Morgunblaðið - 23.11.1985, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER1985
BVS6A6NABÖLLIN
BÍLDSHÖFDA 20-110 REYKJAVÍK* 91-81199 og 81410
Prófkjör er tækifæri til
að hafa áhrif á framboðs-
lista sjálfstæðismanna
— eftir Björgu
Einarsdóttur
Prófkjör til undirbúnings fram-
boðslista sjálfstæðismanna í borg-
arstjórnarkosningunum í vor fer
fram sunnudaginn og mánudaginn
24. og 25. nóvember næstkomandi.
Prófkjörið er undirbúningur og
upphitun fyrir það átak sem sjálf-
ar kosningarnar eru.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík
einbeita sér að því að borgin verði
áfram undir gifturíkri stjórn
meirihluta borgarfulltrúa úr
þeirra röðum. Með núverandi borg-
arstjóra, Davíð Oddsson, í sæti
númer eitt á prófkjörsseðli og
ásamt honum flokk hæfra kvenna
og karla verður auðveldara að ná
því marki.
Prófkjörið er tækifæri til að
hafa áhrif á skipan framboðslist-
ans í næstu borgarstjórnarkosn-
ingum og þar með á úrslit þeirra
kosninga. Það tækifæri geta þeir
notað sem eru flokksbundnir sjálf-
stæðismenn eða gerast flokks-
bundnir fyrir lok kjörfundar
klukkan 22:00 á mánudagskvöldið.
Frambjóðendur eru 34 talsins,
20 karlar og 14 konur. Það er jafn-
asta hlutfall kynja til þessa í fram-
boði á vegum Sjálfstæðisflokksins.
Nú er í fyrsta skipti unnt að velja
úr nærri jafnfjölmennum hópi
kvenna og karla. Sennilega hafa
ekki allir væntanlegir kjósendur i
prófkjörinu gert sér þá staðreynd
fullljósa.
Til þessa hafa prófkjörslistar að
stærsta hluta verið skipaðir körl-
um og síðan nokkrar konur fyllt
fiokkinn. Kjósendur hafa því hing-
Björg Einarsdóttir
„Frambjóöendur eru 34
talsins, 20 karlar og 14
konur. ÞaÖ er jafnasta
hiutfall kynja til þessa í
framboði á vegum Sjálf-
stæÖisflokksins.“
að til haft lítið val þegar þeir vildu
kjósa konur.
Framboðið nú er því tímamót
fyrir kjósendur. Og á það reynir,
hvort kjósendur eru þeim vanda
vaxnir að velja þannig að útkoman
verði pólitísk skírskotun sem hæfir
í nútíma.
í daglegu lífi skipa konur og
karlar sér hlið við hlið í námi og
starfi. Það er lífsmynstur sem til-
heyrir lifnaðarháttum nútíma-
fólks. Tækifæri til að tryggja að
það lífsmynstur endurspeglist í
skipan borgarfulltrúa sjálfstæðis-
manna næsta kjörtímabil, er við
val og númeringu frambjóðenda á
prófkjörsseðli núna.
Frjálst val er ævinlega vanda-
samt og ábyrgð þess sem velur
jafnan mikil. Mín skoðun er að
heilbrigð skynsemi segi kjósendum
í prófkjöri nú að því aðeins verði
valið frjálst og lýðræðislegt, póli-
tískt sterkt og nútímalegt að
samskipan kynjanna verði sem
jöfnust á framboðslistanum.
í hópi þeirra sem nú gefa kost
á sér í prófkjöri er úrval mætra
manna, karla og kvenna. I röðum
kvennanna eru konur sem hafa
sýnt hæfni sína í starfi sem borg-
arfulltrúar og jafnframt konur
sem taka þátt í prófkjöri í fyrsta
sinn.
Ekki má henda kjósendur í próf-
kjörinu í Reykjavík að þeir þekki
ekki vitjunartíma sinn. Þeir hljóta
að tryggja þeim hæfu konum sem
nú eru í framboði örugg sæti.
Þannig stuðla þeir að því að for-
skot Sjálfstæðisflokksins umfram
aðra flokka varðandi brautargengi
kvenna haldist.
Leiðin til þess er að velja sem
jafnast úr því einvala liði sem er
í boði — og þá sem við styðjum
númerum við framarlega á próf-
kjörseðlinum. Einfaldlega af því
að það vegur þyngst.
Uöfundur í sæti ímiðstjórn Sjilf-
stæðisflokksins og er formaður
jafnréttisnefndar Reykja ríkurborg-
ar yfirstandandi kjörtímabil.
Tryggjum Guðmundi Hall-
varðssyni öruggt sæti
— eftir Sigurjón
Jónsson
Það er jafnan svo þegar velja á fólk
til að gegna trúnaðarstörfum, að
á miklu veltur að til þeirra starfa
veljist hæft og duglegt fólk, en
einnig að það veljist drengskapar-
fólk.
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
vegna borgarstjórnarkostninga er
mikið mannval í framboði. Það er
því ljóst að hvernig sem kosningar
fara verður listinn skipaður dug-
miklu hæfileikafólki. Engu að síð-
ur eru þeir einstaklingar sem í
kjöri eru á margan veg fulltrúar
ólíkra hópa og með mismunandi
reynslu að baki.
Með þessum línum mínum vil ég
vekja athygli á einum þeirra hæfi-
leikamanna sem nú taka þátt í
prófkjöri, Guðmundi Hallvarðs-
syni formanni Sjómannafélags
Reykjavíkur. Hann hefur með
störfum sínum öðlast innsýn og
reynslu af sjávarútvegs- og sigl-
ingamálum, en ekki síður af félags-
málum. Síðasta kjörtímabil hefur
Bókaflokkur
fyrir byrjend-
ur í lestri
SKJALDBORG hefur geflð út sex
bækur eftir Knud Hermansen í þýð-
ingu Önnu Dóru Antonsdóttur. Hér
er um bókaflokk að ræða og heitir
hann „Byrjum að lesa bækur“.
Guðmundur Hallvarðsson
hann verið varamaður í borgar-
stjórn og varaformaður í hafnar-
stjórn. Hann á sæti í stjórn Sjó-
mannasambandsins og í miðstjórn
ASÍ, í stjórn Sjómanndagsins og
Eins og nafn bókaflokksins
bendir til, eru bækurnar ætlaðar
byrjendum í lestri. Bækurnar
heita; Þjófarnir og svínslærið,
Dagur í lífi Busa, Þrír Tommar
og api sá fjórði, Sámur, Hámur
og Glámur, Lína og Litli grái
maðurinn.
Bækurnar eru myndskreyttar.
Þær eru unnar í prentsmiðju
Björns Jónssonar.
„MeÖ þessum línum
mínum vil ég vekja at-
hygli á einum þeirra
hæfileikamanna sem nú
taka þátt í prófkjöri,
Guðmundi Hallvarðs-
syni formanni Sjó-
mannafélags Reykjavík-
ur.“
Hrafnistuheimilanna. Hann gjör-
þekkir því stöðu þeirra sem vinna
að grundvallaratvinnuvegum þjóð-
arinnar og þeirra sem nú hafa lagt
starfsdaginn að baki, skapað
grundvöll að velsæld okkar tíma,
en eiga í mörgum tilvikum fá skjól,
þegar elli og sjúkdómar steðja að.
Slíkur fulltrúi, sjávarútvegs, sigl-
inga og félagsmála, er ekki einung-
is traustur fulltrúi umbjóðenda
sinna svo mikilvægt sem það er,
hann er einnig sterk stoð því fríða
liði sem mun skipa sæti á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins í
næstu borgarstjórnarkosningum.
Og þó að það þyki ef til vill gamal-
dags þá má gjarnan benda á og
undírstrika að hann er drengur
góður. Mörgum okkar sem nú eru
komnir á fullorðins ár þykir það
drýgst trygging til farsælla starfa.
Því hvet ég alla sem þátt taka í
prófkjörinu næstkomandi sunnu-
dag að tryggja Guðmundi Hall-
varðssyni öruggt sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins.
Höfundur er fyrrverandi formaður
Félags jirniðnaðarmanna.