Morgunblaðið - 31.10.1985, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985
5
Fymim sýslumannsembættisbúsUðurinn til hægri og Safnahúsið á Húsavík til vinstri.
Safnahúsið á Húsavík fær hús
Húsavík, 30. október.
UM LEIÐ og Sigríður Víðis Jóns-
dóttir kvaddi Húsvík nú um helgina
afhenti hún Safnahúsinu á Húsavík
að gjöf íbúðarhúsið Tún við Mið-
garð á Húsavík, fyrrum sýslu-
mannsembættisbústað þeirra
hjóna. Brunabótamat þessarar
eignar er 5,5 milljónir.
Sýslumannshjónin Sigríður og
Jóhann Skaptason höfðu fyrir
löngu ákveðið að þá þau þyrftu
ekki lengur á íbúðarhúsinu að
halda skyldi það eign Safnahúss-
ins á Húsavík. Jóhann sýslumað-
ur var frumkvöðull að stofnun
Safnahússins og fullvíst er að
byggingin varð að veruleika fyrir
einstakt framtak hans og dugnað.
Hann afhenti Safnahúsið skuld-
laust hinn 24. maí 1980 og með
þó nokkurri fjárhæð i sparisjóðs-
bók. Sýslumannshjónin og ætt-
menni þeirra hafa áður fært
Safnahúsinu margar stórar gjaf-
ir, þó þessi gjöf sé stærst þeirra
allra.
Frú Sigríður hefur nú flust til
Akraness og dvelst þar í frænd-
garði. Fréttaritari
Hjúkrunarheimilið:
17 tilboð und-
ir kostnað-
aráætlun
NÝLEGA voru opnuð tilboð í
verk fyrir umönnunar- og hjúkr-
unarheimilið Skjól sem verið er
að byggja við Kleppsveg í
Reykjavík. Boðin var út grunn-
bygging hússins og bárust 23
tilboð í verkið.
Kostnaðaráætlun var
5.210.840 krónur. Lægsta tilboð
var 3.714.219 krónur en það
hæsta 6.332.400 krónur. Það
verður ákveðið á næstu dögum
að hvaða tilboði verður gengið.
Það voru nokkrir aðilar sem
bundust samtökum um að
reisa umrætt heimili: Alþýðu-
samband íslands, Samband
lífeyrisþega ríkis og bæja, Sjó-
mannadagsráð, Stéttarsam-
band bænda, Reykjavíkurborg
ogÞjóðkirkjan.
Sautján þeirra tilboða sem
bárust í umrætt verk voru
undir kostnaðaráætlun.
Kirkjuþing:
Viðræðuhóp-
ur ríkis og
kirkju fjalli
um réttarstöðu
kirkjunnar
KIRKJUÞING samþykkti samhljóða
í gær ályktun varðandi Suður-Afrfku,
en í umræðunni kom hins vegar fram
að slík málefni væru utan þess vett-
vangs sem eðlilegt væri að kirkju-
þing fjallaði um miðað við það þjóð-
kirkjuskipulag sem er á íslandi. .
Kirkjuþing þakkaði álitsgerð
kirkjueignanefndar sem talið er
að muni hafa mikil áhrif varðandi
rétt kirkjunnar og stöðu hennar
að lögum. Lagt var til að stofnaður
yrði viðræðuhópur ríkis og kirkju
til að finna lausn þessara mála og
að kirkjueignir verði ekki seldar á
meðan þessi umræða stendur,
nema með samþykki kirkjuráðs og
biskups. Frumvarpið um Afganist-
an var samþykkt samhljoða án
nokkurra umræðna og áréttaði
kirkjuþing samþykkt frá 1983 um
að skora á allar þjóðir að vinna
að friði í heimi, stöðvun vígbúnað-
arkapphlaups og útrýmingu ge-
reyðingarvopna.
Samþykkt var að skora á Alþingi
að taka til jákvæðrar afgreiðslu
frumvarp til laga um starfsmenn
kirkjunnar, sem kirkjuþing sam-
þykkti í fyrra. Þá var samþykkt
frumvarp til laga vegna byggingar
Hallgrímskirkju og hljóðar hún
svo: „Kirkjuþing 1985 fagnar því
að nú er bygging Hallgrímskirkju
á Skölavörðuhæð svo langt á veg
komin að vonir standa til að hún
verði vígð um þetta leyti á næsta
ári. Kirkjuþing þakkar þeim sem
sýnt hafa áhuga og fórnfýsi við
byggingu kirkjunnar og það fram-
lag, sem gert er ráð fyrir að Hall-
grímskirkja fái í frumvarpi til
fjárlaga 1986 og í fjárveitingum
Reykjavíkurborgar. Þá vill kirkju-
þing þakka lofsvert framtak þeirra
þingmanna, sem sérstaklega hafa
beitt sér fyrir stuðningi við Hall-
grímskirkju á Alþingi".
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
15. og 16. nóvember
Hljómsveitin Tíbrá leikur
fyrir dansi bæöi kvöldin.
KOMA AFTUR
Vegna fjölda áskorana hefur nú tekist aö fá hina
frábæru Searchers til aö koma aftur til íslands
og skemmta í 111 \i 15. og 16. nóvember.
Síöast þegar Searchers komu fram í Broadway
var fullt hús og fólk skemmti sér konunglega. Því
miöur komust þá færri aö en vildu en úr því er nú
bætt og hvetjum viö því gesti okkar til aö tryggja
sér nú miöa tímanlega.
Matseðill
Komakslöguö humarsúpa
Fylltur grisahryggur m/vínmarmeruð-
um ávöxtum
Is m/perum og ávöxtum.
PANTIO
BORO SEM FYRST
í SÍMA 77500.
Býður
nokkur
betra
verð?
Laugalæk 2. s. 686511