Morgunblaðið - 31.12.1985, Qupperneq 24
'24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 3I.DESEMBER 1985
Ýmsir spyrja eðlilega, hvort raunhæft sé að reikna
með lækkandi verðbólgu þegar svo umfangsmiklir kjara-
samningar standa fyrir dyrum. Aðrir spyrja hvort unnt
sé að vænta þess að samningar náist án umfangsmikilla
átaka og vinnustöðvana. Á móti má spyrja hvort nokkur
treysti sér til að færa rök fyrir því, að verkfallsátök og
verðbólgusamningar séu líklegir til að auka kaumátt og
bæta lífskjör. Það væri sannarlega of mikil bölsýni að
trúa ekki á vilja manna til þess að finna lausn á grund-
velli þess tvíþætta markmiðs, að verja kaupmátt og ná
niður verðbólgu. Sá árangur næst ekki með slagorðum
og hjaðningavígum heldur með markvissum og yfirveg-
uðum vinnubrögðum.
Atvinnuvegirnir standa
frammi fyrir nýjum aöstæöum
Sú grundvallarstefna, sem fylgt hefur verið í efnahags-
málum, að viðhalda sem stöðugustu gengi og raunávöxt-
un fjármagns, hefur haft mikil umskifti í för með sér.
Engir gera lengur út á sjálfvirkt gengisfall krónunnar
og engir fjárfesta lengur án þess að gera sér einhverja
grein fyrir því, hvaða ávöxtun hin nýja fjárfesting getur
mögulega gefið af sér.
Atvinnulífið allt hefur þurft að laga sig að þessum
nýju aðstæðum, það hefur ekki gerst þrautalaust, en sú
aðlögun er smám saman að skila árangri og á eftir að
gera það I enn ríkara mæli. Atvinnugreinarnar eru á
hinn bóginn misjafnlega í stakk búnar til þess að mæta
nýjum viðhorfum og nýjum aðstæðum.
Tekjur sjávarútvegsins eru til að mynda alfarið háðar
erlendum mörkuðum og gengi íslensku krónunnar. Á
þessu ári hefur framleiðslukostnaður hér innanlands
aukist verulega umfram það, sem afurðirnar gefa af sér
á erlendum mörkuðum. Pall Bandaríkjadals á síðari
hluta þessa árs ræður miklu þar um. Gengisfelling kemur
sjávarútveginum að litlu haldi, nema hún feli í sér
raunverulega tilfærslu fjármuna ínnanlands, sem varla
getur gerst án kaupmáttarskerðingar. Fyrir þá sök hafa
engar grundvallarbreytingar verið gerðar á gengisstefn-
unni.
Samtök þeirra, sem fiskvinnslu stunda, hafa nýlega
sett fram tillögur um margháttaðar ráðstafanir í þágu
sjávarútvegsins. Þar er m.a. lagt til, að stjórnvöld setji
á fót nefnd með þátttöku útflytjenda, til þess að kanna
hvort rétt sé eða skynsamlegt að láta markaðsaðstæður
ráða meiru um gengi krónunnar en nú.
Vandséð er, að slík skipulagsbreyting leysi allan vanda
sjávarútvegsins. En við þær erfiðu aðstæður, sem sjávar-
útvegurinn býr nú við, er útilokað annað en að þetta
mál verði kannað til hlítar, standi óskir forystumanna
í fiskvinnslu til þess. Það eru vissulega nokkur von-
brigði, að ekki skyldi hafa tekist samstaða í ríkisstjórn
um skjót viðbrögð við þessari málaleitan. En þess er að
vænta, að könnun á þessu atriði farist ekki með öllu fyrir.
Þó að brýna nauðsyn beri til að auka fjölbreytni í
islensku atvinnulifi með nýsköpun á ýmsum sviðum, sem
við höfum ekki fengist við áður, er alveg ljóst, að sjávar-
útvegurinn mun um langa framtíð vera megin uppistaða
í verðmætasköpun og gjaldeyrisöflun landsmanna.
Einskis má því láta ófreistað, svo að sjávarútvegurinn
geti lagað sig að nýjum aðstæöum og byggt aftur upp
eigin fjárstöðu sína, sem hefur rýrnað á undanförnum
árum.'
Minnka þarf ríkisrekstur
í bankakerfinu
f byrjun næsta árs bíða erfiðar og vandasamar ákvarð-
anir varðandi uppstokkun bankakerfisins. Umræður um
þau efni hafa lengi verið á döfinni. Nú er málum hins
vegar svo komið, að lengur verður ekki undan því vikist,
að taka á þessu vandasama verkefni.
Nokkrar þrætur hafa staðið um pólitísk tengsl banka-
kerfisins og setu þingamanna í bankaráöum ríkisbanka.
Það er grundvallarstefna Sjálfstæðisflokksins, að banka-
kerfið eigi ekki að vera ríkisrekið. Þær spurningar, sem
vakna í þessu sambandi, lúta því í raun og veru að því,
hvort menn eru tilbúnir til þess að hverfa frá ríkisreknu
bankakerfi. Nú er tækifærið til þess að stíga fyrsta
skrefið.
Bankanefnd undir forystu dr. Gylfa Þ. Gíslasonar
hefur bent á tvo kosti varðandi samruna banka. Annars
vegar er um að ræða sameiningu Útvegsbanka og Búnað-
arbanka og hins vegar samruna einkabanka og Útvegs-
banka í nýjum öflugum hlutafélagsbanka. Síðari kostur-
inn er tvímælalaust heppilegri, ef vilji er á annað borð
fyrir hendi hjá einkabönkum og atvinnufyrirtækjum.
Hér eru miklir hagsmunir í húfi og þess verður að gæta
að raska ekki stöðu viðskiptamanna þeirra banka, sem
í hlut eiga.
Til skamms tíma var það eins og að tala upp í vindinn
að minnast á sölu ríkisbanka. Nú nýtur það vaxandi
skilnings, sem eitt mikilvægasta verkefnið við nýsköpun
efnahagsmálanna, aö draga úr opinberum rekstri í
bankakerfinu. Aðeins með því móti verður skilið á milli
pólitíkur og bankaviðskipta. Deilur um setu þingmanna
í bankaráðum eru ekkert aðalatriði í því efni.
Sveitarstjórnarkosningar
Á vori komandi fara fram sveitarstjórnarkosningar.
Þess er að vænta að stjórnmálabarátta næstu mánaða
muni mótast af þeim. Sveitarstjórnirnar eru mikilvægur
hlekkur í stjórnkerfi landsins. Ýmsum þykir sem hægt
hafi miðað í þá veru að styrkja sjálfstæði sveitarfélag-
anna og auka fjárhagslegt sjálfsforræði þeirra. Að því er
nú stefnt að setja nýja löggjöf um sveitarstjórnarmálefni
og þess er að vænta, að nú verði tekið af nokkrum þrótti
á ýmsum þeim verkefnum, þar sem kostnaði er skipt
milli ríkis og sveitarfélaga, eins og t.a.m. skólamálum.
Þó að sveitarstjórnarmálin séu alla jafnan fyrirferðar-
minni í opinberri umræðu en ÍandsstjórnarmáHn, hafa
þau engu að síður mikið gildi, bæði fyrir einstaklinga
og fjölskyldur. Þau málefni sem sveitarstjórnirnar fjalla
um standa á margan hátt nær heimilinum en löggjafar-
málefni. Að því leyti eru sveitarstjórnarmálin nær
dagsins önn og amstri.
Við sjálfstæðismenn göngum bjartsýnir til sveitar-
stjórnarkosninga á 200 ára afmælisári Reykjavíkur.
Höfuðborgin hefur um langan aldur blómstrað undir
traustri meirihlutastjórn okkar. Davíð Oddsson, borgar-
stjóri, hefur haldið merkinu hátt á loft og nýtur mikils
trausts og víðtæks stuðnings. Forystumenn Sjálfstæðis-
flokksins í sveitarstjórnarmálum víðs vegar um land,
hafa með ábyrgu starfi, lagt grundvöll að markvissri
kosningabaráttu.
Að spinna þráð úr þrá
Meistari Þórbergur skrifaði á sínum tíma, svo sem
alkunnugt er, um lágkúru og ruglandi í meðferð íslensks
máls. Alltof mikið af stjórnmálaumræðu síðustu vikna
má heimfæra undir þær lýsingar meistarans. Skoðana-
könnun sem birtist á haustmánuðunum, leiddi í ljós að
stjórnmálamenn hafa allt að vinna í viðleitni við að
auka trúna á að ekki sé bil á milli orða og athafna. Ef
menn sæu ekki út úr því moldviðri, ruglandi og lágkúru,
sem verið hefur uppistaða og ívaf í árásum stjórnarand-
stöðunnar síðustu vikur, væri ekki óeðlilegt að mönnum
féllust hendur eða þeir beinlínis örvæntu. En þó að
ýmislegt hafi gengið úrskeiðis og farið á annan veg en
við hefðum helst kostið, komumst við ekkert áfram með
bölsýni að leiðarljósi. Svartnættisáróður stjórnarand-
stöðunnar er sannarlega ekki líklegur málefnagrundvöll-
ur fyrir sókn til bættra lífskjara.
Hætti fjöllin að sýnast blá ieggja fáir á brattann. Við
verðum að setja okkur markmið í samræmi við óskir
okkar og vonir. Þorsteinn frá Hamri kveður um óskina
í Nýjum ljóðum, sem út komu á þessu ári:
Þar spinnur hún sem köngurvofa mjóan þráð úr þrá
óravegu út og suður
og framleingir í von okkar vonir þessa heims,
líf þessa heims og útsýn mannsins augna
til fjalla sem áfram líkt og áður sýnast blá.
íslendingar eiga mörg blá fjöll. Vitaskuld þurfum við
að kunna þá vandasömu list að spinna þráð úr þrá. Við
þurfum að hefja almennar þjóðmálaumræður upp fyrir
það, sem meistari Þórbergur kallaði ruglandi og lágkúru.
Athygli þarf að beina að þeim viðfangsefnum, sem líkleg
eru til þess að skila okkur áleiðis á braut framfara. Með
ruglandi og lágkúru geta menn unnið stundar sigra í
persónulegum hjaðningavígum. Óskandi væri hins vegar,
að við gætum snúið stjórnmálaumræðum meir að þeim
grundvallaratriðum og breytingum, sem vinna þarf að
þjóðinni til farsældar. Með þeirri sannfæringu óska ég
landsmönnum öllum gæfu og farsældar á nýju ári.
Peningamarkadurinn
GENGIS-
SKRÁNING
Nr. 247 — 30. desember 1985
Kr. Kr. TolÞ
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 42,000 42,120 41,660
SLpund 60,627 60300 61361
Kan.dollari ,10,043 30,129 30,161
Donsk kr. 4,6849 4,6983 43283
Norskkr. 5,5391 53549 5,4611
Saenskkr. 53300 5,5458 5,4262
FLmark 7,7441 7,7662 7,6050
Fr. franki 53657 53816 53770
Belg. franki 0,8359 0,8383 03100
Sv.franki 20,2361 20,2939 19,9140
Holl. gyllini 15,1461 15,1893 14,5649
Y-þ. rnark 17,0662 17,1150 16,3867
ILlíra 0,02500 0,02507 0,02423
Austurr. sch. 2,4277 2,4347 23323
PorLescudo 0,2667 03674 03612
Sp. peseti 03726 0,2734 03654
Jap.yen 030889 030948 030713
Irsktpund 52317 52366 50,661
SDR (SérsL 46,1384 46,2694 453334
INNLÁNSVEXTIR:
Sparájóðsbakur.................... 22,00%
Spahsjóðtreikningar
með 3já ménaóa upptogn
Alþýðubankinn............... 25,00%
Búnaöarbankinn.............. 25,00%
Iðnaöarbankinn.............. 23,00%
Landsbankinn................ 23,00%
Samvinnubankinn............. 25,00%
Sparisjóöir................. 25,00%
Útvegsbankinn............... 23,00%
Verzlunarbankinn............ 25,00%
iimö 6 mánaöa uppsögn
Alþýöubankinn............... 30,00%
' Búnaöarbankinn............. 28,00%
lönaöarbankinn.............. 28,00%
Samvinnubankinn............. 30,00%
Sparisjóöir................. 28,00%
Útvegsbankinn............... 29,00%
Verzlunarbankinn............ 31,00%
maö 12 mánaöa uppaðgn
Alþýðubankinn............... 32,00%
Landsbankinn................ 31,00%
Útvegsbankinn............... 32,00%
Innlánsakírteini
Alþýöubankinn............... 28,00%
Sparisjóöir................. 28,00%
Verötryggöir reikningar
miöað viö lánskjaraviaitölu
meö 3ja mánaða upptögn
Alþýöubankinn................ 1,50%
Búnaöarbankinn.............. 1,00%
Iðnaöarbankinn.............. 1,00%
Landsbankinn................ 1,00%
Samvinnubankinn.............. 1,00%
Sparisjóöir.................. 1,00%
Útvegsbankinn................ 1,00%
Verzlunarbankinn............. 2,00%
meö 6 ménaða uppaðgn
Alþýöubankinn................ 3,50%
Búnaöarbankinn............... 3,50%
lönaöarbankinn............... 3,50%
Landsbankinn................. 3,50%
Samvinnubankinn.............. 3,00%
Sparisjóöir.................. 3,00%
Útvegsbankinn................ 3,00%
Verzlunarbankinn............. 3,50%
meö 18 mánaöa uppsögn:
Útvegsbankinn............... 7,00%
Ávíiana- og hlaupareikningar
Alþýöubankinn
— ávísanareikningar....... 17,00%
— hlaupareikningar......... 10,00%
Búnaöarbankinn.............. 8,00%
lönaöarbankinn.............. 8,00%
Landsbankinn................ 10,00%
Samvinnubankínn............. 8,00%
Sparisjóðir................. 10,00%
Útvegsbankinn............... 8,00%
Verzlunarbankinn............ 10,00%
Stjömureikningar I, H, III
Alþýöubankinn............... 9,00%
oaiTHBn - iwRranwi - RHan - ptisiðn
meö 3ja til 5 ménaöa bindingu
lönaðarbankinn.............. 23,00%
Landsbankinn................ 23,00%
Sparisjóöir................. 25,00%
Samvinnubankinn............. 23,00%
Utvegsbankinn............... 23,00%
Verzlunarbankinn............ 25,00%
6 ménaöa bindingu eöa lengur
Iðnaöarbankinn.............. 28,00%
Landsbankinn................ 23,00%
Sparisjóðir..................28J»%
Utvegsbankinn.............. 29,00%
Innlendir gjaldeyráreikningar
BandarikjadoHar
Alþýöubankinn................ 8,00%
Búnaöarbankinn............... 7,50%
lönaöarbankinn............... 7,00%
Landsbankinn.........-..... 7,50%
Samvinnubankinn............... 730%
Sparisjóöir.................. 8,00%
úWegsbankinn................. 7,50%
Verzlunarbankinn.............. 730%
Stertingspund
Alþýðubankinn............... 1130%
Búnaöarbankinn............. 11,00%
lönaöarbankinn............. 11,00%
Landsbankinn................ 1130%
Samvinnubankinn..............1130%
Sparisjóöir.................11,50%
Útvegsbankinn............... 1130%
Verzlunarbankinn............11,50%
Veetur-þýek mörk
Alþýðubankinn................ 430%
Búnaðarbankinn............... 435%
lönaöarbankinn.............. 4,00%
Landsbankinn................. 430%
Samvinnubankinn.............. 430%
Sparisjóðir................ 430%
Útvegsbankinn................ 430%
Verzlunarbankinn............ 5,00%
Danskar krónur
Alþýöubankinn................ 930%
Búnaöarbankinn.............. 8,00%
lönaðarbankinn.............. 8,00%
Landsbankinn................ 9,00%
Samvinnubankinn............. 9,00%
Sparisjóöir................. 9,00%
Útvegsbankinn............... 9,00%
Verzlunarbankinn........... 10,00%
ÚTLÁNSVEXTIR:
Almennir víxlar, forvextin
Landsbankinn............... 30,00%
Útvegsbankinn.............. 30,00%
Búnaöarbankinn............. 30,00%
lönaöarbankinn............. 30,00%
Verzlunarbankinn........... 30,00%
Samvinnubankinn............ 30,00%
Alþýöubankinn.............. 29,00%
Sparisjóöir................ 30,00%
Vióskiptavíxlar
Alþýðubankinn............... 3230%
Landsbankinn................ 3230%
Búnaöarbankinn............. 34,00%
Sparisjóöir................. 3230%
YHrdráttarlán at hlaupareikningum:
Landsbankinn.................3130%
Útvegsbankinn............... 3130%
Búnaöarbankinn.............. 3130%
lönaöarbankinn...............3130%
Verzlunarbankinn............ 3130%
Samvinnubankinn............. 3130%
Alþýöubankinn................3130%
Sparisjóöir................. 3130%
Endurseljanleg lén
fyrir innlendan markaö............ 2830%
lén i SDft vegna útfl.framl........ 930%
Bandaríkjadollar....-........ 930%
Sterlingspund.............. 12,75%
Vestur-þýsk mðrk............. 835%
CbitUeKrÁI almanrv
oKuioðDrBi, aimonn.
Landsbankinn................. 3230%
Útvegsbankinn............... 32,00%
Búnaöarbankinn.............. 32,00%
lönaöarbankinn.............. 32,00%
Verzlunarbankinn.............. 323%
Samvinnubankinn............. 32,00%
Alþýöubankinn............... 32,00%
Sparisjóöir................. 32,00%
Viöskiptaskuldabréf:
Landsbankinn................ 33,00%
Búnaðarbankinn............. 35,00%
Sparisjóöirnir.............. 35,00%
Verötryggö lén mióað viö
lénskjaravísitölu
íalltað2%ár............................ 4%
Ienguren2%ái'........................ 5%
Vanskilavextir........................ 45%
Óverðtryggð skuldabréf
útgefinfyrir 11.08/84 ............. 32,00%
Lífeyrissjóðslán:
Lífeyrissjóöur starfsmanna ríkis-
ins:
Lánsupphaeö er nú 400 þúsund krón-
ur og er lániö vísitölubundið meö
lánskjaravísitöiu, en ársvextir eru 5%.
Lánstími er allt aö 25 ár, en getur
veriö skemmri, óski lántakandi þess,
og eins ef eign sú, sem veö er í er
lítilfjörleg, þá getur sjóöurinn stytt
lánstímann.
Greiðandi sjóösfélagar geta sótt
um lán úr lífeyrissjóönum ef þeir hafa
greitt iögjöld til sjóösins í tvö ár,
miöaö viö fullt starf. Biötími eftir láni
er sex mánuöir frá því umsókn berst
sjóönum.
Lífeyrissjóöur verzlunarmanna:
Lánsupphaeö er nú, eftir 3ja ára aðild
aö lífeyrissjóðnum, 216.000 krónur,
en fyrir hvern ársfjóröung umfram 3
ár bætast viö lániö 18.000 krónur,
unz sjóösfélagi hefur náö 5 ára aðild
aö sjóönum. A tímabilinu frá 5 til 10
ára sjóösaöild bætast viö höfuöstól
leyfilegar lánsupphæöar 9.000 krón-
ur á hverjum ársfjóröungi, en eftir
10 ára sjóösaöild er lánsupphæöin
orðin 540.000 krónur. Eftir 10 ára
aðild bætast viö 4.500 krónur fyrir
hvern ársfjóröung sem líöur. Því er í
raun ekkert hámarkslán í sjóönum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
lánskjaravisitölu, en lánsupphæöin
ber nú 5% ársvexti. Lánstíminn er
10 til 32 ár aö vali lántakanda.
Þá lánar sjóöurinn meö skilyröum
sérstök lán til þeirra, sem eru eignast
sína fyrstu fasteign og hafa greitt til
sjóösins samfellt í 5 ár, kr. 590.000
til 37 ára.
Lánskjaravísitala fyrir desember
1985 er 1337 stig en var fyrir nóv-
ember 1301 stig. Hækkun milli mán-
aöanna er 2,76%. Miöaö er viö vísi-
töluna 100 í júní 1979.
Byggingavísitala fyrir október til
desember 1985 er 229 stig, og er
þá miðaö viö 100 í janúar 1983.
Handhafaakuldabróf í fasteigna-
viöskiptum. Algengustu ársvextir eru
nú 18—20%.
óverðtr. verðtr. Verðtryog. færslur vaxta
Óbundiðfé kjðr kjör tímabil vaxtaééri
Landsbanki, Kjörbók: 1) Útvegsbanki, Abót: 7-36,0 1,0 3mán. 1
22-34,6 1.0 1 mán. 1
Búnaöarb., Sparib: 1) 7-36,0 1,0 3mán. 1
Verztunarb., Kaskóreikn: 22-31,0 3,5 3mán. 4
Samvinnub., Hávaxtareikn: 22-31,6 1-3,0 3mán. 2
Alþýöub., Sérvaxtabók: 27-33,0 4
Sparisjóöir, Trompreikn: 32,0 3,0 1mán. 2
Iðnaðarbankinn: 2) Bundiðfé: 28,0 3,5 1mán. 2
Búnaöarb., 18 mán. reikn: 39,0 3,5 6mán. 2
1) Vaxtaleiörétting (úttektargjald) er 1,7% hjá Landsbanka og Búnaöarbanka.
2) Tvær úttektir heimilaöar á hverju sex mánaöa tímabili án, þes aö vextir lækki.