Morgunblaðið - 31.10.1985, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÖBER1985
Lyfjameðferð á alnæmissjúklingum:
Efasemdir um
meðhöndlunina
Bethesda, Maryland, 30. október. AP.
Lciðandi rannsóknarmenn í læknavísindum hafa lýst yfir undrun sinni
vegna tilkynningar fransks rannsóknarhóps um að tekist hefði að hemja
alnæmisveiruna með lyfi sem venjulega er notað til að gera ígræðslu líffæra
mögulega. Sérfræðingur í alnæmisrannsóknum hjá Heilbrigðisstofnun
Bandaríkjanna í Bethesda, dr. Anthony S. Fauci, hefur varpað fram þeirri
spurningu hvernig franski hópurinn geti tilkynnt um „veruíegan" árangur
eftir að lyfið hefði einungis verið reynt í viku.
AP/Simamynd
Prófessorarnir Philippe Even og Jean-Marie Andrieu og læknirinn Alain Vernet staðfesta á blaðamannafundi á
þriðjudag að þeir hafi uppgötvað nýja lyfjameðferð fyrir alnæmissjúklinga sem virtist halda sjúkdómnum í skefjum.
Ekki hefur enn fengist staðfest hversu árangursrík meðferðin er en hún virðist lofa góðu.
Suður-Afríka:
Sjö svertingjar
féllu í átökum
Jóhannesarborg, S-Afríkn, 30. október. AP.
SJÖ svertingjar létu lífiA í átök-
um í Sudur-Afríku í gærkvöldi
og í nótt. Mikil kjörsókn var í
dag meðal hvítra manna í auka-
kosningunum til þingsins, og
telja stjórnvöld það vott um
stuðning við þá stefnu sína að
vinna að „umbótum í kynþátta-
málum“.
1 aðalstöðvum lögreglunnar var
sagt, að fimm svertingjar hefðu
verið grýttir og síðan skotnir til
bana í bifreið i grennd við Durban,
þar sem andstæðar fylkingar
svartra hafa borist á banaspjótum
undanfarna mánuði.
Lögreglan sagði einnig, að
óeirðalögregla hefði skotið svartan
Búist við að frú
Bonner fái að fara
frá Sovétríkjunum
Bonn, Ventur—Þýskalandi, 30. október. AP.
Sendiherra Sovétmanna í
vestur—Þýskalandi sagðist
trúa því að kona sovéska
andófsmannsins Andrei D.
Sakharovs hefði fengið leyfi
yfirvalda til að leita sér lækn-
inga á Vesturlöndum. Óstað-
festar fregnir herma að Ye-
lena Bonner komi til Vínar í
dag, fímmtudag.
Vladimir Semyonov, sendi-
herra, sagði að hann áliti að
Yelenu G. Bonner hefði verið
leyft að yfirgefa Sovétríkjanna.
Álitið er að Bonner þjáist af
augnsjúkdómnum gláku sem
leitt getur til blindu. Augn-
skurðaðgerð til að lækna sjúk-
dóminn er ekki fáanleg í Sovét-
ríkunum. Þegar fréttamaður
AP spurði hvort Sakharov yrði
einnig leyft að yfirgefa Sovét-
ríkin, svaraði Semyonov: „Það
er allt annað mál og þeirri
spurningu get ég ekki svarað."
Sakharov var sendur í útlegð
til borgarinnar Gorkí 1980 og
kona hans var send til hans
1984. Vestræn mannréttinda-
samtök og ríkisstjórnir hafa
ítrekað gert fyrirspurnir um
aðstæðu þeirra hjóna en yfir-
völd í Sovétríkjunum hafa neit-
að að ræða málið þar sem um
sé að ræða íhlutun í innanríkis-
mál Sovétríkjanna.
mann fyrir utan Port Elizabeth,
þar sem hann hefði ásamt fleirum
verið að grjótkasti og skemmdar-
verkum.
Á sömu slóðum var annar svart-
ur maður höggvinn til bana með
öxi eftir að kveikt hafði verið í
heima hjá honum með bensín-
sprengju.
Vígaferlin í nágrenni Durban
komu í kjölfar morðsins á Zulu-
leiðtoganum Patrick Dlamini, sem
skotinn vai: til bana á þriðjudags-
morgun, þegar hann reyndi að
flýja brennandi híbýli sín.
Dlamini var félagi í Inkatha-
samtökunum, sem eru hófsöm
samtök Zulumanna og hafa verið
sökuð um undanslátt og svik i
baráttunni gegn aðskilnaðarstefn-
unni.
P.W. Botha forsætisráðherra
gerði sér vonir um að flokkur sinn,
Þjóðarflokkurinn, mundi ná öllum
fimm þingsætunum, sem kosið var
um i aukakosningunum.
Frönsku læknarnir sögðu á
blaðamannafundi í París á þriðju-
dag að lyfið „cyclosporine", sem
notað er til að bæla höfnun lík-
araans við ígræðslu líffæra, geti
komið í veg fyrir fjölgun alnæmis-
veirunnar og geri ónæmiskerfi líka- t
mans fært að endurnýja sig. Þeii
sögðu að meðferð þessi væri alls
ekki lækning á alnæmissjúkdómn-
um, sem hefur í flestum tilfellum
leitt til dauða, en lyfið gæti hjálpað
til við að halda alnæmisveirunni í
skefjum þar til lyf finnst sem vinn-
ur á veirunni.
Þrír frönsku læknanna, Philippe
Even, Jean—Marie Andrieu og
Alan Venet, sögðust hafa orðið vitni
að „verulegum" bata hjá tveimur
alnæmissjúklingum er þeim hafði
verið gefið cyclosporine i fimm
daga, en annar þeirra var að dauða
kominn þegar meðferðin hófst.
Fjórir aðrir alnæmissjúklingar eru
í meðferð með nýja lyfinu á La-
ennec-sjúkrahúsinu í París, en
læknarnir sögðu að enn væri of
snemmt að segja til um árangur
hvað þá varðaði.
Það er mjög óvenjulegt að nýjar
lækningaaðferðir séu kynntar með
svo litlum fyrirvara hafi þær ekki
verið reyndar á fleiri sjúklingum.
„Hvers konar vísindamenn eru það
sem gefa sex sjúklingum lyf í eina
viku og tilkynna fjölmiðlum síðan
um árangurinn? Vilji menn virða
einhverja siðfræði, er skylt að
ganga úr skugga um að meðferðin
skilaði árangri áður en skýrt er
frá henni opinberlega," sagði dr.
Anthony S. Fauci um málið.
GENGI
GJALDMIÐLA
GENGI Bandaríkjadollara lækkaói í
dag vegna bollalegginga um lækkandi
vexti I Bandaríkjunum. Varð gengi
dollarans lægra gagnvart japönsku
jeni en nokkru sinni undanfarin fjögur
ár.
Orðrómur var á kreiki um, að
bandaríski seðlabankinn myndi
lækka forvexti hjá sér, en þeir eru
nú 7,5%. Fari svo, þá myndu vextir
lækka almennt í Bandaríkjunum,
sem hefði minnkandi eftirspurn
eftir dollaranum í för með sér.
Sterlingspundið hækkaði í dag og
kostaði það 1,4430 dollara síðdegis
í dag (1,4380). Gengi dollarans var
annars þannig, að fyrir hann feng-
ust 2,6140 vestur-þýzk mörk
(2,6235), 2,1442 svissneskir frankar
(2,1528), 7,%25 franska franka
(7,9975), 2,9493 hollenzk gyllini
(2,9600), 1.766,75 ítalskar lírur
(1.769,50), 1,3645 kanadískir dollar-
ar (1,3651) og 210,68 japönsk jen
(212,90).
Gullverð hækkaði og kostaði það
326,00 dollara únsan (325,80).
Sovétríkin:
Gefið í skyn að alnæmi sé
afleiðing tilraunastarfsemi
Moskvu, 30. oktAP
Blaóið Literaturnaya Gasetstaya í
Sovétríkjunura gefur f skyn að al-
næmisveiran gæti verið til kominn
vegna sýklahernaðartilrauna á vegum
Pentagon í Bandaríkjunum eða leyni-
þjónustunar (CIA). „Menn hljóta að
velta því fyrir sér hvers vegna alnæmi,
líkt og aðrir nýjir sjúkdómar, s.s.
hermannaveiki, brjótast svo skyndi-
lega út, og hvers vegna þeir koma
upp í Bandaríkjunum og það í borgum
á austurströndinni," segir f ítarlegri
grein um ónæmistæringu um í blað-
inu.
1 greininni er hvergi minnst á
hvort alnæmistilfelli hafi greinst í
Sovétríkjunum. Heyrst hefur að
alnæmisrannsóknir fari fram í
Sovétríkjunum vegna þess hve
mikla ógn sjúkdómurinn felur i sér
og vestrænir fréttamenn hafa sagst
hafa það eftir lækni í Grúsíu að
nokkur alnæmistilfelli hefðu fund-
ist í Sovétríkjunum.
Afríka:
Vart við
sjúk-
nyjan
dóm skyldan alnæmi
New York. 30. október. AP.
New York, 30. október. AP.
NÝR sjúkdómur, sem dregur fólk til dauða og talinn er skyldur alnæmi,
hefur fundist í Afríku. Þar gengur hann undir nafninu meguröarsótt og
lýsir sér í því að fólk með sjúkdóminn tapar miklu af líkamsþyngd
sinni. Sjúkdómurinn finnst einkum í röðum kynvísra.
Sérfræðingar telja að þótt sjúk-
dómurinn líkist mjög alnæmi, þá
sé þarna um sérstakan sjúkdóm
að ræða, að því er fram kemur í
breska læknablaðinu Lancet 19.
október síðastliðinn. Þessir tveir
sjúkdómar eiga mörg einkenni
sameiginlega, en alnæmi veldur
venjulega ekki þessu mikla tapi á
líkamsþunga, sem megurðarsóttin
veldur, né niðurganginum sem
henni er einnig samfara. Þá er
fórnarlömbum megurðarsóttar-
innar ekki jafn hætt við sogeitla-
bólgum, né að fá hið sjaldgæfa
krabbamein kaprosi sarcoma, sem
hvort tveggja eru algeng einkenni
alnæmis hjá kynhverfum.
63 af 71 sjúklingi með megurð-
arsótt sýndu merki þess að vera
smitaðir af alnæmisveirunni.
Verið er að athuga hvernig á því
standi að þeir sýndu ekki allir
merki um sýkingu af alnæmi.
Sjúkdómurinn sem fannst í Ug-
anda er einkum bundinn við laus-
látt, kynvfst fólk. Hann er talinn
hafa borist þangað frá Tanzaníu.
Það er ekki einungis munur á
megurðarsóttinni og þeim alnæm-
issýkingum sem fundist hafa í
Ameríku, heldur er einnig munur
á honum og þeim alnæmissýking-
um sem fundist hafa í nágranna-
ríkinu Zaire.
Þá hefur orðið vart eins tilfellis
megurðarsóttar í Lundúnum í
sjúklingi sem virtist ekki þjást af
alnæmi. Alnæmisveiruna nefna
sérfræðingar oft HTLV-III. Þessi
sjúklingur var hins vegar smitað-
ur af annarri veiru sem líkist
alnæmisveirunni og tekist hefur
að einangra.
Það eru ekki allir sérfræðingar
trúaðir á, að megurðarsóttin sé
nýr sjúkdómur. Einn þeirra sagði
að sér virtist sem þarna væri um
að ræða ákveðin fylgieinkenni
alnæmis, sem ekki hefur tekist að
skilgreina nánar, en sagðist ekkert
geta fullyrt þar sem hann hefði
ekki lesið umrædda grein í Lancet.
Hann sagði þó að ýmsar ástæður
gætu verið fyrir því að þessi ein-
kenni lýstu sér öðru vísi í Afríku
en f Ameríku eða Evrópu. Fólk
þar þyrfti að glfma við vannær-
ingu og ýmsa sjúkdóma, sem ekki
væru fyrir hendi á Vesturlöndum.
Fyrstu einkenni megurðarsótt-
ar er yfirleitt lágur hiti og fólk
er almennt veikburða. Eftir það
kemur til þyngdartaps og á siðustu
stigum sóttarinnar áður en hún
dregur sjúklingana til dauða verð-
ur húðin upphleypt og kláði er
algengur.