Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER1985 Bardagarnir í Beirút: 30 hafa látist og 200 særst Beirút, Líbanon, 22. nóvember. AF. DRÚSAR og shítar börðust á götum í Líbanon þriöja daginn í röd og tókst ERLENT drúsum að ná á sitt vald svæöum í Vestur-Beirút, sem þeir höföu verið hraktir frá áöur. Talsmenn lögreglu og spítala létu hafa eftir sér að að minnsta kosti þrjátíu manns hefðu látið lífið og 200 særst frá því bar- dagarnir byrjuðu á miðvikudag, en gert er ráð fyrir að sú tala eigi eftir að hækka þegar hægt verður að komast inn á þau svæði sem barist var á í dag, föstudag. Einn íbúa Beirút-borgar reynir að koma öðrum undan særst í bardögum drúsa og shíta. AP/Símamynd eftir ad sá hafði Fjársvikari handtekinn Grunaður um að svíkja fé af Karpov Hamborg, 22. nóvember. AP. HELMUT Jungwirth, vestur-þýskur útvarps- og sjónvarpsmaður, hefur verið handtekinn. Grunur leikur á að hann hafi svikið 1,5 milljónir marka (um 25,5 milljónir íslenskra króna) af fyrrverandi heimsmeistara í skák, Anatoli Karpov. Peter Beck, rikissaksóknari í Hamborg, sagði að Jungwirth, sem starfar fyrir útvarps- og sjón- varpsstöðina NDR, hefði verið settur í gæsluvarðhald fyrir viku á meðan rannsókn málsins stæði yfir. Jungwirth átti að koma tekjum fyrir auglýsingar til Karpovs frá skáktölvuframleiðanda í Hong Kong. Að sögn Becks fékk Karpov aldrei peningana og fékk hann Iögfræðing til að komast að því hvar féð væri niður komið. Jungwirth kynntist skákmeist- aranum á ferðum Karpovs um Vesturlönd og heldur útvarpsmað- urinn fram að hann hafi lagt peningana í fjárfestingar eftir skipun Karpovs. Leiðtogafundurinn í Genf Stoelí framboði sem flótta- manna- fulltrúi RÍKISSTJÓRN Hollands hefur til- nefnt sendiherra sinn hjá Sameinuðu þjóðunum, Max van der Stoel, sem frambjóðanda sinn til starfs flótta- mannafulltrúa Sameinuðu þjóðanna. Staðan losnar í lok þess árs þegar Daninn Poul Hartling lætur af starf- inu. Van der Stoel, fyrrum utanríkis- ráðherra Hollands, var opinber- lega tilnefndur 1 síðustu viku. Flóttamannafulltrúinn er kosinn á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóð- anna. Aðrir frambjóðendur til starfsins eru Butros Ghali, sendi- herra Egyptalands hjá Sameinuðu þjóðunum, Tom Vraalsen, sendi- herra Noregs hjá Sameinuðu þjóð- unum, og Anders Thunborg, varn- armálaráðherra Svíþjóðar. Talið er að Hollendingar hafi tryggt sér fylgi um 50 þjóða við kjör Stoels á Allsherjarþinginu. Aukin samskipti í menningarmálum Genf, 22. nóvember AP Á FUNDI þeirra Reagans og Gorbachevs í Genf hefur tekist samkomulag um að efla menningarleg samskipti þjóðanna, Bandaríkjamanna og Sovét- manna, en þeim var hætt eftir innrás Sovétmanna í Afganistan. Með því er einnig rudd brautin fyrir samskipti óbreyttra borgara þessara þjóða en á það hefur Reagan lagt mikla áherslu. AP/Símamynd Leidtogar á fréttamannafundi Reagan og Gorbachev á blaðamannafundi í gærmorgun eftir að fundum þeirra lauk. Þar greindu þeir frá árangri fundanna. í samkomulaginu, sem nær til næstu sex ára og tekur strax gildi, er kveðið á um samstarf og sam- skipti á ýmsum sviðum, t.d. í list- um, vísindum, viðskiptum og íþróttum. í ræðu sem Reagan hélt 14. nóvember sl. komst hann þannig að orði: „Hve miklu fengj- um við ekki áorkað fyrir friðinn ef einstaklingar og fjölskyldur frá báðum þjóðunum gætu kynnst og bundist vináttuböndum, ef við Bandaríkjamenn gætum aftur farið að njóta Bolshoi-ballettsins og Sovétmenn bandarískra leik- verka og hljómsveita á borð við Beach Boys.“ Til að byrja með munu allt að 100 námsmenn frá hvorri þjóð gista að hinnar en frá ýmsu á þó eftir að ganga varðandi samning- inn. í honum er t.d. ekki minnst á bein samskipti einstaklinga og fjölskyldna og því borið við, að í rússnesku skorti orð til að lýsa þeim með sama hætti og gert væri í ensku. Viðbrögð við leiðtogafundunum: Almenn ánægja og vonir bundnar við framhaldið London, 22. nóvember. AP. ALMENN ánægja virðist rfkja með leiðtogafundinn í Genf og eru nú margir trúaðir á, að sambúð stórveldanna fari batnandi. Þjóðarleiðtogar víða um heim segjast binda miklar vonir við framhaldið og svo er einnig um allan almenning. Reagan var fagnað vel á bandaríska þinginu þegar fundinum raeð Gorbachev lauk, þótt margir hafi orðið til að benda á, að enn eigi raunverulegur árangur eftir að koma í Ijós. „Allur heimur andaði ögn létt- ara,“ sagði í einu Lundúnablað- anna í gær og í einu pólsku blað- anna sagði, að þótt vopnunum hefði ekki fækkað virtist sem mannkynni væri ekki jafn mikil hætta búin og áður. Thatcher, forsætisráðherra Breta, kvað fundinn hafa fært mönnum nokkra von og Mitterrand, Frakklandsforseti, og Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýska- lands, tóku í sama streng. „Ég held, að þjóðarleiðtogunum hafi skilist, að þeir bera mikla ábyrgð á örlögum alls mannkynsins og jarðarinnar. Frammi fyrir öllum heimi hafa þeir á sinn hátt gefið loforð, sem við öll verðum að hjálpa þeim til að standa við,“ sagði Nakasone, forsætisráð- herra Japans. Willy Brandt, leið- togi vestur-þýskra jafnaðar- manna, sagði, að árangurinn af tveggja daga fundi leiðtoganna hefði orðið sá, sem hann gat orðið. Samkomulag um að bæta samskiptin. Leiðtogafundinum hefur verið fagnað í Austur-Evrópu, fylgi- ríkjum Sovétríkjanna, og eru vonir bundnar við, að þeir hafi verið upphafið að bættri sambúð. Reagan, forseta, var mjög fagnað þegar hann greindi Bandaríkjaþingi frá fundunum og sagði Thomas O’Neill, þing- leiðtogi demókrata, að hann væri „meira en ánægður" með, að leið- togarnir ætluðu að hittast aftur. Repúblikinn Richard Lugar, for- maður utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar, sagði, að nú hefðu orðið veðrabrigði, nú væri lag. Fékk hljóm- plötur frá Gorbachev St. Kranns, Wiscon.sin, Bandaríkjunum, 21. nóvember. AP. MIKAIL Gorbachev, leiðtogi Sovét- ríkjanna, hefur sent tíu ára gamalli bandarískri stúlku og tónsmið fjög- ur plötualbúm með rússneskri tón- list. Hafði hún sent honum hljóm- band með sínum eigin söng um frið og farsæld í heimi. Sherry Lynn Biedrzyki, hin tíu ára gamla stúlka, sagði frétta- mönnum í dag að í sumar hefði hún sent Gorbachev snældu með eigin söng um frið og í september sl. hefði verið hringt til hennar frá sovéska sendiráðinu í Wash- ington og henni borin kveðja Gorbachevs, sem hefði haft ánægju af söngnum. Nú hefur hún fengið frá honum fjögur albúm, eitt með úrvali rússn- eskrar tónlistar, tvö með rússn- eskum söngvum og eitt með sov- éskri rokktónlist. Sherry Lynn hóf nám í píanó- leik aðeins fimm ára að aldri og leggur nú einnig stund á tón- smíðar. Hefur hún komið víða fram opinberlega og þykir hið mesta efni. Kveikjan að söngnum og snældunni til Gorbachevs var grein, sem hún las í blaði, um allar styrjaldirnar í heiminum. Kvaðst hún einnig hafa sent tvær snældur til Reagans forseta en ekki fengið neitt svar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.