Morgunblaðið - 31.12.1985, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31.DESEMBER 1985
Léttur harm-
leikur?
Jólahátíðin að baki. Skórnir
horfnir úr gluggunum og
bjöllur jólasveinsins þagnaðar.
Börnin horfa full tilhlökkunar
fram til nýrra ævintýra; óendan-
legra afmælisboða og dótadaga.
Þeirri veislu lýkur seint. Við sem
eldri erum bíðum gluggapóstsins
og bjöllur jólasveinsins hljóma
stundum annarlega í eyrum. Sum
okkar hafa reyndar þann starfa
með höndum að líta stöðugt um
öxl og vega og meta handaverk
samborgaranna. Einkennilegur
starfi og ólíkt höfumst vér að
blessuðum börnunum er horfa
stöðugt fram til ævintýrisins
mikla. Sá er hér ritar telst víst í
hópi fortíðarspámánnanna og mun
því ei skyggnast til næstu jóla,
heldur aftur til þeirrar hátíðar er
nýliðin er, hef ég reyndar aðeins
á minni könnu þann bút hátíðar-
innar er bar fyrir augu og eyru í
hinum svokölluðu ríkisfjölmiðlum.
Ég hef raunar þegar skoðað tvö
atriði jóladagskrár ríkisfjölmið-
anna hinar Bleiku slaufur Stein-
unnar Sigurðardóttur er voru all
fimlega hnýttar hefði eigið komið
til kutinn í lokasenunni og svo
Kjarvalsmyndina er ljómaði af
smekkvísi Hrafnhildar Schram og
listfengi ljósmyndaranna en var
því miður alltof stutt þannig að
myndhugsunin náði meistara
Kjarval vart upp fyrir ökla. Hér
er náttúrulega fremur um að
kenna fjárveitingarvaldinu og ís-
lenskri þjóð en umsjónarmönnum
Kjarvalsmyndarinnar, það kostar
nefninlega peninga að hugsa stórt
á filmu. En fleira festist á mynd-
band fortíðarspámannsins en fyrr-
greindar myndir er nú tilheyra
safni sjónvarpsins „Létti fjöl-
skylduharmleikurinn" þeirra
Eddu Björgvins, Helgu Thorberg
og Gísla Rúnars Jónssonar rann
sitt skeið á fæðingarhátíð frelsar-
ans ’85. Og nú er um að gera fyrir
fortíðarspámanninn að setja sig í
spámannlegar stellingar og
skyggna „létta fjölskylduharm-
leikinn" — úr upphæðum skulum
við segja því ég hef áður vikið að
einstökum þáttum harmleiksins.
Fastir liðir...
Ég held að fyrrgreind þrenning
Edda Björgvins, Helga Thorberg
og Gísli Rúnar hafi hitt naglann
á höfuðið þá þau fundu uppá því
snjallræði að nefna þáttaröðina:
Fastir liðir „eins og venjulega". —
Léttur fjölskylduharmleikur því
svo sannarlega breyttist þáttaröð-
in frá því að vera meinfyndin
ádeila á karlrembuna í heimi hér
í — léttan fjölskylduharmleik þar
sem glasaglaumurinn ríkir og fjöl-
skylduferðrínurnar verða örlaga-
byttur slíkar er sjá má uppi og
niðri á búllum bæjarins. Þegar
hugsun þáttarstjóranna er þannig
orðin svo hressilega menguð vín-
anda að ekki gengur á öðru en
argi og gargi þá er náttúrulega
löggan kvödd á staðinn og „hreins-
að út“ eins og sagt er á fagmáli.
Til hvers að filma þau ósköp? Ég
hélt að fyllerí væru hætt að kitla
hláturtaugar íslendinga hins veg-
ar var sú hugmynd bráðsnjöll að
umhverfa hlutverkaskipaninni
þannig að kallarnir sætu í stólum
einkaritaranna eða á lærum for-
stýranna. Ef þáttarstjórarnir
hefðu haft vit á að spinna þátta-
röðina út frá fyrrgreindri grunn-
hugmynd um breytta hlutverka-
skipan kynjanna þá hefðu Fastir
liðir máski átt erindi á heims-
markað, því ekki þarf að kvarta
yfir leikurunum þeir gerðu hreint
út sagt stormandi lukku og hef ég
áður minnst á flesta þeirra nema
Ragnheiði Steindórsdóttur er
sannaði fyrir alþjóð að konur geta
orðið seðlabankastjórar ef ekki
væru kallarnir.
Ólafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP/SJÓNVARP
Aramótaskaup 1985
H Sigurður Sigur-
35 jónsson leik-
— stýrir Ára-
mótaskaupi að þessu
sinni, en höfundar þess
ásamt honum eru þeir sem
hér sjást á myndinni:
Randver Þorláksson, Örn
Árnason, Þórhallur Sig-
urðsson og Karl Ágúst
Úlfsson.
Skaupið hefst kl. 22.35 í
kvöld og er klukkutíma
langt. Aðrir leikendur eru
m.a. Edda Heiðrún Bach-
man, Guðjón Pedersen og
Tinna Gunnlaugsdóttir.
Prúðuleikararnir
■i Prúöuleikar-
2Q arnir eru á
~— dagskrá sjón-
varps í dag kl. 14.20 en þar
eru á ferð góðkunningjar
krakkanna, Kermit frosk-
ur, Svínka, Fossi björn,
Gunnsi og aðrir prúðuleik-
arar ásamt aðstoðarfólki
þeirra. Aðrir leikendur
eru: Diana Rigg, Charies
Grodin, John Cleese, Rob-
ert Morley, Peter Ustinov
og Jack Warden.
Þeir félagar Kermit og
Fossi ráða sig sem frétta-
menn á Dagblaðið og
Gunnsi sem ljósmyndari á
sama blað. Þeir þrímenn-
ingar halda til London til
að hafa hendur í hári
gimsteinaþjófa og þar
kemur gamla brýnið
Svínka þeim til hjálpar.
Svínka deyr ekki ráðalaus í þættinum í dag sem endranær.
Áramótabrenna
H Bein útsending
4Q frá áramóta-
— brennu við nýja
útvarpshúsið hefst í kvöld
kl. 21.40 og stendur fram
að áramótaskaupinu kl.
22.35.
Leikflokkurinn Svart og
sykurlaust, sóngvarar,
harmoníkuflokkur og ann-
að huldufólk skemmtir í
beinni útsendingu eftir því
sem veður og aðstæður
leyfa. Samtímis flytja
ýmsir af vinsælustu
söngvurum þjóðarinnar
þekkt áramótalög í upp-
tökusal sjónvarpsins og
verður þeim skotið inn
eftir því hvernig útsend-
ing frá brennunni gengur.
Meðal flytjenda eru
Egill Ólafsson, Kristján
Jóhannsson, Ragnhildur
Gísladóttir, Kristinn Sig-
mundsson, Sigrún Hjálm-
týsdóttir og Kristinn
Hallsson.
Kynnir á áramóta-
brennunni verður Edda
Andrésdóttir og stjórn-
andi Björn Emilsson.
ÚTVARP
ÞRIÐJUDAGUh
31. desember
Gamlársdagur
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Barnaútvarpið. Aramóta-
dagskrá í samvinnu við fé-
lagsmiðstöðina Arsel og
Valhúsaskóla.
9.45Tilkynningar. Tónleikar,
þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegtmál.
Endurtekinn þáttur frá kvöld-
inu áður sem Margrét Jóns-
dóttir flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forustugreinum
dagblaðanna.
10.40 „Ég man þá tið“.
Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liðnum
árum.
11.10 Úr atvinnulífinu — Iðnað-
arrásin.
Umsjón: Gunnar B. Hinz,
Hjörtur Hjartar og Páll Kr.
Pálsson.
11.30 Ur söguskjóðunni —
Brennur, blys og barningur.
Þáttur i umsjá Láru Agústu
Ölafsdóttur. Lesari: Jóhann-
es Sigfússon.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.30 Alfalög og íslensk þjóð-
lög.
14.00 Nýárskveðjur.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Hvað gerðist á árinu?
Fréttamenn útvarps greina
frá atburðum á erlendum og
innlendum vettvangi 1985
17.30 Hlé.
18.00 Aftansöngur ( Bústaða-
kirkju.
Prestur: Séra Ólafur Skúla-
son. Orgelleikari: Guðni Þ.
Gúðmundsson.
19.00 Fréttir.
19.25 Þjóðlagakvöld.
Einsöngvarakórinn syngur
þjóðlög með félögum I Sin-
fóniuhljómsveit islands I út-
setningu Jóns Asgeirssonar
sem stjórnar flutningnum.
20.00 Avarp forsætisráðherra.
13.50 Fréttaágrip á táknmáli
14.00 Fréttir og veður
14.20 Púður I Prúðuleikurunum
Ný brúðumynd eftir Jim
Henson. Aðalhlutverk:
Kermit froskur, Svinka, Fossi
björn, Gunnsi og aðrir prúðu-
leikarar ásamt aðstoðarfólki
þeirra. Aðrir leikendur: Diana
Rigg, Charles Grodin, John
Cleese, Robert Morley, Peter
Ustinov og Jack Warden.
Kermit og Fossi hafa gerst
fréttamenn hjá Dagblaöinu
og Gunnsi er Ijósmyndari
þeirra. Þeir halda til Lundúna
til að hafa uppi á gimsteina-
þjófum og þar kemur Svlnka
þeim til aöstoðar. Þýðandi
Þrándur Thoroddsen.
15.55 Hlé
20.00 Avarp forsætisráðherra,
Steingrlms Hermannssonar
20.20 1985 — Innlendar og
erlendar svipmyndir
Fréttamenn sjónvarpsins
heima og heiman stikla á
stóru með áhorfendum um
ýmsa viöburöi á árinu.
Steingrims Hermannssonar.
20.20 Lúðrasveit Reykjavikur
leikur.
Stjórnandi: Stefán Þ. Stef-
ánsson.
20.45 „Sel það ekki dýrara en
ég keypti" — Aramótagleði
I útvarpssal.
Arið 1985 reifað I tali og
tónum, bundnu og óbundnu
máli. Jón Hjartarson samdi
söngtexta. Gunnar Gunnars-
son leikur á pianó. Aðstand-
endur: Aðalsteinn Bergdal,
Edda Björgvinsdóttir, Hanna
Maria Karlsdóttir, Jón Hjart-
21.40 Aramótabrenna. Bein út-
sending frá áramótabrennu
á Kársnesi við Skerjafjörð I
Kópavogi. Leikflokkurinn
Svart og sykurlaust, söng-
varar, harmonlkuflokkur og
annaö huldufólk skemmtir I
beinni útsendingu eftir þvl
sem veður og aðstæður
leyfa.
Samtlmis flytja ýmsir af vin-
sælustu söngvurum þjóðar-
innar þekkt áramótalög I
upþtökusal sjónvarpsins og
verður þeim skotið inn eftir
því hvernig útsending frá
brennunni gengur.
Meðal flytjenda: Egill Ölafs-
son, Kristján Jóhannsson,
Ragnhildur Gísldóttir, Krist-
inn Sigmundsson, Sigrún
Hjálmtýsdóttir (Diddú) og
Kristinn Hallson. Kynnir á
áramótabrennunni verður
Edda Andrésdóttir. Stjórn-
andi Björn Emilsson.
22.35 Aramótaskaup 1985
Höfundar: Sigurður Sigur-
jónsson, Randver Þorláks-
son, Örn Arnason, Þórhallur
arson, Kristján Jóhannsson,
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir,
Ragnheiður Tryggvadóttir
og Soffla Jakobsdóttir.
Umsjón: Asta R. Jóhannes-
dóttir.
21.45 Þrumufleygur.
Poppaður áramótaþáttur I
umsjá Tómasar Tómasson-
ar. (Frá Akureyri.)
21.15 Veðurfregnír.
22.20 Þættir úr „Leðurblök-
unni“ eftir Johann Strauss.
Hilde Gueden, Erika Köth,
Regina Resnik, Giuseppe
Zamperi, Waldemar Kmentt,
Sigurðsson og Karl Agúst
Ulfsson. Leikarar auk þeirra:
Guðjón Pedersen, Edda
Heiðrún Backman, Tinna
Gunnlaugsdóttir og fleiri.
Leikstjóri Sigurður Sigurjóns-
son. Tónlist Ölafur Gaukur.
Upptökustjóri: Egill Eðvarðs-
son.
23.35 Kveðja frá Rlkisútvarpinu.
Umsjón: Markús Orn Ant-
onsson, útvarpsstjóri. Auk
hans koma fram i þættinum:
Sigrún Eðvaldsdóttir leikur á
fiðlu og Ingíbjörg Guðjóns-
dóttir syngur einsöng.
Flautuleikur: Bernharður
Wilkinson. Planóleikur:
David Knowles.
00.10 Aramótaball
Bein útsendirtg frá árarhóta-
balli i sjónvarpssal. Stuð-
menn halda uppi fjöri fram
eftir nóttu. Ömar Ragnars-
son og fleiri taka á móti
gestum og kynna ýmsar
uppákomur. Stjórn útsend-
ingar: Viðar Vlkingsson.
Dagskrárlok um klukkan tvö
eftir miðnætti.
Walter Berry, Eberhard
Wáchter, Renata Tebaldi,
Birgit Nilsson, Jussi Björling,
Leontyne Price og fleiri
syngja með kór rlkisóper-
unnar og Fllharmoníusveit-
inni I Vlnarborg. Herbert von
Karajan stjórnar.
23.30 „Brennið þið vitar"
Karlakórinn Fóstbræður og
Sinfóniuhljómsveit Islands
flytja lag Páls isólfssonar.
Róbert A. Ottósson stjórnar.
(Ursafni útvarþsins.)
23.40 Aramótakveðja rlkisút-
varpsins.
00.10 .....spörum ei vorn
skó.“
Söngvar og dansar af ýms-
um toga.
02.00 Dagskrárlok.
Um kl. 02.00 hefst áramóta-
útvarp a rás 2 og stendur til
kl. 05.00.
10.00—10.30 Ekki á morgun
... heldur hinn.
Dagskrá fyrir yngstu hlust-
endurna frá barna- og ungl-
ingadeild útvarpsins.
Stjórnendur: Kolbrún Hall-
dórsdóttir og Valdls Óskars-
dóttir.
10.30—12.00 Morgunþáttúr.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
Þriggja mlnútna fréttir sagð-
arklukkan 11.00.
Hlé.
24.20—05.00 Aramótaútvarp
Stjórnendur: Asgeir Tómas-
son og Gunnlaugur Helga-
son.
og ræða við ýmsa sem koma
þar viðsögu.
SJÓNVARP
ÞRIÐJUDAGUR
31. desember
Gamlársdagur