Morgunblaðið - 21.01.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.01.1986, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR1986 Hitt leikhúsið: Bíðum eftir skrif- legum tilmælum — segir Páll Baldvin Baldvinsson leikstjóri „VIÐ bíðum enn eftir skrifleg- um tilmælum frá ráðuneytinu, en ég er reiðubúinn að breyta leikmyndinni um leið og ég fæ bréfleg tilmæli þess efnis,“ sagði Páll Baldvin Baldvinsson leikstjóri í samtali við Morgun- blaðið í gær. Fyrir síðustu helgi bárust leikhúsinu munnleg til- mæli frá forsætisráðuneytinu um að leikmyndinni í leikritinu Rauðhóla-Ransý yrði breytt. íslenski fáninn er stór hluti af leikmyndinni og telur ráðu- neytið að hún sé óvirðing við fánann. Páll Baldvin sagði að hann hefði talað við dómsmálaráðuneytið í gærmorgun og þá var honum gerð grein fyrir því að hann mætti eiga von á að lögregluaðgerðum ef leik- myndinni yrði ekki breytt. Hið umdeilda svið í Gamla bíói Hús ísbjarn- arins til sölu HÚS ísbjamarins á Seltjarn- arnesi er til sölu. Húsið er tvær hæðir og rishæð, samtals 4500 fm. að grunnfleti. Það er fasteignasalan Eigna- miðlun sem sér um sölu hússins fyrir Granda hf. Sverrir Krist- insson 'fasteignasali sagði í samtali við Morgunblaðið að í húsinu væri nú frystihús, neta- verkstæði, bifreiðaverkstæði o.fl. Hann sagði að húsnæðið nýttist fyrir ýmiskonar starf- semi. Fyrsta hæðin er tæpir 3000 fm., önnur hæðin um 1400 fm. og rishæðin 260 fm. Sölu- verð fasteignarinnar er um 39 milljónir. „Mér nægir ekki að fá tilmæli í gegnum síma, en ég held að ráðu- neytið veigri sér við að senda þau bréflega. Eg vil að ráðuneytið skýri afstöðu sína í málinu opinberlega, því hún er fordæmi sem áreiðanlega ' verður fylgt. Ég er reiðubúinn að breyta leikmyndinni um leið og ég fæ bréfleg tilmæli þess efnis,“ sagði Páll Baldvin Baldvinsson leikstjóri. Guðmundur Benediktsson ráðu- neytisstjóri í forsætisráðuneytinu sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að fyrir hádegi í dag yrði Páli Baldvin Baldvinssyni send bréfleg tilmæli um að breyta leikmyndinni. Hann sagði að sér skildist að málið væri leyst. Skautasvellá Tjörninni Morgu nblaðið/J úlíus. Starfsmenn íþróttavallanna unnu að því í gær að ryðja snjó af Tjöminni í Reykjavík. Ekkert ætti því að verða til fyrirstöðu að renna sér þar á skautum í dag og næstu daga ef veður verður hagstætt Landssamband lögreglumanna: Óveijandi að lögreglu- menn beri vélbyssur LANDSSAMBAND lögreglumanna telur, að ákvörðunin um að vopna lögreglumenn á Keflavikurflugvelli kalli á endurskoðun á réttarstöðu félagsmanna sinna og meiri þjálfun til að takast á við hryðjuverka- menn. Telur landssambandið ekki veijandi, að lögreglumenn beri vélbyssur meðal almennra borgara. Hafa fulltrúar þess rætt þetta mál við Jón Helgason, dómsmálaráðherra, og Geir Hallgrímssyni, utanríkisráðherra, hefur verið ritað bréf. Tómas Jónsson, formaður Lands- fyrir að hafa lent í árekstri þegar sambands lögreglumanna, sagði: „Réttarstaða lögreglumanna er slík, að ekki er veijandi að þeir beri vélbyssur innan um óbreytta borg- ara. Lögreglumenn hafa verið dæmdir til greiðslu skaðabóta fyrir mistök í starfi og er skemmst að minnast Skaftamálsins svokallaða. Við höfum vakið athygli yfírvalda á þeirri spumingu, hver sé ábyrgur ef til skotbardaga kemur og óbreyttir borgarar slasast eða týna lífi. Lögreglumenn em mannlegir og gera mistök eins og aðrir. Hver yrði réttarstaða lögreglumanns, sem ylli almennum borgara tjóni í skotbardaga? Við viljum svör fyrir- fram. Við lifum á viðsjárverðum tímum og ef til vill verður ekki hjá vopnaburði lögreglu komist. Én skýrar reglur um ábyrgð verða að liggja fyrir. Við viljum að ríkisvaldið axli nú þegar þessa ábyrgð. Réttar- staða lögreglumanna er bágborin. Lögreglumaður sætir nú ákæm hann var kallaður á vettvang vegna hjartatilfellis. Hann ók með rauðum Ijósum og vælandi sírenu. Þess er krafist að hann verði sviptur öku- réttindum og sæti refsingu. Eg dreg í efa að lögreglumenn séu nægilega þjálfaðir til að stand- ast hryðjuverkamönnum snúning. Það er aðeins á færi þrautþjálfaðra manna að takast á við samvisku- lausa hryðjuverkamenn. Þá veldur óánægju, að lögreglu- menn í venjulegum einkennisbún- ingum ganga vopnaðir innan um almenna borgara. Við viljum ekki breyta ímynd lögreglubúningsins. Við viljum að beri lögreglumenn á annað borð vopn, þá klæðist þeir sérstökum búningum," sagði Tómas Jonsson, formaður Landssambands lögreglumanna. ísfirðingar missa grænlenzkan spón úr aski sínum: Grænlenzku togararnir hefja löndun í Reykjavík ALLAR líkur eru nú á þvi, að viðskipti grænlenzkra rækjutog- ara á Isafirði færist að mestu til Reykjavíkur og ísfirðingar missi því af viðskiptum upp á milljónir króna árlega. Stafar þetta að mestu leyti af því, að Grænlend- ingarnir fá lægri farmgjöld á rækjunni frá Reykjavík til Dan- merkur en frá ísafirði. Gunnar Jónsson, skipamiðlari á ísafírði, sagði í samtali við Morgun- blaðið, að á síðasta ári hefðu græn- lenzku togaramir landað 1.400 til 1.500 lestum af rækju á ísafírði til áframhaldandi flutnings til Dan- merkur. Auk þess hefðu þeir keypt fjölbreytta þjónustu fyrir milljónir króna og greitt hafnargjöld og fleira. Fyrstu togaramir hefðu Prófkjör sjálfstæðismanna á Selfossi: Tveir frambjóðenda vilja ekki taka sæti á listanum þegar flutt sig til Reykjavíkur eða Hafnarfjarðar, en ekki væri útlit fyrir að öll skipin flyttu sig. Skip á vegum grænlenzku heimastjómar- innar lönduðu að öllum líkindum áfram á ísafírði, skip í eigu samtaka útgerðarmanna lönduðu syðra og óljóst væri með nokkum fjölda skipa. Islenzku skipafélögin, Eim- skip og Skipadeild Sambandsins byðu lægri farmgjöld frá Reykjavík en ísafírði og virtust með því vera að taka mikilvægan spón úr aski ísfírðinga. Þessi skipafélög væru eign allra landsmanna og því kæmi sér það spánskt fyrir sjónir, ef þau tæku hagsmuni höfuðborgarsvæð- isins fram yfír hagsmuni lands- byggðarinnar með því að bjóða lægri farmgjöld frá Reylq'avík. Réttast væri að hafa sömu gjöld frá landinu, burt séð frá því hvar á landinu það væri. Brynleifur H. Steingrímsson í fyrsta sæti Selfossi, 20. janúar. PRÓFKJÓR Sjálfstæðisflokksins á Selfossi vegna röðunar á framboðslista til bæjarstjórnarkosninganna i vor, fór fram sl. laugardag, 18. janúar. Alls tóku 577 þátt í próf- kjörinu sem var opið og ætlað stuðningsmönnum flokksins. Úrslit prófkjörsins urðu þau að Brynleifur H. Steingrímsson varð í 1. sæti með 226 atkvæði og 408 samtals. 1 2. sæti varð Bryndís Brynjólfsdóttir með 189 atkvæði og 466 samtals. Haukur Gíslason varð 3. með 250 atkvæði og 438 samtals. Guðfinna Ólafsdóttir í 4. sæti með 306 atkvæði og 414 alls. Valdimar Þorsteinsson í 5. sæti með 368 atkvæði og 423 samtals. Har- aldur B. Amgrímsson varð 6. með 371 atkvæði og 418 alls og Bjöm Gislason 7. með 397 atkvæði. Af frambjóðendum í próflq'örinu á aðeins einn sæti í núverandi bæjarstjóm, Guðfínna Ólafsdóttir, sem er ein af fjórum fulltrúum flokksins. Þegar úrslit lágu fyrir í próflq'ör- inu lýstu tveir frambjóðenda því yfír að þeir tækju ekki sæti á fram- boðslista flokksins við bæjarstjóm- arkosningamar, þau Guðfínna Ól- afsdóttir og Bjöm Gíslason. Guðfínna Ólafsdóttir sagði: „Ég var ákveðin í því, áður en próflq'örið fór fram, að ég ætlaði ekki að halda áfram ef ég færðist ekki ofar á listanum. Eg lít svo á að mér hafí verið hafnað." Bjöm Gíslason sagði: „Ég lít svo á að mér hafí verið hafnað til starfa fyrir bæjarfélagið. Mín tilfínning er sú að það hafi verið gert kerfis- bundið. Þess vegna sé ég enga ástæðu fyrir þyí að taka sæti á listanum. f bæjarstjómarkosningunum 1982 fékk Sjálfstæðisflokkurinn 677 atkvæði, 36,5% og Q'óra menn Iq'öma. 1978 fékk flokkurinn 28,1% atkvæða. Sig. Jóns 772kusuí Keflavík PRÓFKJÖRI Sjálf stæðisflokks- ins í Keflavík fyrir bæjarstjórn- arkosningarnar í vor lauk i gær. Alls kusu 772 og þar af voru 10 atkvæði ógild. Engar tölur vom komnar um úrslit próflq'örsins þeg- ar Morgunblaðið fór í prentun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.