Morgunblaðið - 05.01.1986, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR1986
Dæmigert aimúgahús í Ghana.
í haust snéru heim til
íslands tveir íslenskir
kennarar, sem verið
höfðu við kennslustörf
í Ghana í eitt ár. Haust-
ið 1982 kom fram
beiðni um aðstoð Evr-
ópulanda frá AFS í
Ghana. Skýrði fulltrúi
þaðan frá að mikil
óstjórn hefði verið í
landinu, fólksflótti,
matvælaskortur og
mikill skortur á kennur-
um sem ásamt öðrum
hefðu flúið land svo
tugþúsundum skipti.
Óskað var eftir því að
Evrópulöndin sendu
kennara til starfa í
Ghana. AFS á íslandi -
alþjóðleg fræðsla og
samskipti - auglýsti í
febrúar - mars 1984
eftir kennurum til að
fara til Ghana. Mennta-
málaráðuneytið og Þró-
unarsamvinnustofnun
íslands styrktu þetta
verkefni en AFS sá um
alla framkvæmd. Það
er yfirlýst stefna stjórn-
valda að styðja samtök
sem beita sér fyrir þró-
unaraðstoð.
tjarna Afríku
hefur hrapað
Milli fimmtán og tuttugu manns
sóttu um að starfa sem kennarar
í Ghana í eitt ár. Auglýst var eftir
einhleypu fólki eða barnlausum
hjónum til að kenna raungreinar.
Valdir voru tveir kennarar úr
hópnum, þeir Gottskálk Friðgeirs-
son líffræðikennari við Mennta-
skólann í Reykjavík og Daníel
Hansen kennari í Reykholtsskóla
í Biskupstungum.
Fyrst voru þeir félagar undir-
búnir á ýmsan hátt undir starfið
hér á Iandi, t.d. með því að ræða
við Jón H. Jónsson trúboða og Rut
Bergsteinsdóttur sem verið hafa í
Ghana, svo og hjúkrunarfræðinga
sem þar hafa dvalið, einnig voru
þeir félagar fræddir rækilega um
ástand mála í þriðja heiminum,
sérlega í Ghana.
Árin 1982 til 1983 var uppskeru-
brestur í Ghana vegna þurrka og
í kjölfar þess fylgdi hungursneyð.
Sífelldar byltingar hafa verið í
Ghana síðustu árin og stjórn-
málaástand þar mjög ótryggt.
Flýði fólk landið unnvörpum af
þeim sökum. Jerry John Rawlings
flugliðsforingi gerði byltingu í
Ghana árið 1978 og kom á kosinni
stjórn í landinu, líkaði síðan
frammistaða hennar illa og gerði
Rætt við
Gottskálk
Friðgeirsson
og Daniel
Hansen kénn-
ara um veru
þeirra í Ghana
F.v. Daníel Hansen og Gottskálk
Friðgeirsson.