Morgunblaðið - 21.12.1985, Side 9

Morgunblaðið - 21.12.1985, Side 9
öhpj aaaKaaaa is guDAQHaouaj .aiqAJgvtuoHO1 MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 21. DESEMBER1985 8 9 ^ HERRASKYRTUR Vorum aö taka upp glæsilegt úrval af enskum herraskyrtum. QEísiP H 7 Bladburðarfólk óskast! Kopavogur Hraunbraut Marbakkabraut Grafarvogur Fannarfold Austurbær Barónsstígur Hverfisgata 63— Vesturbær Tjarnargata frá 39 Suðurgata29—41 Tjarnargata 3—40 Suöúrgata2—26 Skerjafjörður Gnitanes 120 3JLi Samþvkkt framkvæmda stjómar Á mánudaginn gerði rramkvæmdastjórn Ak þýðubandalagsins, sem lýt- ur forystu Olafs Ragnars Grímssonar, samþykkt um bankaráðsmál, sem valdið hefur miklum óróa innan flokksins. í þessari sam- þykkt eru þrjú atriði, sem veita ber athygli. í fyrsta lagi er því lýst yfír, að óeðlilegt sé að fráfarandi bankaráö Útvegsbankans verði endurkjörið. End- urnýja beri allt bankaráð- ið. I annan stað er sú meginregla sett, að þing- flokkur bandalagsins til- nefni ekki menn í banka- ráð ríkisbankanna. Er lagt til að þessi háttur verði tekinn upp jafnóðum og núverandi bankaráðsmenn fíokksins úr þingmanna- hópi víkja fyrir endurnýj- unarreglu fíokksins eða að eigin ósk. Loks kemur fram í samþykkt fram- kvæmdastjórnarínnar ný túlkun á lögum um banka- leynd. Telur stjórnin að lögin komi ekki í veg fyrir að „bankaráðsmenn, bankastjórar eða ráðherra bankamála komi skil- merkilega á framfæri við alþingi og almenning öll- um almennum upplýsing- um er varða stöðu viökom- andi ríkLsbanka_“ Orð- rétt segir síðan: „Fram- kvæmdastjórn leggur áherslu á að bankaráðs- fulltrúar AB gegni þessari upplýsingaskyldu." Svavar niður- lægður Ályktun framkvæmda- stjórnar var gerð með 11 atkvæðum gegn 2. Það voru aðeins Svavar Gests- son, formaður fíokksins, og Steingrímur J. Sigfús- son, alþingismaður, sem greiddu atkvæði gegn henni, en nokkrir sátu hjá. Úrslit þessi eru talin sigur fyrír Olaf Ragnar Gríms- son og fylgismenn hans, sem staðið hafa í miklu stríði við „flokkseigend- ur“, sem svo eru nefndir. Að sama skapi er niður- staðan ósigur fyrir Svavar Gestsson, og er þetta ekki í fyrsta sinn sem Ólafur Ragnar niðurlægir hann í framkvæmdastjórninni. Garðar Sigurðsson, ak Fólkið vill opna rannsókn SSSSSscstrs j . _.t . . ■Hbi aarj Err Átök í Alþýðubandalagi Svavar Gestsson var endurkosinn for- maður Alþýðubandalagsins á síöasta landsfundi flokksins, en atburðir síöustu daga hafa staðfest að hann er ekki leið- togi flokksins. í vikunni varð hann undir í atkvæðagreiðslum í framkvæmdastjórn flokksins og þingflokki og frekari tíðinda af valdabaráttunni í flokknum er að vænta. Þeir Ólafur Ragnar Grímsson og Ragnar Arnalds virðast ætla að sjá til þess að flokksformaðurinn fari ekki í grafgötur um það hver raunveruleg staða hansí flokknumer. þingtsmaður, á ekki sæti f framkvæmdastjórninni, en hann situr í bankaráði Út- vegsbankans fyrir Alþýðu- bandalagið og það er gegn honum, sem samþykktin beinist fyrst og fremst. Hún er ótvírætt vantraust á Garðar, en Alþýöubanda- lagsmönnum hefur þótt það ákaflega óþægilegt að í allri umræðunni um mál- efni Hafskips og Útvegs- bankans skuli hafa veríð unnt að benda á það að fulltrúi flokksins sitji í bankaráði bankans og beri nákvæmlega sömu ábyrgð á stöðu mála og aörír sem þar sitja. Garðar hefur verið ófáanlegur til að ríúfa bankaleyndina, sem Ólafur Ragnar Grímsson hefur gagnrýnt með stór- um orðum á þingi, og ólík- legt er að hann taki sinna- skiptum þegar hin nýja túlkun framkvæmdastjórn- arinnar á bankaleyndinni liggur fyrir. „Þetta er rugl," sagði Garðar í sam- tali við Morgunblaðið þeg- ar hann var spurður álits á samþykktinni. Hann benti á að þetta væri mál þing- fíokksins og framkvæmda- stjórnin hefði ekkert með málið að gera. Framkvæmdastjórn Al- þýðubandalagsins gerði ályktunina um bankaráös- málin síðdegis á mánudag, en það var ekki fyrr en um hádegisbil á þriðjudag sem hún var gerð heyrin kunn- ug. Er það mjög óvanalegt, en til marks um þann úlfa- þyt er varð í fíokknum er Ijóst varð að formaöur fíokksins hafði verið bor- inn ofurliði i atkvæða- greiðslu og vantraust sam- þykkt á einn þingmanninn. Þingflokkur Alþýðu- bandalagsins er i mikilli klípu vegna samþykktar framkvæmdastjórnarinnar. Sumir þingmenn vilja fall- ast á hana og draga Garð- ar Sigurðsson út úr banka- ráði Útvegsbankans og Helga Seljan út úr banka- ráði Búnaðarbankans, en aðrir telja að það komi ekki til greina. Úrslit í þeirri þrætu verða væntan- lega ekki kunn fyrr en í dag, er sameinað þing kýs í bankaráð ríkisbankanna. En það er hins vegar Ijóst að hver sem niðurstaðan verður mun hún draga dilk á eftir sér. Enn klofning uríþing flokknum Alþýðubandalagsmenn eru líka klofnir í afstöðu til rannsóknarnefndar þeirrar, sem Alþingi hefur samþykkt að Hæstiréttur skipi til að rannsaka við- skipti Hafskips og Útvegs- bankans. Samkomulag náðist um það með stjórn- arandstæóingum og stjórn- arliðum að útvíkka starf- semi nefndarinnar og veita henni aukin réttindi, en tillaga Alþýðubandalagsins um að sjö þingmenn fylgd- ust að auki með starfsemi nefndarinnar var felld. í Ijósi þessa varð ágreining- ur um það í þingflokki Alþýöubandalagsins hvort styðja ætti frumvarpið um rannsóknarnefndina í hinni breyttu mynd eða sitja hjá og láta þannig óánægju í Ijós. Við at- kvæðagreiðslu í þing- flokknum varð sú skoðun ofan á að greiða atkvæði með frumvarpinu, og mun Ragnar Arnalds, formaöur þingflokksins, hafa átt mestan þátt i því. Svavar Gestsson, Steingrímur J. Sigfússon og Skúli Alex- andersson voru því and- snúnir. Þegar frumvarpið kom til atkvæða í efrí deild skipti Skúli um skoð- un og greiddi atkvæði með því eins og aðrir Alþýðu- bandalagsmcnn í deild- inni. Þegar frumvarpið kom svo fyrír neðri deild í fyrrinótt sátu Svavar, Steingrímur og Guðrún Helgadóttir hjá, en Garðar Sigurösson, Geir Gunnars- son og Guðmundur J. Guðmundsson fylgdu meirihlutanum. Gagnrýni Þjóðviljans í forystugrein Þjóðvilj- ans í gær, sem Össur Skarphéðinsson ritar, er að fínna gagnrýni á afstöðu meirihluta þingflokks AÞ þýðubandalagsins til skip- unar rannsóknarnefndar- innar. Krafíst er opinnar rannsóknar (sem fer auð- vitað þvert á allar hefðir réttarríkja) og staðhæft aö meirihluti Alþingis og rík- isstjórnar vilji fela eitt- hvað. „Hvað óttast menn? Hvað er það sem Sjálf- stæðisflokkurinn hræðist að komi fram í dagsljós- ið?“ spyr Óssur. Menn þurfa ekki mikla skarp- skyggni til að sjá hvert þessum skeytum er í raun- inni beint. Það er meiri- hluti þingfíokks Alþýðu- bandalagsins sem þarna fær kaldar kveðjur fyrir að hafa gugnað í Hafskips- málinu og greitt atkvæði með rannsókn sem Þjóð- viljinn telur að eigi að „sópa óhreinu mjöli undir gólfteppið". Og nú bíða menn spenntir eftir við- brögðum Ólafs Ragnars, sem haft hefur hljótt um sig undanfarna daga. Inn- anflokksátökunum f Al- þýðubandalaginu er sann- arlega ekki lokið. «>•**$» EINLEIKUK ÆKÍ4RS/TRUR Einstæðar veggmyndir eftir RAX Ijósmyndara. Um er aö ræöa 10 mismunandi myndir (50x70 cm) þar af tvær með Ijóöum eftir Matthías Johannessen skáld. Óvenjuleg og falleg jólagjöf. Myndirnar fást í eftirtöldum verslunum. Myndin, Dalshrauni 13, Hafnarfirði / Hjá Hirti, Laugavegi / Katel, Klapparstíg / Habitat, Laugavegi / Penninn, Hallarmúla / Bókhlaðan, Gtnsibæ / Vesturröst, Laugavegi (laxamynd) / JL-húsið, Hringbraut (húsgagnaverslun) / Róm, Keftavík / AB-búðin, Akureyrí / Héraðsmyndir, Egilsstöðum / Börkur, Vestmannaeyjum. L

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.