Morgunblaðið - 14.11.1985, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985
38
Minning:
Sigmundur G. Sig-
'mundsson verkstjóri
Fæddur 31. janúar 1942
Dáinn 6. nóvember 1985
Okkur setti hljóða, þegar við
fréttum snemma að morgni þriðju-
dagsins 15. október sl. að Grétar
yfirmaður okkar og vinur hefði
veikst mjög alvarlega kvöldið áður
og lægi meðvitundarlaus í sjúkra-
húsi. Útlitið var dökkt. Grétar lá
í þrjár vikur uns yfir lauk. Hann
lést snemma morguns þann 6. nóv-
ember sl. Það var erfitt að sætta
'v» sigviðþetta.
Hann sem kvaddi okkur Svo
hress í bragði daginn áður. Þannig
var Grétar jafnan. Hress og kátur,
léttur í lund og hlýlegt viðmót.
Grétari fylgdi ylur og birta.
Þegar við rennum í huganum
yfir allar samverustundirnar með
honum hér neðra við Sundin, er
okkur ljóst að hann hefur gefið
okkur indælar mínningar, sem
fylla okkur af þakklæti þegar við
kveðjum hann. Sárt er að missa
Grétar.
Marga nóttina áttum við saman,
oft við erfiðar aðstæður í slæmum
veðrum. Þá reyndi á æðruleysið
og þolinmæðina. Á slíkum stund-
~ - um var hann fljótur að taka
ákvarðanir og leysa þann vanda
sem upp kom. Alltaf var hægt að
reiða sig á að hann fyndi lausnina.
Alltaf sanngjarn og engum leiðst
að láta skapið hlaupa með sig í
gönur. Það var einfaldlega ekki
hægt að vera þungur í lund í ná-
lægð hans.
Það er list að kunna alltaf að
slá á létta strengi á hverju sem
gengur. Þá list kunni Grétar. Þess
vegna var svo gott að vera með
honum.
Við vitum að Grétar var kallað-
ur til starfa á öðrum vettvangi.
Erfitt er þó að sætta sig við að
hann sé farinn. Minningin um
allar samverustundirnar mun þó
sjá til þess að hann verður alltaf
á meðal okkar. Við þökkum honum
allt sem hann gerði fyrir okkur.
Hvíl í friði.
Vally mín, Simmi og litla dóttir,
Lilja og Rúnar, Höddi og þið öll,
sem eigið nú á bak ástvini og góð-
um dreng að sjá. Guð styrki ykkur
í sorg og söknuði. Blessuð sé minn-
ing Grétars Sigmundssonar verk-
stjóra.
Börkur, Siggi, Rabbi, Þröstur,
Halli, Arnar, Viggi, Ingvi og Addi.
í dag fer fram útför Sigmundar
Grétars Sigmundssonar, Spóahól-
um 12. Reykjavík.
Við ætlum ekki að rekja ættir
hans hér, heldur viljum við með
þessum kveðjuorðum þakka hon-
um fyrir samveruna í fjölskyldu
okkar. Samveru sem var alltof
stutt. Rúmlega tvítugur að aldri
giftist hann yngstu' systur okkar
Valgerði Björgvinsdóttur. Það kom
í hlut Sigurðar mágs hennar að
leiða hana upp að altarinu. Hann
leiddi hana til góðs drengs, sem
við sjáum nú á bak. Drengs sem
var ávallt glaður í lund og hafði
jákvæð lífsviðhorf. Það var alltaf
gaman að hittast á góðum stund-
um.
Þau voru samhent hjón og fundu
sameiginleg áhugamál í lífinu,
fóru í ferðalög um landið allt og
til útlanda með börnunum sínum
tveim Lilju og Sigmundi Grétari.
Einnig var brugðið sér á sjóinn og
veitt í soðið, líka var farið til
Viðeyjar þar sem foreldrar hans
höfðu búið ung.
Grétar var sérstaklega laghent-
ur maður. Hann gat töfrað fram
viðgerðir á ýmsum hlutum, smíð-
að, flísalagt, dúklagt, málað og
síðast en ekki síst sprautað bíla
af mikilli list.
Allt var þetta unnið af einstakri
snyrtimennsku eins og honum var
einum lagið. Og allt var þetta lært
í skóla lífsins.
Þau hjónin byggðu sér og börn-
um sínum yndislegt heimili að
Spóahólum 12, þar var þeirra
athvarf í blíðu og stríðu.
Elsku Vallý og fjölskylda, við
biðjum góðan guð að blessa ykkur
og styrkja. við kveðjum Grétar
með mikilli eftirsjá og þakklæti
fyrir góða viðkynningu.
„Far þú í friði
friður Guðsþigblessi
hafðu þökk fyrir allt og allt
GekkstþúmeðGuði
Guð þér nú fylgi
Hans dýrðar hnoss þú hljóta skalt“
(V. Briem)
Mágkonur
Við vissum að Grétar var veikur,
en að kallið kæmi svona fljótt því
áttum við ekki von á.
Við viljum með nokkrum fátæk-
legum orðum þakka honum sam-
fylgd liðinna ára.
Þegar við vorum að reisa okkur
heimili í Spóahólunum. Við kom-
um öll sitt úr hverri áttinni eins
og gengur, en fljótlega tókust góð
kynni og samhugur um að ganga
frá húsi og lóð og reyndi þá mest
á Grétar og Valgerði þar sem þau
tóku að sér að sjá um hússjóð og
umsjón með framkvæmdum með
miklum sóma.
Grétar var mjög dagfarsprúður
maður og þægilegur í allri um-
gengni og er skarð fyrir skildi að
svo ungur maður skuli vera burt
kallaður.
Elsku Valgerður, Lilja og Grét-
ar, við vottum ykkur okkar dýpstu
samúð og biðjum Guð að styrkja
ykkur á þessari erfiðu stund.
Þótt kveðji vinur einn og einn
og aðrir týnist mér.
Ég á þann vin, sem ekki bregst
ogaldreiburtufer.
Þó styttist dagur daprist ljós
og dimmi meir og meir.
Ég þekki ljós sem logar skært
það ljós er aldrei deyr.
Sigurgeir og María,
Lárus og Steina,
Pétur og Guðrún.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar \
nauöungaruppboö
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 102., 107. og 108. tbl. Lögblrtlngablaösins 1985 á
Þorláki Helga ÁR-11, þinglýstri eign Einarshafnar hf. en talin eign
Sædórs hf„ Siglufiröi, fer fram eftir kröfu Ævars Guömundssonar hdl.,
Landsbanka íslands, Jakobs J. Havsteen hdl., Vilhjálms H. Vilhjálms-
sonar hdl„ Skúla Pálmasonar hrl„ Jóns Ingólfssonar hdl. og Árna
Pálssonar hdl„ á eigninni sjálfri, föstudaginn 15. nóvember nk. kl.
15.00.
Bæjarfógetinn á Siglufiröi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 69., 70. og 73. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984 á Svein-
borgu SI-70, þinglýstri eign ísstöövarinnar hf„ Garöi en talír eign
Stapavíkur hf„ Siglufiröi, fer fram eftir kröfu Útvegsbanka íslands,
Bsejarsjóös Keflavíkur, Fiskveiöisjóös islands, Vilhjálms H. Vilhjálms-
sonar, hdl„ og Lífeyrissjóðs sjómanna á eigninni sjálfri, föstudaginn
15. nóvembernk.kl. 15.00.
Bæjarfógetinn á Sigiufirði.
Egilsstaðir
Hreppsmálanefnd
Sjálfstæöisflokkslns
á Egilsstööum held-
ur fund í Valaskjálf
laugardaginn 16.
nóvemberkl. 13.00.
Dagskrá:
1. Dagskrá hrepps-
nefndarfundar 19.
nóvember.
2. Sveitarstjórnar-
kosningar 1986.
3. Önnurmál.
Rangar
Helgi
Ragnar Steinarsson og Helgi Halldórsson hreppsnefndarmenn sitja
fyrirsvörum.
Allt stuöningsfólk flokksins ve.'komið.
Stjórnin.
Akranes
Sjálfstæöisfélag Akraness heldur aöalfund 14. nóvember kl. 20.30 i
Sjálfstæöishúsinu, Heiöargerði 20.
Fundarefni:
1. Venjulega aöalfundarstörf.
2. Önnurmál.
Stjórnin.
Suðurland
Aöalfundur kjördæmisráös Sjálfstæöis-
flokksins í suöurlandskjördæmi veröur hald-
Inn í hótel Ljósbrá, Hverageröl, laugardag-
Inn 16. nóvember nk. kl. 14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sveitastjórnamál. Kynning á lagafrumvarpi
og breytingatillögum.
Framsögumaöur: Jón Gautl Jónsson,
bæjarstjóri.
Umræöur:
Undirbúningur sveitastjórnakosninga 1986.
Framsögumenn: Kjartan Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæöisflokksins, Sigurð-
ur Einarsson útgeröarmaöur Vestmannaeyjum, Haukur Gíslason, Ijós-
myndariSelfossi.
Kaff ihlé. Fundurinn opnaöur fyrlr gesti.
Landsmálin:
Ávarp þingmanna: Þorsteinn Pálsson formaöur Sjálfstæöisflokksins,
Árni Johnsen, Eggert Haukdal.
Almennar umræöur: Afgreiösla stjórnmálaályktunar.
Umræöur. Önnur mál.
Sameiginlegt boröhald.
Miöaö er viö aö makar kjördæmisráösfulltrúa komi meö þeim og verð-
ur skipulögö skoöunarferö um Hverageröi meðan fyrri hluti fundarins
stendur yf ir. Stjórn kjördæmisráös.
Akranes - Aðalfundur
Aöalfundur fulltrúaráös sjálfstæöisfélaganna á Akranesi veröur hald-
inn mánudaginn 18. nóvember 1985 kl. 20.00 stundvíslega i sjálfstæö-
Ishúsinu viö Heiöargeröi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Önnurmál.
Almennur fundur kl. 21.00
Aö loknum aöalfundi veröur opinn stjórnmálafundur. Frummælandi
Birgir Isleifur Gunnarsson formaöur stóriöjunefndar. Einnig mæta á
fundinn þingmenn Sjálfstæöisflokksins í vesturlandskjördæmi þeir
Valdimar Indriöason og Sturla Böövarsson.
Fulltrúaráö sjálfstæöisfélaganna á Akranesi.
Njarðvíkingar
— viötalstímar
Fulltrúar sjálfstæö-
ismanna í bæjar-
stjórn verða meö
viötalstíma í Sjálf-
stæöishúsinu Njarö-
vík, laugardaginn
16. nóvember frá kl.
14.00-16.00. Til viö-
tals veröa bæjarfull-
trúarnir Ingólfur
Báröarson og
Sveinn R. Eiríksson.
Bæjarbúar eru
hvattir til aö líta viö
og ræöa viö bæjarfulltrúana um bæjarmál.
Sjálfstæöisfélögin i Njarövik.
Opnunarhátíð
Föstudaginn 15. nóvember kl. 21.30 veröur
„Neöri deild" Valhallar opnuö eftir miklar
endurbætur á salarkynnum („Neöri deildin*
hét áöur „Kjallari Valhallar"). Á þessari
opnunarhátiö veröa sérstakir gestir þeir
Heimdellingar sem nú prýöa framboöslista
í prófkjöri Sjálfstæöisflokksins fyrir borgar-
stjórnarkosningar. Það eru þau: Anna K.
Jónsdóttir, Arni Sigfússon, Baldvin Einars-
son, Bjarni Á. Friöriksson, Jóhanna E.
Sveinsdóttir, Katrín Gunnarsdóttir, Kristín
Sigtryggsdóttir, Sigurbjörn Þorkelsson,
Sólveig Pétursdóttir og Vilhjálmur G. Vil-
hjálmsson. Skemmtinefnd „Neörl deildar"
fékk hátíölegt loforö frambjóðendanna að ræöur veröl ekki fluttar
heldur veröi rabbað yfir „léttum veitingum og Ijúfri tónlist". Sverrir
Stormsker listamaöur mun einnig heiöra samkomuna og flytja
nokkur frumsamin verk.
Anna
Jóhanna Katrln Krlstfn
Sigurbjörn Sólveig Vilhjálmur