Morgunblaðið - 14.11.1985, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985
ÚTGERÐAR-
VÖRUR
FJÖLBREYTT
ÚRVAL
VEIÐAR-
FÆRA
FISKIHNÍFAR
ALLSKONAR
•
BÁTADÆLUR
ALLAR GERÐIR
BLAKKIR
MARGAR GERÐIR
SKÓFLUR í ÚRVALI
•
ALLTTILSÍLDAR-
SÖLTUNAR
•
VÉLAÞÉTTINGAR
ALLSKONAR
rTTTFI
STJÖRNULYKLAR
TOPPLYKLAR
LYKLASETT
TENGUR
FJÖLBREYTT ÚRVAL
•
SLÖNGUTENGI
•
GÚMMÍ- OG
PLASTSLÖNGUR
•
Jtönddith
LAMPAR OG GLÖS
HVERFISTEINAR
•
ELDHÚSHNÍF-
ARNIRFRÁ-
BÆRU
SVISSNESK
ÚRVALS
TRÉÚTSKURÐ-
ARJÁRN
•
BOLTAJÁRN
VÉLATVISTUR
5>^Grandagarði2
Simi 28855
OPIO LAUGARDAG 9—12
Garri Kasparov f viðtali við Morgunblaðið:
Karpov er eftir sem áður
hættulegasti andstæðingurinn
„MÉR LÍÐUR mjög vel og er mjög
hamingjusamur, en að sjálfsögðu
er ég þreyttur eftir nýafstaðið ein-
vígi við Karpov og þarf því að fá
tíma til þess að hvfla mig. Ég ætla
því að taka mér tveggja vikna hvfld
og fara suður til Azerbaijan. Fyrsta
viðureign mín sem heimsraeistari
verður einvígi við Hollendinginn
Jan Timman. Það á að fara fram
í Hollandi nú í desember.“
Þannig komst Garri Kasparov
m.a. að orði í viðtalinu við Morg-
unblaðið í gær. Hann sagði einn-
ig að sér hefði verið boðið að
koma til Hamborgar og tefla
þar, en óvíst væri, hvort af því
gæti orðíð. Ef af því yrði þá yrði
það aðeins í tvo daga rétt fyrir
jólin.
Kasparov lagði mikla áherslu
á þá ábyrgð sem hann bæri nú
sem heimsmeistari gagnvart
skáklistinni og að hann yrði að
gera allt sem hann gæti til þess
að efla hana um allan heim.
Hann sagðist hins vegar ekki
hafa breytt skoðun sinni á
Campomanes, forseta Alþjóða-
skáksambandsins og stæði alfar-
ið við þá gagnrýni sem hann
hefði áður látið í ljós í hans garð.
Þegar Kasparov var spurður
að því, hverjum hann ætti mest
að þakka gengi sitt i skákinni,
nefndi hann Mikhkail Botvinnik,
fyrrum heimsmeistara, en sagði
jafnaframt að það væru margir
aðrir sem hann stæði í mikilli
þakkarskuld við.
Heimsmeistarinn vék síðan að
einvíginu við Karpov og sagði:
„Ég held að tíunda skákin hafi
verið erfiðust fyrir mig. Karpov
átti mjög góðar vinningslíkur í
þeirri skák og hefði hann unnið
Garri Kasparov
hana, þá hefðu sigurvonir hans
í einvíginu aukizt til mikilla
muna. Sextánda skákin var
sennilega bezta skákin mín og ég
held að hún hafi ráðið afar miklu
um úrslit einvígisins. Ég vann
þá skák þrátt fyrir það að það
væri mjög erfitt að benda á
mistök hjá Karpov í þeirri skák.
í tuttugustu og annarri skákinni
lék ég hins vegar einn mjög veik-
an leik og það var nóg til að tapa
þeirri skák.
Karpov tefldi mjög vel í þessu
einvígi og gerði allt sem hann
gat til að sigra, en ég var bara
sterkari. Sérstaklega tefldi
Karpov fjórðu og fimmtu skák-
ina vel. Það eru skákir sem hann
Marina Nejolowa, ein fegursta
leikkona Moskvuborgar, sem bráð-
lega mun leika í „Hver er hræddur
við Virginíu Woolf?“ Nú er spurt:
Er hún konan í lífí Garri Kaspar-
ovs? Víst er að þau tvö eru miklir
vinir.
gæti vel tekið með í bók með
úrvali af sínum beztu skákum.
Karpov er eftir sem áður
hættulegasti andstæðingur
minn. Hann er næst sterkasti
skákmeistari í heimi. Ég einn er
honum fremri."
Kasparov lét í ljós óánægju
með núverandi fyrirkomulag í
keppninni um heimsmeistaratit-
ilinn. „Karpov fær rétt til þess
sem fyrrverandi heimsmeistari
að tefla annað einvígi, en ég fengi
það ekki. Það verður mjög erfitt
að tefla annað einvígi eftir aðeins
þrjá mánuði, þar sem svo stuttur
tími er þangað til. Sá sem tapar
þá verður svo að tefla við sigur-
vegarann úr áskorendaeinvígj-
Anatoly Karpov
unum í byrjun næsta sumars.
Sigri sá síðarnefndi þar yrði
hann að tefla aftur enn eitt ein-
vígið um heimsmeistaratitilinn
við sama andstæðinginn og áður.
Með öðrum orðum gæti þetta
þýtt að við Karpov tefldum fjög-
ur einvígi á tveimur árum. Slíkt
væri auðvitað fráleitt."
Er Kasparov var spurður að
því hvort hann stundaði ein-
hverjar íþróttagreinar auk skák-
arinnar, hló hann og svaraði:
„Já, knattspyrnu. Ég má til með
að segja frá því að ég og vinir
mínir, sem aðstoðuðu mig í ein-
víginu, stofnuðum lið sem keppti
við blaðamenn eftir einvígið og
viðunnum."
Þúsundir barna
skrifa leiðtogum
Genf. 13. nóvember. AP.
ÞÚSUNDIR barna hafa skrifað leið-
togum stórveldanna bréf vegna fund-
ar þeirra í Genf í næstu viku, þar
sem þau láta í Ijós vonir sínar um
betri heim.
Það eru vestur-þýzk samtök,
„Friðarfuglinn", sem standa að
þessari herferð. Hafa börn í tæp-
lega 30 löndum skrifað leiðtogun-
um þar sem þau óska eftir því að
kjarnavopnum verði eytt og endir
bundinn á allar styrjaldir. Vonast
samtökin til að leiðtogarnir fallizt
á að taka við bréfunum meðan á
fundum þeirra stendur.
Leiðtogar þingflokka demókrata
í Washington lýstu í dag stuðningi
við för Reagans, Bandaríkjafor-
seta, til leiðtogafundarins og sögðu
alla bandarísku þjóðina standa
einhuga með forsetanum. Þeir
segjast binda miklar vonir við
fundinn.
Sovézkir embættismenn sögðu í
dag að mannréttindamál væru
vissulega mikilsverður málaflokk-
ur, en ef bryddað yrði á þeim á
fundi Reagans og Gorbachevs
kynni það að flækja stöðuna og
ekki auðvelda lausn mála, sem
væru “forgangsverkefni" að mati
alls mannkynsins. Þeir sögðu að
ef Reagan mundi reyna að gera
mikið úr mannréttindamálum þá
hefði Gorbachev „ýmislegt til mál-
anna að leggja".
Fyrrum ráðamenn
í Argentínu:
Stefnt fyrir
vanrækslu í
Falklands-
eyjastríði
Buenos Aires, 12. nóvember. AP.
SAKSÓKNARI argentínska hersins
sakaði á mánudag þrjá fyrrum yfír-
menn argentínska hersins um van-
rækslu á störfum sínum í Falklands-
eyjastríðinu og fór fram á að þeir
yrðu dæmdir í átta til tólf ára fangels-
isvistar.
Hector Canale, herforingi í flug-
hernum og saksóknari, krafðist
þess að Leopoldo Galtieri, fyrrver-
andi forseti og yfirmaður hersins,
og Jorge Anaya, fyrrverandi yfir-
maður sjórhersins, yrðu látnir
sitja tólf ár í fangelsi og Brasilio
Lami Doso, fyrrverandi yfirmaður
flughersins, átta ár.
Þessir þrír fyrrum ráðamenn úr
herstjórninni, sem hleypti af
stokkunum Falklandseyjastríðinu
1982, voru dregnir fyrir herrétt
vegna meintra afglapa í starfi.
Canale, saksóknari, ber þeim á
brýn að hafa ráðist gegn Bretum
í trausti þess að Bretar yrðu reiðu-
búnir til að semja um Falklands-
eyjar og gleymt að gera ráð fyrir
því að breska ljónið kynni að bíta
frá sér. Canale segir einnig að
diplómatískar leiðir til að leysa
Falklandseyjadeiluna hafi ekki
verið reyndar til fulls.
AP/Sfmamynd
Skœruliðaforingi í hópi stuðningsmanna
Leiðtogi skæruliða í Angólu, Jones Savimbi, hlær hér dátt ásamt gamalli konu og öðrum stuðningsmönnum
sínum. Myndin var tekin eftir að Savimbi ræddi við blaðamenn í bækistöðvum sínum í Jambó í suðurhluta
Angóla. Savimbi skoraði meðal annars á Bandaríkjaforseta að senda hernaðarhjálp til að sigra öfl marxista
í Angóla.