Morgunblaðið - 14.11.1985, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 14.11.1985, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985 NORÐUR-ÍRAR tryggðu sér rétt- inn til að leika í úrslitakeppninni í Mexíkó á næsta ári með því að gera markalaust jafntefli við Englendinga á Wembley í gær- kvöldi. Noröur-írar uröu þar með í öðru sæti í 3. riðli, á eftir Eng- lendingum og leika þau því bæði í Mexíkó á næsta ári. Pat Jennings markvörður sannaði enn einu sinni getu sína sem markvöröur og bjargaði oft á ótrúlegan hátt. Hann lák sinn 113. landsleik sem markvörður Noröur-íra og hnekkti þar með meti ítalska AP/Símamynd • Preben Elkjær skorar hár fyrsta mark Dana í leiknum gegn írum í gærkvöldi. Elkjær skoraði einnig fjóröa og síðasta mark Dana í stórsigri á írum, 4—1, í Dbulin. ____________ Elkjær skoraði tvö og Lerby fór til Bayern DANIR gulltryggðu farseðil sinn á lokakeppnina í knattspyrnu sem fram fer í Mexikó á næsta ári er liöiö vann sannfærandi sigur, 4:1, yfir írum í Dublin í gærkvöldi. Danir þurftu að tapa stórt til þess aö þeir kæmust ekki til Mexikó en Irland var þegar út úr mynd- inni. Þaö voru írar sem skoruöu fyrsta mark leiksins og var þar aö verki Frank Stapleton frá Manchester United. Markiö skoraöi hann strax á sjöttu mínútu meö fallegum skalla eftir sendingu frá T ony Cascarino. Hinir 12 þúsund áhorfendur setti fljótlega hljóöa því aðeins tæpri mínútu síöar jöfnuöu Danir. VINETTA Vinetta nærbuxur. Mjúkar, þæg'Segar og falla vel að líkamanum. Framleiddar úr 65% bómull, 32% polyamid og 3% Elastan. Bómull snýr að húðinni og bómullarfrotté í skrefbót. Fást í hvítu og húðlit. Mini - Midi - Maxi. Stærðir 36/38 - 40/42 - 44/46 - 46/48. Heildsölubirgðir: Sambandið verslunardeild. Fatadeild. Sivebeck komst upp aö endamörk- um hægra megin og gaf fyrir markiö á stöngina nær. Preber Elkjær var þar og skoraði af miklu öryggi úr þröngristööu. irar voru heppnir aö fá ekki dæmda á sig vítaspyrnu þegar David O’Leary hélt Berggren í víta- teignum er hann var aö reyna aö skjóta að marki. Einnig braut Tony Grealish illilega á Jesper Olsen innan vítateigs skömmu síöar án þess aö dómari leiksins sæi nokkuö athugavert viö þaö. Danir voru sterkari aöilinn í leikn- um og menn biöu bara eftir því að þeir skoruðu fleiri mörk. Góö vörn Ira og markvarsla McDonagh kom þó í veg fyrir fleiri mörk i fyrri hálf- leik. Paul McGrath fékk gulliö tæki- færi rétt fyrir hálfleik til að koma Irum yfir er hann skaut beint í fang Rasmussen markveröi Dana. Á fjóröu mínútu síðari hálfleiks tóku Danir forystuna. Markiö var serlega glæsilegt. Lerby gaf fallega sendingu á Laudrup sem snéri O’Leary af sér og skaut hnitmiðuðu skotiimarkiö. Á 57 mínútu skoraöi bakvöröur- inn Sivebeck þriöja mark Dana. Hann fékk boltann á miöjum vellin- um, lék á þrjá varnarmenn áöur en hann vippaöi knettinum yfir mark- vöröinn. Eftir þetta mark var Lerby skipt útaf þannig aö hann gæti fariö meö einkaþotunni til Þýskalands þar sem hann lék í gærkvöldi meö Bayern gegn Bochum í bikarkeppn- inni þýsku. Mikiö aö gera í gær hjá þessum snjalla leikmanni. Fjóröa og síðasta mark Dana geröi Elkjær á 76. mínútu eftir send- ingu frá bakveröinum Sevebeck sem Berggren framlengdi. Elkjær skoraöi meö þrumuskoti af stuttu færi og þar meö var öruggur sigur íhöfn. Kiel vann KIEL sigraði Dortmund, 21-16, í vestur-þýsku Bundesligunni í handknattleik í gærkvöldi. Staðan {hálfleik var 8-6 fyrir Kiel. Meö þessum sigri skaust Kiel í 6. sæti deildarinnar meö 11 stig. Leikurinn var mjög haröur og mikil barátta var í leikmönnum. Horna- maöurinn snjalli hjá Kiel, Swenker, var besti maöur vallarins og skoraöi 12mörk. jafntefli á Wembley markvarðarins, Dino Zoff, sem hafði leikið 112 landsleiki fyrir ítali. Sannarlega stór dagur fyrir Jennings. Völlurinn var frosinn og áttu leik- menn oft í erfiöleikum meö að fóta sig á hálum vellinum. Fyrsta mark- tækifæriö átti Glenn Hoddle á 25. mínútu er hann átti þrumuskot af 25 metra færi og stefndi boltinn markhorniö efst, en Pat Jennings bjargaöi þar á ótrúlegan hátt. Besta og eina færi Noröur-íra í fyrri hálf- leik átti Jimmi Quinn, sem fékk sendingu fyrir markiö frá lan Stew- art, en skalli hans af 12 metra færi fór framhjá. Um miöjan fyrri hálfleik átti Kerry Dixon gott færi er hann komst einn innfyrir og átti Jennings einan til varnar, eftir góöan undir- búning Glenn Hoddle, en honum brást bogalistin. Á síöustu mínútu fyrri hálfleiks átti Gary Lineker skot af stuttu færi eftir sendingu frá Rey Wijkins, en skaut framhjá. í seinni hálfleik var sama upp á teningnum, Englendingar sóttu en Noröur-írar vöröust vel. Dixon fékk eitt besta tækifæri leiksins er fjórar mínútur voru til leiksloka, skaut góöu skoti aö marki af stuttu færi en Jennings, sem var betri en eng- inn í markinu, náöi aö slá knöttinn yfir. Er leiktíminn var aö renna út átti Dixon aftur gott marktækifæri og enn varöi Jennings. Noröur-irar geta þakkaö stór- góöri markvörslu Pat Jennings, aö þeir náöu aö halda jöfnu í þessum leik. Hann var maöur leiksins. • Pat Jennings átti stórleik í marki Norður—íra í gærkvöldi. Jafnt í Luzern EKKI tókst Paul Wolfisberg, landsliðsþjálfara Svisslendinga, að leiða menn sína til sigurs í síðasta leik liösins undír hans stjórn í gær er þeir mættu Norö- mönnum í Lúzern. Þetta var síö- asti leikurinn í þesum riðli undan- keppni heimsmeistarakeppninn- ar og lauk honum með jafntefli, hvoru liði tókst aö skora eitt mark. Það voru mjög erfiðar aðstæöur til aö leika knattspyrnu í Sviss í gær — talsvert haföi snjóaö og þaö kingdi niöur á meöan leikurinn fór fram. Þaö getur víöar snjóaö en á islandi greinilega, þó svo verið sé aö leika knattspyrnu. Fyrsta mark leiksins skoruðu Norömenn og var þaö Sundby sem þaö gerði. Svisslendingar jöfnuöu siöan á 57. mínútu og þaö sem eftir var leiksins var lítiö um fína drætti enda leikmenn þreyttir vegna þess hve þungur völlurinn var.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.