Morgunblaðið - 06.12.1985, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER1985
37
Aðalfundur íslendingafélagsins
í Kaupmannahöfn:
Fjárveiting til bóka-
safnsins í Jónshúsi að-
eins 15 þúsund krónur
Jonshusi, 25. nóvember.
NÝLEGA var aðalfundur íslend-
ingafélagsins í Kaupmannahöfn
haldinn í Jónshúsi. Félagið á starf-
samt ár að baki undir handleiðslu
fyrstu kvennastjórnar þess og hafa
félagar látið í Ijós ánægju með störf
hennar. Hélt stjórnin 14 fundi á ár-
inu og sá um fasta liði, svo sem 17.
júní hátíðahöld, sumardaginn fyrsta,
þorrablót og jólatrésskemmtun fyrir
börn. Hefur og samstarf íslenzku
félaganna tveggja hér í borg verið
hið bezta.
í stjórninni eru áfram 7 konur
og varð sú breyting ein, að Áslaug
Svane gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs og var Erla Eiríksdóttir
kosin í hennar stað. Er stjórn ís-
lendingafélagsins þannig skipuð:
Bergþóra Kristjánsdóttir formað-
ur, Guðrún Valdimarsdóttir vara-
formaður, Kristín Oddsdóttir
Bonde ritari, Sigrún J. Brunhede
gjaldkeri, Kristjana L. Rasmussen
spjaldskrárritari, Guðrún Eiríks-
dóttir og Erla Eiríksdóttir með-
stjórnendur. Fulltrúi félagsins í
hússtjórn Jónshúss er áfram Berg-
þóra formaður og í félagsheimilis-
nefnd sitja Guðrún E. og Guðrún
V. fyrir félagið. Þá eru Sigrún og
Erla fulltrúar í svæðisstjórn SlDS.
Bókasafnið á þriðju hæð Jóns-
húss er í eigu og um ’já Islendinga-
félagsins. Kristín Oddsdóttir
Bonde bókasafnsfra ðingur er
bókavörður, en í bókasafnsnefnd
er gjaldkeri félagsins, íslenzki
lektorinn og Sigríður Sigurjóns-
dóttir kennari. Metaðsókn var að
bókasafninu á sl. ári, en fjárskort-
ur háir því mjög og eru öll störf
unnin í sjálfboðavinnu. Bókaaf-
greiðslu annast 4 konur hver sinn
sunnudag, en þá er safnið opið til
útlána frá kl.16—18 og eru það þær
Bergljót Ragnars, Elín Brynj-
ólfsdóttir, Guðrún S. Jakobsdóttir
og Sigrún J. Brunhede. Hefur
Kristín bókavörður lagt mikla alúð
við umönnun og eflingu bókasafns-
ins og sjást þess greinilega merkin.
Styrkur Alþingis til safnsins á sl.
ári nam aöeins fimmtán þúsund
íslenzkum krónum, og er það eina
beina fjárframlagið heiman að til
bókasafnsins. Aðalfundur íslend-
ingafélagsins lagði til, að ágóði
félagsins frá SÍDS af sölu flug-
miða á sl. ári renni að miklu leyti
til safnsins og að verja beri a.m.k.
helmingi af fjármagninu til kaupa
á bókum, sem lúta að námi á
grunnskóiastigi til að auðvelda
íslenzkum börnum í dönskum skól-
um að viðhalda móðurmálinu.
Styrkur Alþingis tvö síðastliðin ár
var eingöngu notaður til kaupa á
barnabókum, en hann var ekki
meiri en svo, að það urðu aðeins
30 bækur. Er augljóst, að auka
þarf fjárframlag til safnsins, en
það vill styðja viðleitni foreldra,
sem margir eru námsmenn hér, til
að halda íslenzku barnanna
hreinni.
Stefán Karlsson áérfræðingur
Árnastofnunar hélt fyrir skömmu
erindi um Guðmund biskup góða
á vegum íslendingafélagsins hér í
Jónshúsi. Rakti hann sögu Guð-
mundar góða og las upp úr Guð-
mundarbréfum. Var gerður mjög
góður rómur að máli hins þekkta
fræðimanns, sem dvalist hefur hér
í Höfn í rannsóknarleyfi í 4 mánuði
og unnið við Árnasafn. Fjörugar
umræður urðu á eftir erindinu,
einkum um sögu og guðfræði.
Á konukvöldi í nóvember var
margt til fróðleiks og skemmtun-
ar. Rósa Þorbjarnardóttir endur-
menntunarstjóri Kennaraháskóla
íslands ræddi um starf sitt og
vitnaði til ýmissa fyrirlesara, sem
hún hefur hlýtt á að undanförnu
í námsdvöl sinni hér í Kaup-
mannahöfn. Las hún einnig dönsk
og íslenzk ljóð og náði vel til áheyr-
enda sinna. Þá las Þórunn Guð-
mundsdóttir Ijóð eftir Stein Stein-
ar og Karlakór Kaupmannahafn-
ar, sem var á æfingu í húsinu þetta
kvöld, söng nokkur lög við fögnuð
áheyrenda.
• G.LÁsg.
KROSSGÁTA
LÁRÉTT: 1. frumum, 5. sérhljóðar,
6. ormar, 9. forfiidur, 10. fangamark,
11. ténn, 12. elBka, 13. huguA, 15.
kveikur, 17. salerni.
LÖÐRÉTT: 1. gott fólk, 2. kvendýr,
3. hlemmur, 4. veggurinn, 7. mjög,
8. beita, 12. vætlar, 14. vescl, 16.
fþróttafélag.
LAUSN SfnUSTlI KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: 1. maki, 5. alda, 6. gull, 7.
gí, 8. skipi, 11. tá, 12. úlf, 14. etja,
16. rakrar.
I/MIRÍTT: 1. magister, 2. kaldi, 3.
ill, 4. Laxá, 7. gil, 9. káta, 10. púar,
13. far, 15. jk.
1 2 3 4
■ ■
6 7
9 U”
11 w
13 m ■_
1 17 ■ '!> 16
Fréttabréf úr Breiðuvíkurhreppi:
Mikill ferðamannastraum-
ur á slæmum vegum
Rreiöuvíkurhreppi.
SÍÐASTLIÐIÐ sumar var með afbrigðum gott til sjós og lands, og man ég rædda fund og óska þeim alls hins *
ekki eftir svo mikilli veðurblíðu. Sumargrasspretta var góð og heyskapur besta í störfum sínum fyrir land
gekk mjög vel, hey eru því góð og mikil. Sauðburðurinn í vor gekk yfirleitt og lýð.
vel, fé sem kom til réttar í haust er fallegt og dilkar vænir.
Útgerð
Eins og ég hef áður getið um í
fréttum eru tvær fiskverkunar-
stöðvar hér í sveit, á Arnarstapa
og Stóra-Kambi. Þessar fiskverk-
unarstöðvar hafa tekið á móti á
sjötta hundrað tonnum af fiski,
mest af þessum fiski er veitt á
handfæri.
f Nú hefur verið stöðvun á fisk-
veiðum vegna fiskveiðibanns á
smábátum og eru flestir aðkomu-
bátar farnir og má því gera ráð
fyrir að lítill fiskur berist á land
á Arnarstapa til áramóta.
Búið er að endurbyggja bryggj-
una á Hellnum og er því verki lokið
fyrir nokkru, þá er nú lokið við
að steypa þekju ofaná bryggjuna
á Arnarstapa. Svo stendur til að
gera þar frekari hafnarbætur síð-
ar, sem er brýn nauðsyn, því að
smábátaeigendur fýsir mjög að
komast þangað til róðra.
Vegamál
Útnesvegur var í hrikalegu
ástandi í sumar. Gífurleg umferð
var um þennan veg, miklu meiri
en nokkurn tíma áður. Á þessari
leið hér framanundir jökli, sem
kallað er, eru margir staðir sem
ferðafólk hefur áhuga á að skoða,
Gjárnar og gatklettur við Austur-
stapa og ströndin við Hellna.
Lóndrangar og Þúfubjarg við
Malarrif, Djúpalón og Dritvík svo
nokkuð sé nefnt. Margt fólk kom
til mín í sumar og kvartaði sáran
yfir veginum og töldu margir hann
ekki keyrandi, sem ég tel rétt
mat. Þá töldu margir það furðulegt
að vegagerðin skyldi láta það við-
gangast að hafa veginn í svo slæmu
ástandi og það á mesta umferðar-
tíma ársins. Þessi umræddi vegur
var aldrei heflaður í sumar, enda
ekkert til að hefla nema grjót á
stórum hluta hans.
Lengi var búið að reyna að fá
veginn lagfærðan án árangurs. Svo
gerðist það síðar í september að
vegurinn var lagfærður, kaflinn
frá Arnarstapa að Malarrifi og
smákafli vestan Presthóla. Heflað
var að Gufuskálum. Þessi lag-
færing var til stórbóta þó ekki sé
hann góður, og betur má ef duga
skal.
Þessi lagfæring fékkst vegna
mikils þrýstings frá þingmönnum
okkar, hreppsnefnd og fleiri aðil-
um, og þeim bar að þakka sem
unnu að því að þessi lagfæring
fékkst á veginum. Þriðjudaginn 1.
október komu þingmenn Vestur-
landsumdæmis saman á fund með
hreppsnefnd Breiðuvíkurhrepps að
Arnarstapa til að ræða helstu
áhugamál hreppsnefndar og
hreppsbúa. Nokkrir hreppsbúar
utan hreppsnefndar sátu fundinn.
Friðjón Þórðarson alþingismað-
ur stýrði fundinum. Áður umrædd-
ur Útnesvegur var mikið til um-
ræðu. Allir þingmennirnir voru
sammála um að þessi vegur hefði
setið á hakanum mörg undanfarin
ár, og lögðu þeir áherslu á að vinna
bæri ötullega að því að fá veginn
stórbættan, fyrir sumar- og vetr-
arumferð og að valinn yrði góður
ofaníburður í veginn. Allir þeir er
tóku til máls á fundinum voru
sammála um, að það slæma ástand
sem hefur verið á Útnesvegi sé
ekki lengur viðunandi og þurfi hið
bráðasta að ráða bót á því. Þá var
lögð áhersla á að setja þyrfti stikur
meðfram veginum.
Samgöngumál voru rædd og var
einróma álit að úrbóta væri þörf.
Þá voru hafnarmál á dagskrá,
og ríkti einhugur um það mál.
Þingmenn voru allir á einu máli
um það að nú þyrfti að halda
áfram endurbótum á höfninni á
Arnarstápa, því að bátaeigendur
viða að sækja fast að gera þar út.
Það er því brýn nauðsyn að áfram
verði haldið að bæta höfnina, svo
að það sem búið er að gera komi
að tilætluðum notum.
Þingmennirnir skoðuðu hafnirn-
ar bæði á Hellnum og Arnarstapa.
Þessi fundur með þingmönnunum
var mjög ánægjulegur og þarfleg-
ur. Það er gleðiefni fyrir hrepps-
búa að fá tækifæri sem þetta til
að ræða áhugamál sín í viðurvist
þingmanna sinna. Ég vil nota
tækifærið og þakka þingmönnun-
um innilega fyrir þennan um-
Byggingar
Hafin er bygging Amtmanns-
hússins gamla á þeim stað þar sem
það stóð forðum á Arnarstapa,
búið er að reisa grindina en ekki
verður meira gert fyrr en að ári.
Þá er byrjað að byggja veitinga-
hús á Arnarfelli á Árnarstapa.
Eigandi hússins er Hjörleifur
Kristjánsson, en hann og kona
hans hafa verið með greiðasölu á
Arnarfelli undanfarin sumur.
Þetta veitingahús verður með
gömlu bæjarsniði og verða tvær'
burstir á húsinu.
Einar Matthíasson frá Gíslabæ
á Hellnum tók að sér að byggja
húsið og á það að verða fokhelt
fyrir jól.
Miklar framkvæmdir hafa verið
hér á þessu ári, og er mikill hugur
í mönnum. Atvinnulíf hefur verið
með ágætum og bjartsýni er ríkj-
andi hjá hreppsbúum hvað varðar
framtíð sveitarinnar.
Finnbogi G. Lárusson
fréttaritari.
Þjóðhátíðar- ,
dagur Finna
er í dag
1 FRÉTT í Morgunblaðinu í gær,
þar sem skýrt er frá því, að í kvöld
verði haldin árshátið Finnlands-
vinafélagsins, átti að standa að
haldinn yrði hátíðlegur þjóðhátíð-
ardagur Finna, sem er í dag. Há-
tíðahöldin verða í Norræna húsinu
í kvöld og hefjast klukkan 20.30. ,
Hlutaðeigendur eru beðnir velvirð-
ingar á þessu mishermi.
600 vísur
BÓKAÚTGÁFAN Skeið sf. hefur
sent frá sér bókina „Blautleg ljóð“
með teikningum eftir Hauk Hall-
dórsson teiknara. I bókinni eru 600 -
vísur á 174 blaðsíðum.
Ljósm.: Jens Ormslev
Stjórn íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn. Frá vinstri í fremri röð: Berg-
þóra Kristjánsdóttir, Kristjana L. Rasmussen og Sigrún J. Brunhede. f
aftari röð frá vinstri: Guðrún Eiríksdóttir, Kristín Oddsdóttir Bonde og
Erla Eiríksdóttir.
„Fjarkinn“ fœr andlitslyftingu og ngtt nafn
Veitingastaðurinn Kabarett, áð-
ur Fjarkinn, Austurstræti 4, var
formlega opnaður undir nýju nafni
á dögunum. Eigendur staðarins
eru hjónin Örn Arnarsson og
Petra Þorláksdóttir.
Undanfarið hafa staðið yfir
breytingar á veitingastaðnum og
til viðbótar salnum niðri sem
rúmar 30 manns, hefur nú verið
bætt við nýjum sal á efri hæð
hússins sem rúmar 20 manns.
Fréttatilkynning