Morgunblaðið - 14.11.1985, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.11.1985, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985 PARKET Húseigendur Pússum og lökkum parket og önnur viöargólf. Tómas G. Ingólfsson, húsasmíðameistari, sími 666523 eftir kl. 20.00. crístal vönduðu bresku vegg-og gólfflísarnar Umboðsmaður á Akureyri: ^skapiií Walesa: Reynum í lengstu lög að forðast ofbeldi Oxford, Knglandi, 12. nóvember. AP. LECH Walesa, leiðtogi pólsku verka- lýðssamtakanna Samstöðu, varaði við því í ræðu, sem flutt var á fundi í Oxford í gær, að „víðtækar og heiftarlegar mótmælaaðgerðir" gætu brotist út í Póllandi, ef stjórnvöld héldu áfram að meina verkafólki að ná rétti sínum. Ræðu Walesa var nýlcga komið með leynd út úr Póllandi, og var IS steinprýöi hff. I Stórhöfða16 sími 83340-84780 O T FLÖSUSJAMPÓ ■ \ni\ Dandruff a Ltaru/Í Stwmpoo Íæ Shampoc^ ^ _____Ctears rtandnitf ciears dandrulf wi!h regular u« t w thregularuse ,< (m 2f)0ml ^VJÍpmwAi. Joba flösusjampó er til bæði fyrir feitt og þurrt hár. Joba flösusjampó er sér- staklega blandað með jo- joba olíu, sem prótein, Aloe Vera, sem vítamíni og Pyro DiSulphide til að halda flös- unni í skefjum og hárinu mjúku og heilbrigðu. FÆST f APÓTEKUM OG HELSTU SNYRTIVÖRUVERSLUNUM. það fyrrum forseti bresku raf- virkjasamtakanna, Chappel lá- varður, sem las hana á fundinum. „Við reynum í lengstu lög að forðast ofbeldi í baráttu okkar," sagði Walesa. „En svo langt geta stjórnvöld gengið í kúgun sinni og valdhroka gagnvart sjálfsögðustu óskum landsmanna, að upp úr sjóði." „Mótmæli á götum úti í pólskum borgum sanna, svo að ekki verður um villst, að okkur skortir hvorki hug né dug,“ sagði enn fremur í ræðunni. „Landsmenn eru margir ódeigir við að bjóða útsendurum innanríkisráðuneytisins byrginn." „Engin trygging er fyrir því, að unnt yrði að hafa stjórn á ástand- inu, ef allt færi í bál og brand, og miklu trúlegra, að þar hefðu ofsi og hatur yfirhöndina," sagði Wal- esa. Um Samstöðu sagði hann: Framtíð frjálsra verkalýðsfélaga í Póllandi væri mun bjartari en nú sýnist, ef ráðamenn settust niður og ræddu í alvöru við hina raun- verulegu fulltrúa pólsku þjóðar- innar.“ Egyptaland: Komu öðru sinni í veg fyrir banatil- ræði Lýbíumanna Kairo, Egyptalandi, og Tripoli, Líbýu, 12. nóvember. EGYPSKA leyniþjónustan veitti fimm líbýskum tilræóismönnum eft- irför á miðvikudaginn var og tók bandmynd af tilburðum þeirra til að ráða af dögum tvo af andstæðingum Mohammars Khadafy Líbýuleiðtoga. Greip lögreglan svo inn í atburðarás- ina á síðustu mínútu og kom í veg fyrir, að Líbýumennirnir næðu tak- marki sínu. Atburðir þessir voru sýndir í egypska sjónvarpinu, þar á meðal skotbardagi milli fyrrnefndra að- ila. Annað fórnardýranna, sem taka átti af lífi, var Abdel-Hamid Bak- oush, fyrrum forsætisráðherra AP. Líbýu, sem dvelst í útlegð í Egypta- landi. Er þetta í annað skipti, sem reynt er að ráða hann af dögum, en fyrri tilraunin, sem gerð var fyrir nákvæmlega ári, fór einnig út um þúfur. Líbýumenn lýstu yfir í dag, að Bakoush ynni raunverulega með líbýsku leyniþjónustunni og hefði komist með aðstoð hennar inn í Egyptaland. Líbýska fréttastofan JANA sagði í gær, að ásakanir Egypta væru „gömul lumma“ og mundu ekki koma egypsku leyniþjón- ustunni að neinu haldi. Ránið í Belgíu: Bifreið morð- ingjanna fundin Aalst, Belgíu, 11. nóvember. AP. LÖGREGLAN í Belgíu leitar nú ákaft ræningjanna þriggja sem myrtu sjö manns og særðu 15 aðra er þeir frömdu vopnað rán í stór- markaði í Aaist og skutu á fólk sem þar var við innkaup. Að minnsta kosti einn hinna særðu er ennþá í lífshættu vegna skotsára á höfði. Að sögn lögreglu skutu mennirn- ir rúmlega fjörutiu sinnum á þeim fjórum mínútum sem ránið stóð yfir en flúðu síðan á grárri Volks- wagen Golf-bifreið og missti lög- reglan fljótlega af henni. Ræn- ingjarnir höfðu aðeins jafnvirði 160 þúsund íslenskra króna upp úr ráninu. Flak brunninnar Volkswagen- bifreiðar sem álitin er bifreið ræningjanna fannst í skóglendi um 25 km fyrir utan Brussel á mánudag. Þó lögreglan hafi skotið á ræningjana er þeir flúðu frá versluninni er ekki að sjá nein kúlnagöt á bílflakinu. Að sögn lögreglu virðist hér vera um að ræða þriðju árás „brjáluðu morð- ingjanna" og talið er að hér hafi sömu glæpamennirnir verið á ferð- inni og réðust á 17 belgískar versl- anir og veitingahús árin 1982 og 1983. I þeim árásum fórust sex Skotland: 4 deyja úr her- mannaveiki midas Glugow, Skotlandi, 13. nóvember. AP. Fjórir sjúklingar hafa látist eftir að hermannaveiki braust út á spítala í Glasgow, að sögn heilbrigðisyfir- valda í borginni. Átta aðrir hafa þegar tekið veikina en þeir eru allir sagðir á batavegi. Bakterían sem veikinni veldur þrífst í stöðnu vatni en dropar þess geta komist út í andrúmsloft- ið um loftræstikerfi eins og gerðist í þessu tilfelli. Sjúkdómurinn leiðir til dauða í 20 prósent tilfella, og er sérsatklega skæður þegar eldra fólk á í hlut. Á þriðjudag höfðu loftræstikerfi spítalans verið vandlega hreinsuð, en álmunni þar sem sjúkdómurinn kom upp var lokað í eina viku. Að sögn heil- brigðisyfirvalda telja sérfræðing- ar að tekist hafi að eyða bakter- íunni en loftræstikerfin verða fyrst um sinn hreinsuð með klór tvisvar á dag í öryggisskyni. Lík- legt er talið að fleiri sjúklingar eigi eftir að sýna einkenni um veikina þar sem hún hefur Iangan meðgöngutíma, frá einni og uppí þrjár vikur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.