Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER1985 Setjum Katrínu í 2. sæti — felum henni aukna ábyrgð — eftir Þuríði Pálsdóttur Úrslit borgarstjórnarkosning- anna 1982 leiddu í ljós að sú ákvörðun að setja Katrínu Fjeldsted í baráttusæti hafði skil- að þeim árangri sem vænzt var og gott betur. f því prófkjöri sem nú fer í hönd þurfa reykvískir sjálf- stæðismenn að sýna svo ekki verði um villzt að þarna var rétt að málum staðið og það gera þeir bezt með því að kjósa Katrínu Fjeldsted í annað sæti. Á kjörtímabilinu hefur Katrín Fjeldsted sýnt og sannað að hún er ekki einungis til þess fallin að draga atkvæði að flokknum heldur er hún þeim vanda vaxin að hafa forystu í málefnum Reykvíkinga. Hún er formaður Heilbrigðisráðs Reykjavíkurborgar og hefur þar fyrst og fremst beitt sér fyrir nauðsynlegri enduruppbyggingu heilbrigðisþjónustu í borginni. Þar hefur frammistaða hennar verið með þvílíkum ágætum að það er „Hún á aö baki mikla starfsreynslu ekki síður en lífsreynslu og hefur næman skilning á þeim vandamálum sem ein- staklingarnir eiga við að etja í daglegu lífí sínu.“ ekki aðeins í þágu sjálfstæðis- manna heldur Reykvíkinga allra að hún fái ótvírætt umboð til að halda því starfi áfram. Frumkvæði hennar á sviði umferðarmála hef- ur líka vakið verðskuldaða athygli en þar hefur hún haft frumkvæði um merkar nýjungar sem mjög hafa aukið umferðaröryggi á göt- um borgarinnar. Katrín Fjeldsted vakti þegar á unglingsaldri athygli fyrir ein- beitni og skörulegan málflutning þegar hún hóf þátttöku i starfi á vegum Sjálfstæðisflokksins. Síðan það var hefur hún aflað sér fjöl- þættrar menntunar og reynslu af því tagi sem hefur komið Reykvík- ingum að miklu gagni á þeim tíma sem hún hefur setið í borgarstjórn. Hún er að mínu mati óumdeilan- lega sá af frambjóðendum í próf- kjörinu nú sem sjálfstæðismenn eiga að setja í annað sæti, Sjálf- stæðisflokksins vegna ekki síður en borgarbúa allra. „Hún á að baki mikla starfs- reynslu ekki síður en lífsreynslu og hefur næman skilning á þeim vandamálum sem einstaklingarnir eiga við að etja í daglegu lífi sínu. Hér er á ferð kona sem hefur óvenjulega sterk félagsleg tengsl við heilbrigða skynsemi. Hún er manneskja þeirrar tegundar sem breiðfylking Sjálfstæðismanna þarf fyrst og fremst á að halda“. Katrín Fjeldsted á sér sterkar rætur í því reykvíska menningar- umhverfi sem er veigurinn í því blómlega menningarlífi sem her er um þessar mundir. Hún er sönn manneskja og ég dáist að henni fyrir það að taka nú þátt í lýðræð- islegum prófkosningum, ekki af Katrín Fjeldsted. þeirri kvenlegu hógværð sem sætt- ir sig við skertan hlut, heldur af sama metnaði og þeir karlmenn sem setja markið hæst. Okkur sjálfstæðismenn vantar manneskju sem hefur gáfur og yfirsýn til að standa í borgarstjórn og taka málin föstum tökum. Okkur vantar ekki bara fulltrúa hinna ýmsu þrýstihópa heldur fulltrúa sem gætir hagsmuna Reykvíkinga allra. í lýðræðisleg- um prófkosningum eiga allir fram- bjóðendur sama rétt, enda þótt Þuríður Pálsdóttir. borgarstjórinn í Reykjavík sé sjálfkjörinn í fyrsta sæti. Katrín Fjeldsted er óumdeilan- legur fulltrúi þess manngildis og þeirrar heilbrigðu skynsemi sem flokkurinn og borgin hafa mesta þörf fyrir. Henni á að fela aukna forsjá í málefnum Reykvíkinga. Setjum Katrínu Fjeldsted því í annað sæti. Höíundur er söngkona og yfirkenn- ari rið Söngskólann íReykjarík. Skáldsaga eftir Guðlaug Arason ÚT ER komin hjá Máli og menningu skáldsaga Sóla, Sóla eftir Guðlaug Arason og er þetta fimmta skáldsaga hans. „Sögumaður þessarar bókar er Hjálmar Hjálmarsson rithöfund- ur. Lesandinn kynnist honum í upphafi í leit að yrkisefnum og kannski líka sjálfum sér. Tveir atburðir verða til að gerbreyta lífi hans. Á elliheimili hittir hann fyrir tilviljun Sólu, íslenska al- þýðukonu sem rekur ættir sínar til galdrafólks á 17. öld. Um svipað leyti verður ljóst að kona Hjálm- ars á von á barni. Hjálmar ákveður að skrifa ættarsögu Sólu og um leið fer hann að segja barni sínu ófæddu frá sínu eigin lífi. Hér eru því á ferð tvær sögur, úr fortíð og nútíð, sem undir lok bókarinnar tengjast saman á óvæntan hátt.“ Sóla, Sóla er 218 bls að stærð og gefin út samtímis innbundin og sem Ugla, þ.e. pappírskilja. Sigurður Ármannsson gerði kápu, en bókin er prentuð í Danmörku. Guðlaugur Arason Hafnarfjörður: Vilt þú góðan skóla? Almennur borgarafundur um skólamál KENNARAFÉLÖG grunnskólans í Hafnarfirði og starfsmannafélag Flensborgarskóla boða til almenns borgarafundar um skólamál undir yfirskriftinni „Vilt þú góðan skóla“? Fundurinn verður haldinn í Flensborgarskóla sunnudaginn 24. nóvember klukkan 16.00. Á fundinum flytja eftirtaldir aðilar framsöguerind: Kristín H. Tryggvadóttir kennslufulltrúi, Ól- afur Proppé lektor, Jón Torfi Jóns- son lektor og Hrólfur Kjartansson deildarstjóri. Á.eftir framsöguerindum verða opnar umræður þar sem fulltrúar fræðsluráðs, bæjarstjórnar, skól- anna og foreldrafélaga sitja fyrir svörum. Undirbúningsnefnd hvetur alla sem áhuga hafa til að koma. Barnagæsla verður á staðnum. (Fréttatilkynning) DÓMKIRKJAN: Laugardag: Barnasamkoma í kírkjunni kl. 10.30. Sr. Agnes M. Siguröardótt- ir. Sunnudag: Messa kl. 11. Sr. Þórir Stephensen. Messa kl. 14. Sr. Agnes M. Siguröardóttir. Dómkórinn syngur viö báöar messurnar. Organleikari Mar- teinn H. Friöriksson. ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barnasamkoma í Foldaskola í Grafarvogshverfi laugardaginn 23. nóv. kl. 11 árdegis. Barnasam- koma í safnaöarheimili Arbæjar- sóknar sunnudag kl. 10.30 árdeg- is. Guösþjónusta í safnaöarheim- ilinu kl. 14. Organleikari Jón Mýrdal. Allt eldra fólk í sókninni sérstaklega boöiö velkomiö til guösþjónustunnar. Samvera og dagskrá aö messu lokinni. Gtsli Sigurbjörnsson forstjóri flytur ræöu og Unnur Jensdóttir syngur einsöng viö undirleik Vilhelmínu Ólafsdóttur. Kaffiveitingar í boöi Kvenfélags Árbæjarsóknar. Miö- vikudag 27. nóv.: Fyrirbænasam- koma í safnaöarheimilinu kl. 19.30. Sr. Guömundur Þorsteins- son. ÁSKIRKJA: Barnaguösþjónusta kl. 11. Guösþjónusta kl. 14. Vænst er þátttöku fermingar- barna og foreldra þeirra. Sr. Arni Bergur Sigurbjörnsson. BREIÐHOLTSPREST AKALL: Laugardag: Barnasamkoma kl. 11. Sunnudag: Messa kl. 14. KFUM og K í Breiöholti tekur þátt í guösþjónustunni. Sr. Lárus Halldórsson. BÚST AÐAKIRK J A: Barnasam- koma kl. 11. Sr. Solveig Lára Guömundsdóttir. Guösþjónusta kl. 14. Lesari: Stella Guönadóttir. Organisti Guöni Þ. Guömunds- son. Æskulýösfélagsfundur þriöjudagskvöld. Félagsstarf aldraöra miðvikudagseftirmiö- daga. Sr. Ólafur Skúlason. DIGRANESPREST AK ALL: Barnasamkoma í safnaöarheimil- inu Bjarnhólasttg kl. 11. Messa í Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þor- bergur Kristjánsson. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guös- þjónusta kl. 10. Sr. Árelíus Níels- son. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Laug- ardagur: Kirkjuskóli fyrir börn 5 ára og eldri í kirkjunni viö Hóla- berg 88 kl. 10.30. Barnasamkoma í Hólabrekkuskóla kl. 14. Sunnu- dag24. nóv.:Guösþjónustakl. 14, organisti Guöný Margrét Magn- úsdóttir. Æskulýösfélagsfundur mánudag 25. nóv. kl. 20.30. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSASKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11. Messa kl. 14. Fyrir- bænir eftir messu. Organisti Árni Arinbjarnarson. Biblíulestur þriöjudag kl. 20.30. Umræöur og kaffisopi á eftir. Sr. Halldór S. Gröndal. Matt. 17.: Dýrð Krists. HALLGRÍMSKIRKJA: Laugardag 23. nóv.: Félagsvist í safnaöarsal kl. 15. Sunnudag: Barnasam- koma og messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Fyrirbænaguös- þjónusta kl. 10 þriöjudag 26. nóv- ember. Fimmudag: Opiö hús fyrir aldraöakl. 15.30. LANDSPÍTALINN: Guösþjónusta kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 10. Barnaguösþjónusta kl. 11. Sr. Arngrímur Jónsson. Messakl. 14. Sr. Tómas Sveinsson. KÁRSNESPRESTAKALL: Barna- samkoma kl. 11 í félagsheimilinu Borgum. Messa í Kópavogskirkju ki. 14. Organisti Kjartan Sigur- jónsson. Sr. Guömundur örn Ragnarsson. LANGHOLTSKIRKJA: Óska- stund barnanna kl. 11. Söngur- sögur-myndir. Þórhallur, Jón ofl. Guösþjónusta kl. 14. Organisti Jón Stefánsson. Prestur sr. Sig- uröur Haukur Guöjónsson. Sókn- arnefndin. LAUGARNESPRESTAKALL: Laugardag 23. nóv.: Guösþjón- usta í Hátúni 10B 9. hæö kl. 11. Sunnudag 24. nóv.: Barnaguös- þjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Sr. Ingólfur Guömundsson messar. Þriöjudag 26. nóv.: Bænaguös- þjónusta kl. 18. Fimmtudag 28. nóv.: Fræöslukvöld. GrétarSigur- björnsson ræöir um orsakir kvíöa. Tónlist á vegum organista kirkj- unnar. Sóknarprestur. NESKIRKJA: Laugardagur: Fé- lagsstarfiö kl. 15. Guömundur Benediktsson ráöuneytisstjóri segir sögu ráöherrabústaöarins. Sr. Frank M. Halldórsson. Sunnu- dag: Barnasamkoma kl. 11. Sr. Guömundur Óskar Ólafsson. Guösþjónusta kl. 14. Sr. Frank M. Halldórsson. Mánudagur: Æskulýösstarfiö kl. 20. Miöviku- dagur: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórsson. Þriöju- dag og fimmtudag kl. 13—17, opið hús tyrir aldraöa. SELJASOKN: Barnaguösþjón- usta í Ölduselsskóla kl. 10.30. Barnaguósþjónusta í Seljaskól- anum kl. 10.30. Guösþjónusta í Ölduselsskólanum kl. 14. Altaris- ganga. Fyrirbænasamvera í Tindaseli 3, þriöjudag 26. nóv. kl. 18.30. Fundur í æskulýösfélaginu þriöjudag 26.11. kl. 20 í Tindaseli 3. Sóknarprestur. SELTJARNARNESSÓKN: Barnaguösþjónusta kl. 11 í sal Tónlistarskólans. Sr. Frank M. Halldórsson. BORGARSPÍTALINN: Guösþjón- usta kl. 10. Sr. Sigfinnur Þorleifs- son. FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK: Al- menn guðsþjónusta kl. 11. Ath. breyttan messutíma. Fríkirkju- kórinn syngur. Orgelleikari Pavel Smid. Sr. Gunnar Björnsson. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Barna- messa veröur í kirkju Óháöa safn- aöarins sunnudaginn 24. nóv- ember kl. 10.30. A dagskrá eru, t.d.: hreyfisöngvar, sálmar, bænakennsla, sögur, myndasög- ur, útskýringar á biblíutextum í myndum, kvikmyndir og margt fleira. Séra Þórsteinn Ragnars- son. HVÍT ASUNNUKIRK JAN FÍLA- DELFÍA: Sunnudagaskóli kl. 10.30. Almenn guösþjónusta kl. 20. Æskulýöskór syngur. Fórn til innanlandskristniboös. KFUM & KFUK, Amtmannsstíg: Bænastund kl. 20. Samkoma kl. 20.30. Upphafsorö og bæn. Pótur Ásgeirsson. Ræöumaöur Sr. Gísli Jónasson. Eftir samkomuna veröur sýnd kvikmynd um starf KFUM í Austurlöndum. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu- dagaskóli kl. 14. Hjálpræöis- samkoma kl. 20.30. Flokksfor- ingjar stjórna og tala. LAGAFELLSKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11. Messa kl. 14. Sr. BirgirÁsgeirsson. BESSASTAÐASÓKN: Barna- samkoma í Álftanesskóla laugar- dagkl. 11. GARÐASÓKN: Biblíulestur í Kirkjuhvoli kl. 10.30. Leiöbein- andi sr. Jónas Gíslason dósent. Fjölskylduguösþjónusta í Kirkju- hvoli sunnudag kl. 11. Hugvekja: stud. theol Bjarni Karlsson. Æskufólk aöstoðar. Sr. Bragi Friðriksson. VÍÐIST AÐASÓKN: Barnaguös- þjónusta kl. 11. Almenn guös- þjónusta kl. 14. Haraldur Krist- jánsson guöfræöingur prédikar. Sr. Bragi Friöriksson þjónar fyrir altari. Sr. Siguröur Helgi Guö- mundsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 10.30. Muniö skólabílinn. Guösþjónusta kl. 14. Píanótónleikar Jónasar Ingi- mundarsonar kl. 18. Sr. Gunnþór Ingason. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnu- dagaskóli kl. 11. Muniö skólabíl- inn. Messa kl. 14. Aöalsafnaöar- fundur í Kirkjulundi eftir messu. Sóknarprestur. FRÍKIRKJAN HAFNARFIRDI: Barnasamkoma kl. 10.30. Sr. Einar Eyjólfsson. HVALSNESKIRKJA: Messa kl. 14. Sóknarprestur. HJALLAKIRKJA: Messa kl. 14. Sóknarprestur. HVERAGERDISKIRKJA: Barna- guösþjónusta kl. 11. Sr. Tómas Guðmundsson. AKRANESKIRKJA: Barnasam- komakl. 10.30. Hátíöarguösþjón- usta kl. 14. Minnst 150 ára af- mælis sr. Matthíasar Jochums- sonar. Nánir afkomendur hans lesa úr verkum hans og flytja tón- list viö Ijóð eftir hann. Organisti Jón Ólafur Sigurösson. Sr. Björn Jónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.