Morgunblaðið - 31.12.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR31.DESEMBER 1985
kvóti næsta árs verið minnkaður
um 10.000 lestir.
Afkoma fiskveiðanna hefur
batnað á árinu, þótt hún sé enn
ekki viðunandi, því enn er um halla
að ræða á meðalútgerð.
Útgerð loðnuskipa hefur batnað
verulega vegna aukins afla, en
verðlag á loðnuafurðum er hins
vegar lágt og með því lægsta sem
það hefur verið.
Rekstur þeirra skipa sem frysta
aflann um borð hefur gengið vei
og er fyrirsjáanlegt að um ein-
hverja aukningu verður að ræða á
þeim skipum.
Sala á ferskum fiski hefur aukist
verulega bæði úr fiskiskipum svo
ogúrgámum.
Alls voru seldar um 62 þús. lestir
af ferskum fiski á árinu, sem skipt-
ist þannig, að úr fiskiskipum voru
seldar 35 þús. lestir og 27 þús.
lestir úr gámum, en á árinu 1984
var þetta þannig að alls voru seld-
ar tæpar 47 þúis. lestir þar af 13
þús. lestir úr gámum. Alls var
seldur ferskur fiskur fyrir 2.430
milljónir króna sem er tvöfalt
hærri upphæð en árið á undan.
Meðalverð var nú um 40 kr. fyrir
hvert kíló en var 26 kr. árið 1984.
Þessi aukna sala á ferskum fiski
hefur átt þátt í að bæta afkomu
útgerðarinnar. í þessu efni er ekki
á vísan að róa, því verð á ferskum
fiski hefur álvallt sveiflast eftir
framboði og eftirspurn og skiptir
miklu máli að við takmörkum
framboðið til þess að fá æskiiegt
verð.
Afkoma fiskvinnslunnar var góð
fyrrihluta árs en versnaði stöðugt
eftir því sem á árið leið. Stafaði
það af kostnaðarhækkunum inn-
anlands og lækkun á gengi dollar-
ans m.v. aðra gjaldmiðla.
Vegna takmarkaðs framboðs af
fiski bendir ýmislegt til að fiskverð
fari hækkandi á erlendum mörkuð-
um á næstunni. Á þetta bæði við
um saltfisk og frystan fisk. Hins-
vegar eru áframhaldandi erfið-
leikar með sölu á þeirri skreið, sem
til er í landinu, og veldur það eig-
endum hennar verulegum erfið-
leikum.
Víðtæk samstaða hefur tekist
um stjórnun fiskveiðanna fyrir
næstu tvö ár. Ég er þess fullviss
að þeir erfiðleikar sem orðið hafa
undanfarin tvö ár hjá þeim, sem
hafa talið kvótakerfið sér íþyngj-
andi, muni finna betri lausn á
sínum vanda á næsta ári.
Vonandi mun okkur takast að
byggja upp fiskistofnana á þann
veg, að við getum ávallt átt vísan
fisk í sjónum og þeim muni fækka
sem telja sjálfsagt að ausa fiski á
land ef einhversstaðar verður vart
við mikla fiskigöngu.
Mikils er um vert að kröfum
verði stillt í hóf gagnvart atvinnu-
rekstrinum og sjávarútvegurinn
fái notið aukins afla til þess að
bæta þá neikvæðu rekstrarstöðu
sem hann hefur búið við undan-
farin ár. Fái hann það, er þess
stutt að bíða, að hann geti bætt
afkomu þjóðarinnar.
Ingvi Tryggvason,
formaður Stétta-
sambands bænda:
Breytinga-
skeið
landbúnaðar
Mjög skortir á að fyrir liggi á
þessum tíma fullnaðarupplýsingar
um framleiðsiu og afkomumál
landbúnaðarins á árinu 1985. Það
sem hér verður sagt ber því að
taka með nokkrum fyrirvara.
Árferði var gott um sunnan- og
vestanvert landið, en sumarið kalt
og óþurrkasamt um norðan- og
norðaustanvert landið. Heyskapur
varð mikill og góður á Suður- og
Vesturlandi, en rýr norðaustan-
lands. Árferðið speglaðist í afurða-
semi búpenings, mikil aukning
mjólkurframleiðslu í þeim lands-
hlutum, sem bjuggu við gott tiðar-
far, en lítil aukning eða jafnvel
samdráttur þar sem tíðarfar var
illt. Svipað er að segja um væn-
leika dilka og uppskeru garð-
ávaxta.
Umræða um landbúnaðarmál
bæði meðal bænda og annarra
mótaðist verulega af undirbúningi
og setningu nýrrar löggjafar um
framleiðslu, verðiagningu og sölu
á búvörum. Allmiklar deilur urðu
um vinnubrögð við undirbúning
löggjafarinnar og sitt sýndist
hverjum um ýmis atriði hennar.
Ekki er enn komin nema takmörk-
uð reynsla á framkvæmd hinnar
nýju löggjafar, en ljóst er, að að-
lögun að nýjum lögum og ýmis
undirbúningur að framkvæmd
þeirra tekur lengri tíma en ætlað
var.
Á síðastliðnu sumri fóru fram
samningar milli Stéttarsambands
bænda og ríkisvaldsins um magn
þeirra sauðfjárafurða og mjólkur,
sem ábyrgst verður fullt verð fyrir
verðlagsárin 1985/86 og 1986/87.
Samið var um fullt verð til bænda
fyrir 107 milljónir lítra af mjólk
og 12.150 tonn af kindakjöti fyrra
tímabilið og 106 milljónir lítra af
mjólk og 11.800 tonn af kindakjöti
síðara tímabilið. Ákveðið er að
samningar fyrir verðlagsárið
1987/88 fari fram á næsta sumri.
Samkvæmt hinum nýju fram-
leiðslulögum ber að tryggja fram-
leiðendum fulla greiðslu fyrir
afurðir eftir ákveðnu skipulagi,
enda sé afurðamagnið innan þess
ramma, sem samningar marka.
Mjólk skal vera greidd að fullu
hinn 10. næsta mánaðar eftir inn-
leggsmánuð og haustinnlegg slát-
urafurða sauðfjár fyrir 15. desem-
ber. Auk hinna hefðbundnu af-
urðalána, sem viðskiptabankarnir
lána nú, hefur ríkissjóður lagt
fram fjármuni til að mögulegt sé
að standa við þessi greiðsluákvæði
laganna.
Á undanförnum mánuðum hefur
verið unnið að því að skipta milli
héraða og framleiðenda því fram-
leiðslumagni sem búvörusamning-
arnir tryggja fullt verð fyrir. Þetta
verk er mjög viðkvæmt og vanda-
samt og hefur sóst seint. Land-
búnaðarráðherra tekur loka-
ákvörðun um skiptingu landsins í
búmarkssvæði — héraðabúmörk
— og skiptingu framleiðslunnar
milli svæða. Ákvörðun um þessa
skiptingu mun verða birt strax
eftir áramót ásamt skiptingu
framleiðslunnar milli einstakra
bænda á yfirstandandi verðlags-
ári. Sú skipting verður ekki endan-
leg gagnvart mjólkinni og þarfnast
m.a. endurskoðunar búnaðarsam-
bandanna á hinum ýmsu búmarks-
svæðum.
Mjög er bagalegt, hversu seint
hefur gengið að komast að endan-
legum niðurstöðum um fram-
leiðsluskiptingu yfirstandandi
verðlagsárs. Sérstök nefnd kjörin
af Framleiðsluráði hefur unnið að
þessu verkefni. Nefndin hefur
unnið mikið og gott starf, en sá
vandi sem við er að glíma er stærri
en svo, að hann verði leystur með
fáum pennastrikum.
Verðlag
Með nýjum framleiðslulögum á
síðasta vori breyttist allmikið
skipulag verðlagsákvarðana land-
búnaðarvara. Áður hafði sex-
mannanefnd verðlagt afurðir
sauðfjár, nautgripa, hrossa og að
nokkru leyti garðávexti bæði í
heildsölu og að meira eða minna
leyti í smásölu. Sú nýja sexmanna-
nefnd, sem nú starfar, á einungis
að ákveða verð til framleiðenda,
ný nefnd skipuð fimm mönnum
ákveður vinnslu og heildsölukostn-
að og smásöluverðlagning heyrir
undir Verðlagsstofnun með svip-
uðum hætti og aðrar matvörur.
Sexmannanefnd gaf smásölu-
verð kjötvara að miklu leyti frjálst
í mars 1984. Samkvæmt verðkönn-
unum hefur smásöluálagning
hækkað verulega síðan, enda
álagningin áður lág.
Frá 1. desember 1984 til jafn-
lengdar þessa árs hefur verð sauð-
fjár- og nautgripaafurða hækkað
til bænda um 28,6%. Er þetta
nokkru minni hækkun en almenn-
um verðlagshækkunum nemur á
þessu tímabili. Vinnslu- og heild-
sölukostnaður búvara hefur hækk-
að nokkru meira eða í kringum
32%. Svo sem jafnan áður er þessi
hækkun mjög í samræmi við al-
menna verðlagsþróun í landinu.
Komið er nú að söfnun upplýsinga
um framleiðslukostnað landbún-
aðarvara og afkomu bænda. Hag-
stofa íslands annast þessa upplýs-
ingaöflun og er til þess ætlast að
hún verði grunnur að gerð nýs
verðlagsgrundvallar á næsta ári.
Hlutfallslega hefur enn dregið
úr áhrifum niðurgreiðslna á verð
sauðfjár- og mjólkurafurða.
Breyttar neysluvenjur valda því,
að enn hefur heildarneysla mjólk-
urvara og kindakjöts dregist nokk-
uð saman. Talið er, að íslendingar
neyti svipaðs magns af kindakjöti
og t.d. Hollendingar af svínakjöti.
Mjólkurneysla okkar er mikil. Eitt
af markmiðum hinna nýju fram-
leiðslulaga er „að innlend aðföng
nýtist sem m'est við framleiðslu
búvara, bæði með hliðsjón af fram-
leiðsluöryggi og atvinnu". Ástæða
er að ætla að þessi lagaákvæði
styrki hinar hefðbundnu búgrein-
ar í landinu og gæði mjólkur- og
sauðfjárafurða okkar verði áfram
vel metin af islenskum neytendum.
Framleiðsla
Mjólkurframleiðsla jókst mikið
á síðari hluta ársins. Gera má ráð
fyrir að mjólkurframleiðslan verði
nálægt 115 milljónum lítra sem er
um 6% aukning frá síðasta ári.
Frá 1. september hefur aukningin
verið mjög mikil. Því er ljóst að
mikill samdráttur hlýtur að verða
í mjólkurframleiðslu það sem eftir
er verðlagsársins, ef ekki eiga að
hlaðast upp verðlausar birgðir.
Slátrun sauðfjár varð heldur
minni en á síðasta ári, eða um
12.200 tonn á móti 12.240 tonnum
1984. Meira er slátrað af fullorðnu
fé en í fyrra og bendir það til
fækkunar stofnsins. Ásetnings-
skýrslur eru að miklu leyti ókomn-
ar og því lítið vitað um ásetning.
Meðalfallþungi dilka var nokkru
lægri en í fyrra eða 14,25 kg á móti
14,65 kg 1984.
Framleiðsla nautgripakjöts er
svipuð og á árinu 1984, en endan-
legar tölur vantar. Nokkur aukn-
ing virðist hafa orðið í framleiðslu
svínakjöts, allmikil aukning í
framleiðslu fuglakjöts, en heildar-
skýrslur eru ekki fyrir hendi um
þessa framleiðslu né heldur fram-
leiðslu eggja og hrossakjöts. Upp-
skera garðávaxta varð allgóð um
sunnanvert landið en lakari
nyrðra. Horfur eru á að inn þurfi
að flytja nokkurt magn af kartöfl-
um. Uppskera í gróðurhúsum var
svipuð og undanfarin ár og úti-
ræktað grænmeti spratt vel syðra.
Loðdýrarækt fer ört vaxandi og
er útflutningur loðskinna nú að
verða umtalsverður. Þótt loðdýra-
búskapur virðist geta komið örar
til atvinnuaukningar í sveitum en
flestar aðrar atvinnugreinar, eru
byrjunarörðugleikar ýmsir og at-
vinnugreinin vandasöm. Loð-
skinnaframleiðsla, fiskirækt og
ferðamannaþjónusta eru nýjar
atvinnugreinar í íslenskum land-
búnaði, sem geta orðið mikilvægar
frá þjóðhagslegu sjónarmiði og
eiga vonandi eftir að styrkja byggð
og afkomu í sveitum landsins.
Lokaorö
íslenskur Iandbúnaður gengur
nú í gegn um mikið breytingaskeið.
Útflutningur mjólkur- og kjötvara
er mjög erfiður, enda mikil of-
framleiðsla á þessum vörum í
hinum vestræna heimi. Innan-
_________________33
landsmarkaðurinn er að vísu mjög
góður miðað við fjólksfjölda en er
þó ekki í neinu sarpræmi við þá
framleiðslumöguleika, sem eru í
matvælaframleiðslu hér. Flestir
bændur hafa því haldið að sér
höndum og engan veginn nýtt til
fullnustu framleiðslumöguleika
búa sinna. Fjármagnskostnaður
hefur aukist gífurlega á undan-
förnum árum og verðlag varanna
engan veginn hækkað til samræm-
is við þann kostnaðarauka. Fjöl-
margir bændur, einkum þeir yngri
eiga því í miklum fjárhagslegum
örðugleikum vegna skulda sem
þeir hafa stofnað til í góðri trú en
atvinnureksturinn stendur engan
veginn undir. Nýir tekjustofnar
eru því landbúnaðinum algjör
nauðsyn. Hverskonar aðgerðir til
að lækka framleiðsiuskostnað svo
sem lenging lána, sparnaður í
aðföngum og lækkun vinnslu-
kostnaðar geta gert hvort tveggja
í senn að auka sölu og bæta afkomu
bóndans. Slíkt er brýn nauðsyn en
nægir þó ekki til að viðhalda eg
efla byggð í sveitum landsins nema
nýir atvinnuvegir komi til. Til þess
þarf hugkvæmni og áræði, eigin-
leika sem enn þarf að efla með
íslenskri bændastétt.
Kristján
Thorlacius,
formaður BSRB:
Órofa
samstaða
launafólks
Á árinu, sem er að líða, hefur
launafólk búið við launakjör sem
samið hefur verið um þrisvar á
tímabilinu frá 1. nóvember 1984
til desemberloka 1985. Þetta er
reynsla sem hægt er að læra af.
Eftir mánaðar verkfall BSRB
Reykvíkingar
Versliðvid
vana menn
Rugeldamarkaðir:
Skátabúöin, Snorrabraut 60
Fordhúsið, Skeifunni 17
Seglagerðin Ægir, Grandagarði
Alaska, Breiðholti
Við Miklagarð
Við Vörumarkaðinn, Eiðistorgi
Volvosalurinn v. Suðurlandsbraut
Á Lækjartorgi.
Hjálparsveit skáta
Reykjavík