukið
notagildi og bráðskemmtilegar tækninýjungar.
Hvernig líst þér t.d. á litljósritun? Möguleika á að þurrka út
hluta frumritsins í afritunum? Sjálfvirkan frumritamatara,
þreplausa minnkun og stækkun eða sjálfvirkt val á réttri
pappírsstærð?
Þú ættir að líta inn til okkar í Kristalssalnum og kynnast
nýrri kynslóð söluhæstu Ijósritunarvéla á Islandi.
ÓTRÚLEGT
TÆKI!
Ein magnaðasta U-BIX nýjungin á
þessu ári er svokölluð afritatafla;
stór tafla sem nýtist jafnt fyrir
ráðstefnur, námskeið og skólahald.
Þú skrifar á hana og hún gefur þér
afrit í stærðinni A41
Reynið sjálf á sýningunni.
OPNUNAR-
TÍMAR:
esið
reglulega af
ölmm
fjöldanum!
Auglý