Morgunblaðið - 17.01.1986, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR17. JANÚAR 1986
13
Stjömuspámenn eða
stj ömuspekingar
„Hver er sinnar
gæfu smiður“
rfUr Gunnlano
m
i+smssMsz
'£>izrzz£rz. sÆsi-ir’jLtríiS «từ»«■•*!»«
SStUr'uu’íjC'* £i^Æl'“^íf’í'2S lT<u«tonniwyH 2»3^!-
rnr iJrSSTri rTrÍ-u, Mui^é-w.n.Hr*' i.bwUI(fft«r«U*(i 17Lr“^nL^.~o«
iz*zzttxr-. gtÆvyrcpr. £S*j™E3S ÍÍÍLSÍ.^” MTrsSrc:
jSasra
e/tír Magnús Þránd
Þórðarson
Athug’asemd við grein Gunn-
laugs Guðmundssonar í Morgun-
blaðinu 3. janúar 1986.
Það var ekki ætlun undirritaðs
að efna til ritdeilna á íslandi um
stjömuspár og stjömuspeki og
annað í þeim dúr, þegar ég sendi
frétt um það efni í desember síðast-
liðnum, sem birtist í Morgunblaðinu
20. desember. Viðbrögð Gunnlaugs
nokkurs Guðmundssonar með grein
í blaðinu nýlega munu ekki heldur
verða til Jjess að egna mig til kapp-
skrifa. Eg vil þó koma nokkmm
athugasemdum, útskýringum og
viðbótum á framfæri.
Ég hef engan sérstakan áhuga á
að koma höggi á þann flokk manna,
sem stundar þessi fræði, þó svo
mér þyki ekki mikið þeirra koma.
Ef einhveijir hafa gaman af þeim
og einhver getur gert sér pening úr
þeirri nautn, þá mega þeir það mín
vegna. Aðeins gott eitt um það að
segja og ekki mitt mál, að skipta
mér af því. Það bar hins vegar svo
við, að rannsókn, sem gerð var við
Lawrence-tilraunastofumar í Ber-
keley, varð fréttamatur hér í
Bandaríkjunum og þótti mér til-
hlýðilegt að vekja athygli á því á
Islandi. Tíðindin af rannsókninni
voru nokkuð áberandi í fjölmiðlum,
bæði blöðum, útvarpi og sjónvarpi.
Óefað var þetta ein aðalfrétt dags-
ins, þegar fréttum af morðum, rán-
um og stjómmálum sleppti.
Tilefni fréttarinnar var, að hið
fræga, brezka raunvísindatímarit,
Nature Magazine, birti niðurstöður
áðumefndrar rannsóknar. Það er í
fyrsta sinn í sögu tímaritsins, sem
fjallað er um stjömuspeki á síðum
þess. Það er vottur þess, sem ég
kalla í minni frétt, að vísindamenn
hafí gefíð lítið fyrir þessa speki.
Sá sem reynir að gera lítið úr
Nature, verður að fífli hafður.
Lawrence-tilraunastofumar í
Berkeley hafa heldur ekki slorlegt
mannorð. Þær era hluti af Berke-
ley-háskóla, en Berkeley er útborg
San Francisco. Tilraunastöðin er
nefnd eftir Emest Lawrence, sem
ásamt Oppenheimer átti hvað
stærstan þátt í tilurð atómsprengj-
unnar.
Við Lawrence í Berkeley og síðar
í útibúi þess skammt frá, í Liver-
more, hafa allar meiri háttar kjam-
orkutilraunir Bandaríkjamanna til
þessa dags farið fram og í dag era
þær vagga raunvísinda í Kalifomíu.
Auk mikillar áherzlu á kjamorku-
vísindi era jafnframt stundaðar
yfírgripsmiklar tilraunir í tölvuvís-
indum og einnig um þessar mundir
hinar athyglisverðustu rannsóknir
á orsökum sjúkdómsins Aids. Þetta
er nefnt, svo að menn skilji, að
starfsmenn við Lawrence era mjög
vandir að virðingu sinni í vísinda-
legu tilliti og láta fátt óbiynvarið
frá sér fara.
Shawn Carlson er eðlisfræðingur
við stofnunina og að sögn Nature-
tímaritsins stjómaði hann rann-
sókninni fyrir hennar hönd. Ég
ætla ekki að tíunda rannsóknina
frekar hér, enda gerði ég það af
nokkurri vandvirkni í fréttinni. Hún
mun hins vegar tíunduð í tímaritinu
„Mér er ekki kunnugt
um í hve mikilli tísku
það er að spá í stjörnur
til að ná tökum á sjálf-
um sér. Ef einhveijum
tekst það, þá ber að
fagna því.“
og þar eiga menn aðgang að smáat-
riðum.
í spjalli við Shawn Carlson tjáði
hann mér, að viðbrögð stjömuspá-
manna væra mjög á mótmælaveg,
enda vart við öðra að búast. A hinn
bóginn hefðu. niðurstöðumar ekki
verið formlega hraktar á vísinda-
vísu. Spekingar eigi næsta leik, ef
þeir telja sig ekki mát.
Gunnlaugur telur það skrifum
mínum til vansa, að ekki skuli hafa
verið nefnd nöfn þátttakenda.
Nokkur nöfn vora nefnd, en þó svo
ég hafí ekki tínt þau til, breytir það
ekki staðreyndum málsins. Gunn-
laugur dregur fram nokkur nöfn
og rit, fræðunum til stuðnings að
því er virðist. Einn þeirra er dr.
Geoffrey Dean, sem er efnafræð-
ingur og stjömuspekingur. Hann
hefur skrifað bækumar „Recent
Avances in Natai Astrology", fyrsta
og annað hefti. Dr. Dean skrifaði
Shawn Carlson bréf í kjölfar grein-
arinnar í Nature. í bréfínu segir
hann meðal annars, að hann hafí
hætt að teikna stjömukort fyrir fólk
fyrir tveimur áram því að slíkt og
þvílíkt sé skot í myrkri.
Mér var ekki kunnugt um í
hversu mikilli tízku það er að spá
í stjömur til að ná tökum á sjálfum
sér. Ef einhveijum tekst það, þá
ber að fagna því. Það hefur hver
sinn smekk í því efni. Sumir fara
til sálfræðings, aðrir út að hlaupa
og greinilega sumir í Stjömuspeki-
miðstöðina í Reykjavík. Ef stjömu-
spekingurinn telur sig vera betri
en sálfræðingurinn eða þjálfarinn,
verður hann að geta sannað það.
Læknir, sem segist lækna krabba-
mein betur en aðrir, verður að sanna
mál sitt. Shawn Carlson heldur
því fram, að niðurstöður rannsókn-
ar sinnar sýni fram á yfírgnæfandi
staðreyndir um, að stjömumar séu
lakari til mannþekkingar en önnur
meðul. Stjömuspekin sé jafnófær
um að meta, hvort tvær steingeitur
séu góðar saman í vinnu ellegar
tvær kindur séu góðar saman í flár-
húsi.
Grein Gunnlaugs er hálfgerð
hringferð. Fyrst er allt vitlaust og
svo er allt rétt. Það er kallað í
Ameríku, að kunna ekki skii á epl-
um og appelsínum. í frétt minni var
sagt frá staðreyndum um niðurstöð-
ur ákveðinnar rannsóknar. Fréttin
er ekki vísindaritgerð, og þó svo
orðalag fréttarinnar hafí farið í
taugamar á manninum, þá er það
hvorki mér né Morgunblaðinu til
vansæmdar. Ég skal hins vegar
fúslega biðja afsökunar á því, að
hafa notað orðin stjömuspámenn
og stjömuspekingar of fijálslega. í
almennri ensku er ekki gerður
greinarmunur þar á. Ensk- íslenzka
orðabókin segir, að enska nafnorðið
astrologer þýði stjömuspekingur,
stjömuspámaður. Ég notaði hvoru
tveggja þýðinguna á víxl til að
bleyta aðeins upp í skrifunum. Mér
hefði verið nær, að nota aðeins
astrólóg, fyrst að til era mismun-
andi lógar innan stéttarinnar.
Og þar með er þessum skrifum
lokið af minni hálfu.
Höfundur er búsettur í San Fran
cisco og sendir Morgunblaðinu
fréttirþaðan.
20-50%
AFSLÁTTUR
^PPVJW
Nú er tækifærið að kaupa teppið á íbúðina, á
stigaganginn, herbergið, skrifstofuna eða hvaða
gólf sem er. Greiðsluskilmálar, útborgun um
20% og eftirstöðvar á allt að 9 mánuðum.
Rýmum til fyrir nýjum tegundum og gefum
20—50% afslátt af gamla verðinu.
VERÐ FRÁ KR.: 195 pr. m2.
Missið ekki af þessu einstaka tækifæri, til að
eignast úrvals teppi á alvöru afsláttarverði.
Opiö laugardag til kl. 16.00.
%ÆbMMMmm Byggingavörur hf.
REYKJAVÍKURVEGI 64 HAFNARFIRÐI, SÍMI 53140.