Morgunblaðið - 14.11.1985, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985
Utandagskrárumræða á Alþingi í dag:
Rætt um Útvegsbank-
ann og Hafskip hf.
JÓN Baldvin Hannibalsson hefur
farið fram á það við forseta Samein-
aðs þings, Þorvald Garðar Kristjáns-
son, að í dag fari fram utan-
dagsskrárumræða um stöðu Útvegs-
banka íslands.
Þorvaldur Garðar sagði i samtali
við blaðamann Morgunblaðsins í
gær að umræðan yrði á dagskrá á
síðari fundi Sameinaðs þings í
dag, en sá fyrri væri ætlaður fyrir-
spurnum. „Ég fór fram á þetta
vegna þess að umræða um stöðu
Útvegsbanka íslands, í fjölmiðl-
um, þar á meðal í ríkisfjölmiðlum
vegna viðskipta hans við Hafskip
hf., er nú komin á það stig, að
hvenær sem er má búast við „pan-
ik“,“ sagði Jón Baldvin í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins.
Jón Baldvin sagðist eiga við það
að viðskiptavinir og sparifjáreig-
Skipa mál-
farsnefnd
ÁKVEÐIÐ hefur verið að sérstök
nefnd á vegum Flugleiða, sem
fjalla mun um málfar þeirra sem
starfa við flug hér á landi, taki til
starfa í næstu viku.
Leifur Magnússon fram-
kvæmdastjóri hjá Flugleiðum
sendi Skúla Br. Steinþórssyni
flugstjóra bréf þann 28. október
síðastliðinn, daginn eftir að
fjallað var um þetta mál í
Reykjavíkurbréfi Morgunblaðs-
ins. Þar segir Leifur m.a. að
honum hafi um langt skeið
ofboðið að hlusta að stöðuga
notkun afbakaðra enskra orða
og orðatiltækja þar sem í flest-
um tilfellum væru fyrir hendi
ágæt íslensk orð og orðatiltæki.
Síðar segir Leifur að á þessu
sviði dugi ekkert annað en stöð-
ugur áróður og aðhald og varpar
fram þeirri hugmynd hvort ekki
væri rétt að reka áróður í þeim
gögnum, sem Flugleiðir senda
starfsfólki sínu svo sem frétta-
bréf, upplýsingabréf og jafnvel
áhafnaskrá.
Nú hefur verið ákveðið að
nefnd sem fjalli um málfar
þeirra sem starfa við flug, skip-
uð þeim Leifi Magnússyni,
Skúla Br. Steinþórssyni, Guð-
mundi Snorrasyni þjálfunar-
stjóra og Sæmundi Guðvinssyni
forstöðumanni kynningardeild-
ar, hefji störf í næstu viku.
endur gætu óttast um sinn hag og
svarað því með fjöldaúttektum úr
bankanum. „Það gæti riðið bank-
anum að fullu, ef svo yrði,“ sagði
Jón Baldvin.
„Þessi umræða hefur staðið yfir
mánuðum saman og er komin inn
í ríkisfjölmiðlana. Einn af banka-
stjórnarmönnum bankans kom
fram í útvarpsviðtali í gær og róaði
viðskiptaaðila með því að segja -
það er ríkisábyrgð á bak við,“ sagði
Jón Baldvin, „en það er engan
veginn öllum ljóst að svo sé og
þegar ástandið er orðið svona þá
tel ég alveg óhjákvæmilegt að
bankamálaráðherra láti þetta mál
til sín taka, áður en verra hlýst
af. Upplýsi um staðreyndir í mál-
inu, kveði niður það sem rangt
kann að vera í því og staðfesti og
árétti úr ræðustól á Alþingi um
ríkisskyldur í þessu efni, hverjar
svo sem staðreyndirnar að lokum
kunna að reynast vera um stöðu
Útvegsbankans."
Jón Baldvin kvaðst í annan stað
telja óhjákvæmilegt að upplýst
yrði hvernig eftirlitsaðilar lögum
samkvæmt, eins og Seðlabanki og
bankaeftirlit, hefðu staðið að
þessu máli. Hvort þessir aðilar
hefðu gegnt skyldum sínum og
gripið inn í í tæka tíð, eins og þeim
lögum samkvæmt bæri að gera, ef
bankaeftirlitið teldi hag eða rekst-
ur innlánsstofnana óheilbrigðan.
Morgunblaðið/Július
99
Mikilvægt er að ná tökum á
tækninni þegar á unga aldri“
— segir Anne-Sophie Mutter, fiðlusnillingur,
sem í kvöld leikur með Sinfóníuhljómsveit íslands
Fiðlusnillingurinn Anne-Sophie
Mutter kom til íslands í gærkvöldi
og mun hún leika með Sinfóníu-
hljómsveit íslands í kvöld.
Anne-Sophie kemur hingað til
lands frá París þar sem hún hélt
tónleika og fer síðan á sunnudags-
kvöld til Helsinki til tónleikahalds.
Anne-Sophie sagði í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins í
gærkvöldi, að þegar tækninni við
fiðluleik væri náð kæmi hún ekki
síður frá huganum en frá fingr-
unum. Mikilvægt væri að ná
tökum á tækninni þegar á unga
aldri og gera þyrfti sér vel grein
fyrir eðli verksins áður en það
er leikið.
í kvöld hefjast tónleikarnir kl.
20.30 í Háskólabíói. Á laugardag-
inn heldur Anne-Sophie Mutter
aðra tónleika með Sinfóníu-
hljómsveit Islands undir stjórn
Jean-Pierre Jacquillat. Þessir
tónleikar eru áskriftartónleikar
Tónlistarfélagsins í Reykjavík og
um leið aðrir „Stjörnutónleikar"
Sinfóníuhljómsveitar íslands.
Forseti ASÍ um væntanlega kjarasamninga:
Öfrávíkjanlegt að ná fram
skýrum kaupmáttarákvæðum
KAUPIÐ er óþolandi lágt, félagsleg
þjónusta er ófullnægjandi, atvinnu-
mál eru í óvissu og erlendar skuldir
eru allt að sliga.
Þannig lýsti Ásmundur Stefáns-
son, forseti Alþýðusambands Is-
lands, ástandinu í landinu á mið-
stjórnarfundi í ASÍ í gær, þar sem
hann hafði framsögu um kjaramál.
Hann sagði að verkalýðshreyfingin
hefði síðustu misserin gefið ríkis-
stjórninni síendurtekin tækifæri til
að tryggja kaupmátt með því að
hamla verðhækkunum. „Ríkisvald-
ið hefur verið reiðubúið til yfirlýs-
inga en ekki til aðhalds í reynd,“
sagði hann. „Reynslan sýnir að
loforð eru ekki nægileg trygging.
Því myndu fáir telja yfirlýsingu
forsætisráðherra fullnægjandi
tryggingu fyrir kaupmætti kom-
andi samninga."
Ásmundur sagði, að í næstu
samningum yrðu að vera „skýr
samningsákvæði um það hvernig
launafólki verður bættur skaðinn
ef stjórnvöld bregðast trausti og
tryggja ekki aðhald í verðalagsmál-
um.“ Hann sagði að kaupmáttar-
trygging yrði að fá forgang umfram
önnur verkefni og kvað það sitt mat
að í komandi samningum ættu
forgangsverkefnin að vera þessi:
1. Aukinn kaupmáttur. „Við gerum
Ákæra gefin út í Landvélamálinu:
Héldu 18 milljónum
utan við veltu með
nýjum tölvuforritum
— fyrsta tölvusvikamálið kemur til kasta dómstóla
okkur grein fyrir því að við vinnum
ekki allt, sem tapast hefur, í einu
stökki og við verðum að leggja niður
fyrir okkur skýr skref um hvernig
það megi takast. Við vitum að hvort
sem lægsta kaup hækkar um 10,
20, 30 eða 40% vantar mikið á að
það sé fullnægjandi til framfæris.
En við vitum líka, að hvert skref
skiptir máli,“ sagði hann.
2. Traust kaupmáttartrygging.
„Verkalýðshreyfingin hefur lýst sig
reiðubúna til að skoða allar leiðir
til þess að tryggja kaupið, aðferðin
er ekki heilög," sagði Ásmundur.
„Það verður ófrávíkjanlega að ná
fram skýrum ákvæðum um það
hvernig launafólki verði bættur
skaðinn ef stjórnvöld standa ekki
við sitt. Útreikningar nú gefa til
kynna, að kaupmáttur standist
nokkurn veginn eins og gert var ráð
fyrir í júnísamningunum. Á það er
hins vegar vart að treysta, að fjár-
málaráðherra leiðrétti hverju sinni
slíkt frávik, eins og gerðist nú í
október."
I þriðja lagi sagði forseti ASÍ að
leggja þyrfti áherslu á úrlausn
ákveðinna félagslegra atriða - svo
sem húsnæðismála, vaxta og láns-
tíma, lífeyrismála, fjærveru vegna
veikinda barna og skilvísa inn-
heimtu sjúkra- og orlofsheimila-
sjóðsgjalda. Ekkert þessara mála
væri þó jafn brennandi og ástandið
í húsnæðismálum - það væri afleið-
ing þjóðfélagsgerðar, sem tryggði
hinum ríku ofboðslega ávöxtun
auðs en kæmi venjulegu fólki, sem
ynni hörðum höndum, á vonarvöl.
FIMM menn hafa verið ákærðir fyrir
stórfelld bókhalds- og söluskattssvik
á vegum fyrirtækisins Landvéla hf.
í Kópavogi. Tveir þeirra, feðgar og
stjórnarmenn í fyrirtækinu, eru
ákærðir fyrir stórfelld söluskattssvik
á tímabilinu frá september 1982 til
marsloka 1984. Auk feðganna eru
tveir fyrrverandi starfsmenn fyrir-
tækisins ákærðir fyrir hlutdeild í
málinu og loks forsvarsmaður tölvu-
bókhaldsfyrirtækis, sem annaðist
bókhald fyrir Landvélar hf.
Mál þetta kom upp í lok mars á
síðasta ári og voru feðgarnir þá
hnepptir í gæsluvarðhald á meðan
frumrannsókn stóð yfir. Að sögn
Jónatans Sveinssonar saksóknara
eru stjórnarmennirnir sakaðir um
undanskot á söluskattsskyldri
veltu að upphæð rúmlega 29 millj-
ónir króna og þannig greitt um 6,4
milljónum króna lægri söluskatt
en þeim var skylt. Með dráttar-
vöxtum og álögum er um að ræða
söluskatt upp á nærri fimmtán
milljónir króna. Er þeim gefið að
sök að hafa dregið undan veltu
með kerfisbundnum hætti með því
að láta búa til nýtt og rangt tölvu-
forrit fyrir bókhald fyrirtækisins.
Tveir fyrrum starfsmenn fyrir-
tækisins eru ákærðir fyrir að hafa
gerst hlutdeildarmenn í svikunum
með því að hafa komið hinu ólög-
lega bókhaldskerfi, á og viðhaldið
því. Fimmti maðurinn, forstöðu-
maður bókhaldsfyrirtækis í
Reykjavík, er ákærður fyrir að
hafa breytt gildum tölvuforritum
svo hægt væri að halda hluta velt-
unnar utan bókhaldsins. Er talið
að hann hafi átt að vita hvað var
á seyði í fyrirtækinu.
Þetta er fyrsta málið, sem upp
kemur hér á landi, þar sem tölva
er skipulega notuð við svik af þessu
tagi. Talið er að verulegur hluti
hinnar undanskotnu veltu hafi
verið sett aftur inn í rekstur fyrir-
tækisins.
Ætluð skattsvik stjórnarmann-
anna tveggja eru enn í rannsókn.
- Málið verður rekið fyrir Saka-
dómi Kópavogs.
Friðjón Guðröðarson
Halldór Kristinsson
Nýir sýslumenn í Rangár-
valla- og Þingeyjarsýslum
FORSETI Islands hefur að tillögu
Jóns Helgasonar dómsmálaráðherra
skipað Friðjón Guðröðarson sýslu-
mann í Rangárvallasýslu og Halldór
Kristinsson sýslumann í Þingeyjar-
sýshim.
Friðjón Guðröðarson var sýslu-
maður í Austur-Skaftafellssýslu
og Halldór Kristinsson bæjar-
fógeti á Bolungarvík og munu þeir
láta af þeim störfum hinn 1. des-
ember næstkomandi er þeir taka
við hinum nýju embættum. Hall-
dór Kristinsson hefur jafnframt
verið skipaður bæjarfógeti á Húsa-
vík.