Morgunblaðið - 14.11.1985, Side 60
Fróóleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
JL
TIL DAGUEGRA NOTA
FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR.
Útflutningur gámafísks:
Matsvottorðin
marklaus plögg
-segir Kristján Ragnarsson framkvæmdastjóri LÍÚ
RÍKISMAT sjávarafuröa gefur nú út
matsvottorð fyrír hvern einasta fiski-
gám, sem fiuttur er utan. Kostar hvert
vottorð hundraö krónur. Vottorð þessi
koma ekki að gagni við sölu fisksins
erlendis og fyrir kemur að þau eru
gefin út án þess að skoðað sé í gám-
t ana. Kristján Ragnarsson, fram-
‘ kvsmdastjóri LÍÚ, segir vottorðin
gagnslaus plögg og umboðsmenn er-
lendis segjast ekki þurfa á þeim að
halda.
„Mér finnst með þetta eins og svo
margt fleira hjá þessari stofnun,
að hér er verið að vinna gjörsam-
lega gangslausa vinnu,“ sagði
Kristján Ragnarsson. „Þeir vita í
fyrsta lagi ekkert um ástand fisks-
ins, sem inn í gámana fer eða hvaða
fisktegundir það eru. Síðan er þetta
marklaust plagg, þegar það kemur
út, samkvæmt upplýsingum um-
boðsmanna okkar erlendis og hefur
hvorki gildi fyrir einn né neinn.
Þess vegna á að hætta svona lög-
uðu.“
„Það á að meta gámafisk til út-
flutnings og til þess að flytja hann
út þarf matsvottorð frá Ríkismati
sjávarafurða, sem stofnunin gefur
út,“ sagði Halldór Árnason, fisk-
matsstjóri, í samtali við Morgun-
blaðið. „Meginreglan á að vera sú,
að skoðað sé i hvern gám þó einhver
misbrestur kunni að vera á þvi. í
þessu starfi eins og svo mörgu hjá
stofnuninni beitum við gjarnan
skyndiskoðunum, þar sem afköst-
um okkar eru takmörk sett. Reynist
allt í lagi við hverja skoðun ætti
ekki að þurfa að skoða hvern ein-
asta gám. Með þessum vottorðum
erum við fyrst og fremst að votta
gæði og ástand fisksins við útflutn-
ing. Það er ómögulegt að segja til
um hvernig ástandið verður þegar
fiskurinn er kominn á markað eftir
kannski 5 til 6 daga. Það getur
aldrei verið betra en þegar fiskur-
inn fór i gáminn, en hins vegar
miklu verra, það fer allt eftir að-
stæðum við flutninginn."
Pétur Björnsson, umboðsmaður í
Hull í Bretlandi, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að umboðsmenn
þyrftu ekkert á þessum pappirum
að halda. Fiskurinn seldist á mark-
aðnum eftir gæðum, framboði og
eftirspurn. Sér virtist tilgangurinn
með þessu vera sá, að koma fiskin-
um út úr landinu og hugsanlega
væru þeir eitthvað notaðir við toll-
afgreiðslu.
Ein af hellamyndum Kjarvals.
Morgunblaðid/ Öl.K.M.
Þrjátíu og sex hellamynd-
ir eftir Kjarval fundnar
ÞRJÁTÍU og sex teikningar sem
Kjarval gerði af manngerðum
hellum á Suðurlandi og ristum í
þeim komu í leitirnar fyrír nokkr-
um vikum. Það gerðist eftir mikla
leit Árna Hjartarsonar jarðfræð-
ings og Hallgerðar Gísladóttur
sagnfræðings af teikningunum í
kjöjfar rannsókna sem þau hafa
gert á hellunum.
Talið er að Kjarval hafi gert
þessar teikningar í vísinda-
skyni fyrir Ginar Benediktsson
skáld i kringum 1920. Einar
hafði mikinn áhuga á þessum
hellum og skrifaði þó nokkuð
um þá. Hann taldi að þeir elstu
væru frá tímum Papa eða jafn-
vel fyrr og byggði hann þá
skoðun sína m.a. áýmsum forn-
um táknum og ristum sem var
að finna í hellunum.
Myndirnar eru nú í vörslu
Þjóðminjasafnsins.
Sjá viðtal við Hallgerði
Gísladóttur sagnfræðing á
bls.4.
Amfetamínkaupin:
Fjármögnuð
með okurláni
35 árekstrar í Reykjavík í gær
Morgunbladið/ Júlíus
Þrjátíu og fimm árekstrar urdu í umferóinni í Reykjavík í gær. Ekki urðu nein slys á fólki í þessum óhöppum.
Síðari hluta dags snjóaði í borginni og varð mjög hált á götum. Áreksturinn á meðfylgjandi mynd varð við
Einarsnes í Skerjafirði.
Fíkniefnasmyglararnir, sem
teknir voru vestur á Grandagarði
með amfetamín, fjármögnuðu
hluta fíkniefnakaupanna með því
að taka okurlán. Þetta hefur
ÁTVR lokað í dag:
Áfengi og tóbak
hækka um tæp 7 %
ÚTSÖLUR Áfengis- og tóbaks-
verzlunar ríkisins veróa lokaðar
í dag vegna verðbreytinga. Sam-
kvæmt beimildum Morgunblaðs-
ins hækka áfengi og tóbak að
meðaltali um 6,9% en þó mun
verðhækkun einstakra tegunda
vera eitthvað minni, og verð-
hækkun annarra eitthvað meiri.
Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er þessi verð-
hækkun ákveðin í samræmi við
þær verðbreytingar sem orðiö
hafa að undanförnu. Er því að
sögn ekki um nýja tekjuöflun-
arleið að ræða fyrir ríkissjóð.
Fógeti f Vestmannaeyjum
og aðalbókari ákærðir
OPINBER ákæra hefur verið birt
bæjarfógetanum { Vestmannaeyjum
og fyrrverandi aðalbókara embættis
hans. Þeir eru ákærðir fyrir brot í
opinberu starfi og þess krafist af
ákæruvaldinu að þeir verði dæmdir
til refsingar og til greiðslu aHs sakar-
kostnaðar.
Þeim er gefið að sök að hafa með
gerðum sínum á árunum 1978—
1982 misnotað embættis- og starfs-
aðstöðu sína við bæjarfógetaemb-
ættið, ýmist sjálfum sér eða öðrum
til ávinnings og fyrirgreiðslu, og
þá jafnframt hallað rétti hins opin-
bera og rýrt að sama skapi hlut
þess f sjóðum embættisins.
I ákærunni er þeim gefið að sðk
að hafa farið f sjóði embættisins
og veitt sjálfum sér lán, sem hafi
verið rangfærð á kvittunum i bók-
haldi fógetaembættisins og svo
veitt sjálfum sér og öðrum lán gegn
innistæöulausum tékkum, sem
geymdir voru hjá embættinu mán-
uðum saman. ( þriðja lagi eru þeir
sakaðir um aö hafa leyft mðnnum
og fyrirtækjum f Eyjum að taka
ýmsan varning úr tolli án þess að
greiða tilskilin aðflutningsgjöld
fyrr en síðar.
ítarleg lögreglurannsókn hófst i
þessu máli eftir að ýmislegt óeðli-
legt kom í Ijós þegar starfsmenn
ríkisendurskoðunar höfðu farið
ofan í saumana á sjóðum embættis-
ins í maí 1983. Að kröfu ríkissak-
sóknara fór fram framhaldsrann-
sókn á siðasta ári og var ákæran
gefin út í fyrra mánuði en ekki birt
hinum ákærðu fyrr en í gær.
— Sji nánar frásögn á bls. 4.
Sameining BÚR og ísbjarnarins:
Nýja félagið
heitir Grandi hf.
STOFNFUNDUR hins nýja útgerðar-
félags, sem til var stofnað við samein-
ingu Bæjarútgerðar Reykjavíkur og
ísbjarnarins hf., var haldinn f gærdag.
Heitir félagiö Grandi hf. og var Ragn-
ar Júlíusson kjörinn stjórnarformaö-
ur. Framkvæmdastjóri var ráóinn
Brynjólfur Bjarnason rekstrarhag-
fræöingur.
Jón Ingvarsson var kjörinn vara-
formaður fyrirtækisins og aðrir í
stjórn eru Þröstur ólafsson hag-
fræðingur, Þórarinn Þórarinnsson
lögfræðingur og Vilhjámur Ingv-
arsson framkvæmdastjóri. Endur-
skoðendur eru ólafur Nilsson,
Endurskoðun hf. Kjörnir endur-
skoðendur eru Jón G. Tómasson og
Arnór Eggertsson.
komiö fram í yfirheyrslum yfir
mönnunum. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins keyptu þeir
amfetamín erlendis og komu fyrir
í togaranum Breka í byrjun októ-
ber síðastliðinn. Það gerðist hins
vegar, að Breka var siglt til
Danmerkur til viðgerðar og því
tafðist að amfetamínið bærist
hingað til lands. Því var gerð
önnur ferð til amfetamínkaupa
og í það skiptið var fíkniefnunum
komið fyrir í togaranum Karls-
efni.
Þrír smyglaranna voru hand-
teknir að kvöldi fimmtudagsins
31. október skömmu eftir að
hafa farið um borð í togarann
Karlsefni til þess að sækja 220
grömm af amfetamíni. Sunnu-
daginn 3. nóvember fundust
síðan 300 grömm af amfetamíni
um borð í togaranum Breka
skömmu eftir komuna til Vest-
mannaeyja. í síðustu viku var
svo fjórði maðurinn handtekinn
grunaður um aðild að málinu.
Rannsókn fíkniefnadeildar lög-
reglunnar í Reykjavík beinist
meðal annars að því að kanna,
hver eða hverjir veittu lán til
kaupanna. Talið er að mennirn-
ir hafi gefið nokkur hundruð
þúsund krónur fyrir efnið, en
andvirði fíkniefnanna á mark-
aði hér er talið nema á milli 8
og 9 milljónum króna.