Morgunblaðið - 31.10.1985, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.10.1985, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985 15 Sporin Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Friðrik Guðni Þérleifsson: MITT HEIÐBLÁA TJALD. Ljóð Hörpuútgáfan 1985 Ljóð Friðriks Guðna Þórleifs- sonar eru af fremur hefðbundnum toga, en þó með ýmsum frávikum frá kliðmjúkum háttum. Friðrik Guðni getur vissulega stuðlað vel ag rímað, en líka orðað hug sinn án allra helstu hjálpargagna brag- smiðsins: Luktum augum hrofirþúágrasið sem vex yfir sporin þín gengin í bernsku ogsöknuðurinn og minningin komagangandi ogopnaþau. (Bernskuslóð) Það er töluvert um bernsku- minningar í Mitt heiðbláa tjald. í upphafi er talað um að yfirgefa „bernskunnar hlýja búr“, en án söknuðar þvi að „á víðáttunni utar/ bíður þín Eva.“ í Jól stendur „Eplin voru ekki alltaf rauð/ en ilmandi." Friðrik Guðni fæst við að yrkja heila ljóðaflokka, eins og til dæmis Skógarvísur sem eru vel kveðnar. í þeim er rómantískt andrúmsloft. Riðið er rauðum fákum til fundar og brugðið sverðum meðan gull hrynur í bleikan mosa. ölvaðar eikur dansa og rósir hlæja í runn- um. Bestur þykir mér hinn létti leikur ljóðmálsins í lokavísunni: Ogskógurinngrær yfirgleymskuþína, stráir íkornum stigu þína, blæselgshornum brottvistþína, hyllirkalgreinum hérvistþína, hleður bálköstum hugför þína. í ljóðaflokki um dýr og fugla, Dýravísum, eru skemmtilegar rímæfingar, sennilega vel fallnar til söngs. Eftirminnilegast þótti mér ljóðið um krfuna sem skáldið ávarpar svo: „tvíræða sköpun/ skelegga fis/ yndishamur/ árásar- þokki“. Því ber ekki að leyna að sá hluti Myndin er af fyrstu konunni, sem klæðist búningnum við hátfðiegt tækifæri, en það var á 17. júnf sl. Hún heitir Ingileif Ástvaldsdóttir. opnast Friðrik Guðni Þórleifsson bókarinnar sem nefnist Kurl er furðu gamaldags kveðinn af ekki eldra skáldi, en margt er þar vel orðað og hrynjandin mjúk. Aftur á móti vitna ljóð eins og Pétur, Ferð og Dans um erindi skáldsins við samtíðina. Þau sýna að Friðrik Guðni Þórleifsson lætur ekki nægja að kveða létt og áreynslulaust í anda hins liðna, heldur vill hann horfast f augu við þá veröld sem við okkur blasir. Hann beinir stundum ljóði sfnu gegn yfirborðslegum hlutum og skrumi minnugur þeirra tíma þegar meiri einlægni rfkti. Þegar á allt er litið er Mitt heiðbláa tjald þroskaðasta ljóða- bók Friðriks Guðna Þórleifssonar og verðugt framhald fyrri bóka hans, en þær eru Ryk (1970), Augu í svarta himin (1973) og Og aðrar vísur (1977). Þess skal getið að frágangur bókarinnar er einkar smekklegur. Sama er að segja um Haustheima Stefáns Sigurkarlssonar sem Hörpuútgáfan gefur líka út. Markaðsstjórar - sölustjórar Námskeið í markaðssókn Miklar breytingar eiga sér nú stað á íslenska markaðnum. Aukið frelsi í verslunar- og verðlagsmálum og aukin samkeppni milli fyrirtækja og stofnana hafa orðið til þess að þekking á markaðsmálum er ómiss- andi ef fyrirtæki vilja standa skipulega að markaðssókn sinni. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á að þátttakendur nái valdi á markaðsmálum, þannig að þeir geti notað þau hugtök og aðferðir sem felast í skipulegri markaðssókn. Efni námskeiðsins er m.a.: • Helstu hugtök markaðsfræðinnar • Vöruhugtakið • Stefnumótun markaðssóknar • Markaðshlutun • Verðlags- og þjónustumál • Samkeppnisgreining • Auglýsingar og almenningstengsl Þetta námskeið er einkum ætlað markaðsstjórum, sölustjórum, almenningstengslafulltrúum og öðrum starfsmönnum sem hafa með markaðs- og sölumál að gera. Leiðbeinandi: Bjarni Snæbjörn Jónsson, rekstrarhagfræðingur. Tímiogstabur. ^ _i3. nóvember W.A3.30-17.30 ^nanaustunV^ ScjórnunarfBlðg íslands Ananaustum 15 Sfmi: 621066 Habitat veit hvað klukkan slær. High tech línan er gott dæmi um . Habitathönnun: Nýstárleg, ■■_________ ^^otadrjúg og vönduö. Við eigum nú til háar hillur og lágvaxin hjólaborö, a ias ennfrpTÁTTyiTiMiVfitMiHW hljómtækjSl High tech er n High tech hillan m og boröiö kr. 2.982, ^kka og tölvuborð. mmm—m ^mleitt í svörtu og hvítu ^■"star kr. 5.564, v---------- Habitat. Verslun — póstv Laugavegi 13, sími 25808 h
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.