Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 27
Hungursvæðin í Afríku MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER1985 27 Hörmungarnar heimatilbúnar — segja kanadískir vísindamenn New York, 21. oóvember. AP. BANDARÍSKIR vísindamenn halda því fram að hörmungarnar á hungur- svsðunum í Eþíópíu séu að miklu leyti heimatilbúnar, en ekki vegna þurrka. Þeir segja neyðarhjálp að- eins til að gera illt verra. Vísindamennirnir segja ástand- ið á þurrkasvæðunum svo slæmt að útilokað sé að landið geti brauð- fætt íbúana. Ástand svæðanna geti hugsanlega valdið veðurfars- breytingum. Að sögn vistfræðinganna Anthi- onys Sinclair og Johns Fryxwell frá háskóla Bristish Columbia í Vancouver í Kanada er vandi þurrkasvæðanna sá að þar búa miklu fleiri menn og skepnur en landið getur hugsanlega borið. Þurrkasvæðin séu ofbitin og þar engan gróður lengur að finna. “Það leysir engan vanda að gefa fólkinu að borða. Það gerir í raun illt verra, því hætt er við að íbú- arnir færi sig aðeins um set og raski gróðurfari þar. Neyðin mun því breiðast til nýrra svæða. Það verður að gripa til annarra ráð- stafana samtimis, og þar er fyrst að nefna gróðurinn. Það verður að rækta graslendið upp, koma gróðr- inum af stað aftur. Það verður því að fækka fólki á svæðunum, flytja það brott, og létta álaginu á landinu," segja vísindamennirnir í grein um ástandið á hungursvæð- unum sunnan Sahara í Afríku, einkum í Eþíópíu. Svíþjóö: Gervihjarta- þeginn látinn Stokkhólmi, 21. nóvember. AP. LEIF Steinberg, sænski kaupsýslu- maðurinn sem varð fyrstur manna utan Bandaríkjanna til að fá gervi- hjarta, lést í morgun. Steinberg var 53 ára að aldri og gekkst undir hjartaaðgerðina á Kar- olinska- sjúkrahúsinu í Stokkhólmi á síðustu páskum. Hann hafði a.m.k. einu sinni fengið heilablóðfall. Steinberg, sem var umdeildur mjög í Svíþjóð, var fjórði maður- inn í heiminum til að fá bandarískt Jarvik-7-hjarta. Eftir að hann hafði fengið heilablóðfall í sept- embermánuði síðastliðnum, fór honum best fram allra þeirra, sem fengið höfðu slíkt hjarta. Síðan versnaði líðan hans smám saman. Síðdegis í gær átti Steinberg við öndunarerfiðleika og blóðrásar- truflanir að stríða og lést hann um hádegisbil. Þessi stórglæsilegu borðstofusett eru nú komin og6stólaráaöeinskr. 37.500.-S^L Viö bjóðum einnig hagkvæm greiðslukjör. Húsgagnasýning sunnudag 1—4 Bláskógar Ármula «. S. 686080 — 886244.'—' Noregur: Kafbátshvarf upp- lýsist eftir 42 ár Osló, 22. nóvember. l'ri Jan Erik Laure, frétta ritara Morirunblaósins. Vitað er nú hver urðu örlög norska kafbátsins „Uredd“, sem hvarf á stríðsárunum. Kafarar fundu hann fyrir skömmu á fjarðar- botni suðvestur af Bodö í Norður- Noregi. Um borð í kafbátnum voru 33 menn, þrír Bretar, sex skemmd- arverkamenn úr norska „Linge- herflokknum" og einn maður frá norsku leyniþjónustunni. Var ætlunin að læðast inn fjörðinn og koma skemmdarverkamðnn- unum á land en þeir áttu að sprengja upp orkuver. Til bátsins spurðist hins vegar aldrei og norsku andspyrnumennirnir i Bretlandi voru vissir um, að hann hefði lent á þýsku tundurdufli. Þeir höfðu rétt fyrir sér í því. Kafarar frá sjóhernum hafa fundið bátinn á 100 metra dýpi og er stórt gat á síðunni. Á sínum tíma voru menn ekki á eitt sáttir um að senda kaf- bátinn inn fjörðinn. Það var nefnilega vitað, að Þjóðverjar ætluðu að girða hann af með tundurduflum en flestir hölluð- ust að því, að þeir hefðu ekki gert það enn. Á þýskum kortum frá stríðsárunum sést þó, að fjörðurinn var rammlega girtur þegar báturinn hvarf. Staðurinn þar sem „Uredd" liggur verður nú færður inn á sjókort sem „stríðsgröf" og segir yfirmaður norska sjóhersins, að hinir látnu muni áfram fá að hvíla í sinni votu gröf. í mars nk. verður haldin minningar- guðsþjónusta um borð í skipi á firðinum og ættingjum kafbáts- mannanna boðið. Auðugar gullnámur finnast í Súdan Khartoum, Súdan, 21. nóvember. AP. AUÐUGAR guilnámur bafa fundist í austurhéruðum Súdan, sem gera þaó að verkum að landið verður í hópi með auðugum Afríkuríkjum í framtíðinni aó sögn ráðherra í súdönsku ríkisstjórninni. Frá þessu er skýrt í stuðnings- blaði ríkisstjórnarinnar, Al-Ayan, í viðtali við orku- og námumála- ráðherrann, Abdul-Aziz Osman. Sagði Osman að vinnsla i námun- um myndi hefjast eftir fjögur ár, en hann sagði ekki frá því hversu auðugar þær væru taldar, né hvar þær væru nákvæmlega. Sagði hann að súdönsk fyrirtæki yrðu fengin til námugraftarins I sam- vinnu við ríkisstjórnina og Súdan- ir myndu sjálfir vinna þær án aðstoðar erlendis frá. Súdan er víðlendasta ríki Afríku með 22 milljónir íbúa. Þar ríkir óskapleg fátækt vegna þurrka og efnahagslegrar óstjórnar. „Fund- urinn mun hleypa lífi í hagkerfi Súdan og koma því í röð ríkra Afríkuríkja. Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík dagana 24. og 25. nóv. ’85 Atkvæðisrétt etga: Allir íélagsbundnir sjálfstæöismenn í Reykjavík sem þar eru busettir og náö hafa 16áraakfrí próf- kjörsdagana. Þeir stuöningsmenn Sjálfstæöisflokksins sem eiga munu kosningarétt í Reykjavík viö borgarstjómar- kosningar, þ.e. veröa 20 ára 31. maí 1986 og undirritað hafa inntökubeiöni i sjálfstæöisfélag fyrír lok kjörfundar. Hvemigáaðkósa: Kjósa skal fæst 8 frambjóöendur og flest 12. Skal það gert meö því aö setja tölustaf fyrir framan nöfn frambjóöanda í þetrrí röö sem óskaö er aö þeir skipi endanlegan framboöslista Þannig skal talan 1 sett fyrir framan nafn þess frambjóöanda sem óskaö er aö skipi fyrsta sæti framboðslistans, talan 2 fyrir framan nafn þess frambjóöanda sem óskaö er aö skipi annað sæti framboöslistans o.afrv. Kjósið í því hverfi sem þér hafið nú búsetu L Ef þér hafiö flutt til Reykavíkur eftir 1. des. 1984 og aetliö aö gerast flokksbundin, þurfiö þér aö framvísa vottoröi frá Hagstofunni sem staðfestingu á lögheimili í Reykjavik. KJÖRSTAÐIR VERÐA OPNIR SEM l€R SEGIR: Sunnudaginn 24. nóvember á 4 kjörstöðum í 5 kjörhverfum fiá kl. 10-20. 1. kjörhverfi: Nes- og Mela-, Vestur- og Miöbæjar-, Austurbæjar- og Norðumiýrarhverli. öll byggö vestan Rauöarárstigs aö MMubrauL KJÖRSTAÐUR HÓTEL SAGA — LÆKJARHVAMMUR. 2. kjörhverfc Hlíöa- og Holta-, Laugames og Langholtshverfi. Ö« byggö er afmarkast af 1. kjörtrverfi í vestur og suöur. 0« byggö vestan Knngkjmýrarbrautar og noröan Suðuriaxte- brauta' KJÖRSTAÐUR VALHÖLL, HÁALEmSBRAUT 1, VESSTURSALUR, 1. HÆÐ. 3. kjörtiverfi: Háaleitis- og Smáíbúöa-, Bústaöa- og Fossvogshverfi. Hverfiö afmarkast af Kringtumyrarbraut í vestur og Suö- uriandsbraut í noröur. KJÖRSTAÐUR VALHÖLL, HAALEITtSBRAUT 1, AUSTURSALUR. 1. HÆO. 4. kjörtiverfc Arbæjar- og SeÉáshverfi, Artúnshoit og Grafarvogur og byqqö Reykjavókur noröan Bfcöaáa K JORSTAÐUR HRAUNBÆR KBB, SUÐURHUÐ. 5. kjörhvertc Breiöhoitshverfin.ÖllbyggðíBreiöhoiti. KJÖRSTAOUR MENNMGARMÐSTÖÐM VtÐ GERÐUBERG. Muniö! Númera skal viö fæst 8 og flest 12 frambjóóendur. Mánudagmn 25. nóvember frá kL 14-21 í Valhofl, Háalertisbraut 1. CHI kjörtiverfin saman.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.