Morgunblaðið - 14.11.1985, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1985
Minning:
Arni Kristjánsson
framkvœmdastjóri
Fæddur 15. janúar 1923
Dáinn 10. nóvember 1985
Það var á fögru sumri á Norður-
landi fyrir nær 40 árum, að heima
hjá foreldrum mínum var beðið
með eftirvæntingu gestkomu. Til-
hlökkun allra var mikil því von var
á Iðunni frænku okkar í heimsókn
með manninn sinn til að sýna og
kynna hann fyrir frændfólki og
vinum. Hvernig skyldi nú þessi
ungi maður, sem frænka okkar
hafði valið sér, líta út? Enn í dag
minnist ég þess er hann birtist og
gekk brosandi fjaðurmögnuðum
skrefum upp tröppurnar heima,
hve mér þótti mikil góðmennska
og hlýja einkenna svip hans og
framkomu alla. Það var og reynsla
mín af síðari kynnum, að þetta
fyrsta svipmót var einkenni skap-
gerðar hans alla ævi. Allir fögnuðu
heima þessum unga myndarlega
manni, og þá ekki síst faðir minn,
sem gladdist nú af hjarta yfír
hamingju systurdóttur sinnar,
sem ung að árum hafði misst móð-
ur sína og átt erfið æskuár, en
kynnti nú með gleðibrosi manninn
' sinn, ÁrnaKristjánssonaðnafni.
En „skjótt hefur sól brugðið
surnri". Árni Kristjánsson andað-
ist i Landspítalanum í Reykjavík
að kvöldi hins 10. þ.m. Hann hafði
átt við erfið veikindi að stríða
nokkur undanfarin ár, en veiktist
alvarlega fyrir röskum tveimur
vikum.
Árni fæddist í Reykjavík hinn
15. janúar 1923. Foreldrar hans
voru hjónin Kristján Franklín,
járnsmíðameistari í Reykjavík, d.
> 25.12.1958, Gíslason Kristjánsson-
ar bónda á Barmi i Gufudalssveit,
og kona hans Ingibjörg Árnadóttir
frá Miðhúsum og Hlíð í Reyk-
hólasveit. Lifir hún son sinn og
hefur nú misst tvö af fjórum börn-
um sínum. Árni ólst upp í vestur-
bænum í Reykjavik, í tápmiklum
systkinahópi. Bræðurnir voru
tveir auk Árna, Gísli og Valdimar,
sem látinn er fyrir fáum árum, og
einkasystirin Þuríður. Árni
kvæntist eftirlifandi konu sinni,
Iðunni Heiðberg Önundardóttur,
ættaðri úr Þingeyjarsýslu hinn 4.
nóvember 1945. Þau eignuðust 3
börn, Pál viðskiptafræðing, sem
starfar við fyrirtæki fjölskyldunn-
ar, Vélsmiðju Kristjáns Gíslason-
ar hf., Ingibjörgu, er stundaði nám
í þýzku við háskólann í Melbourne,
og er nú búsett í Ástralíu, gift
Neil Young, málflutningsmanni í
Melbourne, og Helgu er stundaði
nám í frönsku og ensku við Há-
skóla íslands, gift frönskum
manni, Roland Assier, sem stund-
að hefur íslenskunám hér við há-
skólann. Barnabörnin eru 3.
Árni Kristjánsson var ekki lang-
skólagenginn. Hann lauk því námi
er tíðkaðist meðal unglinga á þeim
tíma, en hóf síðan ungur að árum
störf við fyrirtæki föður síns, Vél-
smiðju Kristjáns Gíslasonar við
Nýlendugötu. Faðir hans var dugn-
aðarforkur og fær í sínu fagi. Báðir
bræður Árna lærðu í smiðju föður
síns, og það féll því í hlut Árna
að sjá um skrifstofu og fjármál
fyrirtækisins. Þegar svo Kristján
heitinn Gíslason féll frá árið 1958,
gerðist Árni framkvæmdastjóri
fyrirtækisins og gegndi því starfi
til dánardægurs. Hygg ég að á
þessum tíma hafi fá fyrirtæki í
járniðnaði verið rekin betur, eða
staðið betur við fjárhagslegar
skuldbindingar sínar en Vélsmiðja
Kristjáns Gíslasonar, enda Árni
sívakandi að gæta hags fyrirtækis-
ins, og ekki í rónni nema hægt
væri að standa við alla gerða
samninga og skuldbindingar.
Vegna góðrar þekkingar Árna á
málefnum jarniðnaðarins var
mjög leitað til hans um þátttöku
í stjórn Meistarafélags járniðnað-
armanna og sat hann þar í stjórn
i fjölda ára og gegndi þar meðal
annars formennsku um árabil.
Einnig átti hann oft sæti í samn-
inganefndum um kjaramál og þótti
laginn að semja og setja niður
deilur. Hann var og eftirsóttur til
annarra félagsstarfa og gegndi
meðal annars trúnaðarstörfum
innan Sjálfstæðisflokksins, þó
hann sæktist ekki eftir frama á
sviði stjórnmála.
Á unga aldri lagði Árni stund á
fimleika í KR og var um 10 ára
skeið í úrvalsflokki KR-inga, sem
lengst nutu þjálfunar og leiðsagn-
ar Vignis Ándréssonar, íþrótta-
kennara. Bar hann iengi merki
þeirrar þjálfunar, var röskur og
léttur í öllum hreyfingum og vel á
sig kominn.
Sem unglingur átti undirritaður
því láni að fagna, að dvelja um
skeið á hinu ágæta og hlýlega
heimili Árna og Iðunnar, er hann
þurfti á mikilli aðhlynningu og
umönnum að halda. Þar kynntist
ég náið hvílíkur öðlingur Árni
Kristjánsson var. Hann var þá
ætíð boðinn og búinn til að rétta
mér og öðrum hjálparhönd, og
síðar fylgdist ég í áranna rás með
umhyggju hans ogeinstakri hjálp-
semi við foreldra sína, systkini,
systkinabörn og frændur, og ekki
síður fósturforeldra Iðunnar,
frændgarð hennar og vini. Allt
þetta fólk hefur nú mikið misst
og er skarð fyrir skildi. Ótal öðrum
rétti hann hjálparhönd, þar sem
hann kom því við og það var gaman
að sjá hann glaðan og reifan í hópi
þessa fólks við brúðkaup Helgu
dóttur sinnar á sl. sumri. Það var
mikill hátíðisdagur í lífi fjölskyld-
unnar, sem margir þátttakendur
munu minnast.
Svo hagaði til, að Árni og Iðunn
ferðuðust á síðari árum lengri
vegalengdir, en almennt gerist, er
þau heimsóttu dóttur sína og fjöl-
skyldu. Þessar tvær ferðir voru
Árna mikil gleði og lífsfylling. Ég
veit að nú minnast litlu dóttursyn-
irnir, sem fjarri eru í Ástralíu, afa
síns á íslandi með söknuði og
sonarsonurinn í Reykjavik saknar
afa síns, sem hann átti að svo
einlægum oggóðum vini.
Að leiðarlokum þakka ég og
skyldulið mitt Árna allar sam-
verustundirnar og hjálpsemi, og
votta öllum hans nánustu, eigin-
konu, börnum, aldraðri móður og
öðrum aðstandendum einlæga
samúð.
Blessuð sé minning hans.
Ásgeir Jóhannesson
Hinn 10. nóvember andaðist í
Landspítalanum Árni Kristjáns-
son, framkvæmdastjóri, eftir
stutta legu á 63. aldursári.
Við fráfall þessa góðvinar míns,
var eins og strengur brysti í brjósti
mínu, þannig var vinátta okkar
traust i öll þau fjörutíu ár, sem
við höfðum þekkst. Slíkan öðlings-
mann sem Árni var er vart hægt
að finna. Hann var ávallt glaður
og um leið traustur og athugull,
og ráð hans brugðust ekki. Davíð
Stefánsson segir í einu af kvæðum
sínum:
„Hverju sem ár
ogókomnirdagar
aðmér víkja,
erekkertbetra
en eiga vini,
sem aldrei svíkja.“
Þannig var hann alla tíð.
Árni fæddist í Reykjavík 15.
janúar 1923, sonur þeirra heiðurs-
hjóna Kristjáns Gíslasonar, vél-
smíðameistara, sem rak um langt
árabil vélsmiðju með sama nafni,
og er sú vélsmiðja starfandi enn,
en Kristján andaðist árið 1958, og
konu hans, Ingibjargar Árnadótt-
ur, sem lifir enn i hárri elli en við
góða heilsu. Árni var elstur af fjór-
um systkinum og eru nú tvö eftir
á lífi, Gísli og Þuríður, en Valdi-
mar lézt árið 1984. Ég mun ekki
rekja ættir Árna nánar, það verður
gert af öðrum.
Árni lauk prófi úr gagnfræða-
skóla og vann í nokkur ár hjá Vél-
smiðjunni Keili, sem var að hluta
rekin af föður hans, Kristjáni, en
hóf síðan störf hjá Vélsmiðju
Kristjáns Gíslasonar og vann þar
þar til faðir hans dó, en þá var
stofnað hlutafélag um rekstur vél-
smiðjunnar og veitti hann því
fyrirtæki forstöðu til dauðadags.
Áhugamál Árna var fyrst og
fremst vinnan, og hann var ávallt
vakinn og sofinn í hverju verkefni,
sem hann tók að sér. Hann stund-
aði fimleika áður fyrr með KR og
var í 10 ár í sýningarflokki undir
stjórn Vignis Andréssonar og fór
m.a. í sýningarferðir til Noregs og
Skotlands. Honum voru falin ýmis
störf, sem tengdust vinnu hans.
Hann var í stjórn Meistarafélags
járniðnaðarmanna i mörg ár og í
8 ár formaður þess. Hann var
einnig í stjórn Vinnueftirlits ríkis-
ins. Hann hafði alla tíð töluverðan
áhuga á stjórnmálum, var tryggur
hugsjón Sjálfstæðisflokksins, og
var um tíma í fjármálaráði þess
flokks.
„Gjör rétt, þol ei órétt.“ — Það
var hans lífsstefna.
Árni steig sitt mikla gæfuspor,
er hann kvæntist Iðunni Heiðberg
Önundardóttur 4. nóvember 1945.
Iðunn var frá Akureyri og ólst upp
hjá fósturforeldrum, Oddi Jóns-
syni, skósmið, sem enn er á lífi,
og Helgu Sigfúsdóttur, sem nú er
látin. Þau voru samvalin í öllu og
hefur hjónaband þeirra og heimil-
islíf verið til fyrirmyndar og lýsir
vel mannkostum þeirra beggja.
Þau eignuðust þrjú börn, Pál, sem
fæddist 1949, Ingibjörgu, fædda
1952, sem gift er Neil Young, mála-
flutningsmanni, og búa þau í Ástr-
alíu, og Helgu, fædda 1961, sem
er gift Roland Assier, íslenzku-
fræðingi, og búa þau hér á landi.
Árni unni börnum sínum mikið og
gerði allt til að hagur þeirra væri
sem beztur og hafði hann mikið
barnalán. Hann naut sín bezt í
faðmi fjölskyldunnar og sagði
hann mér frá því, að hann hefði
notið sl. sumars mjög vel, þar sem
öll fjölskyldan var samankomin
hér á landi. Hann hefði haft yndi
af því að gantast við barnabörnin,
sem vöktu hann fyrir allar aldir.
Hann naut þess að sýna hinum
erlendu tengdasonum landið og
fara i litla sumarhúsið sitt við
Þingvallavatn og veiða þar silung
í net og njóta náttúrufegurðarinn-
aríGrafningnum.
Þegar hann varð sextugur, þá
tóku þau sér ferð á hendur til þess
að heimsækja dóttur sína og
tengdason í Ástralíu, en þangað
fóru þau tvisvar sinnum. Það var
mikil hamingjuferð og þaðan fékk
ég bréf frá honum, þar sem hann
reyndi að lýsa þeirri stórkostlegu
og sérstæðu heimsálfu. Eftir heim-
komuna áttum við margar stundir
saman, þar sem hann lýsti ennþá
betur því sem hann hafði upplifað
og séð í þessari ferð.
Tengsl þeirra hjóna við börn sín
voru sérstök og oft sagði hann mér
frá því, að dóttir þeirra hringdi
frá Ástralíu bara til að heyra
hvernig þau hefðu það, og þetta
gerðistmjögoft.
Árna var mjög umhugað um að
+
Elskulegur eiginmaður minn, faöir okkar og tengdafaöir,
ÁRNI KRISTJÁNSSON,
framkvæmdastjóri,
Rauöalæk 12,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 14.
nóvemberkl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Hjartavernd eöa aðrar
líknarstofnanir.
löunn Heiðberg, Páll Árnason,
Helga Árnadóttir, Róland Assier,
Ingibjörg Árnadóttir, Neil Young.
Eiginmaöur minn, +
TORFI GUDBRANDSSON,
Suöurgötu 12,
Keflavík,
verður jarösunginn frá kl. 14.00. Keflavíkurkirkju laugardaginn 16. nóv.
Fyrir hönd aöstandenda, Elín Sigurjónsdóttir.
t
Þakka innilega, auösýnda samúö og vinarhug við andlát og útför
fööur míns,
AAGE NIELSEN—EDWIN
myndhöggvara.
Baldur Edwin.
Lokað
Vegna útfarar ÁRNA KRISTJÁNSSONAR framkvæmda-
stjóra veröur skrifstofa félagsins lokuð eftir hádegi
fimmtudaginn 14. nóvember 1985.
□
Meistarafólag jórniðnaðarmanna
— samtök málmiönaöarfyrirtækja
+
Þökkum auösýnda samúö og vinarhug vegna andláts og útfarar
móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
SIGRÍOAR HELGU EINARSDÓTTUR,
frá Steinmóöarbæ.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim sem meö blómum, skeytum
og nærveru sinni auösýndu okkur samúö og hlýju viö andlát og
jaröarför
MAGNÚSAR SIGURBJÖRNSSONAR,
bónda og fyrrverandi oddvita,
Glerárskógum.
Sérstakar þakkir færum viö sveitungum og starfsfólki á Sjúkrahúsi
Akraness.
Eðvaldína M. Kristjánsdóttir,
Kristrún M. Waage, Viðar G. Waage,
Björk Magnúsdóttir, Steinar Karlsson,
Bjarnheiður Magnúsdóttir, Steingrímur Eiríksson
og barnabörn.
+
Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
HALLGRÍMS S. JÓNSSONAR.
Valgeröur Bilddal,
Lovísa Hallgrímsdóttir, Ámundi Játvarösson,
Guölaug Hallgrímsdóttir, Skúli ísleifsson,
Jón Gunnar Hallgrímsson, Hanna Stefánsdóttir,
Ævar Hallgrímsson, Rósa Andrósdóttir,
Brynjar Hallgrímsson, Björg Guömundsdóttír,
Berglind Hallgrímsdóttir, Einar V. Einarsson
og barnabörn.
Lokað
Lokað vegna jarðarfarar frú ÖNNU STEFÁNSDÓTTUR
föstudaginn 15. nóvember 1985.
íslensk-erlenda verzlunarfélagið,
Tjarnargötu 18.