Morgunblaðið - 31.10.1985, Síða 12
12
MORG UNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985
Snílldar cellóleikur
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Löngum hafa menn reynt þann
leik með sér, að leysa þá gátu
hvers vegna einrödduð verk, tón-
verk eins og sellósvíturnar eftir
J.S. Bach, bera í sér máttugri
listræn skilaboð en mörg þau
tónverk, sem miklu meira er lagt
til í efni og umbúnaði. Helst
þykjast menn sjá sannleikskorn
í þeirri staðhæfingu, að grunnur
tónhugsunar í öllum tónverkum
sé einraddað tónferli og að líkja
megi rökrænni framvindu tón-
anna við merkingu orða og fram-
vindu hugsunar við uppröðun
þeirra og á sama veg sé ratað,
að ekki sé nóg að merkingin sé
Ijós, heldur þurfi orðaskipan og
eins og tónskipanin að vera með
svo sérstökum hætti, að ein
standi hún sem gulli slegið djásn.
Ein setning ber í sér vitræn
skilgoð en er auk þess undursam-
lega orðuð og þannig ber tón-
hending í sér rökræna samskipan
tóna en er einnig auk þess svo
haglega unnin, að hlustandinn
getur haft hana eftir, sem setn-
ing væri. Þessi galdur er kunnur
í bundnu máli, þar sem hver
setning ber í eigindir stefsins
sem til samans eru ljóð, svo sem
tónhendingar mynda eitt lag. En
það að leita sannleikans, er eins
og lífsganga vitringanna forðum,
að sú leit ber menn ávallt á sama
stað og þeir hófu leitina. Þar
gnapir yfir ókleyft bjargið, því
snilldin er aðeins snilld, að aldrei
verði hægt að skilgreina hana.
Það er í raun þessi galdur, ofinn
úr ósýnilegum þræði undursam-
leikans er tendrar hinn óbrenn-
anda eld og þrá mannsins til
samvista við hið yfirskilvitlega.
Þar i er fólginn óskabrunnurinn.
Erling Blöndal Bengtsson hefur
hitt á óskastundina, notið þeirrar
náðar að finna andblæ hins yfir-
skilvitlega, verið gefin sú gáfa
að mega flytja mönnum skilaboð
Prómeþeusar og svala
óslökkvandi þrá manna eftir
fegurð. Sarabandan í fyrstu svít-
unni bar í sér þessi skilaboð og
Menuettinn var ekki jarðneskur
dans. Prelúdían í annarri svít-
unni var merkt undursamleikan-
um. Sarabandan í þriðju svítunni
og báðir Bourrée-kaflarnir voru
fegurðin sjálf, en í Prelúdíunni
og þriðju svítunni glampaði af
hinum óbrennanda eldi. Allir
þrír Gigue-þættirnir voru gædd-
ir mannlegri gleði, sem ofin er
saman úr breyskleika mannsins
og góðmennsku. Tónleikar Kam-
mermúsíkklúbbsins að þessu
sinni, er sellósnillingurinn Erl-
ing Blöndal Bengtsson flytur
einhver fallegustu tónverk
meistara Bachs, eru meðal mestu
tónlistarviðburða og á laugar-
daginn kemur lýkur hann að
flytja svíturnar. I dag (fimmtu-
dag) mun hann eiga leið hjá
Háskólabíói og leika þá með
Sinfóníuhljómsveit íslands, svo
að þessi vika er í raun sérstök
listahátíð mikils listamanns,
sellósnillingsins Erlings Blön-
dals Bengtssonar.
Kjarvalí
Hafnarborg
Það eru fleiri en Reykvíkingar,
sem heiðra minningu Jóhannesar
Sveinssonar Kjarvals. Hafnarfjörð-
ur gefur fólki tækifæri til að sjá
tvær sýningar á listaverkum meist-
arans. Háholt og framtak Þorvalds
Guðraundssonar hef ég þegar
minnst á hér í blaðinu, og nú er
komið að sýningunni í Hafnarborg,
menningarsetri þeirra í firðinum.
Ég verð að játa, að ekki hef ég
fyrr orðið svo frægur að heimsækja
þetta merka hús, sem Sverrir
Magnússon lyfsali afhenti bænum
fyrir nokkru til afnota fyrir menn-
inguna, og sýnist mér þetta hin
ákjósanlegasta vistarvera fyrir alls
konar menningarstarfsemi,
skemmtilegt húsnæði og virðulegt,
hlýlegt og mannlegt (alla staði.
Nú hafa nokkrir eigendur
listaverka Kjarvals efnt til sýn-
ingar á verkum Hafnfirðinga, og
á þann hátt heiðra þeir minningu
listamannsins. Þarna er um
framtak að ræða, sem er bæði
skemmtilegt og virðingarvert af
hálfu bæjarbúa, fyrir utan það,
hve fróðlegt er að fá að sjá þessi
verk, sem annars eru inni á heim-
ilum manna. Mig grunar, að
Gunnar Hjaltason, gullsmiður
og málari, hafi verið driffjöðrin
í þessu fyrirtæki, enda eiga hann
og kona hans bróðurpartinn af
sýndum verkum. En hver svo sem
komið hefur þessari sýningu I
framkvæmd á miklar þakkir
skildar. Þarna eru 53 verk, teikn-
ingar, málverk, grafík og vatns-
litamyndir. Það er því augljóst,
að sumt af þessu er forvitnilegt
í meira lagi. Þarna eru nokkur
verk, sem ég hafði ekki hugmynd
um, að væru til, en afköst Kjar-
vals eru með því móti, að alltaf
verður maður meira og meira
hissa, en ekki skal fjölyrða um
einstaka verk í þessu tilviki,
heldur benda á, að þarna eru
afar skemmtileg verk, sem fólk
ætti ekki að láta fram hjá sér
fara.
Þegar ég hafði skoðað þessa
sýningu, varð mér hugsað til
annarra bæja hér á landi og
hvernig það væri til að mynda
með bæ eins og Akureyri. Því er
ekki efnt til sýningar verkum
Kjarvals í eigu bæjarbúa, þar
sem þau eru til? Það væri sólar-
geisli í skammdeginu fyrir dreif-
býlið. Þessi sýning í Hafnarborg
er til mikils sóma fyrir Hafn-
firðinga og ég óska þeim til
hamingju með framtakssemina.
Jean-Paul Chambas
Myndlist
Valtýr Pétursson
Franskur listamaður er hér
mættur í með verk sfn. Hann var
hið fyrsta skiptið með sýningu sína
í sálugu galleríi við Lækjartorg,
Listamiðstöðinni, en er nú í hinum
ágætu salarkynnum Listasafns
ASÍ. Ekki sá ég fyrri sýningu
Chambas og get því ekki gert
samanburð á þessari sýningu og
þeirri fyrri.
Nú sýnir Chambas olíumál-
verk, blýantsteikningar, klipp-
myndir og grafísk blöð. Það er
því óhætt að ætla, að þessi sam-
setning sé nokkuð góð af verkum
þessa listamanns, en hann vinn-
ur á nútímavísu og minnir í
sumum verka sinna á það, sem
nú virðist svo algengt hjá mynd-
listarmönnum báðum megin
hafsins. Einna helst kemur sú
staðreynd í Ijós í mannamyndum
Chambas, en þær eru meðal
annars af frægum menningar-
frömuðum, eins og Rilke, Victor
Hugo, Delacroix og Toulouse-
Lautrec, en sú mynd, er hafði
mest áhrif á mig í þessari mynd-
röð, er No. 15, W. Benjamin. Sum
verkin finnst mér nokkuð hörð í
litnum, en annars bera þau vitni
um skemmtilega tækni og sanna,
að þarna er kunnáttumaður á
ferð. Það mætti segja mér, að
Chambas væri fyrst og fremst
leiktjaldamálari og mætti benda
á margt í þessum verkum, sem
bendir til þess.
í heild er þetta skemmtileg
sýning og nokkuð ólík því, sem
maður á að venjast hér í borg.
Að vísu er ekkert stórbrotið á
ferð, en þarna er unnið af alvöru,
og er það meira en hægt er að
segja um fjölmargt af því, sem
hér kemur fram og sýnt er al-
menningi. Þeir, sem unna mynd-
list og vilja kynnast því, hvað er
að gerast annars staðar en í
Reykjavík í myndlist, ættu ekki
að láta þessa sýningu óséða.
Það hefur nokkuð borið við
með sýningar erlendra lista-
manna hér um slóðir, að fólk
hefur verið tregt til að heim-
sækja þær. Það er okkur vægast
sagt til lítils sóma, og auðvitað
ætti fólk að skoða það, sem býðst,
og veita því athygli, hvað er að
gerast í listum utan höfuðborg-
arsvæðisins. Það sakar ekki að
víkka sjóndeildarhringinn.
Salurinn
Það kemur stundum fyrir, að
erfitt er að skrifa um einstaka
hluti, sem komið er fyrir til sýn-
ingar, og maður veit þá ekki í
hvorn fótinn á að stíga. Það er
það mikil sýningarvertíð í gangi
hér hjá okkur á þessu hausti, að
vart verður um allt fjallað, svo
að vel sé. Þannig opnuðu fjórar
sýningar dyr sínar fyrir almenn-
ingi seinni part síðustu viku.
Þessar sýningar eru mjög mis-
munandi að eðli og gæðum, eins
og gefur að skilja. Sumt fólk virð-
ist eingöngu vera á þeim buxun-
um að sýna og aftur sýna, en
hugsar minna um gildi sýningar-
gripanna, enda eru okkar tímar
undirlagðir af auglýsingum og all
skonar brellum er beitt til að
vekja á sér eftirtekt. Auðvitað
hefur slíkt ekkert með listir að
gera, og ef öll orð fjölmiðla væru
tekin alvarlega, er ég hræddur
um, að listræn uppskera biði við
það verulegt tjón.
Salurinn .Vesturgötu 3 fór
nokkuð vel af stað og maður
gerði sér vonir um, að einhver
ending yrði þar á, en nú veit ég
ekki, hvað segja skal. Það hafa
verið ótímabærar sýningar
þarna á ferð og ekki allt eins
skemmtilegt og byrjunin vísaði
til, en auðvitað eiga allir sýn-
ingarstaðir það á hættu að fá
heldur lélega hluti svona við og
við.
Á Vesturgötu 3 hefur Jón
Ferdinandsson komið fyrir
nokkrum málverkum, sem hann
sjálfur segir, að til séu orðin
fyrir áhrif frá Þjóðarbókhlöð-
unni. Að vísu má finna sum af
formum Jóns í þessari nýbygg-
ingu, en að öðru leyti vefst fyrir
mér að sjá samhengið. Þessi
málverk eru þolanleg í lit, en
þau eru afar viðvaningsleg, og
ég held, að sýning Jóns í heild
hafi ekki verið tímabær, og er
það vægur dómur yfir þessu
fyrirtæki.