Morgunblaðið - 31.10.1985, Page 55

Morgunblaðið - 31.10.1985, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985 55 Draumvitjanir Hermanns Jónssonar frá Þingeyrum Seinni hluti Hér kemur seinni hluti greinar Þorkels Hjaltasonar um draumlíf Hermanns Jónssonar frá Þingeyr- um og lýsingar hans á Skarphéðni. Mynd Skarphéðins stendur ljós- ast fyrir mér í þrjú skipti. Það var þegar hann var nýsestur að veisl- unni í haustboðinu mikla að Vorsabæ, og horfði fram eftir stofunni til að athuga boðsgestina. Ég þóttist þá standa um 10 fetum framar í stofunni en hann og tveim fetum meir til hægri frá mér. Ég gat þá grannskoðað hann og virti ég hann enn nákvæmara fyrir mér, af því að hann var svo ólíkur, því sem ég hafði hugsað mér hann, eftir sögunni að dæma. Annað skiptið var þegar Skarphéðinn horfði á Höskuld og spurði: Hvort grunar þá föður minn Höskuldur? Og í þriðja sinn var þegar þeir börðust. En oft sá ég hann með allmörg- um öðrum og var hann höfði hærri eða meira en flestir. Þrisvar sá ég þá Höskuld saman, svo að ég veitti þeim sérstaka eftirtekt. Það var í haustboðinu, stefnuförinni og bar- Var Skarphéðinn nær höfði hærri. En til samanburðar við Höskuld hef ég marga og eru þeir 67—68 þumlungar á hæð. Þá vil ég lýsa stuttlega bardaga eða hólmgöngu þeirra Höskulds og Skarphéðins. Þoka var í lofti og hægur og svalur norðanandvari. Verjur höfðu þeir eigi aðrar en handbjargir og hjálma en á þeim voru engar hjálmgrímur. Ekkir virtustu hjálmarnir sterkir. Skild- ir þeirra voru líkir. Höskuldur hafði sverð, en Skarphéðinn öxina Rimmugígi. Um fjögurra feta bil var milli þeirra. Skarphéðinn snéri til norðurs og hafði hann hægri fót nær feti framar en hinn. Eigi haggaði hann þeirri stöðu fremur en bjargfastur væri. Hann horfði stöðugt í augu Höskuldi. Ég þóttist standa 10—12 fetum í vestur frá Skarphéðni. Höskuldur sneri í suður og er hann kvikari en hinn. Þó færðist hann eigi til hliðar eða fram og aftur meira en svo að ef hann hefði staðið á fer- álnarfeldi, mundi hann eigi hafa farið út af honum. Engu síður horfði hann eftir vopnalögum en í augu Skarphéðni. Hann sótti af miklu kappi og sýndi hina mestu vígfimi en virtist vanta næga still- ingu og kaldlynda ró, enda hafði hann aldrei mann vegið. Þar á móti hvíldi yfir Skarphéðni alvara og ró en auðsætt var að eldur gáfna hans brann eins heitt inni fyrir sem endranær. Hann sótti lítið en bar af sér lögin með skildinum og endrum og eins með öxinni en lengstum var hún reidd á loft og minnti á örn, er hnitmiðar hlakk- andi yfir bráðinni. Þegar þeir höfðu barist um sjött- ung stundar, stefnir Skarphéðinn öxinni á vinstri öxl Höskuldar og síðan á vinstri upphandlegg. Auð- sætt var að þessi högg voru eigi ráðin til bana. Þá brá öxinni sem leiftri beint fyrir andlit Höskulds og því næst með svo miklum fim- leik og hraða að varla gat augu á fest, ofan í höfuð hans og nam í heila staðar. Féll Höskuldur þegar dauður niður, en blóðið fossaði úr undinni." í Jónínu fyrir píanóglamri -*• spurt og svarad Heyrist ekki Frá öldruðum sem stunda morg- untrimm. Kæra Jónína Benediktsdóttir. Ég þakka þér fyrir leiðsögn þína í síðara mroguntrimmi og fullviss- um þig um,að hún er bæði uppörv- andi og til góðs. En það er einn stór galli á þess- um annars ágæta þætti þínum. Þú lætur píanóleikara þinn leika allt- of hátt á hljóðfærið. Píanóglamrið er oftast svo hátt, að við heyrum alls ekki til þín, þar sem þú hefur fremur hljómlitla rödd. Og finnst þér ekki að starf þitt sé heldur tilgangslítið, ef við heyrum ekki leiðbeiningar þínar? Athygli þín hefur áður verið vakin á þessu háværa píanóglamri, en þú ekki sinnt því. Þetta getur ekki gengið svona lengur, Jónína. Þú verður að taka tillit til þessa, vegna okkar gamla fólksins, sem þátturinn er ætlaður, og erum nú flest með töluvert skerta heyrn. Annað hvort ættirðu að láta pianistann hætta alveg, sem væri best, eða minnka hljóminn a.m.k. umhelming. Meðkærrikveðju. Olíu á eldinn Kæri Velvakandi! „ölvun aldrei meiri i miðri viku," segja fjölmiðlar. Allt í hers höndum. Drykkja unglinga er með miklum glæsibrag, ölvunarakstur tíður og ofbeldisverk gerast æ tiðari. Þá er um að gera að hafa þjóð- ráðið gamla að hella olíu á eldinn: — Við heimtum að sjálfsögðu fleiri vinsöluhús! — Við krefjumst áfengs öls með sérstakri tilvísun til hollustunnar, danskra skorpulifra og græn- lenskrar áfengismenningar! — Við tökum undir með gáfna- ljósum smákratanna: Lækkum lögaldur til áfengiskaupa! Afkom- endur Egils þola það án þess i þjóð- arvoða stefni þó Reagan og Gorb- asjoff hafi hækkað aldursmörkin hjá sér i 21 ár. — Við gerum kröfu til þess að ÁTVR setji upp kjörbúð svo betur gangi að ná i drykkinn og fjörið megi dafna á öldurhúsum og utan þeirra! Kristinn Vilhjálmsson Lesendaþjónusta Um húsflugur Spurt: Elín Vigfúsdóttir skrifar: Á Norðausturlandinu, þar sem ég hef dvalið i áratugi, fylgir hlýn- andi veðri eins og verið hefur i október sá hvimleiði galli að allt fyllist af húsflugum. Fólk reynir að eyða þessum ófögnuði með skordýraeitri, limborðum og öllu þvi sem á boðstólum er i þessu skyni en það ber aðeins takmark- aðan árangur. Nú langar mig að biðja fróða menn á þessu sviði um ráð til þess að losna alveg við húsflugur úr ibúðum. Svarað: Vonandi eru flugur austan lands og sunnan sömu náttúru þvi Vel- vakandi snéri sér til Axels Guð- mundssonar meindýraeyðis i Reykjavík, i von um góð ráð. Áxel mælti helst með flugna- spjöldum frá fyrirtækinu Shell. „Það er tómt mál að tala að láta mann eitra fyrir húsflugum enda gera þær engum mein. En þær eru MORGUNBLAÐSINS sannarlega hvimleiðar og besta j-áðið er að hengja upp fyrrnefnd spjöld. Hæfilegt er að þau séu tvö en ekki fleiri því flugnaeitur er jafneitrað mönnum og flugunum. Vatnsþrýstingur í Norðurmýrinni Hörður Harðarson er mjög óánægður með vatnsþrýstinginn í Norðurmýrinni. „Þó nýbúið sé að skipta um vatnsleiðslur í Norður- mýrinni þá virðist sem vatnsþrýst- ingurinn sé enn jafn lítill og fyrr og hann er áberandi minni en gerist í austur- eða vesturbænum. Svarað: Velvakandi hafði samband við Þórodd Th. Sigurðsson vatnsveitu- stjóra og taldi hann líklegast að vatnskerfið á heimili Harðar væri í ólagi. „Eins og fram kemur hefur nýlega verið skipt um leiðslur í allri Norðurmýrinni og kraftur því góður á vatninu enda hafa engar kvartanir þess efnis borist okkur hjá Vatnsveitunni." Ókeypis Ijósastilling Eigendur Nissan-, Datsun-, Subaru-, T rabant- og Wattburg-bíla fá ókeypis Ijósastillingu í umboöinu, Melavöllum viö Rauöageröi, til 8. nóvember. i|| INGVAR HELGASON HF. ■ ■■ Svmngatsalurinn Rauðagerði, simi 33560 HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ Viltu auövelda þér námiö og vinnuna? Viltu margfalda lestrarhraöa þinn? Viltu bæta náms- og vinnutækni þína? Viltu margfalda lestur þinn á fagurbók- menntum? Viltu auka frítíma þinn? Ef svörin eru játandi þá skaltu drífa þig á næstu hraðlestrarnámskeið sem hefst miðvikudaginn 6. nóvember nk. Skráning á kvöldin kl. 20—22 í síma 16258. HRAÐLESTRARSKÓLINN Amstrad Fjölbreytt og vandaö námskeid í notkun Amstrad-tölvunnar Dagskrá Grundvallaratriði i notkun tölva Uppbygging og notkunarmöguleikar Amstrad Helstu jaðartæki tölva Forritunarlögmal Æfingariforiitunarmálinu BASIC Teiknimöguleikar Amstrad Ritvinnsla Töflureiknar Gagnasafnskerti Tími: 11., 13., 18. og 20. nóv. Unglingar kl. 17—20. Fullorðnir kl. 20—23. INNRITUN ISIMUM 687590 og 686790. TÖLVUFRÆÐSLAN ___ Ármúla 36, Reykjavik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.