Morgunblaðið - 14.11.1985, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985
15
Dimmur húmor og
yfirlætislaus alvara
Bókmenntlr
Sveinbjörn I. Baldvinsson
Antti Tuuri:
DAGUR í AUSTURBOTNI.
Skáldsaga. 295 bls.
Þýð. Njörður P. Njarðvík.
Setberg.
Finnski rithöfundurinn Antti
Tuuri hlaut í byrjun þessa árs
bókmenntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs fyrir þessa skáldsögu sína og
er það fagnaðarefni að við skulum
eiga þess kost að lesa hana á ís-
lensku svo fljótt sem raun ber
vitni. Sama var reyndar uppi á
teningnum í fyrra þegar Jólaórat-
oría Görans Tunströms kom út um
þetta leyti árs. Þetta er auðvitað
útgefanda og þýðanda að þakka,
að ógleymdum Norræna þýðingar-
sjóðnum.
Dagur í Austurbotni er fremur
hefðbundin skáldsaga í orðsins
ágætustu merkingu. Höfundurinn
er að segja okkur sögu af sam-
ferðarfólki okkar í tilverunni og
til að skerpa myndina sem hann
dregur upp af þessum einstakling-
um veitir hann okkur innsýn í
litríkan sögulegan bakgrunn
þeirra.
Sagan er einkum um fjóra bræð-
ur sem allir eru saman komnir á
ný í föðurgarði eftir að hafa vegn-
að svolítið misjafnlega í lífsbarátt-
unni. Þarna í sveitinni hefur
reyndar öll fjölskyldan komið
saman þennan dag um hábjarg-
ræðistímann af því tilefni að afi
bræðranna hefur látist vestur í
Ameríku og arfur eftir hann borist
heim til Finnlands. Sá arfur er
reyndar ákaflega fátæklegur.
Antti Tuuri
Það er einn bræðranna sem er
sögumaður. Við upplifum þennan
eina dag sem er ytri tími sögunnar
með hans augum og eyrum. Kynn-
umst samheldni bræðranna og því
sem aðskilur þá. Af vörum ömmu
bræðranna heyrum við margt um
fortíðina, um sögu ættarinnar,
héraðsins og landsins í heild og
er það býsna fróðlegt og varpar
ekki aðeins ljósi á sögupersónur
bókarinnar heldur og á þetta land
sem er okkur Islendingum flestum
harla framandi.
En þótt Tuuri eyði töluvert
mörgum blaðsíðum í að spegla
samtímann í fortíðinni er fjarri
því að atburðarásin sé tlðindalítil
og óspennandi. Sagan hefst með
miklum formælingum og hefndar-
hótunum eins bróðurins, sem farið
hefur á hausinn með vefstofu, og
geysilegum hraðakstri um sveit-
ina. Telur bróðirinn að félagi hans
í viðskiptunum hafi hlunnfarið sig
með klækjum og fláttskap. Hann
vill nú hefna þess.
Skömmu síðar er svo komið sögu
að bróðirinn sem segir söguna
hefur grafið upp úr jörðinni rétt
við bæjarhúsin gamla handvél-
byssu og skotfæri, hvort tveggja í
nothæfu ástandi. Gegnir þessi
gripur síðan verulegu hlutverki í
sögunni og er auk þess áþreifanleg-
ur vottur um ófriðsama fortíð, eins
konar sögulegt jarðsamband.
Antti Tuuri lét þess getið þegar
hann var staddur hér á landi sl.
vetur að hann mæti íslendingasög-
urnar mikils og teldi nokkurn
andlegan skyldleika milli Frónbúa
og íbúa Austurbotns í Finnlandi.
Þessi ummæli öðlast aukið vægi
eftir lestur þessarar bókar. Skap-
gerð bræðranna, sem eru kaldir
karlar út á við en brotakenndir
hið innra, stendur okkur nærri.
Mikilvægi sæmdarinnar og hefnd-
arþorstinn, einnig. Rétt eins og
íslendingum finnst söguhetjunum
í bókinni Dagur í Austurbotni það
ekkert liggja í augum uppi að fólk
verði að sætta sig við orðinn hlut,
beygja sig fyrir lögum og reglum,
horfast í augu við smæð sína og
svo framvegis, og skirrast ekki við
að taka málin í sínar hendur þegar
svo ber undir.
Þetta er innihaldsrík saga,
gegnsýrð af dimmum húmor og
yfirlætislausri alvöru eins og lífið
sjálft. Ekki er að sjá annað en að
hún fari einkar vel á íslensku í
þýðingu Njarðar. Ástæða er til að
vekja athygli á fallegri kápu.
VLT HRAÐABREYTAR
fyrir: dælustýringar,
færibönd, loftræstingar,
hraðfrystibúnað o.fl.
Danfoss VLT hraðabreytar fyrir þriggja fasa
rafmótora allt að 30 hö.
Hraðabreytingin erstiglaus frá 0-200% og mótorinn
heldur afli við minnsta snúningshraða.
Leitið frekari upplýsinga í söludeild.
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA
Það er vafasamt að nokkur
önnur heimsborg bjóði upp
á jafn mikla Qölbreytni í mat
og Amsterdam. Þar eru veit-
ingastaðlr frá öllum hornum
heimsbyggðarinnar og hreint
ævintýri að fara út að borða.
Það er sama hvort þig
langar í franskan mat, jap-
anskan, ítalskan, kínversk-
an, tyrkneskan, indónesisk-
an ... eða stórkostlega steik,
allt er þetta tii á fyrsta flokks
veitingastöðum í Amster-
dam. Islendingum sem koma
til Hollands finnstyfirleitt sér-
lega spennandi að borða
austurlenskan mat og aust-
urlensk matargerðarlist er
með miklum blóma í Amster-
dam.
Óhætt er að mæla sérstak-
lega með rijstaffel (hrís-
grjónaborði), sem saman-
stendur af gufusoðnum hrís-
Veisluboigin
Amsterdam
- hvað segir þú um 26 rétta máltíð?
grjónum og allt að 25 hlið-
arréttum. Þá er ekki síður
gaman á japönskum stöðum,
þar sem kokkurinn stendur
við borð gestanna og mat-
reiðir glampandi ferskt hrá-
efnið frá grunni.
Það er nokkuð sama hverr-
ar þjóðar matreiðslu þú velur
þér, þú getur verið viss um
að fá veislumat, og það er
ekki dýrt að borða úti í
Amsterdam.
Athugaðu að Arnarflug
getur útvegað fyrsta flokks
hótel og bílaleigubíla á
miklu hagstæðara verði en
einstaklingar geta fengið.
Nánari upplýsingar hjá ferða-
skrifstofunum og á söluskrif-
stofu Arnarflugs.
Flugoggisting
frá kr. 12.990