Morgunblaðið - 07.12.1985, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. DESEMBER1985
Runólfur Guðmunds-
son Gröf — Minning
Fæddur 3. aprfl 1887
Dáinn 2. desember 1985
Eins og sorgin er sár þegar ungt
fólk, eða fólk í blóma lífsins, hverf-
ur okkur skyndilega, af slysförum
eða öðrum óvæntum og óviðráðan-
legum orsökum, þá er hitt eins og
uppfyllt ósk þegar gamalt fólk,
útslitið og hætt að fylgjast með á
líðandi stund, sofnar í sælli ró og
friði svefninum langa, án þess að
líða mikið og lengi. Öll vitum við
að hverju lífi fylgir dauði, því
lögmáli verður ekki breitt, hver
sem tæknin kann að verða.
Runólfur Guðmundsson fv.
bóndi á Gröf í Skilmannahreppi
fæddist á Hrauntúni í Leirársveit.
Hann var yngsta barn Vigdísar
Þ. Vigfúsdóttur, Hanssonar og k.h.
Guðfinna Einarsdóttir í Lækjar-
koti. Vigdís var þriðja kona Jóseps
Sigurðssonar bónda og víðar. Þau
áttu þrjú börn: Vigfús skipstjóra,
Guðfinnu húsfreyju á Bjarteyj-
arsandi og Jósep bónda á Eystra-
Miðfelli. Seinni maður Vigdísar
var Guðmundur Árnason frá Mið-
dal í Kjós, Jónssonar, Vilhjálms-
sonar og k.h. Málfríðar Magnús-
dóttur bónda í Hvammi í Kjós
Runólfssonar.
Vigdís og Guðmundur höfðu ekki
jörð til ábúðar, en voru í vinnu-
mennsku og hún oft ráðskona.
Runólfur var þeirra einkabarn.
Hann var aðeins 7 ára þegar faðir
hans dó. Þeirrar tíðar fólki stóðu
engar barna- eða tryggingabætur
til boða, eins og nú til dags. Því
varð að treysta á eigin mátt og
hugrekki. Vigdís var dugnaðar- og
hraustleika kona, því lítt sett fyrir
sig að vinna hörðum höndum fyrir
sér og syninum unga. Ég man vel
eftir Vigdísi. Þetta var hin mynd-
ariegasta kona. Hitt þótti sjálfsögð
skylda þeirrar tíðar fólks, að börn
færu að hjáipa til við bústörfin í
sveitinni strax og kraftar leyfðu.
Man ég fólk tala um, að Runólfur
hafi ungur að árum verið smali
og sitið yfir kvíaám. Einnig að
þessi ungi drengur hafi verið léttur
á fæti og viljugur. Hann vann
ungur á Miðfelli hjá Jósepi hálf-
bróður sínum. Einnig á Klafastöð-
um. Seinna varð hann bóndi í Gröf
sem er í sama hreppi og ekki langt
á milli bæja. Órofa tryggð og vin-
átta var alla tíð á milli þessa fólks.
Á Klafastöðum var orðlagt gæða-
fólk. Runólfur hefur kunnað að
meta það. Hann hefur einnig sjálf-
ur til vináttunnar unnið í sínu
starfi.
Ungur maður gerist Runólfur
togarasjómaður í Reykjavík. Á
þeim árum var ekki á hvers manns
færi að komast í slíkt skiprúm.
Þar var hópur manna um hvert
pláss sem losnaði og úrval gott.
Hann er um árabil á Kveldúlfstog-
urunum. í Halaveðrinu fræga í
febrúar 1925 mun hann hafa verið
á Kveldúlfstogaranum Þórólfi,
sem kom laskaður að landi úr þeim
h'Idarleik, sem mörg önnur skip.
Eftir veðrið var tveggja íslenzkra
togara saknað, þeir fórust með
allri áhöfn. Seinna var Runólfur
margar vertíðar með Pétri Maack
á Max Pemberton, orðlögðum afla-
manni. Mér var sagt, að þar, og
máske víðar, hafði hann það
ábyrgðarstarf á hendi, að vera
yfirsaltari í mörg ár. Trúverðugur
maður hefur verið valinn til að
taka að sér svo vandasamt verk,
sem góð verkun aflans er. Ég
heyrði gamla togarasjómenn, sem
könnuðust við Runólf yfirsaltara
hjá Pétri Mack, tala um að það
hefði verið með ólíkindum úthaldið
og seiglan í þessum manni. Sem
var þó ekkert kraftalegur á að líta.
Tæplega meðalmaður á hæð og
grennri en margir togarajaxlarnir.
Én Runólfi var létt um að vinna,
viljugur, kappfullur og seiglan
ódrepandi. Þessi þrælavinna á
togurunum, áður en vökulögin
komu, var ekki fyrir neina aukvisa.
Það sannaðist þar, að harðærið
herðir menn, ef þeir hafa heilsu
og krafta til að afbera það. Runólf-
ur var í 28 vertíðir á togurum,
lengst áður en vökulögin tóku gildi.
Alla tíð gat hann gengið um borð
í beztu skiprúmin, þótt öðrum úr-
vals mönnum tækist það ekki.
Slíkum manni þarf ekki að slá
neina gullhamra á kveðjustund.
Hann Runólfur flaggaði ekki sín-
um sigrum á strætum, í fréttum
né fjölmiðlum. Það er mörg sjó-
manns sagan skráð, hinar eru
fleiri sem fara með heiðursmönn-
um í gröfina. Þó Runólfur væri
búinn að hasla sér völl á Reykja-
víkurtogurunum og ætti þar góða
aflavon, þá stóð hugur hans engu
að síður heim til æskustöðvanna.
Bóndaeðlið blundaði í brjósti hans.
Því var það þegar hann hafði fest
sér unga glæsilega konu, Þórunni
Markúsdóttur, ættaða úr Amar-
firði, að hann heldur uppá Hval-
fjarðarströndina með heimili sitt.
Éitt ár eru þau í Kalastaðakoti,
næst búa þau á Hóli í Svínadal,
þá búa þau í Litla-Lambhaga. En
á vordögum 1920, kaupa þau jörð-
ina Gröf í Skilmannahreppi og búa
þau heiðurshjón þar til 1966, eða
í 46 ár. Þó jörðin þætti kostarýr
búnaðist þeim vel í Gröf. Þau áttu
afurða gott bú, úrvals kúakyn,
kýrnar hvítu, sem margur vildi fá
afsprengi af. Þar var vel fóðrað
og vel fyrir öllu séð. Það segir sig
sjálft, að mikil hefur ábyrgðin
hvílt á herðum Þórunnar hús-
freyju. Henni var ekki fisjað
saman þeirri konu. Hún var orð-
lögð fyrir glaðlyndi sitt og góðan
hug til allra. Henni var vel treyst-
andi fyrir börnum og búi. Þegar
bóndi hennar var á sjónum hafði
hún sér til hjálpar eldri mann, eða
ungling við gegningarnar, á meðan
börnin voru að vaxa úr grasi. Þeim
hjónum fæddust 9 börn, 7 þeirra
komust upp, hér talin í aldursröð:
Árni, Vigfús, Guðbjörg, Vigdís,
Valgeir og tvíburarnir Fjóla og
Guðmunda. Öll gift og átt sín
heimili hér á Akranesi. Svo er stór
hópur útaf börnunum. Tvö systkin-
anna eru dáin þau Árni og Vigdís,
blessuð sé þeirra minning.
Þegar húsbóndinn kom heim af
vertíð, biðu vorverkin á búinu. Það
þurfti mörgu að sinna. Ég man
þegar Runólfur var að rista torf í
mýri inn við merki Klafastaða og
Kataness og reiddi það á mel og
klappir til að þurrka það. Síðan
var það flutt heim að Gröf og heyin
tyrfð, þannig urðu fyrritíðar
bændur að baslast áfram, án
þæginda.
Einnig man ég hann við að færa
upp mó inní Kataneslandi. í Gröf
var hvorki mótak né torfrista,
þótti slíkt galli á jörðum, þó nú
komi lítt að sök. Mikil var vinnan
í öllum þessum bústörfum og
hjálpartækin fátækleg. Seinna
breyttist allt á véla- og tæknitím-
um til batnaðar.
Ævi mannsins er sem leiftrandi
mynd sem kemur og fer. Eftir það
lífshlaup, sem hér hefur verið
minnst lítillega á, lá leið þeirra
hjóna útá Skipaskaga, þar keyptu
þau sér íbúð við Heiðarbrautina,
og til þess að fara ekki úr tengslum
við lífsstarfið og ánægjuna, þá átti
gamli maðurinn hér tún, fjárhús
og nokkrar kindur, á meðan heils-
an gaf honum grið til að hirða um
það. Hann átti marga ferðina til
húsanna, svo sannarlega var
ánægjulegra fyrir þennan mikla
eljumann að hafa eitthvað til að
hugsa um.
Þórunn kona Runólfs dó 1970, í
september. Þá lækkaði sól ham-
ingjunnar á lofti gamla mannsins.
Þá var gott að eiga börnin að. Þau
reyndust foreldrunum alltaf vel.
Börnin eru þekkt dugnaðarfólk hér
um slóðir, gott fólk og vel gefið.
Þau hjón voru ekki rík af veraldar
silfri, en þau áttu annan auð gulli
betri. Þau voru dyggir þegnar
sinnar þjóðar og fengu í vöggugjöf
góða mannkosti, sem nýttust þeim
vel. Og afkomendahópurinn er gott
framlag til að viðhalda góðum
kynstofni á íslandi.
Runólfi vantaði eitt ár og fjóra
mánuði uppá að verða 100 ára. Þó
hann dveldi síðustu æviárin hér á
ellideild Sjúkrahússins var hann
það hress, að hann klæddist hvern
dag, lengst af. Starfsstúlka sagði
mér að hann væri oft glettinn og
orðheppinn og hinn skemmtileg-
asti dvalargestur. Þannig var þessi
heiðursmaður til hinztu stundar,
samtíð sinni til gagns og gleði
Slíkra manna er gott að
minnast. Við öll sem áttum sam-
leið á líkum slóðum og þessi heið-
ursmaður, kveðjum hann með
kærri þökk fyrir dyggð og dreng-
skap. Megi hann allra heilla njóta
á landi ljóss og friðar.
Með beztu samúðarkveðju til
aðstandenda.
Valgarður L. Jónsson
Elín S. Aðalsteins-
dóttir — Kveðjuorð
Fædd 10. júní 1938
Dáin 28. nóvember 1985
í gær var til moldar borin frá
Fossvogskapellu Elín Sigrún Aðal-
steinsdóttir, írabakka 8, Reykja-
vík.
Það er ævinlega svo að mann
setur hljóðan þegar maður fær
óvæntar harmafregnir um að fólk
í blóma lífsins er snögglega kvatt
úr þessum heimi yfir móðuna
miklu, en þannig var með Ellu eins
og hún var oftast kölluð af vinum
sínum.
Hún fór að heiman frá sér hress
og kát að morgni dags full af lífs-
orku og björtum framtíðarvonum,
en var að kveldi þess dags flutt
frá vinnustað sínum í sjúkrahús,
þaðan sem hún átti ekki aftur-
kvæmt. Hún lést á gjörgæsludeild
Borgarspítalans aðeins sex dögum
siðar þann 28. nóvember sl.
Elín fæddist í Reykjavík 10. júní
1938 dóttir hjónanna Helgu Guð-
bjargar Kristjánsdóttur og Aðal-
steins Hólm Þorsteinssonar vél-
stjóra. Henni varð ekki auðið að
hafa langt samneyti við foreldra
sína því þau slitu samvistir þegar
hún var aðeins ársgömul og eftir
það var hún með móður sinni þar
til hún dó er Elín var aðeins fimm
ára gömul. En þá eins og svo oft
í þessu lífi var hjálpin næst þegar
neyðin er stærst. Elín var þeirrar
gæfu aðnjótandi að vera tekin í
dótturstað hjá þeim ágætis hjón-
um Sigríði ÞorkelsdótturogGunn-
ari Grímssyni matreiðslumanni
sem lengi bjuggu á Laugavegi 140
hér í borg. Hjá þeim hjónum var
Elín uns þau Iétust. Þar bar aldrei
skugga á uns þau létust, en það
var henni þungw missír. öft ræddi
Elín við. mig um.,þágæfu sína að
verða þeirfar ástúðár aðpjótandi
sem þau veittu henni. 6. desember
1959giftist Elín eftirlifandi manni
sínum Guðbrandi Guðmundssyni
sölumanni ættuðum frá Stóru
Drageiri í Skorradal og eignuðust
þau sex mannvænleg börn sem í
dag ásamt föður sínum sjá á eftir
ástríkri móður og eiginkonu.
Börn þeirra hjóna eru: Guð-
mundur, kranastjóri og á hann
einn son, Lárus Kristin. Sigríður,
matreiðslumaður, trúlofuð Kon-
ráði Konráðssyni og eiga þau eina
dóttur, Dagbjörtu Karlottu,
tveggja ára. Björk, kjötiðnaðar-
maður, trúlofuð Sveini M. Sveins-
syni vélvirkjanema. Þau eiga eina
dóttur, Katrínu Sigurbjörgu,
tæpra tveggja ára. Aðalsteinn
Hólm, vélstjóranemi, enn í föður-
húsum. Vigdís Edda, kjötiðnaðar-
nemi, sem einnig er í föðurhúsum,
og Þuríður Helga sem enn er í
grunnskóla og býr einnig hjá föður
sínum.
Ég veit og það vita líka þeir sem
Elínu þekktu að það hefði ekki
verið að hennar skapi að um ein-
hverja afrekaskrá væri að ræða í
hennar eftirmælum og í þessum
fátæklegu orðum mínum mun ég
ekki hafa það svo, en þó get ég
ekki látið hjá iíða að minnast þess
að vinahópurinn var stór því þar
sem Elín var, var ævinlega líf og
gleði að finna á hverju svo sem
annars gekk. Hún var með af-
brigðum bóngóð alla sína tíð og
var ein af þeim máttarstólpum
sem alltaf var hægt að leita til og
reiða sig á.
Hún mátti aldrei neitt aumt sjá
án þess að reyna að bæta þar um
og hjálpa. Og það má með sanni
segja að þó henni hafi ekki hlotn-
ast að safna þeim auði sem mölur
og ryð fá grandað var hún þeim -
mun rikari af hinu óforgengilega.
Elín var mjög góðum gáfum
gædd, vel greind og víðlesin og á
marga lund listhneigð en hið mikla
hlutskipti hennar sem móður átti
hug hennar allan. Það var ekki
hlutskipti hennar að ganga langan
veg á menntabrautinni en þó var
hún á mörgum sviðum svo sjálf-
menntuð að undrum sætti.
Hún var víkingur til allrar vinnu
hvort sem var innan eða utan
heimilis var sá staður sem skipaði
æðstan sess í hennar lífi. Hún var
ævinlega trú sínum vinnuveitend-
um svo við var brugðið, enda vann
hún lengi hjá sömu fyrirtækjum
þau ár sem hún vann utan heimilis.
Húsmóðir var hún þó fyrst og
fremst mikil og gestrisin með
afbrigðum eins og þeir best vita
sem hana þekktu. Trúmennska og
trygglyndi var rómað. Á frabakka
8 var alltaf opið hús fyrir vini og
vandamenn hér í borg og utan af
landi, því hjartað var stórt og
reisnin mikil þó oft væri úr litlu
að spila.
Viðsem ídagsjáumáeftirhenni
erum í söknuði okkar í hjarta glöð
að vita af því að þegar að okkar
skapadægri ketnur mun hún bíða
okkar handan móðunnar miklu
glöð og hress eins og viðmót henn-
ar ævinlega vart ásamt öðrum
vinum.
Ég vil að endingu votta eftirlif-
andi eiginmanni, börnum, tengda-
börnum og hennar ástkæru barna-
börnum innilegustu samúð og
hluttekningu okkar hjónanna á
Heiðarvegi 44, Vestmannaeyjum.
Megi góður guð styrkja ykkur og
styðja í ykkar mikla harmi.
Veri guð almáttugur sálu henn-
ar miskunnsamur elsku systir.
GJS.A.
í gær er til moldar borin Elín
Sigrún Aðalsteinsdóttir er lést
fimmtudaginn 28. nóvember og var
hún aðeins á 47. aldursári.
Þegar slík fregn berst manni
hrannast upp í huga manns minn-
ingar um skemmtilegar og Ijúfar
stundir fyrr og síðar.
En aðrir munu í dag rekja ævi-
feril Elínar. Mig langar því aðeins
að koma á framfæri fátæklegum
kveðjuorðum um stutt en mjög
skemmtileg kynni. Kynni mín af
Elínu eða Ellu eins og hún var
ævinlega kölluð hófust árið 1981,
þá varð ég þeirrar gæfu njótandi
að komast í vinahóp Vigdísar Eddu
dóttur hennar og blómstrar sú
vinátta enn.
Var ég því tíður gestur á heimili
Ellu og eftirlifandi manns hennar,
Guðbrands Guðmundssonar. Aldr-
ei varð ég var við að Ella væri í
vondu skapi, ánægjan skein ávallt
úr andliti hennar og var svo til
sama hvernig á stóð. Er því ekki
hjá því komist að eiga sælar minn-
ingar um hana. En dauðinn gerir
ekki alltaf boð á undan sér, hann
kemur þá okkar grunar síst og
tekur frá okkur ástvini og góða
samferðamenn, hvernig sem hög-
um manna kann að vera háttað.
Vil ég því biðja Guð um að
styrkja fjölskyldu Elínar í þessari
miklu sorg. Það mun ávallt verða
bjart yfir minningu hennar í huga
mér ogannarra.
Sigurður Gunnarsson
Kirkjumiðstöð Seljasðknar.
Kirkjudagur
Seljasóknar
á morgun
Hinn árlegi kirkjudagur í Selja-
sókn verður haldinn á morgun,
sunnudag. Starfsemi safnaðarins,
sem er í barnflestu sókn landsins,
hefur verið öflug, þótt allar aðstæð-
ur séu erfiðar vegna húsnæðisleysis.
Kirkjudagurinn er haldinn til að
minna á starfsemi safnaðarins og
samstöðu í því starfi.
Dagskrá kirkjudagsins hefst
með barnaguðsþjónustum að
morgni sunnudagsins, en þær
verða kl. 10.30 í Ölduselsskólanum
og í Seljaskólanum. Kl. 14.00 verð-
ur guðsþjónusta í ölduselsskólan-
um. Þar mun sóknarpresturinn
predika og Ingibjörg Marteins-
dóttir syngja einsöng.
Að loknum guðsþjónustum hefst
basar Kvenfélags Seljasóknar i
Ölduselsskólanum. Þar verða á
boðstólum jólamunir, kökur, laufa-
brauð og fleira. Um kvöldið verður
aðventusamkoma kl. 20.30 í öldu-
selsskóla. Þar mun Bellcanto-
kórinn syngja undir stjórn Guð-
finnu Dóru Olafsdóttur. Félagar úr
Æskulýðsfélagi Seljasóknar munu
flytja leikþátt undir stjórn Rúnars
Reynissonar. Þá mun Kirkjukór
Seljasóknar syngja undir stjórn
organistans, Violettu Smidóvu.
Ræðumenn verða Árni Johnsen
alþingismaður og Gísli Friðgeirs-
son eðlisfræðingur, Að lokinni
aðventusamkomi^i verður kafflsala
í skólanum.