Morgunblaðið - 31.10.1985, Síða 32
32
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985
Fyrirlestur í bókaverslun Snæbjarnan
„Glæða þarf áhuga
unglinga á ættfræði“
- segir Jens Pálsson, mannfræðingur
JENS Pálsson, mannfræðingur, flytur fyrirlestur í bókaverslun Snæbjarnar
í dag er hann nefnir „Tengsl mannfræði og ættfræði". Fyrirlesturinn hefst
kl. 17.00 og er hann í tengslum við bókavikur verslunarinnar en sl. mánudag
hófst fyrsta bókatilboð vikunnar og er ætlunin að kynna ný bókatilboð í
hverri viku fram að jólum.
Jens sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann fjallaði m.a. í rabbi
sínu um áhuga unglinga á ættfræði
sem mjög hefur legið í láginni
síðustu árin. „í gamla daga vissi
fólk yfirleitt um ættir sínar langt
aftur en nú er það undantekning
ef unglingar vita um fæðingarstað
foreldra sinna hvað þá fæðingar-
stað afa sinna og amma. Þetta
veldur mér t.d. vandræðum í ætt-
fræðirannsóknum mínum. Ég er
hér að miða við rannsóknir sem ég
Reyndu
þetta!
(SHflMTU)
HÁRLAGNINGARFROÐA
heldur hárinu léttu og
fjaðrandi, hvernig sem
þú leggur það.
Fyrir venjulegt hár,
feitt hár eða slitið.
Undirstrikaðu
glæsileika
hársins með
(SHflMTU)
Heildsala:
Kaupsel
Laugavegi 25
S: 2 77 70 og 27740
gerði upp úr 1950 og sé ég mikinn
mun á ættfræðiáhuga unglinga
frá þeim árum og nú.“
Hann sagði þó að vissulega
glæddist áhugi fólks á ættfræði
eftir því sem það eltist og þegar
það færi sjálft að eignast börn og
barnabörn færi það að grúska í
uppruna sínum.
„Ættarmót hafa færst mjög í
vöxt að undanförnu og hef ég
ekkert nema gott um þau að segja.
Unglingamir taka virkan þátt í
fjölskyldusamkomum þessum og
áhugi þeirra á eigin forfeðrum fer
jafnframt vaxandi aftur. Einnig
hefur ættfræðifélagið haft sín
áhrif á ættfræðiþekkingu almenn-
ings í gegnum árin,“ sagði Jens
Pálsson.
Ljósm. Guðmundur R. Einarsson.
Guðmundur Ingólfsson píanóleikari.
Jazzklúbbur
Reykjavíkur
hefur vetrar-
starfið
JAZZKLÚBBUR Reykjavíkur hefur
vetrarstarfið með blæstri og slætti í
Lækjarhvammi Hótel Sögu í kvöld,
fímmtudaginn 31. október. Djammið
byrjar klukkan 21 og stendur fram
um miðnætti eftir því sem andinn
inn blæs.
Meðal þeirra sem koma fram að
þessu sinni eru Guðmundur Ing-
ólfsson, Elfar Berg og félagar,
Friðrik Theódórsson og Guðmund-
ur Einarsson.
Félagsskríteini JR, sem gilda út
starfsárið, verða afgreidd við inn-
ganginn. (Úr rréltalilkrnningu.)
Bladburöarfólk
óskast!
vix I
Austurbær
Laugavegur 34—80
Hverfisgata65—115
Ingólfsstræti
Leifsgata
Barónstígur 4—33
>
wss
Kópavogur
Kársnesbraut
57—139
Bræöratunga
|KSYj0tlttÞ(glblb
Frá 7. landsþingi LÍS að Bifröst.
Sjöunda landsþing Landssambands samvinnustarfsmanna:
Norðlendingar skipa stjórnina
Nýkjörin stjórn Landssambands íslenskra samvinnustarfsmanna.
Páll Leósson frá
Akureyri formaður
Á SJÖUNDA landsþingi Landssam-
bands íslenskra samvinnustarfs-
manna, sem haldið var að Bifröst
6. og 7. september var Páll Leósson,
Starfsmannafélagi KEA (SKE), kjör-
inn formaður í stað Birgis Marinós-
sonar, sem ekki gaf kost á sér til
endurkjörs. Þing LÍS eru haldin
annað hvert ár.
Aðalmál þingsins eru þrjú: líf-
eyrissjóðamál, samvinnuhreyfing-
in og fjöðmiðlar og samskipti LIS
og starfsmannafélaganna. Geir
Magnússon, bankastjóri, Eysteinn
Sigurðsson, ritstjóri og Guðmund-
ur Logi Lárusson, starfsmaður
LÍ S, höfðu framsögu um þessi mál.
Umræður um fjölmiðlamálin
snerust einkum um þær hug-
myndir, sem uppi eru um hlutdeild
samvinnuhreyfingarinnar í rekstri
sjónvarps- og útvarpsstöðva. Til-
laga kom fram um að samvinnu-
hreyfingin endurskoðaði afstöðu
sína til ísfilm en þingið vísaði
henni frá. óánægjuraddir heyrð-
ust á þinginu um að samtök sam-
vinnustarfsmanna skyldu ekki
vera aðilar að þeim viðræðum sem
nú standa yfir um útvarpsrekstur,
og var samþykkt ályktun þess efnis
„LÍS taki beinan þátt í þeim
umræðum um fjölmiðlamál sem
nú eru í gangi milli Sambands ísl.
samvinnufélaga, BSRB, ASÍ og
fleiri."
Sérstök nefnd hefur undanfarið
unnið að endurskoðun á reglugerð
Lífeyrissjóðs Sambands ísl. sam-
vinnufélaga. Á aðalfundi Sam-
bandsins í sumar var stjórn þess
og stjórn lífeyrissjóðsins gefin
heimild til að halda þessu verki
áfram og stefna að því að láta nýja
reglugerð taka gildi um næstu ára-
mót. Samsvarandi heimild var þar
einnig veitt að því er varðar Líf-
eyrissjóð verksmiðja Sambandsins
á Akureyri.
Fráfarandi framkvæmdastjórn
LÍS var öll skipuð mönnum af
Norðurlandi og gaf enginn þeirra
kost á sér til endurkjörs. Að ráði
varð að kjósa að þessu sinni aftur
eintóma Norðlendinga í stjórnina.
Formaður var kosinn Páll Leósson,
Starfsmannafélagi KEA (SKE).
Aðrir í framkvæmdastjórn eru
Stefán Vilhjálmsson SKE, Jóhann
Sigurðsson, Starfsmannafélagi
verksmiðja Sambandsins (SVS),
Jónína Pálsdóttir SVS og Páll A.
Magnússon SKE. Varamenn eru
Guðjón Ármannsson SKE, Eggert
Jónsson SVS, Jóhann Tr. Sigurðs-
son SVS og Trausti J. Helgason
Sf. Samvinnubankans, Sauðár-
króki.
í aðalstjórn LÍS voru auk þess
kosin þau Gunnar Sigurjónsson,
Sf. Samvinnubankans, Reykjavík,
ísólfur Gylfi Pálmason, SFS, Bif-
röst, Magnús Þorsteinsson, Sf.
KHB, Egilsstöðum, Ólafur
Straumland, SFS, Reykjavík,
Kristjana Sigurðardóttir, Sf. KÍ,
Isafirði, og Ari Eggertsson, Sf.
KÁ, Selfossi. Varamenn í aðal-
stjórn voru kosin Jóhann Steins-
son, SFS, Reykjavík, Ásgerður
Ingólfsdóttir, FSSA, Reykjavík,
Magnús Gunnarsson, Sf. KVB,
Patreksfirði, Jóhanna D. Magnús-
dóttir, Sf. KASK, Höfn í Horna-
firði, ólafur Arnar Kristjánsson,
Sf. OSS, Reykjvík og Svala Ingi-
mundardóttir, Sf. KRON, Reykja-
vík.
Endurskoðendur voru kosnir
þeir Árni Magnússon og Jakob
Björnsson, báðir á Akureyri, og til
vara Sigurpáll Vilhjálmsson og
ísak Guðmann, einnig báðir Akur-
eyringar. Fulltrúi í stjórn Lífeyris-
sjóðs Sambandsins var kosinn
Geir Magnússon, Reykjavík, og til
vara Pétur Jónsson, Reykjavík.
Ibúasamtökum Vesturbæjar
berst vegleg peningagjöf
- vetrarstarfið hefst 5. nóvember
Vetrarstarf fúasamtaka Vestur-
bæjar hefst með fundi þriðjudaginn
5. nóvember 1985 kl. 20.30 í Nor-
ræna húsinu. Á fundinum hefur
Guðrún Jónsdóttir arkitekt framsögu
um skipulag gamla Vesturbæjarins
en á eftir verða umræður og fyrir-
spurnir. Kaffívcitingar verða á staðn-
um.
íbúasamtökum Vesturbæjar
barst rausnarleg peningagjöf sl.
vor frá velunnara samtakanna sem
jafnframt er einn af stofnfélögum
þeirra. Gísli Sigurbjörnsson for-
stjóri færði samtökunum reiðufé
að gjöf og jafnframt gaf Gísli
Vesturbænum bekki sem stjórn
samtakanna hefur látið merkja og
komið fyrir á nokkrum stöðum í
hverfinu.
Gísli hefur einnig boðið öldruð-
um Vesturbæingum til vikudvalar
með fæði og þjónustu i húsum í
Hveragerði, þeim að endurgjalds-
lausu. Sex konur fóru á vegum
samtakanna til slíkrar dvalar í
byrjun september og tókst þessi
fyrsta dvöl með ágætum. Aldraðir
Af óviðráðanlegum ástæðum er
söngtónleikum Ölafar Kolbrúnar
Harðardóttur og Garðars Cortes,
sem áttu að verða nk. laugardag í
Fríkirkjunni, frestað til laugar-
dagsins 30. nóvember nk. Sömu
íbúar gamla Vesturbæjarins, sem
hafa áhuga á að taka þátt í slíkum
ferðum síðar, eru beðnir að hafa
samband við stjórnarmenn í sam-
tökunum, t.d. við Brynhildi And-
ersen í síma 14334.
Fréttatilkynning.
aðgöngumiðar gilda að sjálfsögðu.
Næstu tónleikar verða þá laug-
ardaginn 9. nóvember, eins og áður
hefur verið auglýst.
Stjórn Fríkirkjunnar.
Fríkirkjan:
Tónleikar falla niður nk. laugardag