Morgunblaðið - 31.12.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR31.DESEMBER 1985
31
Jóhannes, faðir Ingva, lést 28.
desember 1974. Eftir lifa Hulda,
Þuríður, Ragnar og móðir hans,
frú Jóna, sem er á áttugasta og
fimmta aldursári.
Föstudaginn 19. september árið
1980 varð Ingvi fyrir miklu áfalli,
er hans elskulega eiginkona, Sig-
ríður Jóna Guðmundsdóttir, lést
eftir stutta sjúkrahúslegu, aðeins
51 árs.
Ég get ekki látið hjá líða að
minnast þessarar elskulegu vin-
konu og margra ára vinnufélaga,
um leið og ég minnist með fátæk-
legum orðum Ingva vinar míns.
Það var erfitt að trúa því að hún
Sigga væri horfin hér á þessu
jarðríki fyrir fullt og allt. Nú, það
gat ekki verið, þessi góði og létti
vinnufélagi, þannig hugsuðu allir
vinnufélagar hennar einnig, því
enn minnumst við Siggu.
Hvers vegna hún? Hún sem var
svo hress og kát, sem endranær,
er hún kvaddi okkur að kvöldi
dags, föstudaginn 5. september
1980, og óskaði okkur góðrar helg-
ar.
Fáum manneskjum hefi ég
kynnst, sem vildi lifa lífinu eins
lifandi og njóta þeirra tækifæra
sem henni buðust. Það var hrein
unun að skemmta sér með Siggu,
sem þó var alltof sjaldan, því hún
var hrókur alls fagnaðar — alltaf
jafn kát og jákvæð, enda félags-
lynd kona og starfaði ötullega að
öllu því er hún tók sér fyrir hendur
og þá sérstaklega er snertir kirkju-
starfið, enda trúuð kona. Hún var
vel gerð kona, aldrei heyrði ég
hana tala illa um neinn, illmælgi
var henni víðsfjarri. Ef eitthvað
var sem milli bar, reyndi hún
ávallt að slá því frekar upp í góð-
látlegtgrín.
Sigga var með eindæmum barn-
góð kona og hafði mikla ánægju
af að umgangast og vera með
börnum og ungu fólki, enda vina-
mörg í þeim aldursflokki. Mér er
það sérstaklega minnisstætt er
útför hennar fór fram, hve stór
hópur ungmenna var við útför
hennar og fylgdu henni síðasta
| spölinn, föstudaginn 26. september
1980.
Mig langar að geta þess hér að
lokum að þær voru ófáar ferðirnar
sem sonur okkar fór niður á Hring-
braut 34 til Siggu á sínum yngri
árum og var stundum tímunum
saman hjá henni að setja saman
púsluspil og sótti mikið til þeirra
góðu hjóna.
Ég var ekki gamall er ég kynnt-
ist Ingva, því að elsti bróðir minn
og hann voru góðir vinir og voru
þó nokkuð mikið saman á yngri
árum.
Ingvi starfaði við leigubifreiða-
akstur og hefur starfað við það í
fjölda ára. Hann var mikið snyrti-
menni í klæðaburði, svo að af bar,
einnig voru bifreiðirnar sem hann
átti og ók alltaf tandurhreinar að
utan sem innan. Ingvi vann með
föður sínum við bakstur í nokkur
ár, en Jóhannes, faðir hans, sá um
rekstur Alþýðubrauðgerðarinnar í
Hafnarfirði. Einnig stundaði hann
sjóinn um tíma á sínum yngri
árum. Ingvi var frekar fámáll
maður og ekki allra, en því traust-
ari sínum vinum og vandamönn-
um. Það væri margt hægt að segja
um Ingva, en ég veit að hann hefði
ekki kært sig um neinar lofgreinar,
því hann var kyrrlátur og hógvær
maður.
Ingvi var árrisull maður, enda
brást það sjaldan ef vantaði bíl
snemma dags, þá var hann alltaf
tilbúinn til aksturs hvert á land
sem var, hvort heldur klukkan var
6 eða 7 að morgni. Yfirleitt ók
hann ekki seint að kvöldi. Eftir-
tektarverðustu eiginleikar Ingva,
sem og eiginkonu hans sálugu,
voru greiðasemi og ljúfmennska.
Það eru því engar ýkjur þótt ég
segi, að ég varð þess aldrei var að
hann træði illsakir við nokkurn
mann.
Nú eru þáttaskil, horfinn er
traustur, ástríkur faðir, sonur,
bróðir, afi, tengdafaðir, samferða-
maðurog vinur.
Jóna mín, Tómas, Ingvi Týr og
aðrir ættingjar sem eftir standið,
megi það verða ykkur huggun kær
að eiga minningu um góðan hóg-
væran dreng.
Valur Asmundsson
+ Konan mm, SIGRÍDUR TÓMASDÓTTIR, Digranesvegi 92, Kópavogi, andaðist þann 28. desember. Fyrir hönd aöstandenda, Jón Agnarsson. + Móöir mín og tengdamóðir, ANNA M. BERNHÖFT, lést 25. desember. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 2. janúar kl. 13.30. Lilja Bernhöft, Siguröur Baldursson.
t Móöir okkar og tengdamóðir, GRÓA MARÍA ODDSDÓTTIR, fyrrum húsfreyja á Þóroddsstöðum, Hrútafirði, andaöist á Hjúkrunarheimilinu Droplaugarstööum 29. desember. Börn og tengdabörn. + Móóir okkar og tengdamóöir, GUÐNÝ GUOMUNDSDÓTTIR, andaöist í Sólvangi Hafnarfiröi á jóladag. Guömundur Kristjénsson, Hansína Krístleifsdóttir, Þorgeröur Kristjónsdóttir, Agnar Gunnlaugsson, Guölaug Alda Krístjónsdóttir, Klara Helgadóttir.
+ Móöir okkar, STEINUNN Þ. GUDMUNDSDÓTTIR rithöfundur, Arahólum 2, andaöist 28. desember í Landakotsspítala. Fyrir hönd aöstand- enda, Helgi Guöjónsson, Valsteinn Guöjónsson.
+ MAGNÚS SIGURÐSSON bóndi, Lítlu-Giljó, lést á heimili sínu 26. desember. Fyrir hönd systkina Hafsteinn Sigurösson.
22. MARS TIL31.MARS
10 daga ferð, aðeins 3 vinnudagar.
Dagflug. Flogið er til Zurich í Sviss. Þaðan
er um 1 klst. akstur til Morschach sem er
vinalegur Iftill bær við skfðaparadísina
Stoos. Gist er á stórglæsilegu nýju íbúðar-
hóteli, AXENFELS. Þar eru öll þægindi á
einum stað. Örstutt er frá Morschach til
marara fegurstu staða Sviss og glæsilegar
versíanir eru stutt undan. STOOS er mjög
vel útbúið skíðasvæði og þar eru brekkur við
allra hæfi.
Verð Wá 31.500-
Innifalið í verði: flug, gisting, ferðir að og
frá flugvelli í Sviss, fararstjórn og hálft fæði.
26. MARS TIL 7. APRÍL
13 daga sumarauki.
Dagflug.
Beint leiguflug til Palma á Mallorka.
Gist verður á glæsilegum sérvöldum
íbúðarhótelum,Royal Playa de Palma.
Royal Torenova oa
Royal Jardin del Mar.
Páskaferð- skemmtiferð - hvíldarferð.
Sumarauki fyrir alla fjölskylduna.
Verð frá:
Innifalið í verði: 26.775~
flug, gisting, fararstjórn,
ferðir að og frá flugvelli á Mallorka.
BARNAAFSLÁTTUR
V
BARNAAFSLÁTTUR
V J
Umboö á islandi tyrir
DINERS CLUB
INTERNATIONAL
ATLANTIK FERÐ
PERSÓNULEG
ÞJÓNUSTA.
Ferðaskrifstofa Iðnaðarhúsinu Hallveigarstfg 1. Símar 28388—28580.
\