Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. NÓVBMBER1985 33 Barrtré elsta og stærsta lífvera jarðarinnar Skyndisýning í "Z anddyri Háskólabíós M í ANDDYRI Háskólabíós verða haldnir á morgun, sunnudag, svo- kallaðir Náttúrufræðidagar, sem áhugahópur um byggingu náttúru- fræðisafns hefur staðið að. Dagskrá- in verður frá kl. 10.00 til 13.00. Markmiðið er að kynna ýmsa þætti í hugsanlegri starfsemi væntanlegs safns og einnig að vekja athygli almennings og ráða- manna á því, að íslendingar, sem byggja afkomu sína að mestu leyti á náttúrunni, eiga ekkert boðlegt náttúrufræðisafn. Einn þáttur í starfsemi slíks safns er að setja upp skyndisýningar þegar sérstakt tilefni gefst. Slíkt tilefni er af- hending þjóðargjafar Bandaríkja- manna til íslendinga, en hún er, eins og kunnugt er, sneið af 1300 gömlu rauðviðartré. Sneiðinni er ætlað að vera til sýnis í náttúru- fræðisafni íslendinga, en þar til að slíkt safn rís verður hún höfð í anddyri Háskólabíós. Náttúrufræðidagurinn, sunnu- dagurinn 24. nóvember, verður einmitt haldinn þar frá kl. 10.00 til kl. 12.30. Þa rmun kenna ýmissa grasa. Rauðviðurinn og risafuran, frænka hans, verða kynnt. Vitað er um risafuru sem orðin er 3500 ára gömul og er enn að vaxa. Broddfuran verður þó elst allra lífvera, yfir 4000 ára gömul. Broddfuran vex hér á landi. Þarna verða sýnd barrtré, allt frá fræjum og upp í stálpaðar plöntur, ennfremur steingervingar af íslenskri risafuru o.fl. Þeir sem eiga plöntusteingervinga í fórum sínum geta fengið aðstoð sérfræð- inga við að greina þá. Haraldur Ágústsson sýnir hluta af hinu þekkta viðarsafni sínu. „Safnverð- ir“ verða Sigurður Blöndal, skóg- ræktarstjóri, Þórarinn Bendikz, skógfræðingur, Jón Gunnar Ottós- son, líffræðingur, Haraldur Ágústsson, kennari, og Leifur Símonarson, jarðfræðingur. Sýn- ingargestir fá að sjálfsögðu sýn- ingarskrá í hendurnar. Verið öll velkomin. Ahugahópur um byggingu náííúrufrauói.safn.s. Stuttar þingfréttir: Nefnd kanni réttar- áhrif tæknifrjóvgunar ÞINGMENN úr öllum flokkum hafa lagt fram í Sameinuðu þingi tillögu til þingsályktunar um réttaráhrif tæknifrjóvgunar. í tillögunni segir, að Alþingi álykti „að skora á dómsmálaráð- herra að skipa nú þegar fimm manna nefnd til að kanna réttar- áhrif tæknifrjóvgunar og gera til- lögur um hvernig réttarstaða aðila verði ákveðin". Gert er ráð fyrir því, að dóms- málaráðherra skipi formann nefndarinnar án tilnefningar, tveir nefndarmenn verði skipaðir samkvæmt tilnefningu Lögmanna- félags íslands, einn samkvæmt tilnefningu læknadeildar Háskóla íslands og sé hann sérfræðingur í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp, og einn nefndarmaður verði skip- aður samkvæmt tilnefningu Barnaverndarráðs íslands. Ætlast er til þess að nefndin ljúki störfum áður en næsta löggjafarþing kem- ur saman. í greinargerð með tillögunni segir, að yfir 50 íslensk börn hafi verið getin með tæknifrjóvgun, langflest með sæði óþekktra manna. Tæknifrjóvgun sé nú framkvæmd á kvennadeild Landspítalans og hafi Jón Hilmar Alfreðsson, sérfræðingur í kven- sjúkdómum og fæðingarhjálp, umsjón þessara aðgerða með hönd- um. Enn fremur segir í greinargerð- inni: „Sú vinnuregla hefur verið viðhöfð til þessa að aðgerðin er einungis gerð á konum í hjóna- bandi og með skriflegu samþykki eiginmanns. Ástæðan fyrir því er sú að samkvæmt íslenskum lögum er eiginmaður konu faðir barns h’ennar nema það sé vefengt og annað sannað. Sú spurning hlýtur hins vegar að vakna hver réttar- staða aðila sé ef til vefengingar kæmi, t.d. við skilnað hjóna eða í erfðamáli. Á það hefur ekki reynt og engin lög eða reglugerðir eru til í landinu sem kveða skýrt á um hana. Er ekki síst ástæða til að huga að réttarstöðu þegar sæðis- gjafi er ókunnur eða að eigin mati óskuldbundinn." Þá flytja þingmennirnir Jón Baldvin Hannibalsson, Ellert B. Schram, Guðmundur Einarsson og Guðrún Helgadóttir frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum. Frumvarpið gerir ráð fyrir því, að ákvörðunarvald um vínveitinga- leyfi verði lagt í hendur sveitar- stjórna í stað dómsmálaráðherra. Frumvarpið felur einnig í sér, að svokölluð matsnefnd veitingahúsa hætti störfum, enda enda séTiún óþörf eftir að matið er lagt í hend- ur sveitarstjórna. í greinargerð flutningsmanna segir, að ákvarð- anir um vínveitingaleyfi sé eðli- legra að taka í einstökum sveitar- stjórnum í samræmi við hug- myndir um valddreifingu, sem nú séu ríkjandi hér á landi. Sveitar- stjórnir standi nær hinum al- menna borgara en ráðherra, sem oft á tíðum sé ókunnugur stað- háttum. Þá hafa verið lagðar fram þrjár fyrirspurnir til ráðherra í Samein- uðu þingi. Hjörleifur Guttormsson (Abl.) spyr menntamálaráðherra: „Hvað veldur því að frumvarp til nýrra þjóðminjalaga, sem boðað var að yrði flutt á 106. löggjafar- þingi 1983—1984, hefur ekki enn verið lagtfram?" Kristín S. Kvaran (BJ) spyr fjár- málaráðherra um kostnað við utanlandsferðir alþingismanna, ráðherra og starfsmanna ráðu- neyta frá 26. maí 1983 til 20. nóv- ember 1985. Óskað er eftir að svarið sé sundurliðað eftir einstök- úm ferðum, getið sé tilefnis ferða- lagsins, nafna þeirra sem fóru utan og hve lengi ferðin stóð. Einnig að kostnaður við hverja ferð sé sundurliðaður í ferðakostn- að og dvalakostnað. Loks spyr Sveinn Jónsson (Abl.) sjávarútvegsráðherra um rekstur Síldarverksmiðja ríkisins. Er m.a. spurt um afkastagetu verksmiðj- anna, afurðir og verðmæti þeirra, endurbætur og nýjungar og starfs- mannafjölda og heildarlauna- greiðslur. Fyrirspurnir Kjartan Jóhannsson (A) spyr samgönguráðherra, hvað heildar- kostnaður við nýframkvæmdir í Bakkafjarðarhöfn sé orðinn mikill, hvernig framkvæmdir hafi verið fjármagnaðar, hver sé áætlaður heildarkostnaður við að ljúka framkvæmdum? Kjartan Jóhannsson spyr enn- fremur viðskiptaráðherra, hvort ráðuneytinu hafi borizt ósk frá eigendum Sjóla GK um heimild til kaupa á öðru skipi í stað togarans sem gereyðilagðist í bruna og hvort slíkri beiðni hafi verið svar- að? Svavar Gestsson og Skúli Alexand- ersson (Abl.) spyrja félagsmálaráð- herra um skerðingu á tekjum Jöfn- unarsjóðs sveitarfélaga vegna Innheimtustofnunar sveitarfélaga o.fl.? Guðrún Agnarsdóttir (Kvl.) spyr menntamálaráðherra hvað líði framkvæmd könnunar á því hvern- ig hagkvæmast sé' að auðvelda skólum aðgang að námsgögnum, kennslutækjum og hjálpargögnum íöllum fræðsluumdæmum, saman- ber þingályktunar þar um? Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim er glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og kveðjum á 75 ára afmæli mínu k- nóvember si Bestu kveðjur til ykkar allra. Lifiö heil. Ragnar Magnússon, Víkurbraut 54, Grindavík. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu- mér hlýhug og glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og heillaóskaskeytum í tilefni áttræð- isafmælis míns 5. nóvember sl. Guð blessi ykkur öll. Alfons Oddsson, Mávahlíð 8, Reykjavík. Söngskemmtun í Hlégarði í dag kl. 16.00 Ólafur Magnússon syngur viö undirleik Jónasar Ingimundarsonar. Aðgöngumiðar við innganginn. Menningarmálanefnd Mosfellssveitar KR konur halda sinn vinsæla kökubasar í félags- heimili KR vid Frostaskjól sunnudaginn 24. nóvember kl. 14.00. ekinn aöeins 29.000 mílur, á álfelgum og nýlegum hjólböröum. 8 stálfelgur fylgja meö ásamt nokkrum sæmilegum hjólbörðum. Blaupunkt-kassettutæki. Líklega einn besti bíllinn á landinu af þessari árgerö. Bíl þennan er hægt að fá á sæmilegum kjörum. Kristján P. Guðmundsson, Akureyri. Sími 96-23876. Wagoneer 1979 Bladburóarfólk óskast! fHtfgmiÞIatoifc Austurbær Óðinsgata Hverfisgata65—115 Vesturbær Gnitanes, Skerjafirði Úthverfi Hvassaleiti 1 —117 Miðbær Austurstræti Hafnarstrætio.fl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.