Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 7
 MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1985 7 -7 TIL: Sjálfstæðísmanna FRA: Stuðningsmönnum MAGNÚSAR L. SVEINSSONAR, forseta borgarstjórnar VARÐAR: Prófkjör vegna borgarstjórnar- kosnínganna í Reykjavík f t>að er míkílvægt að forseti borgar- stjórnar komí sterkur út úr próf- kjörínu. f Kjósum því Magnús L. Sveínsson, forseta borgarstjórnar, í 2. sætíð. STUÐNINGSMENN ® 84988 var út af Sovétvinafélaginu árið 1933 og hefur verið ófaánleg um langt árabil. Skáldið lýsir í bókinni hughrif- um sínum í Rússlandsförinni og þeim hugmyndum, sem hann kynntist þar árið 1932 - fimmtán árum eftir að byltingin var gerð í landinu og sem næst áratugur liðinn frá því að almennri borg- arastyrjöld þar lauk. ólafur Ragnarsson, útgefandi, sagði, að Halldór hefði fallist á að leyfa endurútgáfu bókarinnar, enda þótt afstaða hans til Sovét- ríkjanna væri nú önnur, en þegar hún var samin. Hann hefði gert lítils háttar lagfæringar á textan- um, til að samræma stíl bókarinn- ar, en ekki væri um efnislegar breytingar að ræða. Blaðamaður Morgunblaðsins spurði Halldór hvort hann teldi, að bókin hefði haft einhver áhrif á skoðanir manna á Sovétríkjun- um fyrr á árum. „Það get ég ekki skilið,“ sagði hann, og kvaðst „Efast um að svona bók hefði fengist prent- uð í Rússlandi“ — segir Halldór Laxness um ferðakver sitt í austurvegi, sem nú kemur út í annað sinn „ÞETTA er vasabókarlitteratúr, skrifaður í miklum fljótheitum,“ sagði Halldór Laxness á fundi með blaðamönnum, þegar Vaka-Helga- fell kynnti endurútgáfu bókar hans / Austurvegi. Það er ferðabók Halldórs frá Rússlandi, sem gefin Flugleiðamótið hafið: Margir sterkir skákmenn leiða saman hesta sína Flugleiðaskákmótið verður haldið í Kristalssal Hótel Loftleiða nú um helgina og hófst mótið í morgun klukkan 9.00. Er þetta í sjöunda skipti sem Flugleiðaskákmót er hald- ið og sækja það um 24 sveitir frá stofnunum og fyrirtækjum víðs vegar að af landinu. Tefldar verða 23 umferðir og lýk- ur mótinu væntanlega um klukkan 18.00 á sunnudag með því að Sigurð- ur Helgason, forstjóri Flugleiða, afhendir sigurvegurum verðlaun. Verðlaunin eru veglegur farand- bikar og ferðaverðlaun. Að sögn Sæmundar Guðvinssonar, forstöðu- manns kynningardeildar Flugleiða, munu margir sterkir skákmenn tefla á mótinu, meðal annars sveit Búnaðarbankans, sem sigraði á mótinu í fyrra. Sæmundur sagði að þetta mót hefði vakið talsverða athygli og væri sérstaklega mikil ánægja með það meðal skákmanna úti á landi, enda væri mótið eitt af fáum, þar sem þeir fá tækifæri til að tefla við skákmenn syðra. Fjórir sóttu um stöðu vallarvarðar FJÓRIR sóttu um stöðu fram- kvæmdastjóra íþróttavalla Reykja- víkur, en Baldur Jónsson, sem gegnt hefur stöðunni um árabil, mun láta af störfum hinn 1. febrúar næstkom- andi. Þeir sem sóttu um voru Jóhann- es óli Garðarsson, framkvæmda- stóri, Jón Magnússon, verkstjóri, Jónas Traustason, íþróttakennari, og Haukur Ottesen, íþróttakenn- ari. Að stoi Júlíusar Hafstein, formanns lþróttaráðs Reykjavík- ur, mun ráðið fjalla um umsókn- irnar og taka ákvörðun um ráðn- ingu í stöðuna fyrir miðjan des- ember næstkomandi. Baldur Jóns- son, sem verður sjötugur á næsta ári, mun verða áfram við störf í einhvern tíma ásamt verðandi framkvæmdastjóra íþróttavall- anna. Halldór Laxness virðir fyrir sér ritsafn sitt í gær. Ólafur Ragnarsson, út gefandi, er að baki Halldóri. Morpinblaðið/RAX heldur ekki hafa orðið var við það að nokkur Rússi hefði lesin bók- ina. „Það var ekki auðvelt að skrifa fyrir þá og ég efast um að svona bók hefði fengist prentuð í Rússlandi. Ritskoðunin var hörð og þeir voru ákaflega vandfýsnir á texta," sagði hann. „Ég var búinn að vera í þrjú ár í Bandaríkjunum áður en ég fór til Rússlands og það var ákaflega skemmtilegt að koma í þetta land eftir þá dvöl,“ sagði Halldór. „Ég var fullur áhuga og þessi bók lýsir áhuga mínum á þessu ævintýra- lega landi, sem ég hafði lítið hugsað um áður. í Bandaríkjun- um var aldrei talað um Rússland af alvöru og ég hafði ákaflega takmarkaðar upplýsingar frá þeim. Ég hafði ekki lesið þeirra própaganda, en þeir voru frá upphafi óánægðir með þessa heimspeki." Með útkomu bókarinnar / Austurvegi er lokið endurútgáfu alira verka Halldórs Laxness. Er ritsafn hans nú 48 bindi. „Ég held að enginn íslendingur hafi skrif- að svona margar skruddur," sagði skáldið glettnislega, þegar hann leit yfir ritsafnið. „Þetta er allt gert í einhverri þörf fyrir koma einhverjum hugmyndum á fram- færi og ég hef sjálfsagt haft mikið af þeim - þótt ég hafi verið fljótur að skipta um skoðun. Annars get ég enga skýringu gefið. Þetta eru alltof margar bækur.“ URVALS BARNAMYNDIR bMhou I . » Á o^-o Sími78900 HE-MAN OG LEYNDAR- DÓMUR SVERÐSINS Splunkuný og frábær teiknimynd um hetjuna HE-MAN og systur hans SHE-RA LÍMMIÐIFYLGIR HVERJUM MIÐA. Sýndkl. 3og5. TMC StOKTOf -m SUýORÞ —Vntmm iou KMMi fna ^ mtrnvt muum commtva GOSI Frábær teiknimynd frá WALT DISNEY, mynd fyrir alla f jölskylduna. Sýnd kl. 3. TVÍFARARNIR Bráöskemmtileg grínmynd meö Trinity-bræörum. Sýnd kl. 3. MJALLHVIT OG DVERGARNIR SJÖ Hin sígilda og bráö- skemmtilega teiknimynd frá WALT DISNEY, mynd fyrir alla fjölskylduna. Sýnd kl. 3. SAGAN ENDALAUSA Hin frábæra ævintýramynd sem slegiö hefur öll aðsóknarmet. Sýnd kl. 3. Siðasta sýningarhelgi. M
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.