Morgunblaðið - 23.11.1985, Page 1

Morgunblaðið - 23.11.1985, Page 1
56 SÍÐUR OG LESBOK STOFNAÐ1913 266. tbl. 72. áre. LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER1985 Prentsmiðj^Vlorgunblaðsins AP/Simamynd Mikhail Gorbachev í hópi ýmissa helztu ráöamanna í Sovétríkjunum, sem tóku á móti leiðtoga sínum við heimkomuna frá leiðtogafundinum í Genf. Gorbachev er með barðahatt og honum til hægri handar er forseti Sovétríkjanna, Andrei Gromyko. Leiðtogafundurinn í Genf: Gneistandi orðaskipti um mannréttindamál Washington, 22. nóvember. AP. Konald Reagan og Mikhail Gorbachev áttu „gneistandi“ orða- skipti um mannréttindamál á fundi sínum í Genf, að sögn George Shultz utanríkisráðherra. Hann útskýrði ekki við hvað hann ætti er eftir því var gengið. Shultz sagði Gorbachev oft hafa gripið fram í fyrir Reagan. Reagan sagði í dag að mánuðir eða jafnvel ár myndu líða þar til árangur leiðtogafundarins kæmi í ljós. Menn, sem málum eru kunnugir, segja að í janúar muni reyna á samningsvilja stórveld- anna, er viðræður um takmörkun vígbúnaðar hefjast að nýju í Genf. Leiðtogarnir urðu sammála um að hraða bæri viðræðunum. Söngvakeppni sjónvarpsstöðva: ísland framarlega í þættinum Bergen, 22. nóvember. AP. ÍSLENZKI fulltrúinn í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöóva á næsta ári fær aó sprevta sig framarlega í þættinum, því Island dróst í sjötta sæti er dregið var um töfluröó þátttak- enda. Söngvakeppnin verður haldin í Bergen í Noregi 3. maí næstkom- andi. Fulltrúi Lúxemborgar hefur keppnina, í öðru sæti er fulltrúi Júgóslavíu, þá fulltrúar Frakk- lands, Noregs og Bretlands, en síð- an kemur röðin að íslandi. Fjögur síðustu keppnislöndin eru Svíþjóð, Danmörk, Finnland og Portúgal, en alls tekur 21 þjóð þátt í keppninni á næsta ári, ísland í fyrsta sinn. Keppninni í Bergen verður sjón- varpað beint og er áætlað að um 600 milljónir manna muni fylgjast með útsendingunni. Norsku stúlk- urnar Bobbysocks sigruðu í ár með lagi sínu „La det swinge". Var það fyrsti sigur Norðmanna í sögu keppninnar, sem farið hefur fram árlega frá 1960. Þær voru númer 13 í töfluröð. Sérfræðingar í málefnum stór- veldanna segja að „ný byrjun" í sambúð þeirra sé vonlaus án nýs samkomulags um takmörkun vígbúnaðar. Rússar vilja tengja geimvarnaráætlun Bandaríkja- manna slíku samkomulagi og kann sú afstaða m.a. að torvelda samninga. Auk þess sem á fundinum tókst samkomulag um að efla menning- arleg samskipti þjóðanna náðist í dag samkomulag um loftferðir milli stórveldanna. Það heimilar Pan American flugfélaginu ann- ars vegar og Aeoroflot hinsvegar að fljúga fjórum sinnum í viku milli Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna. Að sögn embættismanna í ísra- el skiptust Reagan og Gorbachev á skoðunum um friðarumleitanir í Miðausturlöndum og fyrirkomu- lag þeirra. Hins vegar bar hugs- anleg endurnýjun stjórnmála- sambands ísraela og Sovétmanna ekki á góma, en taki þjóðirnar aftur upp stjórnmálasamband kæmi upp ný staða í þessum heimshluta. Robert McFarlane, ráðgjafi Reagans í öryggismálum, sagði leiðtogafundinn hafa heppnast betur en bjartsýnismenn höfðu þorað að vona. Leiðtogarnir hefðu öðlast skilning á markmiðum hvors annars, samningsvilja og metnaði. Almenn ánægja virðist ríkja með fundinn og eru margir trúaðir á, að sambúð stórveld- anna fari batnandi. Þjóðarleið- togar víða um heim segjast binda miklar vonir við framhaldið og svo er einnig um allan almenning. Reagan var fagnað vel á banda- ríska þinginu í gærkvöldi þegar hann greindi þingmönnum frá fundum þeirra Gorbachevs. Sjá nánar um leiðtogafundinn á bls. 24. AP/Símamynd Ronald Reagan Bandaríkjaforseti skýrir Bandaríkjaþingi frá fundi þeirra Gorbachevs. Á bak vió hann fagna George Bush, varaforseti, og Thomas P. O'Neill, forseti fulltrúadeildarinnar, ræóu forsetans. Hjarta- áföll tíðust árdegis Hættan þrisvar sinnum meiri kl. 9 en kl. 23 Boston, Massachusetts, Bandankjunum, 22. nóvember. AP. FÓLKI er þrisvar sinnum hætt- ara viö aó fá hjartaáfall kl. níu aö morgni en klukkan 23 að kveldi. Astæöan er ef til vill sú, aó streitan, sem fylgir tilhugsun- inni um aö raska svefnró ann- arra heimilismanna, hrindir af staö efnahvörfum, sem auka líkurnar á hjartaáfalli, að því er fram kemur í rannsóknar- skýrslu bandarískra vísinda- manna. Niðurstöðurnar gætu leitt til aukins skilnings á því, hvers vegna blóðtappi losnar í krans- æðunum, auk sem þær gætu gefið vísbendingu um, hvernig unnt er að koma í veg fyrir, að þetta gerist, sagði dr. James E. Muller, sem stjórnað hefur rannsókninni. — En margt á enn eftir að athuga í þessu sambandi. I rannsókninni, sem gerð var við Boston Brigham-kvensjúk- dómaspitalann og læknaskól- ann í Harvard, kom fram, að hjartaáföll eru algengari frá klukkan sex á morgnana til hádegis en nokkurn annan tíma sólarhringsins. Mesta hættan er klukkan níu, en minnkar eftir því sem líður á daginn og nær lágmarki klukk- an ellefu að kveldi. Vísindamennirnir segja, að hættan sé mest á fótaferðar- ■ tíma, sama hvenær dags hann sé, og þess vegna sé nætur- vaktafólki hættast á kvöldin. Rannsóknin var byggð á athugunum á tæplega 3.000 sjúklingum, sem fengið höfðu hartaáfall, og birtust niður- stöðurnar í gær, fimmtudag, í læknaritinu New England Journal of Medicine. Nígerfa: Efnahagslegt neyðar- ástand í 15 mánuði Lagos, Nígeríu, 22. nóvember. AP. STTJORNVÖLD í Nígeríu lýstu í gær formlega yfir 15 mánaða efnahags- legu neyðarástandi í landinu. Meö því eru herstjórninni veitt víótæk völd til aö koma skikkan á efnahags- málin. Landið rambar á barmi gjald- þrots. Lánardrottnar leita nú fast eftir greiðslum og seljendur inn- fluttrar vöru eru tregir til frekari viðskipta, af því að Nígeríumenn skulda þegar yfir sex milljarða dollara. Hin formlega yfirlýsing stjórn- valda í gær kemur nærri tveimur mánuðum eftir að ráðstafanirnar, sem tilskipunin mælir fyrir um, tóku fyrst gildi. Neyðarástandinu lýkur í desember 1986. Tilskipunin veitir Ibrahim Bababgida hershöfðingja, sem hrifsaði til sín völdin i landinu í byltingu 27. ágúst síðastliðinn, umboð til að stýra rekstri jafnt opinberra fyrirtækja sem einka- fyrirtækja í því skyni að örva efnahagsstarfsemina. Einnig er hershöfðingjanum heimilt að gripa til ráðstafana til að minnka gjaldeyriseyðslu, draga úr verðbólgu og atvinnuleysi og örva og auka eftirspurn eftir inn- lendri vöru. Þá heimilar tilskipun- in hækkun tolla og vörugjalds.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.