Morgunblaðið - 31.10.1985, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER1985
57
Sveinn Björnsson
ISI:
„Viö viijum þennan
ófögnuð buit£
TÖLUVERÐAR umrædur hafa átt aér staö síðustu daga um baréttu
ÍSÍ gagn lyfjamisnotkun íslenzkra íþróttamanna. Lyfjamisnotkun í
íþróttum er alvarlegt vandamól, sem íslenzk íþróttahreyfing getur
auðvitað ekki látiö sem vind um eyru þjóta, frekar en aðrar þjóðir.
Helztu baráttutœki í þessu sambandi eru lyfjapróf og fræðsla um
skaðsemi lyfja. Hefur ÍSÍ þegar gefiö út fræðslurit um þetta efni og
efnt til fundar meö sérsamböndum sínum. En víkjum aöeins aftur í
tímann, áður en lengra er haldið.
Erfiöasta stund, sem óg hef
upplifaö í starfi mínu fyrir íþrótta-
hreyfinguna var snemma morguns
12. ágúst 1984, þegar óg fókk sím-
hringingu, þar sem óg var staddur
i Olympíuþorpinu i Los Angeles, og
mér tilkynnt sem aöalfararstjóra
íslenzka olympiuliösins, aö slys
heföi hent, og á leiöinni til mín
væru menn, sem myndu veita mór
nánari upplýsingar. Þaö hvarflaöi
auövitaö strax aö mér, aö einhver
úr okkar hópi heföi slasast alvar-
lega.
Sem betur fer, reyndist enginn
slasaöur, en alvarlegt slys haföi þó
hent. Boöberar kynntu fyrir mór,
aö einn íslenzku þátttakendanna á
Olympíuleikunum heföi gerzt sekur
um aö neyta ólöglegra lyfja. Það
voru vægast sagt óþægilegar
klukkustundir, sem viö í farar-
stjórninni uppliföum meöan máliö
var rannsakaö enn frekar, og
óskemmtileg reynsla, þegar niöur-
staöa lá fyrir i samræmi viö upp-
haflega tilkynningu. Þessa atburöi
vildi ég ekki þurfa aö lifa aftur.
Þetta geröist þrátt fyrir yfirlýs-
ingar ýmissa aðila innan okkar
íþróttahreyfingar þess efnis, aö
lyfjaeftirlit meöal íslenzkra íþrótt-
amanna væri óþarft og raunar aö-
eins peningaeyösla.
Þegar heim var komið, sýndi
viökomandi íþróttamaöur þann
kjark og þann manndóm aö koma
aö sjálfsdáðum fram fyrir alþjóö í
sjónvarpi og biöjast afsökunar á
því, sem gerzt haföi. Fyrir þaö viröi
ég hann og vonandi á sá ungi
maöur, sem þarna átti í hlut, eftir
aö koma aftur fram á sjónarsviöiö
og keppa lengi, þegar keppnis-
banni hans lýkur.
íþróttahreyfingin á íslandi er
fjölmennasta hreyfing frjálsra fó-
laga hór á landi. Allir aöilar innan
vébanda okkar hreyfingar hafa virt
baráttu ÍSi gegn lyfjamisnotkun,
aö nokkrum einstaklingum undan-
skildum. Þaö eru lyftinga- og kraft-
lyftingamenn. Þaö er vægt til oröa
tekiö, aö þessir aöilar hafa barist
meö kjafti og klóm gegn öllu lyfja-
eftirliti eftir aö þaö var tekiö upp
hérlendis 1981, fyrst meö frestun á
islandsmóti sínu, þegar tilkynnt
var um lyfjaprófun, og nú síöast
meö því aö kljúfa sig ólöglega úr
ÍSÍ. Sú spurning hlýtur aö vakna,
hvers vegna þessir aöilar, einir
allra, skuli færast svo ákaft undan
lyfjaprófi. Finnist þeim reglur ÍSl of
strangar, þá skal þaö upplýst, aö
þær eru sniðnar eftir reglum, sem
gilda á öörum Noröurlöndum, og
er mér ekki kunnugt um annaö en
lyftinga- og kraftlyftingamenn þar
viröi reglur sinna heimalanda.
Sem forseta ÍSÍ finnst mér áríö-
andi, aö fólk sjái í gegnum mold-
viöriö, sem þyrlaö hefur veriö upp
af hálfu þessara aöila. Kjarni máls-
ins er, hvort hér eigi aö fram-
kvæma lyfjapróf eöa ekki. Reglur
ÍSÍ eru skýrar og ótvíræöar í þess-
um efnum. Þaö eru þær, sem gilda
hér á landi. Alþjóöareglur kraflyft-
ingamanna, sem gera ráö fyrir til-
kynningu um lyfjapróf meö 3 mán-
aöa fyrirvara, eru ekki teknar gild-
ar hér frekar en t.d. á hinum Norö-
urlöndunum.
Einna alvarlegast finnst mér í
þessu máli, hvernig forystumenn
kraftlyftingamanna ganga fram
fyrir skjöldu í því að hindra íþrótta-
menn sína í aö gangast undir lyfja-
próf. Sem betur fer hundsa ýmsir
þaö. Færi betur, aö þessir forystu-
menn litu til nágrannalandanna og
tækju sér til fyrirmyndar störf for-
ystumanna þar. Nýlega setti
sænska lyftingasambandiö alla
sína menn í keppnisbann erlendis
um eins árs skeiö, þegar upplýst
var um lyfjamisnotkun sænskra
lyftingamanna. Þeir sýndu kjark og
manndóm, sem forystumenn lyft-
ingamanna hér skortir.
Þaö er mikill misskilningur for-
ystumanna lyftingamála hérlendis,
ef þeir halda, aö geti hrætt ÍSÍ frá
því aö gegna skyldu sinni í lyfjaeft-
irlitsmálum meö ófrægingarskrif-
um í blöö og meö málaferlum.
Meöan ég og stjórnarmenn minir
sitja í framkvæmdastjórn ISÍ verö-
ur baráttunni gegn lyfjamisnotkun
í íþróttum haldiö áfram af fullum
krafti. Viö viljum ekki þennan
ófögnuð innan okkar hreyfingar,
viö viljum hann burt. Hann er blett-
ur á íslenzkri íþróttahreyfingu. Ég
treysti því, aö allt fólk, sem er vel-
viljaö íþróttahreyfingunni, svo og
fjölmiölar og fyrirtæki, veiti okkur
aðstoö í þessari baráttu.
• Helgi er vinsæll meðal liðsmanna sinna í Stavanger IFS en lið hans hefur staðið sig mjðg vel (1. deildarkeppninni.
Helgi gerir það gott í Noregi
Hafnfirðingurinn Helgi Ragn-
arsson hefur starfað sem hand-
knattleiksþjálfari ( Stavanger {
Noregi síöan ( haust og er liö
hans nú ( efsta sæti norsku 1.
deildarinnar ( handknattleik.
Norska dagblaðið Aftenpoaten
skrifar um frammistððu Helga og
liðsins I blaði sinu sl. laugardag,
undir fyrirsðgninni „Helgi topp-
þjálfari í handknattleik“. í grein-
inni segir aö aöal útflutningur
fslendinga sé fiskur og hand-
knattleiksmenn.
Stavanger þarf ekki aö flytja inn
fisk frá íslandi en staöurinn hefur
mikil not fyrir handknattleiksmenn.
Helgi þjálfar liöiö eins og áöur segir
og síöan haföi hann meö sér góöan
liðsstyrk, sem eru Jakob Sigurðs-
son og Sveinn Bragason og hafa
þeir staöiö sig mjög vel.
Eftir 6 leiki er SIF frá Stavanger
í efsta sæti deildarinnar meö fullt
hús stiga eöa 12. Markahlutfall
þeirra er, 188-123. Næsta lið í
deildinni er meö einu stigi minna.
Blaöiö spyr Helga af því hver sé
ástæöan fyrir velgengi félagsins
núna, en liðið varö í 5 sæti deildar-
innarifyrra.
„Liðiö leikur nú sem ein heild og
þaö er þaö sem skiptir máli, leika
allir fyrir alla. Viö höfum líka þá trú
aö viö getum veriö t toppbar-
áttunni,“segirHelgi.
Blaöiö vill meina aö íslending-
arnir hafi haft mikil og góö áhrif á
norska liöið. islendingar hafa mik-
inn vilja og kraft, á íslandi vinna
handknattleiksmenn langan vinnu-
dag og fara síðan á erfiöar æfingar
og láta þaö ekki aftra sér og leggja
sig alla fram á æfingum.
Helgi segir aö toppliöin í deildinni
séu góö en önnur eru slök. i deild-
inni eru aðeins ein eöa tvær stjörn-
ur, aörir eru meöal handknattleiks-
menn.
Zola fékk
125 þúsund
dollara
ÞAÐ hefur verið staðfest að
bandarísk sjónvarpsstöö
greiddi Zolu Budd 125 þús-
und dollara fyrir að keppa á
móti Mary Decker ( 3.000 m
hlaupi í sumar.
Decker fékk hinsvegar 75
þúsund dollara. Þetta voru
aöeins greiösiurnar frá sjón-
varpsstööinni, síöan munu
þær stöllur hafa hlotiö ýmsa
aöra þóknun. En þaö gerist æ
algengara aö frjálsíþróttafólk
fái háar peningaupphæðir fyrir
sigur í keppnum sinum.
Bandartska hlaupadrottn-
ingin Mary Decker á nú von á
barni og gerir hún ráö fyrir því
aö keppa lítiö næsta sumar.
En hún setti fjögur bandarísk
met á árinu og eitt heimsmet
íhlaupagreinum.
McEnroe
vann
Becker
Bandaríska tennisstjarnan
McEnroe sigraði v-þýeka
tennisleikarann Boris Beck-
er í keppni þeirra á milli (
Barcelona ( gær. McEnroe
vann 6—2 og 7—5. Leikurinn
stóð yfir í aðeins 72 mínútur.
Þeir félagar fengu 42 þúsund
dollara hvor fyrir leikinn sem
fram fór í stórri íþróttahöll, í
Barcelona.