Morgunblaðið - 14.11.1985, Blaðsíða 48
<•»
f V
48
MORGUNBLADID, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985
félk í
fréttum
HANN ER18 ÁRA OG HEFUR ÞEGAR
GEFIÐ ÚT TVÖ NIÐJATÖL
„Ég væri líklega best
geymdur á minjasafni“
sagði Ingimar F. Jóhannsson
kki er þaö alvanalegt að ungir
piltar 18 ára gamlir hafi að
aðaláhugamáli ættfræði, fornleifa-
fræði, stjórnmál og sagnfræði. Oft
er það nær lagi á þessum árum að
áhugamálin beinist fremur að klæðn-
aði, skemmtunum og því líku. En
undantekningin sannar regluna í
ýmsum tilvikum og svo er að þessu
sinni með Ingimar F. Jóhannsson.
Nýlega kom út niðjatal eftir hann
og er það ekki hans fyrsta, heldur
gaf hann út annað niðjatal árið 1983.
„Fyrsta niðjatalið mitt gaf ég út
1983 og það seldist mjög fljótlega
upp. Það var niðjatal langafa míns
og langömmu frá Gjögri, Jóns
Magnússonar sjómanns og Bjarn-
veigar Friðriksdóttur.
ísumar kom svo seinna niðjatal-
ið út sem ég hef verið að vinna að
síðastliðið eitt og hálft ár, það er
að segja niðjatal Ögmundar Andr-
éssonar bónda á Hellu í Beruvík á
Snæfellsnesi og Sólveigar Guð-
mundsdóttur en þessi hjón voru
foreldrar Karvels ögmundssonar
útgerðarmanns í Njarðvík sem
margir kannast eflaust við.“
— Þegar vikið er að þeirri spurn-
ingu hvenær áhuginn hafi kviknað
á ættfræðinni, sagðist Ingimar
hafa verið í sveit sem drengur á
Gjögri í Strandasýslu þar sem
langafi hans og langamma bjuggu
og þar hafi áhuginn líklega farið
að gera vart við sig.
„Það var verið að segja mér
sögur af gengnum kynslóðum og ég
hafði mjöggaman af. Svo kom að
því að mig langaði að vita meira,
hvenær fólkið var fætt, hvenær
það dó, við hvað það starfaði, hve
mörg börnin urðu og svo framvegis
og ég tók mig til og fór að rannsaka
þetta og rekja áfram.
Ég byrjaði ungur að sækja
Landsbókasafnið, hef líklega verið
14 ára þó svo að aldurstakmarkið
sé víst 16 ára, en það fetti aldrei
neinn fingur út í það.
Áhuginn fyrir ættfræðinni hef-
ur svo verið að aukast jafnt og
þétt. Reyndar segja sumir að menn
séu fæddir með áhuga á fornri tíð
og liðnum kynslóðum."
— Inntur eftir því hvort hann
helgi sig einhverjum sérstökum
búsetusvæðum varðandi ættfræð-
ina segist hann hafa helgað sig
aðallega Strandasýslu og Snæ-
fellsnesi.
Og þegar talið berst að því
hvernig standi á því að hann hafi
farið að vinna markvisst að niðja-
tali upplýsti hann blaðamann að
áhugi hafi verið mikill innan fjöl-
skyldunnar fyrir slíkum niðja-
tölum og þar sem hann hafi gaman
af þessu grúski var honum ekkert
að vanbúnaði að gera gangskör að
þessu fyrir alvöru.
— Ertu að fást við eitthvað í
ættfræðinni sem stendur?
— „Ég er að safna heimildum
um 2 bræður í Strandasýslu frá
Tindi í Miðdal, þá Niels Jónsson
fræðimann á Grænhóli á Gjögri
og bróður hans sem einnig var
mikill fræðimaður, Halldór Jóns-
son í Miðdalsgröf í Steingrímsfirði.
Það er allsendis óvíst hvað verður
úr þessu hjá mér, en eflaust skrifa
ég grein um þetta þegar þar að
kemur.
Ættfræðin er afskaplega tfma-
frek grein og ég tók mér frí í tvær
annir frá skólanum þegar ég var
að vinna að niðjatalinu og vann
þá einnig um leið að öðrum störf-
um því ég hef verið að reyna að
viða að mér heimildasafni og það
er töluvert dýrt.
Ég stunda nám núna í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti og
ættfræðin situr því ekki alveg í
fyrirrúmi þessa stundina."
— En áhugamál Ingimars eru
fleiri eins og getið var í upphafi,
fornleifafræði, sagnfræði og
stjórnmál eru í uppáhaldi.
„Allt frá því að ég var smásnáði
hef ég haft gaman af gömlum
munum. Þeir hlutir sem fólk fyrri
tíðar hefur handfjatlað vekja
áhuga minn. Líklega væri ég best
geymdur á minjasafni.
Ég hef unnið í þrjú sumur með
Magnúsi Þorkelssyni fornleifa-
fræðingi, tvö fyrstu sumrin við
Maríuhöfn á Búðarsandi í Kjós
sem talin er elsta höfn á íslandi
og það var mjög áhugavert. í
sumar unnum við hinsvegar að
Kirkjubóli í Skutulsfirði."
— Þú ert einnig starfandi á
stjórnmálasviðinu?
„Ég hef lengi verið meðvitaður
um það sem er að gerast í stjórn-
málum, en hef líklega verið 16 ára
þegar ég fór að lesa af alvöru og
fylgjast vel með slíku.
Það er skondið að hugsa til þess
að sem 12 eða 13 ára polli stofnaði
ég með kunningja mínum „Sjálf-
stæðisfélag Ölduselsskóla". Með-
limirnir voru reyndar einungis
tveir en það má segja að snemma
beygist krókurinn að því sem verða
vill, því þessi kunningi minn sem
þarna var að verki með mér er
annar af tveimur tengiliðum
Heimdallar í Ármúlaskólanum og
„Þegar ég var 12 eða 13 ára polli,
stofnaði ég með kunningja mínum
Sjálfstæðisfélag Ölduselsskóla. Með-
limir voru einungis við tveir en það
má segja að snemma beygist krókur-
inn að því sem seinna vill verða...
sagði Ingimar F. Jóhannson.
Morgunbladið/Bjarni
ég nú starfandi sem gjaldkeri í
Heimdalli.
Það er einmitt mjög gaman að
vinna í Heimdalli. Mikil gróska í
starfseminni og við bjartsýn. Við
erum að ljúka við gagngerar breyt-
ingar á félagsheimilinu okkar,
þessa dagana, og áhugi í fólki."
— Hvað kveikti stjórnmála-
áhugann. Foreldramótun?
„Eg held að þetta sé ekki uppeld-
isatriði í mínu tilviki og áhuginn
hafi komið frá lestri. Að vísu hef
ég kannski mótast nokkuð af föð-
urafa mínum sem var mikill sjálf-
stæðismaður. Þegar ég fór að
komast til vits og þroska sátum
við oft og lengi og spjölluðum um
stjórnmál."
— Þegar þú ert ekki að grúska
í ættfræðinni, né í skólanum eða
á kafi i pólitíkinni, hvað gerirðu
þá?
„Ég skemmti mér með vinum
mínum og les heilmikið. Fyrir utan
lestur í sambandi við áhugamálin
þá les ég ýmis skáldverk og hef
gaman af ljóðalestri, sérstaklega
dái ég skáldskap Jónasar Hall-
grímssonar."
— Finnst vinum og kunningjum
ekkert skrítið að áhugi þinn beinist
svo mjög á þessar brautir?
„Jú, það kemur fyrir. En sumir
kunningjar mínir eru þó einnig að
fást við þetta og ég reyni að ýta á
áhugann, því það er synd og
skömm að krakkar á mínum aldri
geti ekki einu sinni sagt almenni-
lega frá afa sínum og ömmu.“
— Mikið var spjallað en þetta
er þegar orðið of langt viðtal hjá
blaðamanni á síður „Fólks í frétt-
um“. Hér verður því settur punkt-
ur, en efnið hefði dugað í heila
opnu.
>
Til
styrktar
rann-
sóknum
áalnæmi
„Frægðin hefur
ekki marga
kosti, en þetta
er einn af þeim,
að geta hjalpað
til á þennan
hátt,“ sagði
Margot Kidder
þegar hún og
fleira þekkt fólk
í Hollywood
komu saman á
Bonaventure-
hótelinu í Los
Angeles til að
safna peningum
í þágu alnæmis-
(AIDS)-rann-
sókna.
Dale Bezzio og Cyndi Lauper.
Stevie Wonder og Shirley McLaine.
George Hamilton og Angie Dickin-
son.
John James og Stephanie Beacham. Rod Stewart og Kelly Emberg.
Nancy McKean og Michael J. Fox.