Morgunblaðið - 14.11.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.11.1985, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTIJDAGUR14. NÓVEMBER1985 Vilja fá íslensku kartöflurnar á heimsmarkaðsverði Islensku kartöflurnar þrefalt dýrari en innfluttar Verksmidjunni á Svalbarðseyri neitað um innflutningsleyfí KartöDuverksmiðjunni á Sval- barðseyri hefur verið neitað um leyfi til innfiutnings á steikarkartöflum og er óvissa framundan í rekstri fyrirtækisins. Frekar lítil kartöflu- uppskera var fyrir norðan í haust en þess meiri sunnanlands. Hinsvegar er dýrt að flytja kartöflurnar norður, þangað komnar eru þær rúmlega þrefalt dýrari en innfluttar kartöfiur. Kartöfluverksmiðjurnar hafa farið Háskólinn bygg- ir bráðabirgða- kennslustofur HÁSKÓLA íslands hefur verið veitt leyfi til að reisa bráðabirgðakennslu- stofur úr timbri á lóðinni við Dun- haga 3. Um er að ræða tvö eininga- hús úr timbri og tengibyggingu milli þeirra, samtals tæplcga 263 fermetr- ar að stærð. Að sögn Páls Jenssonar, for- stöðumanns Reiknistofnunar Há- skólans, verður þetta húsnæði tekið í notkun í byrjun febrúar 1986 og mun það aðallega verða notað til tölvukennslu. I húsinu verða fjórar stofur, þrjár fyrir almenna tölvukennslu og þar verð- ur útbúnaður með örtölvu og skjám, en fjórða stofan verður vinnustofa fyrir nemendur. Páll sagði að þörfin fyrir kennsluhúsnæði hefði verið orðin mjög brýn. Hann sagði að ef þetta húsnæði hefði ekki bæst við hefði ekki verið hægt að koma fyrir tölvugjöf sem Háskólanum barst frá IBM fyrr á þessu ári. fram á að fá hráefni sitt niðurgreitt í heimsmarkaösverð, þannig að þær geti keypt íslenskar kartöfiur. Kaupfélag Svalbarðseyrar á kartöfluverksmiðjuna. Karl Gunn- laugsson kaupfélagsstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að lítið væri til af stórum kartöflum fyrir norðan núna, eftir lélega uppskeru í haust, en kartöfluverksmiðjurnar framleiða franskar kartöflur úr þeim stóru. Þá væri ekki annað að gera en að kaupa kartöflur af Suðurlandi, en það væri svo dýrt að ógerlegt væri að kaupa þær í vinnsluna. Þá þyrfti að borga svo og svo mikið með hverju kílói af „frönskum". Sagði Karl að þeir hefðu þá sótt um leyfi til innflutn- ings á kartöflum en innflutnings- nefndin hefði synjað þeim um leyfi á þeim forsendum að nóg væri til af kartöflum í landinu. Karl sagði að um þessar mundir væri hægt að fá kartöflur erlendis frá, sem kostuðu rúmar 10 krónur komnar að verksmiðjunni, en kart- öflur frá Suðurlandi kostuðu með flutningi norður 33,76 kr. hvert kíló. Sagði hann að þeir vildu endilega kaupa íslensku kartöfl- urnar en ekki væri nokkur grund- völlur til að reka verksmiðjuna með þessu kartöfluverði. Því hefði verið farið fram á það við stjórn- völd að kartöflurnar yrðu niður- greiddar til verksmiðjanna niður í heimsmarkaðsverð á svipaðan hátt og ullin til ullarverksmiðj- anna og mjólkurduftið til sælgæt- isgerðanna, þannig að þær gætu notað íslenskt hráefni í framleiðsl- una. Metsala hjá Halkion Vestmannaeyjum, 13. nóvember. HALKION VE-105 frá Vestmanna- eyjum, sem er lítill skuttogari, fékk metverð fyrir gámafisk í Englandi á þriðjudaginn. Selt var þá úr einum gámi, 13,3 tonn, fyrir 1.057,945 krón- ur og var meðalverðið því 79,48 krón- ur á kílóið. Rúmlega helmingur afla Halk- ions var koli en afgangurinn þorsk- ur og ýsa. Fyrir stærri kolann fékkst meðalverðið 94 krónur á kílóið en 77 krónur fyrir þann smærri. Fyrir stóran þorsk fékkst 91 króna fyrir kílóið en 71 króna fyrir miðlungsþorsk og 66 krónur fyrir smáþorsk. Fyrir ýsu fékkst að meðaltali 71 króna fyrir kílóið. Samtog sf. gerir út Halkion og auk hans fjóra aðra skuttogara. Þetta var fyrsti gámafiskurinn, sem fyrirtækið sendir á erlendan markað en áframhald verður á því eftir þessa góðu byrjun. Tíu manna áhöfn er á Halkion. Skipstjóri er Sveinn Valgeirsson. - hkj. „ÞAÐ HEFUR verið tómstunda- gaman hjá okkur aö rannsaka þessa hella. Við höfum mælt þá upp og safnað heimildum um þá. En þetta verkefni hefur síðan undið mjög upp á sig og höfum við til dæmis fengið styrk frá Vísinda- sjóði til að fjármagna þetta verk- efni. Nú höfum við á skrá hjá okkur um 200 hella,“ sagði Hallgerður Gísladóttir sagnfræðingur í samtali við blaðamann Morgunblaösins. Hún hefur ásamt manni sínum, Árna Hjartarsyni jarðfræðingi, rannsakað manngerða hella á Suðurlandi og skrifað um þá tvær greinar í Árbók Fornleifafélagsins. Sýnishorn af hellamyndum Kjarvals. MorgunblaðiA/ÓI.K .M. Einar Benediktsson skáld fékk Kjarval til að teikna myndirnar — segir Hallgerður Gísladóttir sagnfræð- ingur um hellamyndir Kjarvals Nú hafa komið í leitirnar 36 áður óþekktar teikningar eftir Kjarval sem hann hefur gert af ýmsum hellum á Suðurlandi og ristum í þeim. í kvöld flytja þau Árni og Hallgerður fyrirlestur í Kjarvalsstöðum um þessar hella- myndir Kjarvals í tengslum við sýninguna Kjarval - aldarminn- ing, sem nú stendur yfir. „Þessir hellar eru sandsteins- hellar sem hafa verið grafnir inn í hóla við bæi víða á Suðurlandi. Sumir þeirra eru mjög gamlir og er í sumum tilfellum um að ræða elstu hús á íslandi," sagði Hallgerður. „Þarna eru víða veggjaristur og minjar frá ýms- um tímabilum. Einar Benediktsson skáld þótt- ist sjá þarna merki um forsögu- lega íbúa landsins og hafði mjög mikinn áhuga á þessum hellum. Hann skrifaði töluvert um þá, t.d. í riti sínu Thules Beboere. Hann hélt því fram að þarna væru ýmis tákn, svo sem frum- kristin tákn og ogham-letur, fornkeltneskt letur, sem væru merki þess að Papar hefðu gert þessa hella, eða jafnvel fólk sem var uppi fyrir þeirra tíð. Einar Benediktsson og Kjarval voru góðir vinir, þótt reyndar séu til litlar heimildir um það í öllu því sem skrifað hefur verið um Árni Hjartarson og Hallgerður Gísladóttir. þessa tvo snillinga. Líklega hefur Einar fengið Kjarval til að fara austur og draga upp myndir af hellunum og ristum í þeim. Við höldum að Einar hafi ætlað að nota þessar myndir í ritverk sem hann gefur í skyn að hann sé með í smíðum á þriðja áratug þessarar aldar. En hvorki hefur fundist tangur né tetur af því. Þrátt fyrir að hvergi sé til staf- krókur um að Kjarval hafi gert þessar myndir fyrir Einar þykir okkur það líklegasta skýringin, því við höfum rakið myndirnar til ættingja Einars." - Hvernig uppgötvuðust þess- ar teikningar? „Þegar við vorum að mæla upp hella í Ásahreppi í Holtum árið 1982 fréttum við hjá gömlu fólki, sem við vorum að leita heimilda hjá, að Kjarval hefði komið þangað og teiknað í hellunum í kringum 1920. Hann hafði síðan gefið fólki þarna tvær myndir, sem síðar týndust. Við gerðum mikla leit að þessum myndum og höfðum samband við alla sem mögulega gátu vitað um þær. Síðan skrifuðum við grein um þessa rannsókn okkar og gátum þess að Kjarval hefði verið þarna og teiknað myndir, en þær væru líklega glataðar. Þá fengum við ábendingu utan úr bæ að til væru ljósmyndaplötur úr gleri hjá ættingjum Einars, sem lík- lega væru af þessum teikningum Kjarvals. Þá vantaði frummyndirnar. Þessar plötur komu úr dánarbúi manns sem var tengdur Einari og leituðum við til erfingja hans. Árangurinn lét á sér standa þar til nú fyrir nokkrum vikum að myndirnar fundust. Ef til vill bæta þessar myndir ekki miklu við list Kjarvals, en þær eru gerðar í vísindalegu skyni. Margar myndanna eru úr helli við bæinn Ás í Holtum. í þessum helli voru haldin mann- talsþing og í sóknarlýsingum frá 1840 er talað um að í honum sé merkilegt letur. Hellirinn var friðaður í byrjun aldarinnar en engu að síður var byggt ofan á hann um miðja öldina. Það var einmitt í þessum helli sem Einar Benediktsson taldi sig hafa hvað mestar sannanir fyrir forsögu- legum íbúum,“ sagði Hallgerður Gísladóttir að lokum. Fógeti og fyrrum aðalbókari í Eyjum ákærðir: Sakaðir um að hafa misnotað embættis- og starfsaðstöðu — veitt sjálfum sér og öðrum lán til ávinnings og fyrirgreiðslu BÆJARFÓGETINN í Vestmanna- eyjum og fyrrverandi aðalbókari embættisins hafa verið ákærðir fyrir brot í opinberum starfi og þess krafist að báðir verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakar- kostnaðar. Báðum er gefið að sök að hafa með gerðum sínum, hvor um sig og báðir saman, misnotað embættis- og starfsaðstöðu sína við bæjarfógetaembættið í Vest- mannaeyjum, ýmist sjálfum sér eða öðrum til ávinnings og fyrirgreiðslu og þá jafnframt hallað rétti hins opinbera og rýrt að sama skapi hlut þess í sjóðum embættisins frá því sem annars hefði verið, eins og segir í ákæruskjalinu, sem þeim var birt í gær. Þrír dómarar hafa verið skipaðir umboðsdómarar í máli þessu, Gunnlaugur Briem yfirsakadómari í Reykjavík, sem er forseti dómsins, Haraldur Henrysson sakadómari í Reykjavík og Ásgeir Pétursson bæjarfógeti í Kópavogi. Aðalbókar- inn fyrrverandi hefur látið af störf- um við embættið en fógeti er nú í ársleyfi. I ákærunni er þeim gefið að sök að hafa farið í sjóði embættisins og veitt sjálfum sér lán, sem hafi verið rangfærð á kvittunum í bók- haldi fógetaembættisins, og svo veitt sjálfum sér og öðrum lán gegn innistæðulausum tékkum, sem síð- an voru geymdir hjá embættinu, stundum mánuðum saman. Ekki er um verulegar upphæðir að ræða og voru þær allar greiddar til baka áður en langt um leið. Þannig er fógeti sakaður um að hafa tekið sér lán að upphæð 600 þúsund gamlar krónur á árinu 1980, sjö þúsund nýkrónur árið eftir og 30 þúsund krónur árið 1982. Þessi lán voru færð út af þinggjaldakort- um sem endurgreiðsla á opinberum gjöldum en auk þess er fógeta gefið að sök að hafa tekið sér 65 þúsund króna tékkalán árið 1982. Þá er hann sakaður um að hafa veitt öðrum starfsmönnum fógetaemb- ættisins lán úr sjóðum þess: 952 þúsund gamlar krónur árið 1980, 12 þúsurd nýkrónur árið 1981 og 41 þúsund krónur árið eftir. Áðalbókaranum fyrrverandi er gefið að sök að hafa tekið sér lán úr sjóðum embættisins með sama hætti, þ.e. með útfærslu af þing- gjaldakortum, að upphæð 385 þús- und gamlar krónur árið 1978, 400 þúsund g.krónur árið eftir og tæp- lega 1,3 milljónir g.króna árið 1980. Hann er sömuleiðis sakaður um að hafa tekið sér rúmlega 42 þúsund krónur að láni á sama hátt 1981 og rúmlega 90 þúsund krónur árið 1982. Árið 1983 er hann sakaður um að hafa veitt sjálfum sér sam- tals 255 þúsund króna lán gegn innistæðulausum tékkum og einnig að hafa veitt félagasamtökum í Eyjum samskonar fyrirgreiðslu. Lánin endurgreiddu þeir að hluta með þvi að láta draga mánaðarlega af launum sínum eins og um væri að ræða álögð þinggjöld, að því er segir í ákæruskjalinu. í öðrum kafla ákærunnar er bók- aranum gefið að sök að hafa — með samþykki fógeta — tekið við ellefu innistæðulausum ávísunum, samtals að upphæð tæplega 2,2 milljónir króna, upp í greiðslur á opinberum gjöldum. Þessar ávísan- ir voru settar í sjóði embættisins og geymdar mánuðum saman — og voru þar enn þegar talið var í sjóð- um embættisins á vegum ríkisend- urskoðunar. I þriðja lagi er höfðað mál gegn þeim hvorum fyrir sig fyrir að hafa í nafni embættisins heimilað af- hendingar til fyrirtækja og ein- staklinga í Eyjum á ótollafgreidd- um varningi úr tollgeymslu Eim- skipafélagsins án lögboðinnar toll- meðferðar og greiðslu aðflutnings- gjalda eða móttöku tryggingarfjár. Aðflutningsgjöldin voru greidd síð- ar. Fógeta er gefið að sök að hafa heimilað fimm slík tilvik en bókar- anum þrjú. Brot þeirra eru talin varða við 139. og 158. greinar almennra hegn- ingarlaga sbr. 138. grein til refsi- hækkunar. I 139. grein segir meðal annars að hafi opinber starfsmaður misnotað stöðu sína sér eða öðrum til ávinnings eða til þess að gera nokkuð það, sem hallar réttindum einstakra manna eða hins opinbera, þá varðar það sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að tveimur árum. í 1. málsgrein 158. grein hegningar- laga segir: „Ef maður tilgreinir eitthvað ranglega í opinberu skjali eða I bók eða í annars konar skjöl- um eða bókum, sem honum er skylt að gefa út eða rita, eða maður til- greinir eitthvað ranglega í skjali eða bók, sem hann gefur út, eða heldur í starfi, sem opinbera lög- gildingu þarf til að rækja, og það er gert til þess að blekkja með því í lögskiptum, þá varðar það varð- haldi eða fangelsi allt að 3 árum, eða sektum, ef málsbætur eru.“ Eftir birtingu ákærunnar í Saka- dómi Reykjavíkur í gær var málinu frestað til loka janúarmánaðar. Verjandi fógeta er Benedikt Blöndal hrl. og verjandi aðalbókar- ans fyrrverandi er Sveinn Snorra- son hrl. Af hálfu ákæruvaldsins er málið sótt af Braga Steinarssyni vararíkissaksóknara.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.