Morgunblaðið - 31.10.1985, Side 35

Morgunblaðið - 31.10.1985, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985 35 „Kjötdagar“ í Matardeild SS MATARDEILD Sláturfélags Suður- lands í Hafnarstræti gengst fyrir „kjötdögum“ í dag og á morgun, fostudag. Að sögn Þórðar Þórissonar, verslunarstjóra, verður boðið upp á það besta í kjötvörum og á morgun verður sýnikennsla í versl- uninni milli kl. 15 og 17. Þá mun Halldór Ragnarsson, kjötiðnaðar- maður, sýna hvernig á að úrbeina kjöt og jafnframt gefa góð ráð varðandi meðferð og matreiðslu á kjöti. Sagði Þórður að SS hefði ekki gengist fyrir samskonar kynningu áður, en vel væri hugs- anlegt að slík kynning yrði haldin reglulega ef þessi frumraun mæld- ist vel fyrir meðal viðskiptavin- anna. Leiörétting MISHERMT var í Morgunblaðinu í gær að hluti af starfsemi Versl- unarskóla íslands færi fram f nýrri byggingu skólans við Ofan- leiti. öll starfsemi skólans flyst þangað í byrjun janúar 1986. Hjólreiða- keppni 12 ára skólabarna EINS og undarfarin ár efndi Umferðarráð, í samvinnu við lög- reglu og menntamálaráðuneytið, til spurningakeppni um umferðar- mál meðal 12 ára barna í skólum landsins. Um 4.000 börn hófu keppnina í marzmánuði sl. Þeir nemendur sem stóðu sig best öðluðust rétt til þátttöku í undanúrslitum hjólreiðakeppni sem er tvíþætt, annars vegar góðakstur og hins vegar hjólreiðaþrautir. Undan- úrslitin fóru fram í maímánuði sl. á Akureyri og í Reykjavík og mættu 104 börn til leiks. Af þessum 104 börnum unnu 16 börn sér rétt til að keppa til úrslita. Úrslitakeppnin var haldin 12. október við Austurbæjarskól- ann. Keppnin var þríþætt, góð- akstur á götum borgarinnar, keppni í akstri í gegnum uppsett þrautaplan og loks áttu kepp- endur að svara skriflega spurn- ingum. Slifl 1.—2. Auöunn Ingvarsson, Árbæjarskóla Reykjavík 382 I. —2. Dofri örn Guölaugsson, Grunnskóla Njarövíkur 382 3.-4. HilmarÁgústsson, Grunnskóla Skútustaöahrepps 380 3.-4. Kristrún Eyjólfsdóttir, Holtaskóla Keflavík 380 5. HalldórBjarnason, GrunnskólaSauöárkróks 373 6. Pótur Aöalsteinsson, Digranessk. Kópavogi 372 7. Ðirgir örn Birgis, Grunnskóla Borgarness 369 8. JónAndrósSigurös, Lundaskóla Akureyri 364 9. Bryndís Lúövíksdóttir, Holtaskóla Keflavík 353 10. VilmundurGeirGuömundsson, Ðreiöageröisskóla 353 II. 12. Hrólfur P. Ólafsson, Varmárskóla Mosfellssv. 347 11.12. Óli Grótar Blöndal, Grunnskóla Egilsstaöa 347 13. Snæbjörn Jónasson, GrunnskólaSauöárkróks 345 14. Pétur Þóröarson, Laugarnesskóla Rvík 329 15. Magnús Ingi Eggerts, Grunnsk. Vestmannaeyja 307 16. HjaltiÓlafsson, Melaskóla, Rvík 299 Á laugardaginn var fór fram fjáröflunarsamkoma í hátíðarsal Menntaskól- ans við Hamrahlíð til eflingar Minningarsjóði Guðnýjar Ellu Sigurðardótt- ur er var yfirkennari Þroskaþjálfaskóla íslands. Flutt var þar að viðstöddu fjölmenni samfelld dagskrá í tónum og tali í um það bil 3 kist og komu þar margir fram. Skólastjóri Þroskaþjálfaskólans, Bryndís Víglundsdóttir, setti samkomuna með ávarpi. Hún gerði grein fyrir hlutverki sjóðsins, að styrkja þroskaþjálfa til framhaldsnáms, og minntist Guðnýjar Ellu heit- innar. Tveir kórar komu fram í dagskránni: Belkantókórinn undir stjórn Guðfinnu Dóru Ólafsdóttur og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Skáldið Þórarinn Eldjárn las upp Ijóð. Einsöng sungu þau Dúfa Sylvía Einarsdóttir og Ingimar Sigurðsson. Börn úr Bjarkarási settu leiksýningu á svið. Einar Ingi Magnússon las upp Ijóða- þýðingar sínar. Þá lét þar til sín heyra sönghópurinn Hálft í hvoru. Fjölda- söng nærstaddra stjórnaði Reynir Jónasson tónlistarkennari. A myndinni er tekin var á samkomunni er kór Hamrahlíðarskólans er hann söng undir stjórn stjórnanda síns. Fyrsta sýning Stein- gríms á Akranesi STEINGRÍMUR Sigurðsson, list- málari, opnar málverkasýningu í Bókhlöðunni við Heiðarbraut á Akranesi í kvöld kl. 20.30. Þetta er 59. sýning Steingríms heima og erlendis. Á sýningunni eru á þriðja tug mynda, langflestar málaðar á þessu ári, en einnig nokkrar eldri í einkaeign, m.a. úr Borg- arfirði. Þetta er í fyrsta skipti sem Steingrímur sýnir á Akranesi og hefst sýningin kl. 20.30 í kvöld. Á morgun, föstudag, verður opið kl. 16—22, laugar- dag og sunnudag kl. 14—22, og um næstu helgi verður opið sömu daga á sama tíma. Steingrímur Sigurðsson Sauöfjár- slátrun lokið á Blönduósi Blönduósi, 30. október. SAUÐFJÁRSLÁTRUN er nú lokið í Sláturhúsi SAH á Blönduósi. Alls var slátrað 44.354 dilkum og 3.995 full- orðnum kindum. Er þetta 618 kind- um færra en síðastliðið haust. Meðal- vigt dilka reyndist vera 14,32 kfló sem er 450 grömmum minna en síðastliðið hausL Fullorðna féð vó einnig minna í haust en í fyrra eða 21,48 kíló, sem er 660 grömmum minna en í fyrra. Stórgripaslátrun hófst á Blönduósi á mánudag og er áætlað að slátra um þúsund gripum. Jón Sig. íslandsdeild Alþjóða íhugunarfélagsins 10 ára Maharishi Mahesh Yogi hóf að kenna íhugunaraðferð sína fyrír um 25 árum hér á vesturlöndum. Hann lagði strax í upphafi áherslu á að aðgreina innhverfa íhugun frá öðrum hugleiðsluaðferðum. Ástæðan var sú að hugleiðsla var ekki talin hafa áhrif á daglegt líf fólks og lausn vandamála líðandi stundar. Þessa afstöðu taldi hann alranga. Hann hélt því fram að með því að iðka innhverfa íhugun, tækni sem væri andlegs eðlis, stuðl- uðu menn að því að bæta starfsemi líkama og taugakerfis og ætti það að koma fram þannig, að menn væru færari um að leysa vandamál sín. Árið 1959 setti Maharishi fram þá kenningu að væri andleg þró- un raunveruleg ætti hún að vera mælanleg. Síðan þá og fram á þennan dag hafa fjölmargar rannsóknir staðfest að með iðkun innhverfrar íhugunar hefst al- hliða þróun mannsins. Rann- sóknirnar eru mörg hundruð talsins og má skipta i þrjá flokka: 1. Þær rannsóknir sem gerðar eru meðan á iðkuninni stendur og sýna fram á ástand sem nefna mætti hvílandi árvekni. í þessum flokki eru t.d. þær rannsóknir sem sýna fram á djúpa líkamlega hvíld sam- hliða mjög skipulagðri starf- semi heilans. 2. Þær rannsóknir sem sýna áhrif iðkunarinnar utan íhug- unartímans. Hér mætti nefna aukna greind, meiri sköpunar- hæfni, heilsteypta þróun per- sónuleikans auk rannsókna sem sýna að íhugunin kemur að góðu gagni sem vörn gegn ýmsum sjúkdómum. 3. Þær rannsóknir sem sýna að einstaklingar sem hafa styrkt sig með iðkun innhverfrar íhugunar hafa skapandi og uppbyggileg áhrif á samfélag sitt. Hér mætti nefna til rannsóknir sem sýna fram á betri árangur í námi, meiri framleiðni og bætt sam- skipti. En í þessum flokki eru einnig þær athuganir sem sýna að með iðkun sinni efla iðkendur óbundið grunnsvið hugarins og samstillandi áhrif takmarkast því ekki við iðkendur eina. í ljós hefur t.d. komið að iðki um 1% íbúafjölda borgar eða lands tæknina aukast framfarir í landinu og vandamál verða auð- leysanlegri. Allar þessar rannsóknir, svo og stuðningur læknasamtaka við innhverfa íhugun, hafa leitt til þess að nú er þessi íhugunar- tækni kennd af sérþjálfuðum kennurum í nánast öllum löndum heims og nýtur hvarvetna virð- ingar og viðurkenningar. Þessi Maharishi Mahesh Yogi hefur unnið ötullega á Vesturlöndum í 25 ár. Nú er vöxtur íhugunarhreyf- ingar hans hvað mestur á Indlandi. hverfri íhugun hefur jafnvel leitt til þess að ýmis önnur samtök sem kenna allt aðrar hugleiðslu- aðferðir hafa tekið upp orðin „innhverf íhugun". I þessu sam- bandi er rétt að nefna að árið 1978 fékk íhugunarhreyfingin á íslandi einkarétt á notkun orð- anna „innhverf íhugun" í auglýs- ingum svo og á hinu erlenda heiti tækninnar, Transcendental Meditation. Alþjóða íhugunarfélagið á ís- landi (Islenska íhugunarfélagið) er 10 ára um þessar mundir og hafa um 2.000 manns lært inn- hverfa íhugun á námskeiðum fé- lagsins. Námskeiðin hefjast jafn- an á kynningarfyrirlestri. Sá næsti verður á Hverfisgötu 18. kl. 20.00 fimmtudaginn 31. októb- er og er hann öllum opinn. Áhrif innhverfrar íhugunar koma fram á öllum sviðum lífsins vegna þess að með tækninni hreyfir iðkandinn við sameigin- legum uppruna allra náttúrulag- anna í tærri vitund. Eiginleikar tærrar vitundar eins og þeim er lýst í Vedunum (elstu heimildum um hærri stig vitundar) eru hinir sömu og eiginleikar samsviðsins (unified field) eins og því er lýst í nýjustu kenningum eðlisfræð- inga. Við það að lífga upp óbundna tæra vitund með iðkun innhverfrar íhugunar lífgast upp semeiginlegur grunnur allrar náttúrunnar. Það leiðir til þess að öll lögmál náttúrunnar eflast og eðlilegt jafnvægi ríkir milli þeirra. Náttúrulögmálin stuðla öll að þróun, hvert á sínu sviði. Eðlileg afleiðing iðkunar inn- hverfrar íhugunar er því fram- farir á öllum sviðum lífsins, bæði í líkama og hugarstarfsemi iðk- andans svo og í samfélaginu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.