Morgunblaðið - 14.11.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.11.1985, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ1913 258. tbl. 72. árg. FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Náðu 1800 millj- ónum í heróíni Parfa. 13. nóvember. AP. LÖGREGLA gerði upptækt heróin að verðmæti 45 milljónir dollara eða sem jafngildir rúmum 1800 milljón- um íslenskra króna, er þeir gerðu innrás á heimsins fullkomnustu rannsóknastofu á sviði heróínfram- leiðslu. Jafnframt tókst að handtaka forsprakka þessa endurnýjaða „franska sambands", en svo hafa heróinsmyglarar í Frakklandi verið nefndir af yfirvöldum. Heróínið átti að selja í Bandaríkjunum. Franska, bandariska og sviss- neska lögreglan stóð i sameiningu að handtökunum og era þær árangur margra mánaða rann- sókna. Jafnframt tókst að hafa hendur í hári tveggja manna, sem taldir eru þeir fremstu á sviði heróínframleiðslu í dag. Fleiri handtökur munu fylgja i kjölfarið viða um heim, meðal annars í Bandaríkjunum. Hægt var að framleiða 20-30 kíló af 99% hreinu heróíni á rannsóknastofunni á mánuði. Allsherjarverkfall kristinna í Beirút Beirút, Líbanon, 13. nóvember. AP. SÉRSTAKUR sendiboði erkibisk- upsins af Kantaraborg kom í kvöld Þingið vill flaugarnar Haag, Hollandi, 13. nórember. AP. HOLLENSKA þingið felldi í dag tillögu frá Verkamannaflokknum þess efnis að hætt verði við uppsetn- ingu Cruise-eldflauga í Hollandi. Féllu atkvæði þannig að 80 voru með en 69 á móti. Ríkisstjórnin styður uppsetnigu flauganna. Allir stuðningsmenn ríkis- stjórnarinnar stóðu að því að fella tillöguna, nema fáeinir þingmenn Kristilega demókrataflokksins. 1 tillögunni sagði, að „uppsetning flaugana væri óæskileg frá póli- tísku og hernaðarlegu sjónarmiði og væri ekki framlag til öryggis Vestur-Evrópu". til Beirút til að ræða möguleika á lausn fjögurra bandarískra gísla, sem eru í haldi hjá öfgasinnuðum múhameðstrúarmönnum. Kristnir menn efndu til alls- herjarverkfalls í einn dag til að mótmæla sjálfsmorðsárás á fund forystumanna þeirra í gær, en til fundarins var boðað af þeim sem eru andvígir friðarsamningunum sem Sýrlendingar hafa staðið fyrir til að binda enda á borgarastyrj- öldina í Líbanon. Fjórir menn lét- ust og 26 særðust í árásinni. Ekki er ljóst hver áhrif árásin hefur á þá, sem vantrúaðir eru á friðarsamningana, en kristnir leið- togar sem stóðu að samkomulag- inu, sögðust mundu halda það og vopnahléið sem gert var í kjðlfar þess. Vopnahléið hefur orðið til þess að dregið hefur úr bardögum í Beirút, en mikil spenna ríkir vegna þess að enn hefur ekki tekist að undirrita samkomulagið. AP/Símamynd Ungfrú Heimur verður kjörin í kvöld Ungfrú ísland, Hólmfríður Karlsdóttir, eóa Hófí, eins og hún er kölhið í enskum fjölmiðlum, er álitin vera ein þeirra stúlkna sem munu komast í 15 stúlkna úrslit f Miss World-keppninni sem fram fer í kvöld. Ung- frú Jamaica er talin sigurstranglegust af enskum veðmöngurum, en fast á hæla henni fylgir Hólmfríður. Keppninni verður sjónvarpað beint víða um heim. Myndin sýnir Hólmfríði laga hár sitt fyrir einn lið keppninnar. Peres hótar að reka Sharon úr stjórninni Jerúsalem. 13. nÓTember. AP. SHIMON Peres, forsætisráðherra fsrael, vísaði á bug afsökunarbeiðni Ariels Sharon, viðskipta- og iðnaðar- ráðherra, og hótaði að aflienda hon- um afsagnarbréf, sem taka myndi gildi eftir tvo sólarhringa. Sharon hefur ásakað Peres fyrir að hafa gert leynisamkomulag við Hussein konung Jórdaníu í sambandi við friðarumleitanir sem verið hafa f gangi milli ríkjanna. Ríkisstjórn Israel átti þriggja klukkustunda fund í gærkvöldi og að honum loknum voru ráðherrar fremur svartsýnir á að takast myndi að leysa deiluna. Hótunin um að reka Sharon úr Garri Kasparov í viðtali við Morgunblaðið: „Karpov tefldi mjög vel en ég var bara sterkari" „ÉG MUN gera allt sem ég get til þess að efla skáklistina í heiminum í framtíðinni. Það skiptir einmitt mjög miklu máli, að heimsmeistarinn í skák vinni sem ötulast að fram- gangi skáklistarinnar," sagði Garri Kasparov, heimsmeistari í skák, í símaviðtali við Morg- unblaðið. Er hann var spurður um gang einvígisins, svaraði hann: „Karpov tefldi mjög vel og gerði allt til þess að sigra, en ég var bara sterkari." Þegar Kasparov var spurð- ur að því, hvort hann gæti hugsað sér að koma til ís- lands og tefla hér á Reykja- víkurskákmótinu, sem haldið verður í febrúar, þá svaraði hann: „Ég get ekki svarað því nákvæmlega. Það veltur m.a. á því, hvort ég þarf að tefla aftur einvígi við Karpov. Ef það einvígi verður ekki, þá má alveg ræða það mál.“ Kasparov kvaðst ekkert vilja fullyrða um það, hve lengi hann ætti eftir að verða heimsmeistari í skák, en sagði: „Kannski fimm til tíu ár. Ég mun reyna að halda heimsmeistaratitlinum eins lengi og ég frekast get.“ Hinn nýbakaði heims- meistari sagðist álíta, að ný- afstaðið einvígi við Karpov hefði verið á mjög háu stigi, hvað gæði snerti. „Skákirnar Garri Kasparov í þessu einvígi voru mjög góð- ar, ef til vill þær beztu, sem tefldar hafa verið í nokkru heimsmeistaraeinvígi í allri skáksögunni." Kasparov kvaðst eiga eftir að tefla víða í framtíðinni, ekki sízt á Vesturlöndum. Hann færi til Hollands í desember og í janúar færi hann til Bandaríkjanna og tæki þar þátt i skákkeppni milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. Sjá: Karpov er hættuleg- asti andstæðingurinn á bls. 26. embætti kemur í kjölfar málamiðl- unar þess efnis, að bæði Sharon Peres afsökunar fengi hann að halda ráðherraembætti sínu. Sharon féllst á að biðjast afsökun- ar, en neitaði að lýsa yfir trausti á forsætisráðherrann og stefnu hans. Peres sagði ríkisstjórninni að hann gæti ekki tekið slíka af- sökunarbeiðni til greina. Afsögn Sharons gæti leitt til þess að Likud-bandalagið, undir forystu Yitzhaks Shamir, segði sig úr stjórninni og lyki þar með 14 mánaða stjórnartímabili hennar. Stjórnarkreppa nú gæti orðið til þess að hindra frekari friðarum- leitanir milli ísrael og Jórdaníu. Samkvæmt lögum í tsrael getur forsætisráðherra sett ráðherra af, ef honum býður svo við horfa, en í sáttmála ríkisstjórnarflokkanna segir, að leiðtogi Likud-bandalags- ins verða að samþykkja brott- reksturinn. Peres fór fram á það við Shamir að hann tilnefndi annan ráðherra i stað Sharons, en þvi hafnaði Shamir. Peres hefur samþykkt að taka þátt í alþjóðlegri ráðstefnu með Jórdaníu, þar sem fjailað verði um frið fyrir botni Miðjarðarhafsins. Fyrir það hefur hann verið gagn- rýndur af Sharon meðal annarra, sem segir að það gefi andstæðing- um ísrael yfirburði við samninga- borðið. Þá vill Sharon að ráðist verði á stöðvar Palestínuaraba i Amman, höfuðborg Jórdaniu. Talið er að til úrslita dragi i þessu máli á morgun. Báðir stjórn- arflokkarnir, Verkamannaflokk- urinn og Likud-bandalagið, fund- uðu að loknum rikisstjórnarfund- inum og sagði Peres að hann myndi setja Sharon af á morgun nema hann bæði afsökunar á full- nægjandi hátt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.