Morgunblaðið - 06.12.1985, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 6. DESEMBER1985
Hjónaminning:
Þorsteinn Hannesson
Aldís Alexandersdóttir
Sannur öðlingur og ljúfmenni,
listamaður og dugandi fram-
kvæmdastjóri, Þorsteinn Hannes-
son, er kvaddur hinstu kveðju í
dag. Sár er söknuður ættingja og
vina, sem vonuðust til að njóta
lengur samverunnar. Huggun er
samt harmi gegn, að hann mátti
heita hress og glaður til æviloka,
þrátt fyrir háan aldur og nokkuð
skerta heilsu. Hann vantaði aðeins
um hálft ár í áttrætt. Hrefna, dótt-
ir hans, hafði hugsað sér að koma
með fjölskyldu sinni alla leið vest-
an af Kyrrahafsströnd vegna
afmælisins 18. júní í langdeginu.
En nú kom hún ein í skammdeginu.
Samt yljar það okkur öllum um
hjartarætur að hugsa til þess, að
hann dvaldist hjá þeim lengi vetr-
ar kringum síðustu jól, og nutu
þau samvistanna í ríkum mæli.
Við andlát Þorsteins leitar hug-
ur minn til bernskuára. Aldís
Alexandersdóttir, kona hans, var
systir Jóns, föður míns, og Krist-
þórs, sem í félagi við Þorstein
stofnaði Raflampagerðina árið
1934. Þau systkinin eru nú öll látin.
Þeir mágarnir, Kiddi og Steini,
byrjuðu framleiðslu sína í bakhúsi
við Þórsgötu 26, hús Alexanders
Valentínussonar og Ásdísar Þórð-
ardóttur. Á síðastliðnu sumri var
gamla húsið látið víkja fyrir öðru
veglegra. En margir eiga ljúfar
minningar frá heimili þeirra. Þar
ríki góður andi og gestrisni. Oft
kom þangað frændfólk og vinir
frá Snæfellsnesi, en þau byrjuðu
búskap sinn í ólafsvík skömmu
fyrir síðustu aldamót. Hús þeirra
þar var nefnt Alexandershús.
Hálfsystir Ásdísar, Kristjana
Þórðardóttir, sem er ern og hress,
á svipuðum aldri og börn ömmu
minnar voru, var vinkona þeirra
og leiksystir. Hún man Aldísi sem
elskulegt barn, gætt góðum hæfi-
leikum, sem glæddir voru með
ástríku og rólegu uppeldi. Móðir
hennar söng við störf sín og faðir
hennar var þekktur völundarsmið-
Fæddur 15. júní 1897
Dáinn 28. nóvember 1985
„Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið
á Guð og trúið á mig. í húsi föður
míns eru margar vistarverur. Væri
ekki svo hefði ég þá sagt yður að
ég færi burt að búa yður stað?
Þegar ég er farinn burtu og hef
búið yður stað, kem ég aftur og tek
yður til mín svo að þér séuð einnig
þar sem ég er. Veginn þangað sem
ég fer þekkið þér.“ (Jóh. 14.1—4).
Það er sárt og erfitt að missa
þann sem maður elskar, þann sem
manni þykir vænt um og hefur
haft hjá sér allt sitt líf. Við erum
Guði þakklát að afi þurfti ekki að
þola veikindin lengi því það hafði
alltaf átt illa við hann að vera
annars staðar en heima hjá ömmu.
En tími -afa var útrunninn hér á
jörðu og Drottinn tók á móti hon-
um á öðrum stað, vistarveru sem
er betri og yndislegri en nokkur
maður getur ímyndað sér.
Við þökkum elsku afa af öllu
hjarta fyrir samfylgdina, fyrir alla
þá ást og alúð sem hann gaf okkur
í svo ríkum mæli og fyrir hans
óeigingjarna kærleika sem hann
veitti okkur í veganesti í lífinu.
Við biðjum Guð að blessa og
styrkja ömmu og dætur þeirra um
ókomin ár.
Megi afi hvíla í friði.
Auður, Guðbjörg
og Guðmundur.
Afi minn, Magnús Pálmason,
andaðist á Landspítaianum þann
28. nóvember 1985. Hann var 88
ur, bæði á tré og járn. Aldís lagði
að sjálfsögðu stund á kvenlega
iðju. Hún lærði að leika á orgel,
og sextán ára gamalli var henni
trúað fyrir starfi organistans í
kirkjunni. Kristjana var í kórnum,
og segir, að unga stúlkan hafi
staðið sig með mestu prýði.
Árið 1924 fluttist fjölskyldan til
Reykjavíkur. Aldís gekk í Kvenna-
skólann, og varð vel að sér til
munns og handa. Sú menntun
reyndist henni notadrjúgt vega-
nesti. Hún vann síðan við verslun-
arstörf og hjálpaði heilsutæpri
móður sinni við heimilisstörfin, og
ekki var slegið slöku við hannyrð-
irnar. Frá síðsumri 1932 til vors
1933 var hún í vist á heimili há-
skólakennara í Oxford í Englandi.
Hún hafði mikið gagn og gleði af
þeirri dvöl. Þorstein Hannesson
hafði hún þekkt frá æskuárum, en
hann var einnig ættaður af Snæ-
fellsnesi, sonur Hannesar Krist-
jánssonar og Einbjargar Þor-
steinsdóttur. Þau bjuggu að
Grunnasundsnesi, skammt frá
Stykkishólmi. Þorsteinn var
yngstur sex systkina. Enn lifa
þrjár systur hans, Ingibjörg og
Guðbjörg, húsmæður, og Krist-
jana, fyrrverandi kennari og skóla-
stjóri á Staðarfelli. Kristján lækn-
ir og Matthildur ljósmóðir eru lát-
in. Þorsteinn lauk prófi frá Iðn-
skólanum í Reykjavík sem málara-
meistari og lærði auk þess teiknun.
Veturinn, sem Aldís var í Eng-
landi, var hann við framhaldsnám
í Kaupmannahöfn. Vorið 1933
opinberuðu þau trúlofun sína í
Edinborg og sigldu saman heim.
Þau voru bæði fædd árið 1906. Á
afmælisdegi Aldísar, 20. október
1934, gengu þau í hjónaband í
Reykjavík. Foreldrar brúðarinnar
héldu þeim veglega veislu á Hótel
Skjaldbreið.
Fallegt var fyrsta heimilið
þeirra við Eiríksgötu. Þar var
margt að skoða fyrir iitlu frænk-
una, sem ég var þá. Þar var skápur,
ára gamall þegar hann dó og var
því samfylgd okkar orðin 36 ár.
Á svona stundum streyma minn-
ingarnar um huga manns. Ég átti
því láni að fagna að vera honum
mikið samtíða. Það leið aldrei
langur tími milli þess að við
sáumst eða töluðum saman í síma.
Þessi orð eiga að vera til að þakka
þau kynni og alla þá skemmtun
sem við áttum saman. Við vorum
ung systkinin þrjú þegar faðir
okkar dó, afi kom þar fljótt til
hjálpar og var okkur sem góður
faðir og hollur ráðleggjari. Þetta
vil ég, Björg og Óli þakka.
Það verður tómlegra að koma í
Safamýrina og sjá hann ekki sitja
við borðið og leggja kapal eða með
bók í hönd sem hann hefur verið
að lesa fyrir ömmu, en hún að
sauma krosssaum eða prjóna.
Kyrrð ríkir, amma hleypur fram
í eldhús að hita kaffi og ekkert
ellileg, 84 ára gömul. Þarna er
hægt að tala saman.
Afi stundaði sund næstum hvern
dag frá því hann var ungur maður
og taldi það allra meina bót. Átti
hann til að segja við þá sem eitt-
hvað amaði að: „Blessaður drífðu
þig bara inn í laugar". Afi var fé-
lagslyndur og sagði okkur oft frá
árum sínum með Karlakór Fóst-
bræðra. Söngjrinn átti hug hans
og var hann óspar á að taka lagið
á góðri stund. Hann var góður
hagyrðingur og ti! er eftir hann
töluvert af vísum og kvæðum.
Afi var einnig ágætur Iandlags-
málari en flíkaði því ekki mikið,
málaður fögru litamunstri,
skreyttar skeljar og lampaskerm-
ar, allt verk húsbóndans, að
ógleymdum málverkunum hans.
Frábærar hannyrðir húsmóður-
innar voru líka mikil heimilis-
prýði. Hann átti fiðlu, sem hann
lék á, og hún átti gítar, sem hún
spilaði á undir söng. Á þessum
árum var oft komið saman á heim-
ilunum, gömlu lögin sungin við
orgelið hans pabba míns, og spilað
á spil á Þórsgötu 26. Ég var eina
barnabarnið í föðurætt minni, sem
lífs varð auðið, meðan Ásdís amma
lifði, og tíður gestur í afahúsi. Þar
hitti ég oft Aldísi, þær dekruðu
við mig, mæðgurnar, og margt
lærði ég af þeim. Aldís kenndi mér
til dæmis faðirvorið og að prjóna
fyrstu erfiðu lykkjurnar.
Á útmánuðum 1936 urðu Aldís
og Þorsteinn fyrir þeirri þungu
raun, að missa fyrsta barnið sitt,
dóttur, sem lifði þrjá daga. Aldís
veiktist af mænusótt, og var lengi
að ná'sér. En haustið 1939 fæddist
Ásdís í sigurkufli, hraust og efni-
leg. Minnisstæð er mér skírn henn-
ar. Þá var hátíð í Suðurgötu 3.
Þegar hún var sofnuð í skírnar-
kjólnum laumaðist ég að vöggunni
og horfði lengi á hana með gleðitár
í augum. Svo kom Hrefna sumarið
1942 og fullkomnaði hamingju
fjölskyldunnar. Þau hjónin voru
vinsæl og gestrisin, og margir eiga
góðar minningar um yndislegar
þó eiga flestir í fjölskyldunni mynd
eftir hann. Ferðalög var eitt af því
sem amma og afi höfðu gaman af
og áttu þess kost að fara nokkuð
víða. Þegar heim kom skrifaði
hann stundum ferðasöguna og
dreifði henni til dætra sinna svo
allir mættu njóta. Kom þá vel fram
nákvæmni hans og vandvirkni.
Hann var mínútu maður í öllu og
mikið snyrtimenni bæði með sjálf-
an sig og í allri umgengni.
Heimili ömmu og afa er mjög
fallegt, amma er mikil húsmóðir
og þau hvort öðru góð. Þetta hefur
verið gott fyrir okkur yngra fólkið
aðsjáogkynnast.
Ég veit ég tala fyrir munn allra
barnabarnanna ef ég þakka þessa
samfylgd og sendum við þér, amma
mín, okkar innilegustu samúðar-
kveðjur. Afi minn hvíli í friði og
hafði hann þakkir fyrir allt og allt.
Magnús Theodórsson
samverustundir hjá þeim og veisl-
ur við hátíðleg tækifæri.
Þriðja heimili þeirra var á
Laugateig 3. Þar uxu dæturnar upp
til fullorðinsára. Ásdís fór til
Þýskalands til framhaldsnáms í
fiðluleik. Þar kynntist hún eigin-
manni sínum, Wolfgang Stross,
sem er sonur kennara hennar, pró-
fessor Wilhelm Stross. Þau giftust
1962 í Þýskalandi, og var Aldís
viðstödd, en fluttust til íslands og
hafa búið hér síðan, fyrst í risíbúð-
inni á Laugateig 3. Wolfgang hefur
unnið við fyrirtæki tengdaföður
síns, sem nú heitir Lampar og gler,
og einnig við ferðamannaþjónustu
á sumrin. Þau eignuðust þrjár
dætur. Ásdís lét þær ekki tefja sig
mikið frá tónlistinni. Hún er fiðlu-
leikari í Sinfóníuhljómsveit fs-
lands.
Aldís og Þorsteinn voru stolt
amma og afi. En litlu stúlkurnar
þrjár voru í frumbernsku, þegar
Aldís veiktist af krabbameini og
dó haustið 1968. Sár var harmur
ástvina hennar, og sorglegt fyrir
hana sjálfa að kveðja hamingju
sína og lífsblóm. Hrefna eignaðist
dóttur í janúar 1969, og kom hún
til afa síns eins og ljós í myrkri.
Þær mæðgur bjuggu hjá honum
fyrstu æviár telpunnar. Hrefna
gerðist læknaritari hér í borg, og
hafði einnig unnið við það um tíma
í Svíþjóð. Árið 1974 fóru hún og
dóttirin til Bandaríkjanna með
unnusta Hrefnu, John Milner, sem
er íslenskur í móðurætt, en brúð-
kaup sitt héldu þau hér heima
nokkru síðar. Þau búa í borginni
Edmonds í Washingtonríki og hafa
eignast tvö börn saman. Hann
leggur stund á krabbaveiðar ná-
lægt Alaska, en hún er læknarit-
ari. Þorsteinn var glaður og þakk-
látur fyrir barnalán sitt, og varð
reyndar langafi í fyrra. Honum
entist þrek til að ferðast talsvert
á efri árum, bæði til Hrefnu og
með Ásdísi og Wolfgang, m.a. með
Sinfóníuhljómsveitinni.
Á síðastliðnu sumri heimsótti ég
hann og gaf honum litla nýút-
komna ljóðabók. Hann bauð mér
út í bílskúrinn sinn, þar var fagurt
um að litast, myndirnar hans
innrammaðar á veggjum. Hann
bað mig að velja mér eina, sem ég
þáði með þökkum, en vandi var að
velja, þær voru allar svo fallegar
og vel gerðar. Hann hafði ennþá
vinnustofu með penslum og litum
í risíbúðinni, þar sem hann kaus
að búa, eftir að hann var orðinn
einn. Nýlega hringdi ég til hans,
til að fá nýtt heimilisfang Hrefnu,
og segja honum, hve myndin, sem
hann gaf mér vakti mikla aðdáun
í fjölskyldu minni. Hún er af
sveitabæ sunnan undir háu fjalli.
Er slíkt heimilrekki eins og óska-
draumur þeirra, sem þéttbýlið
þjakar? Þorsteinn var hress í
bragði, en sagðist þurfa að ganga
undir aðgerð vegna kviðslits. Hann
var í rannsókn, þegar kallið kom.
Að hryggjast og gleðjast
hér um fáa daga.
Að heilsast og kveðjast,
það er lífsins saga.
En ekki megum við trúa því, að
öll sagan sé sögð með þessari vísu.
Svo margt hefur fyrir okkur borið,
sem styrkir eilífðartrúna. Hví
skyldi það vera svo ótrúlegt
kraftaverk að lifa eftir dauðann,
eða hafa lifað áður? Er ekki
mannlífið hér á okkar yndislegu
Magnús Pálma-
son — Minning
Jörð ámóta merkilegt fyrirbæri?
Þrátt fyrir skugga helsprengj-
unnar megum við ekki missa trúna
á handleiðslu guðlegrar forsjónar,
né gleyma kenningu Jesú Krists.
Margt gengi betur í þjóðlífi okkar,
ef menn læsu, þó ekki væri nema
einu sinni á ári fjallræðuna, og
reyndu að fara eftir henni. Guð
gefi okkar þreyttu þjóð sannkrist-
iniól.
I trausti þess, að Steini hitti
Dísu sína á fæðingarhátíð frelsar-
ans, kveð ég og fjölskyldan hann
með virðingu og þökk og vottum
hans nánustu innilega samúð.
Erla Þórdís Jónsdóttir
í dag verður til moldar borinn
mætur og góður félagi okkar,
Þorsteinn Hannesson kaupmaður.
Þorsteinn fæddist 18. júní 1906 á
Nesi hjá Stykkishólmi, en fluttist
til Reykjavíkur um tvítugt og hóf
þá nám í málaraiðn. Lauk hann
sveinsprófi og stofnaði fyrirtæki í
þeirri iðn árið 1934 ásamt félaga
sínum Kristþóri Alexanderssyni.
Á þessum árum og seinna meir
nam hann einnig teikningu og
myndlist og málaði fjölda mál-
verka á yfir 50 ára ferli sínum sem
málari. Hin síðari ár var það hans
helsta tómstundaiðja að sitja með
pensil í hönd og festa minningar
og mótiv á léreft.
Þegar þeir félagar byrjuðu
samvinnu sína var nú ekki alltaf
nægjanlega vinnu að fá fyrir mál-
ara allt árið um kring, og varð það
úr að þeir félagar stofnuðu
skermagerð, sem þeir gátu unnið
að á veturna og nefndu þeir það
fyrirtæki Raflampagerðina. Var
það fyrirtæki stofnað sama ár,
1934, og ráku þeir það sameigin-
lega til ársins 1975 að þeir skiptu
fyrirtækinu. Hét þá fyrirtæki
Þorsteins upp úr því Lampar og
gler og rak hann það alla tíð síðan
með góðri aðstoð tengdasonar síns.
Snemma gerðist Þorsteinn með-
limur í Kaupmannasamtökum ís-
lands og árið 1965 varð hann einn
af stofnfélögum Félags raftækja-
sala, sem varð sérgreinafélag inn-
an KÍ. Alla tíð lét hann öll störf
þess félags sig miklu varða og var
einn af þeim, sem ávallt sóttu
fundi ef hann gat því við komið.
Þorsteinn var hæglátur maður en
ávallt var vel á hann hlustað þegar
hann kvaddi sér hljóðs á fundum
í félaginu, enda var greinilegt að
þar fór maður með mikla reynslu
og var hann óspar á að miðla
okkur, yngri mönnum, af fróðleik
sínum. Þá var hann einnig mikill
stuðningsmaður að stofnun Stofn-
lánasjóðs raftækjasala, en hann
sá fljótt hve mikill stuðningur
slíkur sjóður gæti verið félaginu
og hve mikið gagn hann gæti gert.
Var hann oft tilnefndur og kosinn
í stjórnir og nefndir fyrir félagið
og sjóðinn, og vann samviskusam-
iega að framgangi réttlætismála
félaganna. Það var því ekki að
tilefnislausu þegar orðunefnd
Kaupmannasamtakanna ákvað að
heiðra tvo heiðursmenn nú fyrir
hálfum mánuði þegar Félag raf-
tækjasala hélt upp á 20 ára afmæli
sitt, að annar þeirra var Þorsteinn
okkar Hannesson. Við í félaginu
vissum þá ekki um veikindi hans
og því miður kom Þorsteinn aldrei
til þess fagnaðar. { afmælishófinu
biðum við með að byrja á ræðu-
höldum — Þorsteinn hlyti að koma
eins og ávallt áður — hann hafði
jú alltaf mætt á fundi okkar og
það af minna tilefni en 20 ára
afmælishófi. Það varð okkur því
mikil harmafregn þegar við heyrð-
um 3 dögum síðar að Þorsteinn
hefði farið á sjúkrahús nokkrum
dögum áður og andast þar hinn
25. nóvember. Örlögin eru stund-
um svona — Við félagarnir, sem
ætluðum að samgleðjast með þess-
um góða samstarfsmanni og félaga
okkar, stöndum nú í þeim sporum
að skrifa síðustu kveðjuorð um
hann. Við kveðjum nú mjög góðan
félaga, sem við munum geyma
fagrar og bjartar minningar um.
Við sendum dætrum hans og
fjölskyldum þeirra okkar inni-
legustu samúðarkveðjur — Guð
blessi minningu góðs manns.
Félag raftækjasala
K.M.