Morgunblaðið - 14.11.1985, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985
7
Dvaliö verður í Bern.
Innifalið í naðanakráðu varði ar: Flugfargjald Keflavík/Luxembourg/
Keflavík, allur akstur, gistlng (öll herbergi eru með baöi og síma), morgun-
veröur, kynnisferð og sameiginleg skemmtun ásamt kvöldveröi í Bern
þann 27. febrúar og aögöngumiöar á alla leikina.
íslenskur fararstjóri veröur meö
hópnum allan tímann.
Verö fyrir manninn í tveggja manna herbergi kr. 21.600-
Verð fyrir manninn í eins manns herbergi kr. 22.900.-
Öll verö eru miðuö vrö gengisskráningu þann 6. nóvember 1985.
Feröaskrífstofan
ÚTSÝN
Austurstræti 17, sími26611.
Jóhann Einvarðsson:
„Er á móti gjald-
töku af varnarliðinu“
„ÉG HEF alltaf verið andvígur gjakl-
töku af varnarliðinu eða leigu fyrír
þá aðstöðu sem varnarliðið hefur
hér,“ sagði Jóhann Einvarðsson, sem
var efsti maður á lista Framsóknar-
flokksins í Keykjaneskjördæmi í
síðustu alþingiskosningum, þegar
blm. Morgunblaðsins spurði hann
álits á skoðanakönnun þeirri, sem
framsóknarmenn á Suðurlandi geng-
ust fyrir þar sem afstaða til gjaldtöku
af varnarliðinu var könnuð.
Jóhann sagöist vilja að varnar-
liðið stæði straum af kostnaði við
framkvæmdir er tengdust veru
þess hér, svo sem því að byggja
flugvelli, leggja vegi og þess hátt-
ar. Hann sagði að það væri alveg
hægt að rökstyðja það að varnar-
liðið ætti að leggja vegi sums stað-
ar á landinu og nefndi hann sem
dæmi, að nauðsynlegt gæti verið á
ófriðartímum að greiðar vegasam-
göngur væru frá Reykjanesi í fleiri
en eina átt, til dæmis austur á
bóginn, með ströndinni frá Krísu-
vík. „Ég vil líka að þeir versli við
okkur og kaupi þær vörur sem við
getum boðið með sambærilegum
gæðum og þær vörur hafa, sem
þeir fá hjá sjálfum sér,“ sagði Jó-
hann. Hann sagði að afstaða sín
til þess að vera á móti gjaldtöku
byggðist á því að þegar að þvi
kæmi að varnarliðið færi mætti
það ekki verða tekjulegt spursmál
fyrir tslendinga hvort það ætti að
láta þá fara þetta árið eða hitt.
Sú ákvörðun yrði að vera alveg
ótengd fjárlögum landsins.
25. febrúar — Genf:ísland — Suður-Kórea ............... kl. 19.00
25. febrúar — Genf: Rúmenía — Tékkóslóvakía: .......... kl. 20.45
26. febrúar — Bern: ísland — Tékkóslóvakía ............ kl. 19.00
26. febrúar — Bern: Vestur-Þýzkaland — Spánn .......... kl. 20.45
28. febrúar — Bern: Rúmenía — ísland ............... kl. 19.00
28. febrúar — Bern: Danmörk — Svíþjóð ................. kl. 20.45
Hótel Borg í kvöld:
Samtök stofnuð um vernd-
un gamla miðbæjarins
6000 manns starfa í miðbænum
STOFNFUNDUR samtaka um vöxt og viðgang gamla miðbæjarins verður
haldinn að Hótel Borg í kvöld klukkan 20.00. Fundarstjóri verður Davíð
Oddsson, borgarstjóri.
Unnið hefur verið að undir- myndir hefðu verið ræddar um
son, Guðlaugur Bergmann, Jón
Hjaltason, Bolli Kristinsson,
Guðni Pálsson, Pétur Arason,
Sigurður Steinþórsson og Ásgeir
Hannes Eiríksson.
BorgarneHÍ, 13. nóvémber.
AÐALFUNDUR Samtaka sveitarfé-
laga í Vesturlandskjördæmi verður
haldinn í Hótel Borgarnesi 15. og
16. nóvember.
Helstu atriði dagskrárinnar
verða: Skýrsla stjórnar SSV flutt
af Kristófer Þorleifssyni for-
manni SSV, Guðjón Ingi Stefáns-
son flytur skýrslu framkvæmda-
stjóra SSV, Ragnar Hjörleifsson
flytur skýrslu iðnráðgjafa, Snorri
Þorsteinsson fræðslufulltrúi,
flytur erindi um rekstur fræðslu-
skrifstofunnar í Borgarnesi. Þá
mun Björn Friðfinnsson formað-
ur Sambands íslenskra sveitarfé-
laga flytja varp. Óli Jón Ólason
ferðamálafulltrúi mun flytja er-
indi um uppbyggingu ferðamála
á Vesturlandi, Guðbrandur
Brynjúlfsson oddvoti og Guð-
mundur Vésteinsson bæjarfull-
trúi munu ræða um „Rekstur og
hlutverk sveitarfélaga í nútíð og
framtíð". Gert er ráð fyrir að á
fundinum starfi m.a. eftirtaldar
nefndir: Ferðamálanefnd, at-
vinnumálanefnd, sveitarstjórn-
armálanefnd og fjárhags- og alls-
herjarnefnd.
Doktorsvörn
í Háskólanum
NIKULÁS Þ. Sigfússon læknir ver
doktorsritgerð sína, „Hyperten-
sion in middle aged men. The effect
of Repeated Screening and Referr-
al to Community Physicians on
Hypertension Control" eða
„Hækkaður blóðþrýstingur hjá
miðalda körlum — áhrif endurtek-
inna heilsufarsrannsókna og vis-
unar til heimilslækna á blóðþrýst-
ingsmeðferð", í hátíðarsal Háskóla
íslands laugardaginn 16. nóvemb-
er kl. 14 og stjórnar prófessor
Davíð Davíðsson athöfninni. And-
mælendur af hálfu læknadeildar
verða prófessor Göran Berglund
yfirlæknir við Sahlgrenska sjuk-
huset í Gautaborg og dr. med.
Þorkell Guðbrandsson. öllum er
heimill aðgangur.
(FrétUtilkrnning)
búningi þessa stofnfundar um
nokkurt skeið og eiga þar hlut að
máli ýmsir aðilar, sem bera hag
gamla miðbæjarins fyrir brjósti
svo og aðilar sem reka ýmiskonar
viðskipta og þjónustustarfsemi í
þessum elsta borgarhluta Reykja-
víkur. Sigurður K. Kolbeinsson var
ráðinn til að annast undirbúning
að stofnun þessara samtaka og
sagði hann í samtali við Morgun-
blaðið að víðtæk samstaða hefði
náðst milli hinna ýmsu aðila, sem
vilja veg gamla miðbæjarins sem
mestan. Sagði Sigurður að mikill
hugur væri í mönnum um fram-
gang þessa máls.
„Það hefur valdið mönnum
áhyggjum hversu bæjarlandið
hefur þanist út i allar áttir á
kostnað gamla miðbæjarins,"
sagði Sigurður. „f gamla mið-
bænum eru hins vegar einhverjar
elstu byggingar landsins og þar
eru margir staðir sem hafa merki-
legt menningarlegt og sagnfræði-
legt gildi. Að okkar dómi yrði það
því stórslys ef þessi elsti hluti
borgarinnar hætti að þjóna hlut-
verki sínu sem mikilvæg miðstöð
þjónustu, viðskipta og fjölskrúð-
ugs mannlífs. Sem betur fer virð-
ast borgaryfirvöld vera að gera
ráðstafanir til að sporna við þeirri
þróun samanber nýframkomnar
skipulagstillögur Kvosarinnar.
Það svæði sem við erum að tala
um er hins vegar stærra og nær
frá og með Grófinni og Grjóta-
þorpi allar götur austur fyrir
Hlemmtorg, þar með taldar allar
þvergötur og hliðargötur frá
Skólavörðuholti til sjávar," sagði
Sigurður.
Sigurður sagði að ýmsar hug-
hvernig best yrði að málum staðið
til að efla gamla miðbæinn. Mætti
þar nefna opnunartíma verslana
og þjónustustofnana, bílastæðis-
mál, sameiginlegar auglýsingar,
koma fram sem einn aðili í samn-
ingum, sameiginleg innkaup, leik-
starfsemi og uppákomur ýmis
konar, barnagæslu, strætisvagna-
umferð og margt fleira. Sigurður
sagði að gerð hefði verið könnun
á fjölda starfsmanna í hinum
ýmsu atvinnugreinum í gamia
miðbænum og samkvæmt henni
starfa þar um 6.000 manns. Af
þeim koma tæp 3.000 til vinnu
sinnar á bílum, sem gæfi vísbend-
ingu um þörfina á bílastæðum í
gamla miðbænum. Sigurður sagði
að haft hefði verið samband við
fjölda fólks, sem eiga hagsmuna
að gæta i gamla miðbænum og
hefði þorri þeirra lýst miklum
áhuga með stofnun þessara sam-
taka. „Þessar góðu undirtektir
hafa fyllt okkur bjartsýni á mál-
staðnum og um leið framtíð mið-
bæjarins. Aðalatriðið er samt að
þeir.sem hagsmuna eiga að gæta
fjölmenni á stofnfundinn á Hótel
Borg,“ sagði Sigurður K. Kolbeins-
son.
Frummælendur á fundinum í
kvöld verða Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson formaður skipulags-
nefndar, sem ræðir um skipulags-
mál og sýnir líkan af skipulagstil-
lögum Kvosarinnar, Árni Sigfús-
son rekstrarhagfræðingur, sem
ræðir um „kalbletti í borgum" og
Gunnar Hauksson, verslunarmað-
ur, sem ræðir um verslun og þjón-
ustu í gamla miðbænum.
Undirbúningsnefnd að stofnun
samtaka skipuðu Skúli Jóhannes-
Heimsmeistara-
keppnin í
handknattleik
í Sviss HM1986
Hagstæö 5 daga ferð til Sviss 24. febrúar til 1. marz 1986. Komið með
og sjáiö ísland leika 3 leiki í forriölinum.
Aðalfundur Samtaka sveit-
arfélaga á Vesturlandi