Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER1985 Skjól Samstillt átak Umönnunar- og hjúkrun- arheimili aldraðra Framkvæmdir eru nú í fullum gangi við byggingu Skjóls, umönnunar— og hjúkrunarheimilis aldraöra aö Kleppsvegi 64 í Reykjavík. Lokid er við aö grafa grunn og sprengja fyrir honum, og hafa sökklar og botn- plata þegar verið boðin út. Að byggingunni standa Samband lífeyrisþega, BSRB, ASÍ, Stéttarsamband bænda, Sjómannadagurinn í Reykjavík og Hafnarfirði, Reykjavíkurborg og Þjóðkirkjan. Ágóði af sölu hvíta pennans á Stór-Reykjavíkursvæðinu rennur óskiptur til heimilisins en sölu hans verður haldiö áfram til styrktar málefninu. Hjúkrunarheimilið Skjól mun rúmá 90 manns og auk þess verður þar dagvistun fyrir 15— 20 manns og skammtímavistun fyrir 7. Til sparnaðar í fjárfest- ingu og rekstri verður matur fenginn úr eldhúsi Hrafnistu og þvottur þveginn í þvottahúsinu þar. Markmiðið með framkvæmd þessari er að leysa þann mikla vanda sem margir aldraðir búa við, einkum þeir sem þurfa á umönnun og hjúkrun að halda. Sá hópur er stór á höfuðborgar- svæðinu og í mörgum tilfellum er um hreina neyð að ræða. „Hjúkrunarheimilið Skjól rís ekki nema fyrir samstillt átak allra þeirra sem vilja ljá málefn- inu lið og stuðla að lausn þess vanda sem steðjar að öldruðu sjúku fólki,“ sagði séra Sigurður Guðmundsson fylltrúi Þjóðkirkj- unnar í byggingarnefndinni. „Tré hefur verið valið sem einkenni Skjóls. Á það að minna á lífsins tré eða ask Yggdrasils ef menn vilja heldur. Með því er lögð áhersla á mikilvægi allrar heild- arinnar. Eins og tréð saman- stendur af rótum, stofni, grein- um og blöðum, og hver hluti þess er mikilvægur fyrir heildina, samanstendur þjóðfélagið af fólki á öllum aldri og mikilvægi eins hópsins verður ekki gleymt án þess að öll heildin líði fyrir það. Líkan af tré verður á vegg í anddyri hússins — greinar gerð- ar af smíðajárni en blöðin úr kopar. Á blöð trésins verða rituð nöfn þeirra einstaklinga og fyrir- tækja sem ljá málinu stuðning og Iiðveislu. Þegar hafa margir einstaklingar, félög, fyrirtæki og stofnanir veitt loforð um stuðn- ing og allmargir þegar innt fram- lög af hendi. Nokkrir aðilar hafa þegar lofað framlögum til að kosta eitt eða fleiri sjúkrarými. Það er von allra þeirra sem að hjúkrunarheimilinu Skjóli standa að menn taki saman höndum um að hrinda í fram- kvæmd þessu þýðingarmikla máli,“ sagði Sigurður. Séra Sigurður H. Guðmundsson Páll Gíslason formaður byggingarnefndar: Skortur á sjúkrarými fyrir aldraða tilfínnanlegastur „Á undanfornum árum hefur borgin byggt mikið af ibúðum fyrir aldraða þar sem fólk fær alhliða þjónustu og nú í vetur verður lokið við nokkrar skíkar byggingar,“ sagði Páll Gíslason formaður bygg- ingarnefndar umönnunar— og hjúkrunarheimilisins Skjóls. „Húsnæði þetta nýtist þó ekki fólki sem á við veruleg veikindi að stríða. Borgin hefur líka byggt vistheimili þar sem aldraðir fá meiri þjónustu, heimilishjálp og mat, en það er ekki reiknað með því að fólk liggi þar rúmfast. Við höfum því miður alltof fá pláss fyrir aldraða hjúkrunar- sjúklinga, þó borgin reki að vísu deildir fyrir þá á Droplaugarstöð- um, í B—álmu Borgarspítalans, á Hvítabandinu og ennþá í Hafnar- búðum. Það má því segja að þó víða vanti þjónustu við aldraða sé skorturinn á sjúkrarými fyrir aldraða hjúkrunarsjúklinga til- Páll Gíslason finnanlegastur. Við sem vinnum að þessum málum hjá borginni erum því mjög ánægð með að samstaða margra aðila hafi náðst um að hefja byggingu hjúkrunar- heimilis fyrir aldraða. Líkan af hjúkrunarheimilinu Skjóli sem risa mun á Kleppsvegi 64 Guðmundur Hallvarðsson í byggingarnefnd: Þörfin fyrir húsnæöiö fer ekki á milli mála Það er líka í anda okkar stefnu að reyna að ná samvinnu við félög og samtök um þessi mál, því ef borgin og ríkið ættu að vera ein um þetta er hætt við að fram- kvæmdir myndu ganga hægt. Reykjavíkurborg hefur verið í samvinnu við bæði Verslunar- mannafélagið og samtök aldraðra um byggingu íbúða fyrir aldraða og hefur gengið mjög vel. Það er alveg í sama anda að við tókum upp samvinnu við Dvalarheimili aldraðra sjómanna, ASÍ, Stétta- samband bænda og fleiri samtök, sem vilja vinna að þessu máli. Og við munum fylgja því eftir að okkar hlutur verði þar verulegur. Eg ber fullt traust til forystu- manna þessara samtaka sem hafa lagt mikla vinnu í að koma þess- um samtökum af stað og er þess fullviss að þeir muni standa fast saman um að koma málinu fram,“ sagði Páll. „Þörfin fyrir húsnæði sem þetta fer ekki á milli mála eins og sést á því að 98 manns hafa þegar sótt um vist á hjúkrunarheimilinu Skjóli," sagði Guðmundur Hall- varðsson fulltrúi Sjómannadags- ráðs í byggingarnefndinni í samtali við Morgunblaðið. „3. nóvember samþykkti haustfundur Sjómanna- dagsráðs tillögu þar sem fagnað er því átaki sem unnið er með byggingu hins nýja umönnunar- og hjúkrunarheimilis við Kleppsveg og hlotið hefur nafnið Skjól. í til- lögunni segir m.a.: „Sérstaklega fagnar fundurinn undirtektum annarra launþega- samtaka og einstakra fyrirtækja, sem hafa sýnt áhuga sinn og skilning með fjárgjöfum og fjár- mögnun einstakra íbúða. Fund- urinn skorar sérstaklega á eig- endur og stjórnendur fyrirtækja og stofnana að beita sér fyrir fjármögnun ibúða handa göml- um starfsmönnum sem á sér- stakri umönnun og hjúkrun þurfa að halda. — Sjómannasamtökin gera sér ljósa grein fyrir þeim alvarlega vanda sem fjölmargir aldraðir standa frammi fyrir, einkum og sér í lagi hvað hjúkrun og umönnun varðar. Viðhorf okkar sést kannski best á því að við afhentum bestu byggingarlóð Guðmundur Hailvarðsson sem fyrirfinnst í Reykjavík undir húsið. Það mun hafa verulegt hagræði í för með sér að að húsið er á þessum stað því þar verður hægt að samnýta ýmsa þjónustu sem fyrir hendi er á Hrafnistu, s.s. eldhús og þvottahús. Þarna er um geysilegan sparnað að ræða og eykur þetta fyrirkomu- lag verulega á nýtingu nýja húss- ins,“ sagði Guðmundur. Tvær sýningar í Norræna húsinu: Samískur listiðnaður og bókin sem listaverk í NORRÆNA húsinu verða tvær sýningar opnaðar í dag, laugardag. í tilefni 40 ára afmælis Norræna myndlistabandalagsins verður sýning opnuð kl. 14.00. Sýningin er tvíþætt: í anddyri verða til sýnis bókverk ís- lenskra listamanna, en í bókasafninu verða sýndar norrænar listaverkabækur og sýningarskrár. Sýningin er úrtak úr tveimur sýningum sem voru árið 1983 í New York og Amsterdam með styrk frá menntamálaráðuneytinu. Meðal þeirra sem eiga verk á sýningunni eru Helgi Friðjónsson, Daði Guðbjörnsson, Ingólfur Örn Arnarson, Guðrún Hrönn Ragn- arsdóttir, Kristján Guðmundsson og Dieter Rot, sem telst frumkvöð- ull að framsetningu listaverka í bókaformi hér á landi. 1 tengslum við sýninguna verður haldinn fyr- irlestur 2. desember nk. kl. 20.30. Aðalsteinn Ingólfsson talar um bókverk Dieters Rot og Gunnar Harðarson talar um bókverk ís- lenskra myndlistarmanna. Bandalagið hefur m.a. haldið stórar samsýningar í aðildarlönd- um. Á áttunda áratugnum lagði síðan Norræna myndlistabanda- lagið drög að stofnun Myndlistar- miðstöðvarinnar á Sveaborg í Finnlandi, sem tók að sér að halda samnorrænar sýningar jafnframt því sem listamörtnum býðst vinnu- aðstaða þar og gefið.verður út kynningarrit um norræna mynd- list 1986. Frá vinstri á myndinni eru: Jónína Guðnadóttir með- stjórnandi norræna mvndlistarbandalagsins, Valgerður Bergsdóttir formaður Islandsdeildar sama félags, Knut Ödegárd forstjóri Norræna hússins og Guðrún Magnús- dóttir bókavörður Norræna hússins. Bandalagið hefur hin síðari ár haft með höndum ráðstefnur um málefni sem varða myndlist svo sem opinberar listskreytingar, myndlist í sjónvarpi, myndlistar- menntun á Norðurlöndum og myndlist í byggingarlist. Norræna myndlistabandalagið stendur nú fyrir myndlistarsýn- ingu á Prins Eugens-safninu í Morgunbladið/Júlíus Hluti þeirra bókverka er á sýningunni verða í Norræna húsinu. Heiti sýningarinnar er „Samískur listiðnaður". Maja Dunfjeld Aagard, sem er Sami og setti sýninguna upp, held- ur fyrirlestur kl. 17.00 á sunnudag með litskyggnum um samískan listiðnað, sögu hans, þróun og stöðu nú. Fyrirlesturinn verður fhittur á norsku í fyrirlestrasal Norræna hússins og eru allir vel- komnir. Stokkhólmi. Sýnendur eru tveir frá hverju Norðurlandanna og eru þar verk eftir Jóhannes S. Kjarval og Jón Gunnar Árnason frá ís- landi. Hin sýningin verður opnuð f kjallara Norræna hússins kl. 15.00 I dag, en það er farandsýning frá Samtökum Sama í Noregi og List- iðnaðarsafninu í Þrándheimi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.