Morgunblaðið - 31.10.1985, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985
Viðræður við Rússa um stálverksmiðju:
Morgunbbðid/Skapti Hallffrímsson.
Söngelskir landsliðsmenn
LANDSLIÐIÐ í handknattleik
er nýkomið heim úr keppnis-
ferðalagi til Sviss og undirbýr
sig nú fyrir A-heimsmeistara-
keppnina í Sviss í febrúar. Einnig
aðstoða landsliðsmennirnir
stjórn HSÍ við fjárðflun, m.a.
með útgáfu tveggja laga hljóm-
plötu, og var þessi mynd tekin í
Hljóðrita í Hafnarfirði í fyrri-
nótt þar sem lögin tvö voru hljóð-
rituð. Á myndinni sjást, frá
vinstri: Júlfus Jónasson, Val,
Guðmundur Guðmundsson, Vík-
ingi, Jakob Sigurðsson, Val, Jón
Árni Rúnarsson, Fram, Egill Jó-
hannesson, Fram, Guðjón Guð-
mundsson, liðsstjóri, Þórður
Sigurðsson, stjórnarformaður í
HSÍ, Þorgils óttar Mathiesen,
FH, Geir Sveinsson, Val, Valdi-
mar Grímsson, Val, Brynjar
Kvaran, Stjörnunni, og lengst til
hægri er stjórnandinn, Jón Ól-
afsson, sem er höfundur texta
og laga.
Aðild Brimness
hf. er mjög óljós
ALBERT GUÐMUNDSSON iðnað-
arráðherra, hefur beðið Birgi ísleif
Gunnarsson, formann stóriðjunefnd-
ar, Pál Flygenring, ráðuneytisstjóra
og Hermann Sveinbjörnsson í iðnað-
arráðuneytinu, að sitja viðræðufund
fulltrúa Stálfélagsins og Sovétmanna
í iðnaðarráðuneytinu árdegis í dag.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu var þaö Kristján
Ágústsson, fyrir hönd fyrirtækis-
ins Brimnes hf., sem hafði milli-
göngu um að viðræðum yrði komið
á um hugsanlega aðild Sovét-
manna að stálvölsunar- og stál-
bræðsluverksmiðju Stálfélagsins.
Brimnes er f hlutafélagaskrá skráð
sem umboðs- og heildsala og sem
fyrirtæki sem reki verslun með
iðnaðarvöru og kaup og sölu verð-
bréfa. Hjá hlutafélagaskrá fékk
blaðamaður Morgunblaðsins þær
upplýsingar í gær að ákvörðun um
félagsslit Brimness hefði verið
tekin. Búið væri að kjósa skila-
nefnd og birta einu sinni í Lög-
birtingablaðinu ákvörðun um fé-
lagsslitin. Því mætti vænta þess
að innan tíðar kæmi beiðni um
afskráningu félagsins.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun fyrirtækið hafa flutt
talsvert af skinnafatnaði til Sovét-
ríkjanna, en heimildarmenn blaðs-
ins telja að fyrirtækið hafi hvergi
komið nærri verslun með málma,
eða átt aðild að slíkri iðnfram-
leiðslu.
rún Guðmundsdóttir vildi í sam-
tali við Morgunblaðið ekkert um
máliðsegja.
Ellilífeyris-
þegar fá frítt
á sundstaði
BORGARRÁÐ hefur samþykkt, að
ellilífeyrisþegar, 67 ára og eldri fái
framvegis frítt á sundstaði borgar-
innar. Akvörðun um þetta var tekin
á fundi borgarráðs á þriðjudaginn
síðastliðinn, samkvæmt tillögu frá
íþrótta- og tómstundaráði. Breyting
þessi gildir frá og með samþykkt
borgarráðs.
Eimskip um steinullarflutninga:_
Ríkisskip ekki í stakk búið
til að annast þessa flutninga
„Myndu bæta afkomu félagsins,“ segir Guðmundur Einarsson forstjóri Ríkisskip
í stjórn Brimness eru skráö
Kristján Ágústsson, Sigrún Guð-
mundsdóttir og Aðalbjörg Ágústs-
dóttir. Morgunblaðinu tókst ekki
að ná tali af Kristjáni í gær, til
þess að spyrja hann með hvaða
hætti fyrirtæki hans tengdist Stál-
félaginu og Sovétmönnum, og Sig-
EFTIRSPURN eftir steinull frá
Steinullarverksmiðjunni á Sauðár-
króki befur verið meiri en ráð var
fyrir gert, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá verksmiðjunni.
Hefur eftirspurnin verið umfram
núverandi afkastagetu verksmiðj-
unnar, sem hefur valdið nokkurri
seinkun á afgreiðslu á pöntunum.
Fréttatilkynning Steinullar-
verksmiðjunnar er svohljóðandi:
„Vegna fréttar á baksíðu Morgun-
„AÐ MÍNIJ mati er það í fyllsta máta
óeðlilegt, að ríkisfyrirtcki, sem nýtur
verulegra ríkisstyrkja, skuli sækjast
svo stíft eftir fhitningum, sem vitað
er að skila tapi, þegar aðrir aðilar
geta annast þessa flutninga án tap-
reksturs," sagði Þorkell Sigurlaugs-
son, framkvæmdastjóri Eimskips um
blaðsins á miðvikudag vill Stein-
ullarverksmiðjan hf. koma eftir-
farandi upplýsingum á framfæri:
Eftir fyrstu prufusendingar hefur
eftirspurn eftir vörum verksmiðj-
unnar verið allmiklu meiri en ráð
var fyrir gert og hafa flutningar
því einnig verið miklir, eða sem
nemur 35 til 40 20 feta gámaeining-
um á viku. Til dæmis voru fluttir
frá verksmiðjunni 60 gámar í sein-
ustu viku, þar af 35 með Eimskip
þá samkeppni sem komin er upp á
milli Ríkisskips og Eimskipafélagsins
um flutninga fyrir Steinullarverk-
smiðjuna á Sauðárkróki og greint var
frá í frétt Morgunblaðsins á miðviku-
dag.
„Það var ljóst fyrir talsvert löngu
að Steinullarverksmiðjan ætlaði sér
og 25 með Ríkisskip. Nokkur vandi
hefur skapast við þetta, sem unnið
er að lausn á til frambúðar. Eftir-
spurnin hefur einnig verið umfram
núverandi afkastagetu verksmiðj-
unnar og afgreiðsla á pöntunum
því seinkað nokkuð. Biðjum við
viðskiptavini vora að sýna okkur
þolinmæði næstu tvær til þrjár
vikurnar á meðan verið er að fram-
leiða upp í eldri pantanir."
ekki að eiga gámana og mér er
kunnugt um að Guðmundur Einars-
son lagði fram á stjórnarfundinum
á mánudaginn breytingar á sínu
fyrra tilboði, sem voru aðlagaðar
að okkar tilboði," sagði Þorkell
Sigurlaugsson hjá Eimskip. „Eftir
viðræður við framkvæmdastjóra
verksmiðjunnar undirrituðum við
bráðabirgöasamkomulag og til að
fyrirbyggja misskilning var hringt
í forstjóra Ríkisskips og stjórnar-
formann og þeim tilkynnt um það.
Guðmundur brást hins vegar svo
við, að hann leggur fram tilboð á
mánudaginn, sem er nánast eins og
okkar, þannig að ljóst er að einhver
leki hefur orðið þarna,“ sagði Þor-
kell ennfremur. Þorkell kvaðst hafa
ástæðu til að ætla, að Rikisskip
væri ekki í stakk búið til að anna
þessum flutningum með núverandi
skipakosti, auk þess sem félagið
hefði ekki gáma í rekstri til að
annast flutningana, eins og reyndar
hefði komið fram.
vakna í þessu sambandi hvers vegna
Ríkisskip sækir svo stíft í þessa
flutninga, sem vitað er að geta ekki
skilað félaginu hagnaði. Þegar Rík-
isskip bætir sífellt á sig svona óarð-
bærum flutningum krefst það
stærri skipa og rekstrartapið vex. Á
móti segja menn síðan með árunum,
að rekstur Ríkisskips sé svo mikil-
vægur að ekki megi draga úr þjón-
ustunni þótt þau hafi ef til vill
gleymst, tækifærin sem buðust,
þegar aðrir aðilar voru tilbúnir til
að taka að sér flutningana á sam-
keppnisfæru verði“, sagði Þorkell.
Guðmundur Einarsson, forstjóri
Rikisskips, sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að hann hefði vitað að
fyrir lægi tilboð frá Eimskipafélag-
inu um þessa flutninga, en ekki að
bráðabirgðasamkomulag hefði verið
undirritað. Guðmundur sagði að
upphaflegur samningur Ríkisskips
og Steinullarverksmiðjunnar hefði
verið undirritaður í september, með
fyrirvara um samþykki stjórna
beggja fyrirtækjanna. í þeim samn-
ingi hefði verið farið eftir ósk Stein-
ullarverksmiðjunnar um að Ríkis-
skip flytti gáma í eigu verksmiðj-
unnar. í lok september hefði komið
fram ósk frá verksmiðjunni um að
skipafélagið legði til gámana.
„Það hefur aldrei verið neitt því
til fyrirstöðu af okkar hálfu að út-
vega þessa gáma, en að sjálfögðu
þurfti að endurskoða samninginn út
frá því,“ sagði Guðmundur. „Ég hef
engan áhuga á því að heyra at-
hugasemdir Eimskips um það
hvernig við rekum okkar strand-
ferðaþjónustu eða hvort hún sé
aðrbær hjá okkur eða ekki. Ég get
komið með alveg eins athugasemdir
um þeirra strandferðaþjónustu, sem
er rekin með miklum halla,“ sagði
Guðmundur.
Guðmundur var spurður hvort
hann teldi þessa flutninga hag-
kvæma fyrir Ríkisskip og kvaðst
hann telja að svo væri og að þeir
kæmu til með að bæta afkomu fé-
lagsins. „Þessir flutningar koma til
með að auka nýtingu skipanna hjá
okkur. I tilboðinu, sem við lögðum
fram á mánudaginn, er gert ráð
fyrir þeim kostnaðarauka sem
gámaþjónustan leiðir af sér. Að
öðru leyti tel ég ekki rétt að vera
að ræða þessi mál í fjölmiðlum og
því síður að svara smekklausum
athugasemdum frá keppinautunum
’ ■■ — -íl « Gi’á^nnrliir
,Ég held að sú spurning hljóti að
Heimsókn utanríkisráðherra Sovétríkjanna:
Sovéska þotan tafðist vegna
lendingar varnarliðsvéla
ÞOTA Eduard Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, tafðist í
nokkrar mínútur eftir að hún var reiðubúin til flugtaks á Keflavíkurflug-
velli í gærmorgun vegna þess að varnarliðsþotur komu inn til lendingar
á sama tíma.
Að sögn Péturs Guðmundsson-
ar, flugvallarstjóra í Keflavík,
sendi orrustuflugsveit varnar-
liðsins flugturninum á Keflavík-
urflugvelli áætlun vegna reglu-
bundins æfingaflugs sjö F-15
véla suður af fslandi. Var brott-
för þeirra áætluð á tímabilinu
8.30 til 9.15 í gærmorgun. Fyrstu
vélarnar hófu aðflug um kl. 10.15
og um kl. 10.37 voru allar F-15
vélarnar komnar í umferðar-
hring umhverfis völlinn. Sovéska
flugvélin fór af stæði kl. 10.37
og var á brautarenda kl. 10.43.
Þá tilkynnti flugmaðurinn, að
hann væri reiðubúinn að hefja
flug. Flugumferðarstjóri gaf
F-15 vélunum fyrirmæli um að
víkja úr umferðarhring fyrir
sovésku vélinni, en flugmaður
fyrstu F-15 vélarinnar greindi
þá frá þvf að hann hefði litlar
eldsneytisbirgðir og yrði að
lenda. Tveir aðrir orrustuflug-
menn tilkynntu siðan hið sama.
Alls lentu fjórar F-15 flugvélar
á flugvellinum á tímabilinu 10.45
til 10.50, auk flugvélar frá Flug-
félagi Norðurlands. Ekki var
unnt að koma sovésku vélinni út
á braut í notkun vegna þessa
fyrr en klukkan 10.50. Hún hóf
sig síðan til flugs kl. 10.54. Eftir
það lentu þrjár F-15 vélar, sem
beðið höfðu lendingar.
Að sögn Péturs er litið svo á,
að yfirlýsing um litlar eldsneyt-
isbirgðir sé fyrsta stig neyðar-
ástands og því hafi ekki verið
komist hjá að veita lendingar-
leyfi. Hann tók fram að sam-
kvæmt alþjóðareglum hefðu
flugvélar í flugi forgang fram
yfir vélar á jörðu niðri. Engu að
sfður hefðu flugmenn F-15 vél-
anna verið beðnir að yfirgefa
umferðarhring, en ekki séð sér
það fært.
Starfsmaður sovéska sendi-
ráðsins í Reykjavík sagði í sam-
tali við blaðamann Morgunblaðs-
ins f gær, að borin hefðu verið
fram munnleg mótmæli vegna
tafarinnar sem varð. Sovét-
maðurinn vildi ekki skýra frá
nafni sínu og starfsheiti og
kvaðst heldur ekki geta upplýst
hver hefði borið mótmælin fram,
hvenær og hverju hefði nákvæm-
lega verið mótmælt.
ólafur Egilsson, skrifstofu-
stjóri í utanrfkisráðuneytinu,
sagði I gærkvöldi, að sovéski
sendiherrann í Reykjavík hefði
síðdegis f gær óskað eftir að fá
að koma til Geirs Hallgrfmsson-
ar utanríkisráðherra. Það var
erindi hans að láta f ljós sérstaka
ánægju með heimsókn She-
vardnadze og hve vel hún hefði
gengið. Það hafi ekki verið fyrr
en hann var staðinn upp til að
kveðja, að hann hafi nefnt að
eini hnökrinn á heimsókninni
hefði verið lending þotna varnar-
liðsins. Sendiherrann bætti því
við, að íslenskir aðilar hefðu hins
vegar fljótlega kippt því í lag og
fyrir það væri hann þakklátur.
Eftirspurn eftir steinull umfram
afkastagetu verksmiðjunnar