Morgunblaðið - 31.10.1985, Síða 22
22
MORGUNBLADID, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985
Öllum þeim sem glöddu mig á nírœðisafmœli
mínu með heimsóknum, gjöfum, símtölum og
skeytum 5. október sl. færi ég mínar hjartan-
legustu þakkir og vinarkveðjur.
Guð gefi ykkur öllum ánægju ogfrið.
Drottinn blessi ykkur í Jesú nafni.
Guð á hœðum gef þeimfrið,
gleði, næði og yndi.
Auki gæði, leggi lið,
lífs andstæðum hryndi.
Sæmundur Jónsson
frá A ustara-Hóli,
Aðalgötu 9, Ólafsfírði.
SPilÁfAtJð
med_
Cremedas
— besta umhirða sem þú getur veitt húð þinni.
Hin einstœða samsetning Cremedas veitir húð
þinni þann raka, sem nauðsynlegur er í okkar
breytilega loftslagi kulda, hita og vinda.
Notaðu Cremedas Nordic andlitskrem eitt sér eða
undir „make up“, og Cremedas „bodykrem“ eða
„bodylotion" í hvert sinn eftir bað.
JOPCO HF. VATNAGÖRÐUM 14
SÍMAR/ 39130, 39140
Og nú erum við í Borgartúni 28
Mikift fjölmenni var viðstatt víglsu hins nýja húss.
Hellissandur:
Morjfunblaðið/ólafur Rðgnvaldsson.
Björgunarstööin Líkn formlega tekin í notkun
NÝTT slysavarnahús var formlega
tekið í notkun hér á staðnum þann
20. október sl. Guðmundur Karl
Agústsson, sóknarprestur, messaði
í nýja húsinu og kirkjukór staðar-
ins söng.
Guðmundur Einarsson elsti
félaginn og einn af stofnendum
Slysavarnardeildarinnar Bjarg-
ar afhjúpaði nýtt nafn á björgun-
arstöðina og fékk hún nafnið
Líkn.
Næst rakti fyrrverandi for-
maður Slysavarnadeildarinnar
Bjargar Leifur Jónsson, bygging-
arsögu hússins og sagði hann að
fyrsta skóflustungan hafi verið
tekin 17. september 1977 að 140
fermetra húsi frá Húsasmiðj-
unni. Húsið var fokhelt 27. nóv-
ember 1977. Að byggingunni
stóðu Slysavarnadeildin Björg og
Slysavarnadeild Helgu Bárðar-
dóttur. Framkvæmdir lágu niðri
að mestu leyti til 1980, en þá var
grunnplata hússins steypt.
Leifur sagði að húsið væri
skuldlaust í dag og að brunabóta-
mat þess væri 3Vfe milljón.
Margar gjafir bárust slysa-
varnadeildunum. Þar á meðal
afhenti forseti Slysavarnafélags
íslands, Haraldur Henrýsson,
Björgunarstöðinni Líkn nýja tal-
stöð. Neshreppur utan Ennis gaf
utanborðsmótor á gúmmíbát í
eigu Slysavarnadeildarinnar.
Ólafur.
Aðalfundur Krabbameinsfélags Austfjarða:
Samþykkti árlega merkja
sölu til styrktar bar-
áttu gegn krabbameini
Krabbameinsfélag Austfjarða hélt
sinn 13. aðalfund sunnudaginn 22.
september sl. í samkomuhúsinu i
Stöðvarfirði og minntist þess jafn-
framt að 15 ár eru liðin frá stofnun
þess. Gestir fundarins voru Marfríð-
ur Smáradóttir og Ásgeir Helgason,
erindrekar Krabbameinsfélags ís-
lands og Reykjavíkur. Þau sýndu
myndir og fluttu fræðsluerindi auk
þess sem þau heimsóttu alla grunn-
skóla á félagssvæðinu og fræddu
nemendur um skaðsemi reykinga.
Formaður félagsins, Aðalbjörg
Magnúsdóttir, rakti sögu þess í
stórum dráttum. Aðalhvatamaður
að stofnun félagsins var Bjarni
Bjarnason, læknir og þáverandi
formaður Krabbameinsfélags ís-
lands. Fyrsti formaður var Daníel
Daníelsson, þáverandi læknir í
Neskaupstað. Stofnfélagar voru
850 talsins en samkvæmt síðustu
skýrslu félagsins eru nú 750 með-
limir.
Krabbameinsfélag Austurlands
hefur unnið markvisst að stuðn-
ingi við baráttu gegn krabbameini.
Má þar nefna m.a. aðstoð við
undirbúning og framkvæmd hóp-
skoðana kvenna í leit að legháls-
krabbameini og fjáröflun til
tækjakaupa. Samkvæmt skýrslu
formanns, hefur félagið lagt út fé
að upphæð 3.655.500 gamalla
króna fram til ársloka 1980 og um
325.000 í nýjum krónum eftir það.
Af tækjakaupum má nefna maga-
speglunartæki, sem keypt var 1979
og jónartæki var keypt 1983 en
Krabbameinsfélag Austfjarða tók
þátt í þeim kaupum að hluta. Bæði
tækin voru gefin fjórðungssjúkra-
húsinu í Neskaupstað. Ristilspegl-
unartæki auk annarra tækja voru
gefin heilsugæslustöðinni á Fá-
skrúðsfirði og á Stöðvarfirði.
Styrkir hafa einnig verið veittir
til sjúklinga sem þurft hafa í
meðferð vegna krabbameins.
Krabbameinsfélag Islands hefur í
hyggju að koma í kring kerfis-
bundinni leit að brjóstakrabba í
konum og einnig í meltingarvegi
karla og kvenna ásamt fræðslu og
upplýsingaherferð til að auka
skilning landsmanna á vandamál-
inu og á hvern hátt raunhæft er
að stemma stigu við því. Með tilliti
til þessa vill Krabbameinsfélag
Austfjarða leggja sitt af mörkum
m.a. með fjáröflun og samþykkti
fundurinn að tekin skyldi upp ár-
leg merkjasala á vegum félagsins
og var stjórninni falið að sjá um
framkvæmd málsins.
Að síðustu þakkaði formaður
þann stuðning og velvild, sem fé-
lagið nýtur meðal almennings.
Stjórn félagsins skipa: formaður
Aðalbjörg Magnúsdóttir Fá-
skrúðsfirði, ritari Sigrún Steins-
dóttir Fáskrúðsfirði, gjaldkeri
Guðrún Sigurjónsdóttir Neskaup-
stað, meðstjórnendur Helga Aðal-
steinsdóttir Reyðarfirði og Sigur-
borg Einarsdóttir Eskifirði. I
fundarlok þágu gestir, sem voru
52 talsins, veitingar í boði heima-
manna á Stöðvarfirði.
Flateyri:
Konur álykta á
kvennafrídegi
KONUR á Flateyri höfðu „opið hús“
á kvennafrídaginn 24. október í
mötuneyti Hjálms hf. Margt var þar
spjallað og vilja konur koma eftirfar-
andi ályktunum á framfæri:
Með núverandi byggðastefnu er
vegið svo hart að landsbyggðinni
að útilokað er að breyta nokkru,
konum eða öðrum i hag, nema að
stærri hluti af þeim auðæfum, sem
fara í gegnum sjávarþorp eins og
Flateyri verði eftir í byggðarlag-
inu sjálfu og nýtist borgurum þar
til mannvænlegra lífs.
Efst á blað settu konurnar
aukna og betri þjónustu á hinum
ýmsu sviðum. Hærri laun til fisk-
vinnslufólks. Bættar samgöngur.
Að öll börn geti lokið skyldunámi
i sinni heimabyggð. Aukna mögu-
leika á endurmenntun fullorðinna.
Stuðning og vernd við fjölskyld-
una, sem grunneiningu þjóðfélags-
ÍllS. Fréttatilkynning
Aðalfundur
knattspyrnudeildar KR
veröur haldinn í nýja félagsheimilinu
föstudaginn 8. nóvember kl. 20.00.
Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf.
Félagar f jölmenniö. stjórnin.
Til sölu
Til sölu M. Benz 450 SEL 1973. Einn sá glæsilegasti
sem komiö hefur. Keyptur nýr fráumboöinu.
Upplýsingar í síma 78926 og 78900 eftir kl. 2 á
daginn.