Morgunblaðið - 31.10.1985, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985
17
Dómarnir um S-Afríku
— eftir Þórð E.
Halldórsson
Þann 1. september sl. birtist í
sunnudagsblaði Morgunblaðsins
viðtal við Hilmar Kristjánsson,
sem búið hefur í S-Afríku um 20
ára skeið.
Ég hef ekki séð í blöðum gleggri
eða sannari frásögn af því sem þar
er og hefur verið að gerast í þessu
fjarlæga ríki en umrætt viðtal,
enda maðurinn orðinn þar öllum
viðhorfum kunnugur.
Síðan þetta viðtal fór fram hefur
það valdið miklu umtali og blaða-
skrifum og er það vel.
Það er svo að þar eru ekki allir
sammála, enda væri það með ólík-
indum. Það er svo tímanna tákn
að ekki er að sjá að allir hafi fallið
hugsunarlaust fyrir þeim skefja-
lausa áróðri sem beitt hefur verið
gegn þessu ríki.
Eg vil alveg sérstaklega benda
á grein í Morgunblaðinu frá 11.
september eftir Arnór Hannibals-
son, dósent við heimspekideild
Háskóla íslands, er hann nefnir
„Um aumingjaskap og almættið".
Einnig grein eftir séra Árelíus
Níelsson i Morgunblaðinu þann 4.
september er hann nefnir „Glatað
tækifæri í Teigahverfi". Einnig
grein í Velvakanda Morgunblaðs-
ins frá 6. september, sem ber yfir-
skriftina; „Suður-Afríka; hræsni
og yfirdrepsskapur Islendinga".
Gallinn við þá grein er sá að hún
er ekki skrifuð undir nafni. Hún
er það vel skrifuð að höfundur
hennar hefði vel mátt geta nafns
sins, en ég skil hann að því leyti,
að hann hefur óttast að áróðurs-
maskinan mundi úthrópa hann
sem einhvern óbótamann. Guð-
mundur Magnússon skrifar grein
i Morgunblaðið 15. september og
nefnir hana „Hvað er svona merki-
legt við S-Afríku?“
Undir orð allra þessara aðila get
ég tekið, enda þótt ég sé þeim ekki
sammála í öllum atriðum, sumum
þeirra.
Það sem hefur þó vakið hvað
skarpasta athygli í skrifum um
þessi mál er afstaða konungs
anarkistanna (stjórnleysingjanna)
á íslandi, Svavars Gestssonar.
Hann fékk eitt af sinum þekktu
tryllingsköstum og náði ekki uppi
sitt reiðiþrungna nef yfir því að
Morgunblaðið skyldi leyfa sér að
birta viðtalið við Hilmar Krist-
jánsson. „Hverju reiddust goðin?"
Svavar Gestsson þarf ekki að
halda að greinar þær sem ég hef
bent á hér að framan hafi ekki
meiri áhrif en upphlaup hans.
Þessum sjáifskipaða áróðurskóngi
væri hollt að minnast gömlu vís-
unnar; „Hvað fer sem það flýgi,
það er hún lýgi. Þótt hún fari
hraðar en sjónin má sjá, fer sann-
leikurinn á eftir og mun henni ná.“
Örvæntingarskrif anarkistans
að undanförnu um sinn eigin flokk
benda best á hvernig hans sálar-
ástand er um þessar mundir. Hann
veit manna best að fylgið er að
hrynja af kommúnistum á íslandi
eins og hreistur af ýsu. Hvað
sannar betur en að svo sé, þegar
gluggað er í skýrslu „Mæðranefnd-
MR sigrar
í árlegri
ræðukeppni
FIMMTUDAGINN 10. októ-
ber sl. fór fram hin árlega
ræðukeppni milli Verzlunar-
skóla íslands og Menntaskól-
ans í Reykjavík.
Verslunarskólinn hefur
unnið keppni þessa nokkra
undanfarna vetur, en að
þessu sinni sigraði lið MR.
Ræðusveit Menntaskólans
skipuðu þeir Hlynur N.
Grímsson, Gylfi Magnússon
og Sveinn Valfells.
(FrétUtilkynning)
arinnar" sem sjálfur anarkistinn
stóð að að skipa á fundi fram-
kvæmdastjórnar kommúnista-
flokksins þann 29. júlí sl.
I skýrslu nefndarinnar, sem í
voru flokkssystur anarkistans og
samin af þeim, segja þær að flokk-
urinn sé orðinn leiðinlegur, ólýð-
ræðislegur og staðnaður kerfis-
flokkur, sem hafi brugðist því að
berjast fyrir kjörum launafólks.
Er hægt að hugsa sér öruggari
vitnisburð?
Eftir eins og hálfs árs dvöl í
Suður-Afríku, tel ég mig eiga rétt
á því að láta skoðun mína í ljósi
um þessi S-Afríkumál.
Ég tel engan vafa á því að heppi-
legasta lausn þeirra mála sé sú að
þeim svörtu sé á einhvern hátt
gert kleift að taka þátt í stjórn
landsins. En að þeir taki í sínar
hendur stjórnina, af því einu að
þeir eru fleiri en hinir hvítu, er
engan veginn tímabært, vegna
þess eins að ennþá eru þeir ekki í
stakk búnir til þess.
Anarkistarnir á Islandi hafa
haldið því fram að svarta kyn-
stofninum í S-Afríku sé haldið frá
allri menntun og verkþekkingu.
í viðtalinu við Hilmar Krist-
jánsson segir svo: „Stjórnin leggur
gífurlegt kapp á að mennta svert-
ingja landsins á öllum sviðum,
enda eru fleiri menntaðir svert-
ingjar í S-Afríku en í allri Afríku
samanlagt. Á síðasta ári útskrif-
uðust 50 þúsund svartir stúdentar,
og nú eru fimm milljónir svartra
við nám í S-Afríku. — Búarnir eru
engar skepnur, þeir eru trúaðir og
kirkjuræknir með afbrigðum og
þeirra skoðanir byggja ekki á
mannvonsku. Þeir trúa því að þeir
séu að gera rétt og leggja raunsætt
mat á staðreyndir. Það þýðir ekki
að afhenda svertingjum landið
fyrr en þeir hafa þroska til að fara
með það. — í S-Afríku eru átta
kynbálkar og þeim hefur lengi
staðið til boða nokkurt sjálfsfor-
ræði. Sumir kynbálkarnir vilja það
ekki, en nokkrir eru þegar sjálf-
stæðir, en heimurinn vill ekki
viðurkenna það, þrátt fyrir að
Suður-Afríka líti á lönd þeirra sem
sjálfstæð ríki og hafi veitt þeim
gífurlegan stuðning. Á síðustu
fjárlögum var gert ráð fyrir hvorki
meira né minna en 40 milljörðum
ísl. króna til uppbyggingar þessara
ríkja.“
Eftir reynslu mína þann tíma
sem ég dvaldi í Suður-Afríku Ieyfi
ég mér að fullyrða, að hvergi í allri
Afríku líður svörtu fólki betur en
þar.
I flestum ríkjum Afríku, sem
fengu sjálfsstjórn eftir síðustu
heimsstyrjöld og ráku af höndum
sér alla hvita menn, er stjórnleysi
og hnignun á öllum sviðum og
mest er það vegna þess að valda-
barátta ættflokkanna ýtir undir
hverja borgarastyrjöldina á fætur
annarri í þessum vanþróuðu ríkj-
um, þar sem svartir drepa svarta.
Konungur anarkistanna á fs-
landi, Svavar Gestsson, ætti
manna best að vita hvers vegna
terrorisminn hefur vaðið yfir lýð-
ræðisríkin í Vestur-Evrópu og
aukist með ári hverju sl. 15-20 ár.
Anarkistinn veit vel að trúbræður
hans í þessum ríkjum hafa dvalið
í terrorista-skólum í Ráðstjórnar-
ríkjunum og leppríkjum þeirra.
Anarkistinn veit vel að trúbræður
hans hafa hvergi komist til valda
nema með ofbeldi og blóðsúthell-
ingum.
Hann veit líka að trúbræður
hans um allan heim villa á sér
heimildir með lýðræðishjali á
meðan þeir eru að læðast að bráð-
inni og hremma hana.
Það er ekki að ófyrirsynju sem
anarkistinn Svavar Gestsson
stendur í ræðustóli á landsfundi
kommúnista á íslandi 1983 og
lætur letra á vegginn fyrir aftan
sig; „Framtíð án fjötra." Er ekki
framtíðin án fjötra hr. S.G. í lepp-
ríkjum trúbræðra þinna í Austur-
Evrópu? Er ekki framtíð án fjötra
í Ethíópíu, Mósambik, Víet-Nam
og síðast en ekki síst í Afghanist-
an?
Whisky-veislan fræga í Addis
Ababa hjá kommúnistastjórninni
þar, á meðan þjóðin var að hrynja
niður úr hungri sannar best á
hvaða villimannastigi trúbræður
anarkistans standa á sama tíma
sem hann ber sér á brjóst og segist
vera ákafur lýðræðissinni.
Ástandið í Suður-Afríku nú má
rekja beint til terrorista-skólanna.
Menn átta sig máski ekki á því að
það eru örfá ár síðan allt var þar
með friði og spekt áður en terror-
isminn kom til sögunnar. Sama
má segja um lýðræðislöndin í
Evrópu.
Svavar Gestsson er engin und-
antekning i því að spila sig „sann-
an lýðræðisunnanda" á meðan
hann vinnur skipulega að því að
draumur eins trúbræðra hans
rætist; „Sovétísland, óskalandið,
hvenær kemur þú?“ Það fer ekki
framhjá neinum vitibornum
manni að kommúnismi er trú án
skoðunar.
Einhvers staðar stendur skrifað;
„Maður líttu þér nær.“ Deilan um
Suður-Afríku er látin heita andúð
á „apartheid“. Nú hefur þessi sama
lífsskoðun, „apartheid", skotið upp
kollinum hjá hópi vandlætara á
íslandi. Hin snilldarlega grein
hins mannkærleiksfulla fyrrver-
andi sóknarprests, Árelíusar Ní-
elssonar, í Morgunblaðinu hinn 4.
september um upphlaup íbúa
ÞórAur E. Halldórsson
„Eftir reynslu mína
þann tíma, sem ég
dvaldi í Suður-Afríku,
leyfí ég mér að fullyrða
að hvergi í allri Afríku
líður svörtu fólki betur
en þar.“
Teigahverfis í Reykjavík gegn hús-
næði Verndar í hverfinu sannar
best hvað fólk getur verið hleypi-
dómafullt og sleppir allri rökrænni
hugsun, þegar það telur sig vera
að verja stundarhagsmuni. Svo
áhrifagjarnt er fólk og íbúar
hverfisins hafa með þessu upp-
hlaupi og áróðri verðfellt sínar
eigin eignir, sem það annars þótt-
ist vera að vernda. Af frásögn
fasteignasala má ráða að ekki þýð-
ir að auglýsa þar hús eða íbúð til
sölu í dag. í þessu óðagoti „mann-
kærleikans" eru íbúarnir að eyði-
leggja sínar eigin eignir.
Mótmæli gegn þessari afstöðu
hinna skammsýnu húseigenda
Teigahverfis hefðu átt að vera
verðugt mannúðarverkefni hinnar
kristnu kirkju á íslandi, með bisk-
upinn í broddi fylkingar, en af-
staða hennar birtist helst í sögunni
af hinum líkþráðu. „Það var aðeins
einn, sem sneri aftur til að gefa
guði dýrðina." Það verður fróðlegt
að sjá hvað kemur í fréttum af
ályktunum hinnar væntanlegu
prestastefnu. Megum við máski
eiga von á því að ályktanir hennar
einkennist af viðtalinu sem Þjóð-
viljinn átti á dögunum við séra
Lárus Guðmundsson prófast í
Önundarfirði?
Að síðustu þetta: Það er von mín
og trú að fslendingar taki sér
Norðmenn til fyrirmyndar í því
efni að eiga engan kommúnista á
Alþingi eftir næstu kosningar.
Höfundur er búsettur í Lúxemborg.
BORGAR SIG
BOS hugbúnaöur
er ekki háður einni tölvutegund, heldur gengur á
margar tölvutegundir þ.m.t. IBM XT/AT, DEC MICRO PDFll, STRIDE,.
ISLAND XT/AT og ADVANCE.
BOS hugbunaður
er fjölnotenda með allt að 20 skjái eða einnotenda
með möguleika á að vinna í 4 kerfum samtímis.
BOS hugbúnaöur
gerir kleift að byrja smátt og stækka stig af stigi.
BOS hugbúnaður
er margreyndur og í stöðugri sókn.
Kerfin, sem boöiö er upp á eru m.a.:
Fjárhagsbókhald, viðskiptamannabókhald, sölu- og pantanakerfi,
birgðabókhald og birgðastýring, greiðslubókhald, launabókhald,
verkbókhald, tollskýrslu- og verðútreikningar, uppgjörskerfi og tíma-
bókhald fyrir endurskoðendur, framleiðslustýrmg, ntvinnsla, gagna-
grunnur, skýrslugerð, áætlanagerð ásamt tugum sérhannaðra forrita.
Söluaöilar BOS hugbúnaðar
Gísli J. Johnsen hf., Skrifstofuvélar hf., Aco hf., Kristján Skagfjörð hf.,
Hugur sf., Almenna kerfisfræðistofan, Tölvutæki sf. Akureyri.
dTú Tölvumiöstööin hi
F Höfðabakka 9 — Sími 685933