Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLADID, LAUG ARDAGUR 23. NÓVEMBER1985 J Samstaða í borgarstjórn Á borgarstjórnarfundi í fyrrakvöld var samhljóða samþykkt tillaga frá fulltrúum Alþýóubandalagsins meó smávægilegum oróalagsbreytingum þar sem segir m.a. að borgarstjórn samþykki að leita eftir því við Starfs- mannafélag Reykjavflnirborgar, að samningsaðilar kanni sérstaklega röðun þeirra starfsbeita í launa- ftokka, sem að meirihluta eru skipuð konum. Verði launaflokkaröðun þeirra starfsheita borín saman við röðun annarra starfsheita. Niður- stöðurnar verði síðan grundvöllur viðræðna aðila í næstu sérkjara- samningum. Guðrún Jónsdóttir (Kvennafram- boði) sagði í umræðum um tillöguna að hún sé það „opin og lauslega orðuð“ að hægt sé að ýta henni til hliðar. Ekki hafi samt verið hægt að standa gegn henni. Sigurður E. Guðmundsson (Alþýðuflokki) og Sigrún Magnúsdóttir (Framsóknar- flokki) tóku ennfremur til máls og lýstu yfir stuðningi við tillöguna. Á þessum sama fundi var sam- þykkt tillaga með öllum greiddum atkvæðum að beina því til Aiþingis að það samþykki breytingar varð- andi álagningu útsvars. f tillög- unni segir „að ákvæði um álagn- ingu útsvars verði á þann veg, að ákvörðunarvaldið verði algjörlega í höndum sveitarfélaganna í landinu en ekki takmarkað eins og nú er með ákvörðun um há- marksútsvar“. Ennfremur segir, að sami hundraðshluti skuli lagður á alla menn í hverju sveitarfélagi. Viðbótartillaga Kvennafram- boðsins var einnig samþykkt sam- hljóða á fundinum. í henni segir: Ákvæði um álagningu fasteigna- gjalda verði rýmkuð þannig að sveitarstjórnir fái aukið svigrúm til að veita tekjulitlum hópum afslátt af fasteignagjöldum. * Ur borgarstjórn: Ársskýrsla Félagsmálastofnun- ar og fréttabréf fyrir aldraða NOKKRAR umræður áttu sér stað á borgarstjórnarfundi í fyrrakvöld um ársskýrslu Félagsmálastofnunar fyrir árið 1985. Guðrún Ágústsdóttir (Alþýðu- bandalagi) sagði i ræðu sinni að skjólstæðingabeiðnum hefði fjölg- að mikið. Ríkisstjórnin þyrfti að fá þessa skýrslu í hendur með „nokkrum vel völdum orðum", því „fátækt hefði verið innleidd inn í landið á ný“. f máli Ingibjargar Rafnar, for- manns Félagsmálaráðs, (Sjálf- stæðisflokki) kom fram, að aukn- ing í skjólstæðingafjölda á milli áranna 1982—1983 hafi verið 29% en 9% á milli áranna 1984—1985. Ingibjörg kynnti ennfremur hug- myndir að útgáfu Fréttabréfs Fé- lagsmálastofnunar, sem dreift yrði til aldraðra í Reykjavík. Frétta- bréf þetta yrði fyrst og fremst upplýsingamiðill um starf fyrir aldraða í borginni. í því yrði m.a. að finna upplýsingar um vetrar- og sumarstarf fyrir aldraða, lífeyr- isréttindi o.fl. Guðrún Ágústsdóttir sagði í máli sínu að samstaða rikti innan Félagsmáiaráðs um að auka fram- boð á starfi fyrir aldraða í borg- inni. Öll starfsemi af þessu tagi væri vel sótt en ekki væri um nægilegt framboð að ræða. Brýnt væri að bæta þetta. Páll Gíslason (Sjálfstæðisflokki) tók í sama streng og minnti á að starf á þess- um vettvangi þyrfti góðrar kynn- ingar við. Sýningin „Elvis í Las Vegas“ á Broadway „ELVIS í Las Vegas“ er yfirskrift sýningar, sem sett verður á svið í veitingahúsinu Broadway dagana 6. og 7. desember næstkomandi. Þar verður í aðalhlutverki Liberty Mounten og átta manna hljómsveit hans „De Soto“, en Liberty Mounten hefur getið sér frægð vestan hafs fyrir túlkun sína á lögum og framkomu hins látna rokkkóngs. Að sögn Björgvins Halldórs- sonar, sem annast framkvæmd að uppfærslu sýningarinnar, vill Broadway með þessu heiðra minningu Elvis Presley, sem orðið hefði fimmtugur á þessu ári. Björgvin sagði, að sýning Liberty Mounten spannaði aðal- lega tímabil Elvis er hann kom fram í Las Vegas hin síðari ár, en á efnisskránni væru flest af þekktari lögum hans. „Sam- kvæmt því sem við heyrum af Liberty frá Bandaríkjunum hef- ur sýning hans notið mikilla vinsælda og þá jafnt hjá táning- um sem fullorðnum. Hins vegar er viðbúið að sannir Elvis- aðdáendur séu þar í miklum meirihluta og þar sem vitað er að þeir eru margir hér á landi töldum við vel við hæfi að bjóða upp á þessa sýningu nú á fimm- tugsafmæli rokkkóngsins," sagði Björgvin. Samkvæmt erlendum blaða- ummælum er Liberty Mounten talinn einn besti Elvis-ieikari sem fram hefur komið á seinni árum og hefur hann farið víða um heim með sýningu sína og hvarvetna fengið frábærar við- tökur. Sumir gagnrýnendur telja hann jafnvel hafinn yfir aðra Elvis-leikara, en hann þykir hafa sérstakan sviðspersónuleika og kvað eiga afar auðvelt með að láta áhorfendum líða vel á tón- leikum. I þeim efnum er honum gjarnan líkt við konunginn sjálf- an. Liberty þykir mjög líkur Elvis á sviði hvað varðar fram- komu og söng og kom hann sterk- lega til greina þegar valið var í aðalhlutverkið í kvikmyndinni „This is Elvis". Liberty Mounten hefur komið fram með mörgum stórstjörnum rokksins og má þar nefna Neil Sedaka, Poul Anka og Oliviu Newton John. Akranes: íslenzka hljómsveitin heldur tónleika til heiðurs konum ÖNNUR efnisskrá íslensku hljóm- sveitarinnar á fjórða starfsári, sem féll niður sl. sunnudag sökum óveð- urs, verður flutt í Bíóhöllinni á Akranesi á sunnudag, 24. nóvember, kl. 15.30. Tónleikarnir bera yfir- skriftina „Konur í íslensku tónlLstar- lífi“ og eni haldnir til heiðurs ís- lenskum tónlistarkonum í lok ára- tugs kvenna. Guðmundur Emilsson, aðalstjórnandi hljómsveitarinnar, stjómar í forföllum Jean-Pierre Jacquillat. Aðgöngumiðar verða seld- ir við innganginn. Anders Josephsson baritón- söngvari syngur þrjú sönglög eftir Jórunni Viðar við undirleik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Hljómsveitin leikur fimm lög fyrir kammerhljómsveit eftir Karólínu Eiríksdóttur og Davíð 116 eftir Mist Þorkelsdóttur, en bæði þessi tónverk voru samin að tilhlutan íslensku hljómsveitarinnar og frumflutt af henni á sínum tíma. Anders Josephsson syngur einsöng í síðara verkinu. Karólína og Mist munu kynna verk sin í upphafi tónleikanna. Á síðari hluta tón- leikanna leikur Anna Guðný Guð- mundsdóttir píanókonsert í C-dúr (K 415) eftir Wolfgang Amadeus Mozart, en píanókonsert þessi er einn þeirra er Mozart tileinkaði konu. Rauðhóla-Ransí og hringglíma HlTT leikhúsið er þessa dagana að taka nýtt verk til æfinga, sem ber það sérstaka nafn „Rauðhóla- Ransí“, á frummálinu „Trafford Tanzi“. Tveir Bretar, Cliff Twelmo og Brian Vite, komu gagngert hingað til lands fyrir helgi til að kenna leikurunum hringglímu, eða ,;,wrestling“ eins og íþróttin er nefnd á ensku. Hafa þeir sett upp hringglímusvið í Likamsr ogjieiisu- ræktinni í Borgartúni. Þar er æft af miklum eldmóði alla daga fyrir hádegi. Bretarnir Vite og Twelmo munu halda sýningu í Líkams- og heilsuræktinni í dag, laugar- dag, klukkan 14. Hringglíma er mjög vinsæl, sérstaklega í Bandaríkjunum en hefur ekki verið stunduð hér á landi. Frá æfingu Hins leikhússins í Líkams- og heilsuræktinni í Borgartúni. Annar Bretanna, lengst til vinstri, fylgist með þegar Edda Heiðrún Bachmann er tekin á loft. ___ I minningu rokkkóngsins: Liberty Mounten í hlutverki rokkkóngsins Elvis Presley.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.