Morgunblaðið - 31.10.1985, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985
7
Framleiðsla eininga-
húsa er að stöðvast
Breyta þarf aftur reglum um lánafyrirgreiðslu, segja framleiðendur
FRAMLEIÐSLA einingahúsa hér á
landi hefur dregist verulega saman
að undanförnu og er útlit fyrir að
starfsemi margra fyrirtækja á þessu
sviði muni stöðvast algerlega á næst-
unni. Nokkur fyrirtæki hafa nú þegar
hætt framleiðslu á einingahúsum og
önnur í þann veginn að hætta.
Að sögn Guðmundar Sigurðsson-
ar hjá SG-einingahúsum á Selfossi
hefur sala á íbúðarhúsum nánast
stöðvast. „Það litla sem eftir er er
þjónustuhúsnæði á vegum hins op-
inbera, leikskólar og þess háttar.
Við höfum orðið að segja upp á
milli 25 og 30 manns af 50 manna
starfsliði," sagði Guðmundur. „Það
er ljóst að það þarf að breyta aftur
reglum á lánafyrirgreiðslu til ein-
ingahúsa, það er að greiða þau út
hraðar en til venjulegra húsbygg-
inga, enda er byggingatími eininga-
húsa miklu skemmri. Ég held að það
sé eina leiðin til að blása aftur lífi
í þessa starfsemi," sagði Guðmund-
ur.
Aðrir framleiðendur einingahúsa,
sem Morgunblaðið hafði samband
við, voru á sama máli. „Það er alveg
sama sagan hér og mikill samdrátt-
ur frá fyrra ári,“ sagði Bergsteinn
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Húseininga hf. á Siglufirði. „Það
verður að koma til mikil breyting á
lánakjörum og aðstöðu fyrir hús-
byggjendur ef þessi starfsemi á ekki
að stöðvast alveg á næstunni. Hvað
varðar einingahúsin þarf að breyta
reglunum aftur eins og þær voru,
að við fáum lánin greidd fyrr vegna
skemmri byggingartíma," sagði
Bergsteinn.
Ríkharður Hrafnkelsson hjá Ösp
hf. í Stykkishólmi sagði að starf-
semi fyrirtækisins lægi nánast niðri
um þessar mundir og dökkt útlit
framundan. „Það er verið að ljúka
við þau hús sem þegar voru seld og
framundan er ekkert," sagði Rík-
harður. Svipaða sögu var að segja
hjá öðrum framleiðendum eininga-
húsa, sem Morgunblaðið hafði
samband við, og bar þeim öllum
Leiðrétting
í GREIN Margrétar Þorvaldsdóttur í
blaðinu í gær féll niður hluti máls-
greinar (í 2. dálki), og gjörbreytir það
efninu. Viðkomandi kafli á að hljóða
svo:
„Barn sem er með sterkar tennur
og fer reglulega tvisvar á ári til
heimilistannlæknis var i lok skóla-
árs fyrir fáum árum sent til skóla-
tannlæknis til tannhreinsunar og
einskis annars þar sem engin
saman um að horfur framundan í
þessari iðngrein væru allt annað en
glæsilegar.
Mistök með
fyrirlestur
ÞAU mistök urðu í Morgunblaðinu í
gær, að þar birtist frétt um fyrir-
lestur dr. Sigurðar Júlíusar Grét-
arssonar, sem hann flutti um heig-
ina á vegum Rannsóknarstofnunar
uppeldismála. Morgunblaðið biðst
afsökunar á þessum mistökum.
skemmd var sjáanleg. Fljótlega var
hringt og umbúðalaust tilkynnt að
barnið hefði 5 tennur skemmdar
sem þyrftu nauðsynlega viðgerðar
við. Því var svarað til að það gæti
ekki verið og því ættu engar við-
gerðir að fara fram. Svar skóla-
tannlæknisins verður ekki endur-
tekið. En honum var svarað því til,
að áður en það yrði gert yrði fengin
umsögn annars tannlæknis. Það var
gert og fann hann ekkert að.“
Biðst blaðið velvirðingar á þess-
um mistökum.
Brosið sem endast á ævilangt
Snyrting í Kvennasmidju
VEGNA mistaka, sem urðu við vinnslu þessarar myndar, sem
birtist í blaðinu sl. þriðjudag, birtist hún aftur. Hún sýnir snyrti-
fræðinga mála vaxtarræktarmanninn ívar Hauksson á kynningu í
Kvennasmiðjunni. Morgunblaðið biður hlutaðeigandi afsökunar á
þeim mistökum sem urðu.
-4
Schiphol er bestur
og þangað flýgur Arnarflug
BEST AIRPORT
WORLDWIDE
1 SCHIPHOL
2 Singapore
3 Zurich
4 Frankfurt
,5 London, Heathrow
Atlanta
ampa, Florida
neva
don, Gatwick
,CDG
Enn einu sinni hefur Schip-
hol flugvöllur í Amsterdam
verið kjö[inn bestl flugvöllur
í heimi. í ár fékk hann þrisvar
sinnum fleiri atkvæði en sá
flugvöllur sem varð númer
tvö. Það liggja til þess margar
ástæður að flugfarþegar
kjósa Schiphol besta flugvöll-
inn ár eftir ár.
Ein er sú að þar er allt
undir elnu þaki (í staðinn
fyrir í tveimur eða þremur
byggingum) og þjónusta er
hraðarl og betri en þekkist
annars staðar.
Schiphol Amsterdam
---íW
Boeing þota Arnarflugs á Schiphol flugvelli I Amsterdam.
Fjölbreytni þjónustu þeirrar
sem farþegar njóta er líka
meiri en annars staðar. Frf-
höfnin á Schiphol er sú
ódýrasta í heimi og þar fást
yfir 50 þúsund vörutegundir
í 40 verslunum.
Hvergi er auðveldara að
komast áfram leiðar sinnar,
hvort sem menn eru að fara
til Evrópu eða Austurlanda
fjær. Frá Schiphol fljúga 64
flugfélög til 180 borga í 80
löndum. Þaðan er einnig
hægt að taka lestar um alla
Evrópu og bílaleigubílar
eru ódýrir.
Hollenska flugfélagið KLM
flýgur til allra heimshorna.
Arnarflug hefur aðalumboð
fyrir KLM og hjá Arnarflugi er
því hægt að kaupa farmiða
til allra heimshorna. Arnar-
flug opnar þér hliðið að um-
heiminum með því að flytja
þig til Schiphol flugvallar í
Amsterdam.
^ARNÁRFLUG
Lágmúla 7, sfmi 84477