Morgunblaðið - 23.11.1985, Síða 16
16
MORGUNBLÁÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER1985
Nýjar leiðir
— eftir Margréti
Jónsdóttur
Starf borgarfulltrúa í Reykjavík
felur ekki hvað síst í sér stefnumörk-
un í opinberri þjónustu. Stór hluti
þeirra verkefna sem Reykjavíkurborg
tekur að sér að sinna, flokkast undir
samgæði, þ.e. gæði sem af ýmsum
ástæðum eru þess eðlis að einstakl-
ingarnir verða sér ekki út um þau
með viðskiptum hver við annan. Þar
má nefna ýmsa þætti skipulags-,
samgöngu- og auk þess hluta svo-
nefndra félagsmála, þ.e. heilbrigðis-
og menntamála. Á hinn bóginn er um
að ræða verkefni sem einstaklingarn-
ir sjálfir annast óumdeilanlega, fast-
eignaþjónustu, bílaþvott og matvæla-
framleiðslu og kalla má einkagæði.
Þrátt fyrir að stundum sé augljóst
hvað flokkast til samgæða og hvað
til einkagæða, er í öðrum tilfellum
ákaflega erfitt að kveða þar upp
endanlegan dóm. Sum þjónusta, til
dæmis menntun, er í eðli sínu hvort-
tveggja einka- og samgæði.
Sumir hafa haldið því fram að í
öllum tilfellum bæri því opinbera að
sjá um að fjármagna og veita þau
gæði sem flokkast til samgæða.
Gagnstætt þessu benda aðrir á já-
kvæða reynslu þess opinbera á út-
boðum á opinberri þjónustu, þar sem
einstaklingar taka að sér að veita
þjónstuna sem áfram er fjármögnuð
af opinberu fé.
Það er því ljóst, að starf borgarfull-
Ámi Sigfússon
„Árni Sigfússon er slík-
ur maður. Því hvet ég alla
eldri sjálfstæðismenn til
að líta til framtíðar og
tryggja að þekking og nýj-
ar hugmyndir Árna Sig-
fússonar nýtist og tryggja
honum því öruggt sæti á
framboðslista flokksins
við næstu borgarstjórnar-
kosningar.“
trúa að stefnumörkun í opinberri
þjónustu sem verður meðal annars
að taka til áðurgreindra atriða, er
engan veginn auðvelt starf og krefst
í senn mikillar yfirsýnar og djúptæks
skilnings. Sú stefna sem mörkuð er
hverju sinni snertir óhjákvæmilega
viðkvæmustu þætti mannlegs lífs;
öryggi og afkomu fjölskyldna, sjálfs-
virðingu og frelsi einstaklinganna.
Mikið veltur því á að rétt sé á haldið.
Forsenda góðs árangurs í þessu starfi
er að fram komi sífellt nýjar hug-
myndir til lausnar og að þær takist
á viðeldri skoðanir.
Árni Sigfússon fyrrverandi for-
maður Heimdallar gerði í Morgun-
blaðinu fyrir skömmu, ítarlega grein
fyrir vanda þess sem markar stefnu
í opinberri þjónustu; benti á nýjar
leiðir til lausnar gömlum vanda og
færði góð rök að þeim leiðum sem
hann kýs helst að fara.
Engum sjálfstæðismanni dylst að
meirihlutastjórn sjálfstæðismanna í
borgarstjórn Reykjavíkur er einn af
hornsteinum Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðismenn hafa því í gegnum
tíðina sótt nýtt og ferskt blóð í raðir
ungra sjálfstæðismanna, menn sem
hafa áunnið sér víðtækan stuðning
þar og traust, til að tryggja ferskleika
hugmynda og fyrirbyggja stöðnun.
Árni Sigfússon er slíkur maður.
Því hvet ég alla eldri sjálfstæðismenn
til að líta til framtíðar og tryggja að
þekking og nýjar hugmyndir Árna
Sigfússonar nýtist og tryggja honum
því öruggt sæti á framboðslista
flokksins við næstu borgarstjórnar-
kosningar.
Höfundur er laganemi og er ritari
stjórnar Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna.
Nýju hverfin
— eftir Guðrúnu
Zoéga
Skipulag Kvosarinnar hefur ný-
lega verið kynnt. Kvosin er í hjarta
Reykjavíkur og sjálfstæðismönn-
um hefur verið vel ljóst, að líkami
án heilbrigðs hjarta er ekki upp á
marga fiska. Gamla miðbæinn ber
þvi að efla og styrkja. En jafnhliða
því sem við hyggjum að gamla
kjarnanum verðum við líka að
gæta að eðlilegri uppbyggingu
nýiu hverfanna.
I Reykjavík hefur mikið verið
byggt á undanförnum árum. Ný
hverfi hafa risið og er þeirra
stærst Grafarvogshverfið. Annars
staðar í borginni gefur líka hvar-
vetna að líta hús í byggingu, hálf-
byggð og nýbyggð hús blasa við.
Gestum, sem hingað koma, finnst
mikið til um stórhug okkar. En
skyldi vera jafn mikil gróska í
þessum og í fljótu bragði mætti
ætla? Ef hinir sömu gestir koma
hingað oftar, sjá þeir, að þetta eru
sömu húsin, sem verið er að byggja
ár eftir ár. Sömu hverfin eru hálf-
byggð árum saman. Sannleikurinn
er sá, að hús á íslandi eru óvenju
lengi í smíðum, og mig grunar, að
meðalbyggingartími nú sé lengri
en fyrir t.d. 30 árum, þrátt fyrir
tæknilegar framfarir, sem orðið
hafa á þessum tíma.
Guörún Zoega
„Sjálfstæöisflokkurinn í
borgarstjórn á að leita
allra leiða til að stytta
byggingartíma og hraða
frágangi á nýjum hverf-
um og ganga þannig frá
byggðum og óbyggðum
svæðum innan borgar-
innar, að þau verði íbún-
um til ánægju og borg-
inni til sóma.“
LISTAHÁTÍÐ UNGA FÓLKSINS
Kjarvalsstöðum 10.-20. janúar 1986
Reykjavíkurborg býður ungu fólki afnot af Kjarvalsstöðum
í tilefni 200 ára afmælis borgarinnar. Listahátíð unga fólksins á Kjarvalsstöðum í
janúar 1986 verður vönduð sýning þar sem myndlist, tónlist, leiklist, handlist, myndbönd o.fl.
verður undir einum hatti á einni stórri sýningu.
Allt ungt fólk á aldrinum 15-22 ára er hvatt til að
senda inn verk á listahátíðina. Nefnd skipuð fulltrúum
þeirra félaga sem standa að sýningunni,
velur þau verk sem sýnd verða.
Félag áhugaljósmyndara,
Félag íslenskra hljómlistarmanna,
Félag íslenskra leikara,
Samtök áhugamanna um kvikmyndagerö,
Samband mynd- og handmenntakennara.
ÍÞRÓTTA- OG
TÓMSTUNDARÁÐ
lh
,vt vóoV'S^ *\
Efnt verður til sýninga á
verkum ungs fólks
á Kjarvalsstöðum.
\
Ástæður fyrir þessu eru margar.
Ein þeirra er fjárskortur. Áuk
þess kjósa margir að vinna mikið
sjálfir við hús sín og spara með
því nokkurt fé. Fyrirkomulag á
greiðslu lána Húsnæðisstofnunar
ríkisins er sízt til þess fallið að
bæta úr þessu, en nú tíðkast, að
siðasti hluti þeirra komi til út-
borgunar einu til einu og hálfu ári
eftir að húsið er fokhelt. Margir
virðast ekki gera sér grein fyrir
því, að það kostar peninga að hafa
fé bundið í hálfköruðum bygging-
um, sem ekki gefa arð, og verða
þær því dýrari en ella þyrfti að
vera.
Þessi langi byggingartími gefur
nýju hverfunum og þar með borg-
inni allri leiðinlegan svip. En hvað
geta borgaryfirvöld gert til að
bæta úr þessu? Húsnæðislán eru
ekki á valdsviði borgarstjórnar og
verður Sjálfstæðisflokkurinn því
að beita sér á öðrum vettvangi til
að koma þeim málum í betra horf.
Ýmislegt er þó hægt að gera til
að bæta yfirbragð borgarinnar.
Hraða ber frágangi meðfram göt-
um og á sameiginlegum svæðum,
svo sem leiksvæðum, en þau vilja
stundum gleymast. Vill því veða
hálfgerður gullgrafarabragur á
allt of lengi, eða þar til einhver
uppgötvar að þarna er auð lóð, sem
tilvalið er að byggja á. Frágang
slíkra sameiginlegra svæða á að
bjóða út eins og aðrar fram-
kvæmdir á vegum hins opinbera.
Kostnaður greiðist af gatnagerð-
argjöldum, en upphæð þeirra
miðist við að þau dugi til að gera
hverfin vel íbúðarhæf.
Það eru ekki mjög mörg ár síðan
farið var að malbika götur í nýjum
hverfum, áður en farið var að
byggja, og eru allir sammála um
hve stórt framfaraspor það var.
Bílarnir eru okkar mikilvægasta
samgöngutæki og verða göturnar
að vera góðar. Umferð gangandi
og hjólreiðamanna má þó ekki
gleymast, en nokkuð finnst mér á
það skorta, að henni sé nægur
gaumur gefinn. Gangstfgar sitja á
hakanum á sama hátt og leiksvæð-
in, enda þótt þeir séu jafn nauð-
synlegir gangandi fólki og göturn-
ar eru bílunum.
Sjálfstæðisflokkurinn í borgar-
stjórn á að leita allra leiða til að
stytta byggingartíma og hraða frá-
gangi á nýjum hverfum og ganga
þannig frá byggðum og óbyggðum
svæðum innan borgarinnar, að þau
verði íbúunum til ánægju og borg-
inni til sóma.
Höfundur er rerkfræóingur í
Reykjavík.