Morgunblaðið - 31.10.1985, Síða 39
Minning.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985
39
Steinunn Björg
Eyjólfsdóttir
Fsdd 10. febrúar 1894
Dáinn 15. október 1985
í dag fer fram frá Hallgríms-
kirkju í Reykjavík útför Steinunn-
ar Bjargar Eyjólfsdóttur. Hún
andaðist þann 15. október síðast-
liðinn á vistheimili aldraðra,
Kumbaravogi, Stokkseyri, á 92.
aldursári.
Með sorg og söknuð í hjarta
kveð ég ástkæra móðursystur eftir
nær hálfrar aldar kynni. Andlát
hennar var friðsælt og var hvíldin
henni kærkomin.
Steinunn Björg fæddist á Hofi
í Gerðahreppi 10. febrúar árið
1894. Hun var elsta barn hjónanna
Lilju Friðriksdóttur og Eyjólfs
Guðlaugssonar, bátasmiðs, er síð-
ast bjuggu á Kötluhóli i Leiru i
Gerðahreppi. Þau eignuðust alls 7
börn, en Eyjólfur hafði áður verið
heitbundinn Björgu Jónsdóttur,
sem andaðist við fæðingu sonar
þeirra, Guðmundar. önnur börn
þeirra hjóna voru: ólafur, Sigur-
björn, Guðrún, Maria Guðbjörg,
Ingiveig og Margrét Rannveig. Eru
þau öll látin.
í huga mér bregður fyrir mynd
af íslensku þorpi á sjávarströndu.
Hópur barna er að leik. Sólin skín
glatt og svolitil gola strýkur
barnavanga. Elsta stúlkan í hópn-
um er um það bil 12 ára gömul og
heldur á systur sinni á öðru aldurs-
ári í fangi sér. Hún lítur eftir
barnahópnum vökulu augnaráði
og hastar á þau er með þarf, en
röddin er þýð og stutt er í hlátur-
inn. Gola ýfir fallega, svarta hárið
hennar og bláu augun ljóma er hún
litur á systkini sin. Þarna eru þau
öll saman komin og lífið blasir við
þeim svo bjart og fagurt.
Þessi mynd mun ávallt lýsa upp
huga minn er ég minnist frænku
minnar Steinunnar Bjargar.
Umhyggja og ástúð voru ríkir
þættir í fari hennar og þeirra nutu
systkini hennar og ættingjar ós-
part.
Hjónin Lilja og Eyjólfur bjuggu
börnum sínum gott heimili, þar
sem guðsorð og góðir siðir voru í
hávegum hafðir. Börnin voru öll
vel gefin og vinnufús og fóru þau
eldri snemma í vinnumennsku
fjarri heimili sínu, eins og tíðkað-
ist á þessum aldamótaárum.
Að lokinni barnaskólagöngu
réðst Steinunn Björg í vinnu á
heimili þar sem gjarnan var unnið
hörðum höndum frá morgni til
kvölds. Á þessum árum var allri
erfiðisvinnu tekið með jafnaðar-
geði og vinnan talin guðsgjöf. Er
heimþráin sótti á, var ekki talið
eftir að ganga langar vegalengdir
og man ég að hún frænka mín
sagðist eitt sinn hafa gengið frá
Reykjavík til Keflavíkur til að
hitta fjölskyldu sína.
Hún fluttist ung til höfuðborg-
arinnar og starfaði m.a. í mörg ár
hjá Mjólkurfélagi Reykjavíkur og
einnig hjá Vinnufatagerð íslands.
Eftir miðjan aldur hóf hún störf
við barnagæslu á barnaleikvellin-
um við Freyjugötu í Rvík. og lét
hún þar af störfum fyrir aldurs-
sakir 75 ára að aldri. Þetta starf
veitti henni mikla lífsfyllingu og
gleði því þarna nutu sín vel skap-
gerðareiginleikar hennar, óþrjót-
andi þolinmæði og skilningur á
barnslundinni, enda undu börnin
sér ákaflega vel í návist hennar.
Samhliða þessu starfi vann hún
fjölda ára fyrir Heimilisiðnaðarfé-
lag íslands. Hún var listakona á
sviði hannyrða og þótti handbragð
hennar bera af.
Steinunn giftist ekki né eignað-
ist börn. Hún var lengst af búsett
á Kvisthaga 21, Rvík., þar sem hún
átti vel búna og fallega íbúð.
Begga frænka, eins og hún var
ætíð kölluð af ættingjum sínum,
kom oft á heimili foreldra minna
og naut ég alla tíð elsku hennar
og umhyggju < ríkum mæli svo og
ðll fjölskylda mín síðar meir.
Mér voru öll móðursystkini mín
mjög kær og það var mér mikils
virði að kynnast þeim og eiga þau
að. Sem lítil stúlka fór ég oft með
Beggu frænku í smá ferðalög. Leið
okkar lá þá gjarnan á Hverfisgötu
51 í Hafnarfirði. Þar bjuggu þá
sæmdarhjónin Guðrún Eyjólfs-
dóttir og Karl Jónsson, járnsmið-
ur. Ég minnist ljúfra stunda á
fallegu heimili þeirra hjóna þar
sem mér var ætíð tekið opnum
örmum. Oft var fjölmennt á Hverf-
isgötunni, hjá Gunnu frænku og
Kalla þegar öll systkinin og fjöl-
skyldur þeirra voru þar saman
komin. Var þá m.a. rætt um lands-
ins gagn og nauðsynjar af miklum
áhuga og alltaf glatt á hjalla.
Margar ferðirnar voru einnig farn-
ar til Keflavíkur á Túngötu 15, þar
sem þau voru búsett Sigurbjörn
Eyjólfsson útgerðarmaður og eft-
irlifandi eiginkona hans Guðlaug
Jónsdóttir. Þannig héldu systkinin
ætíð hópinn í gegnum árin og
studdu hvort annað í blíðu og
stríðu.
Steinunn Björg var fríð kona
sýnum. Hún var hlédræg og lét
lítið yfir sér, en traustur vinur
vina sinna. Hún hafði ferðast víða
um landið sitt og séð tímana
tvenna í uppbyggingu þess og
atvinnuháttum.
Árið 1977 fluttist hún á vist-
heimilið á Kumbaravogi Stokks-
eyri, þar sem hún dvaldist til
æviloka. Ellin reyndist henni ekki
þrautalaus, sjón og heyrn farin að
gefa sig, en að öðru leyri var hún
nokkuð vel á sig komin miðað við
háan aldur, minnug vel og skýr í
hugsun.
Viljum við ættingjar hennar hér
með koma á framfæri kæru þakk-
læti til alls starfsfólks á vist-
heimilinu fyrir góða umönnun.
Sérstakar þakkir færum við önnu
Gísladóttur sem reyndist henni
sannur vinur í raun.
Ég þakka elsku Beggu frænku
samfylgdina á lífsins brautu, Guð
blessi hana og varðveiti. Nú er
systkinahópurinn frá Kötluhóli i
Leiru sameinaður á ný. Blessuð
veri þau öll og megi minning þeirra
geymast björt og fögur hjá eftirlif-
andi ættingjum þeirra.
Háa skilur hnetti
himingeimur.
Blað skilur bakka og egg.
Enanda,semunnast,
fær aldregi
eilífð að skilið.
(J.H.)
Edda Þórarinsdóttir
t
Móðir okkar,
MARGRJET ÁRNADÓTTIR,
Stýrímannastig 6,
lést þriöjudaginn 29. október.
Hildur Pólsdóttir,
Jóninna Pólsdóttir,
Einar Pólsson.
Móöirokkar, t JÓNÍNA GUDMUNDSDÓTTIR
fró Stóra-Nýjabæ,
Krfsuvfk,
til heimilis aö Njólsgötu 48 A,
lést i öldrunardeild Landspítaians, Hátúni 10 B., þriöjudaginn 29.
október. Vilhjólmur Sigurösson, Guömundur Sigurösson.
t
Faöirokkar,
EINAR GUÐFINNSSON,
útgoróarmaöur,
andaöist í sjúkrahúsi Bolungarvikur þriöjudaginn 29. október.
Guöfinnur Einarsson,
Halldóra Einarsdóttir,
Hjalti Einarsson,
Hildur Einarsdóttir,
Jónatan Einarsson,
Guömundur Póll Einarsson,
Jón Friögeir Einarsson,
Pótur Guöni Einarsson.
t
Konan mín, móöir okkar og tengdamóöir,
STEFANÍA GUDBRANDSDÓTTIR,
Þorsteinsgötu 4, Borgarnesi,
veröur jarösungin frá Borgarneskirkju laugardaginn 2. nóvember
kl. 14.00.
Geir Jónsson,
Pétur Geirsson, Hlft Steinsdóttir,
Guöbrandur Geirsson, Margrét Einarsdóttir.
t Frænkaokkar, STEINUNN BJÖRG EYJÓLFSDÓTTIR fró Kötluhóli í Leiru, verður jarösungin frá Hallgrímskirkju i dag, fimmtudag, kl. 13.30. Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna, Edda Þórarinsdóttir, Ólafur Ólafsson, Lilja Eygló Karlsdóttir, Steinunn L. Sigurbjörnsdóttir, Elías Guömundsson.
t Eiginkona mín og móöir okkar, ÞURÍDUR 1. GUNNARSDÓTTIR, Espigeröi 4, verður jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 1. nóvember kl. 15.00. Július Guðmundsson, Sveinlaug Júlíusdóttir, Guömundur J. Júlíusson.
t Ástkær móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, KRISTÍN SÚSANNA ELÍASDÓTTIR, Vesturgötu 51b, veröur jarösungin frá Neskirkju föstudaginn 1. nóvember kl. 13.30. Þeir sem vildu minnast hinnar látnu láti Slysavarnafélag íslands njóta þess. Birgir Þorvaldsson, Erla Þorvaldsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, GUÐRÚN EINARSDÓTTIR, Grundartúni 6, Akranesi, veröur jarösungin frá Akraneskirkju föstudaginn 1. nóvember kl. 14.15. Þorkell Halldórsson, Halldóra Þorkelsdóttir, Olgeir Ingimundarson, Ingibjörg Þorkelsdóttír, Kristjana Þorkelsdóttir, Kristjén Ingólfsson, barnabörn og barnabarnabörn.
t Konan mín, móöir okkar, tengdamóöir. amma og langamma, ÞORBJÖRG HALLDÓRSDÓTTIR, Hólabraut 3, Hafnarfirói, sem lést þann 23. þ.m., veröur jarösungin frá Fríkirkjunni í Hafnar- firöiföstudaginn l.nóvemberkl. 15.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuö, en þeim sem vildu minnast henn- ar er bent á aö láta líknarstofnanir njóta þess. Karl Hafsteinn Gunnlaugsson, Soffía G. Karlsdóttir, Grétar Garöarsson, Halldór I. Karlsson, Lára Jóhannsdóttir, Hilmar Karlsson, Dórothea Sigurjónsdóttir, Hafsteinn Karlsson, Anna Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.
t GÍSLI JÓNSSON, Akurgerói 10, Akranesi, sem lést í sjúkrahúsi Akraness 24. október sl. verður jarösunginn frá Akraneskirkju laugardaginn 2. nóvemberkl. 11.30. fsabella Baldursdóttir, Úndina Gísladóttir, Jón K. Þóröarson, Sigrún Gísladóttir, Eyleifur Hafsteinsson, Baldur Gfslason, Anna Hjaltested, Siguröur Gíslason, Guöfríóur Sigursteinsdóttir.
t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför BERGÞÓRU GUDMUNDSDÓTTUR, Barónsstfg 63. Systkini og systkinabörn.
t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR ÓLAFAR GUDBRANDSDÓTTUR fráBæ. Sérstakar þakkirtil starfsfólks sjúkrahússins á Hólmavík. Börn, tengdabörn, barnabörn og bamabarnabörn.